NT - 18.05.1984, Blaðsíða 1
Fræðsluskrifstofan í Reykjavík:
■ Borgarstjórn samþykkti á
fundi sínum í gærkvöldi sam-
komulag milli borgarstjóra og
menntamálaráðuneytisins varð-
andi yfirstjórn fræðslumála í
Reykjavík.
Menntamálaráðherra, Ragn-
hildur Helgadóttir, undirritaði
samkomulagið fyrir hönd ráðu-
neytisins í fyrradag og upplýstist
það þegar nokkuð var liðið á
fundinn.
Samkvæmt samkomulaginu
verður fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur lögð niður sem
borgarskrifstofa, en í staðinn
komi skólaskrifstofa Reykja-
víkur er fari með þann hluta
fræðslumála í borginni, sem
flokkast undir sveitastjórnar-
mál.
Fræðsluskrifstofa Reykjavík-
urumdæmis fer með aðra þætti
fræðslumála.
Sigurður E. Guðmundsson,
fulltrúi Alþýðuflokksins í borg-
arstjórn, greiddi atkvæði með
meirihlutanum, en minnihlut-
inn var að öðru leyti andvígur
breytingunum.
Ekki urðu umræður um málið
langar, og vitnuðu borgarfull-
trúar til fundar borgarstjórnar
fyrir rúmu ári, þar sem þessi
mál voru til umræðu en þar
urðu harðar umræður sem stóðu
í átta tíma.
NT hafði í gærkvöldi sam-
band við fræðslustjórann í
Reykjavík, Áslaugu Brynjólfs-
dóttur. Sagði Áslaug að hún
hefði aldrei verið á móti þessari
breytingu, ef hún stæðist sam-
kvæmt lögum. „Ég vona að
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur-
umdæmis fái þau stöðugildi sem
henni ber,“ sagði Áslaug að
lokum.
sinn
■ Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra, hefur
skipað svila sinn, Þórð Örn
Sigurðsson, lektor í róm-
önskum málum með sér-
stöku tilliti til spænsku við
Háskóla íslands. Var skipun-
in tilkynnt með bréfi frá
menntamálráðuneytinu án
þess að tilmæli hefðu borist
frá heimspekideild háskól-
ans, eins og þó mun vera
venja við svona skipanir.
„Þetta er vissulega óvenju-
lektor
leg málsmeðferð af hálfu ráð-
uneytisins," sagði Svein-
björn Rafnsson, forseti
heimspekideildar háskólans,
í samtali við NT í gær. Hann
sagði að Þórður Órn hefði
verið settur kennari við
heimspekideildina um
tveggja ára skeið og setning-
in hefði ekki verið í samræmi
við óskir deildarinnar. Sér-
stök dómnefnd hefði fjallað
um hæfni Þórðar á sínum
tíma, raunar tvisvar, og í
bæði skiptin komist að þeirri
niðurstöðu að hann uppfyllti
ekki skilyrði til að gegna
stöðunni. „Hann sótti einu
sinni en fékk ekki hæfnis-
dóm. Síðan sótti hann aftur
og þá hafði eitthvað lítið
bæst við af rannsóknum og
niðurstaða nefndarinnar var
á sömu lund,“ sagði Svein-
björn.
- Hvað finnst forseta
heimspekideildar um þessa
skipun?
„Ráðuneytið er náttúru-
lega okkar yfirvald og við
verðum að hlíta skipunum
þess. Svo að það í rauninni
skiptir engu máli hvað mér
finnst. Þetta er orðinn laga-
gerningur og endanlega af-
greitt mál,“ sagði Svein-
björn.
■ Fegurðardrottning íslands fyrir árið 1984 verður krýnd með viðhöfn á skemmtistaðnum Broadway
í kvöld. í gærkveldi voru þátttakendur að undirbúa sig undir keppnina í einni líkamsræktarstöð
borgarinnar, og sjást hér sjö þeirra munda ýmis líkamsræktartæki. NT-mynd: Arni Sæberg
Arnarflug:
Gerir árs-
samning
um leigu
á Boeing
707
■ í gærkvöldi undirrit-
uðu Arnarflugsmcnn 12
mánaða samning í London
um leigu á Boeing 707
vöruflutningavél félags-
ins. „Þetta eru mjög góðar
fréttir fyrir félagið" sagði
Agnar Friðriksson í viðtali
við NT. Það er breskt
félag Westcoast Airlines
Ltd. sem tekur vélina á
leigu og hyggst nota hana
í vöruflutningum frá
Evrópu til Afríku. Fyrsta
ferðin verður á mánudag-
inn frá London til 3ja
Afríkulanda. Félagið rek-
ur fyrir 3 vélar í farþega-
flugi.
Arnarflugsmenn hafa
ekki haft fastan samning
fyrir þessa vél síðan í
febrúarlok og hefur hún
verið.í tilfallandi verkefn-
um. Hún ber 42 tonn af
vörum. Tvær áhafnir, alls
fi manns fylgja vélinni til
hins breska félags.
■ Múhameð hinn tyrkneski lét ekki kalt veður aftra
sér frá því að taka þátt í mótmælum starfsmanna
BMW verksmiðjanna í Þýskalandi í gær. Hann ásamt
átta þúsund starfsbræðra hans, voru að mótmæla
þeirri ákvörðun BMW verksmiðjanna að loka flestum
verksmiðja sinna og senda fjörutíu þúsund starfsmenn
heim, án launa. Er þetta gert vegna verkfalls í
stáliðnaði í Þýskalandi.
Stáliðnaðarmenn fóru í verkfall til að reyna að
knýja fram þrjátíu og fímm stunda vinnuviku.
Múhameð minnir óneitanlega dálítiö á Lech Walesa
hinn pÓlska. Mynd: POLFOTO
Landbúnaðarráðherra með bráðabirgðalausn í kartöflumálinu:
Veitir tímabundið sameig-
inlegt innflutningsleyfi
- til þeirra fyrirtækja sem sótt hafa um síðustu vikuna
■ Landbúnaðarráðherra er tilbúinn að veita þeim sex fyrirtækjum
sem sótt hafa um leyfi til innflutnings á kartöflum hingað tímabundið,
sameiginlegt innflutningsleyfi fyrir ákveðnu mágni, verði þess óskað,
enda verði innflutningi hagað þannig að auðvelt verði að koma eftirliti
við vegna sjúkdómavarna og fylgt verði gildandi reglum um dreifingu,
mat, verðlagningu og flokkun á hinum innfluttu afurðum.
Er hér um að ræða bráða-
birgðalausn sem ráðherra legg-
ur til þar til að nefnd sem hann
hefur skipað um þessi mál
skilar áliti sínu, en hún hefur
eindregið ráðið honum frá því
að ráðast í breytingu á núver-
andi sölukerfi, án þess að mál-
ið hafi fengið frekari um-
fjölluri.
I bréfi ráðherra til fyrr-
greindra aðila um þessi mál
segir m.a. að náist ekki sam-
staða um þessa leið vilji ráðu-
neytið stuðla að því að forða
verðmætum frá skemmdum pg
greiða fyrir að koma þeim
kartöflum. á markað, „sem
sannanlega hafa þegar verið
keyptar til landsins, án þess að
leyfa hafi áður verið aflað“.
Jafnframt er það skilyrði sett
að kartöflunum verði dreift í
samræmi við starfsreglur
Grænmetisverslunar landbún-
aðarins, þannig að ekki verði
um mismunun milli aðila í
smásöluverslun að ræða.