NT - 18.05.1984, Blaðsíða 27
Föstudagur 18. maí 1984 27
■ Jósteinn Einarsson og Ottó Guðmundsson að hreinsa frá. Vörn KR var sterk í leiknum.
NT-Mynd Ari.
Hart barist og
skemmtilegar rispur
■ Víkingar gerðu jafntefli við
KR í fyrsta leik 1. deildar í
knattspyrnu á Valbjarnar-
völlum í gærkvöld. Sumarið
heilsaði knattspyrnumönnum
vel, besta veður var og völlur-
inn í góðu standi. Staðan í
hálfleik var 1-1, og leikurinn
jafn er á heildina var iitið.
Leikurinn var baráttuleikur,
og færi ekki alltof mörg en
voru þó, og með heppni hjá
báðum liðum og lakari mrrk-
vörslu hefðu mörk getað or tið
fleiri. KR-ingar byrjuðu betur,
Ögmundur markvörður þurfti
þrisvar að verja vel á fyrstu 11
mínútum, varði m.a. tvisvar
eftir góðar rispur Ómars Ingvars-
sonar.
Síðan komu Víkingar inn í
leikinn, Andri Marteinsson var
fremstur í flokki, og maðurinn
bak við fiestar sóknarlotur. Á
18. mínútu var hætta við KR-
markið, en Andri gaf á Heimi í
hornið, Heimir fyrir, en Ottó
var sterkastur í „boxinu“ og
skallaði frá. Mínútu síðarskaut
Ómar Torfason þrumuskoti.
Stefán varði vel en hélt ekki, og
Heimir skaut yfir úr upplögðu
færi.
KR-ingar áttu næsta leik,
Sverrir Herberts komst í
gegn og skaut í þverslá svo í
buldi, og síðan kom fyrsta
markið. Ágúst Már gaf frábæra
sendingu á Ómar, og hann
skoraði með skoti af 20 metra
færi, 1-0, og 31 mínúta liðin.
Víkingar jöfnuðu á 45. mínútu,
Ámundi skaut á markiö, Stefán
■ Baráttuleikur, úrslit
sanngjörn. Víkingar léku bet-
ur saman. Tvisvar skotið í
stangir Víkingsmarks,
tvisvar skotiö framhjá opnu
marki KR.
Of mikið um háar spyrnur
fram og aftur, en góðar rispur
á milli hjá báðum. Vikingar
betri tæknilega, en KR-ingar
hvað leikkerfi varðaði. Leikur
í meðallagi, en lofar góðu.
Áhorfendur 868.
hélt ekki boltanum, sem þó var
ekki svo ýkja fastur, og Sigurð-
ur Aðalsteinsson fylgdi vel á
eftir, 1-1.
Víkingar byrjuðu síðari hálf-
leik á því að klúðra dauðafæri.
Kristinn skaut föstu skoti úr
aukaspyrnu, Stefán hélt ekki,
enÁmundi skaut framhjá fyrir
opnu marki. Eftir þetta voru fá
færi. Þó voru Víkingar heppnir
í lokin, er Sæbjörn vatt sér
skemmtilega af tveimur varnar-
mönnum Víkings, komst í gott
færi og skaut í stöng.
Leikurinn var ágæt afþrey-
ing, sérstaklega framan af. KR-
ingar léku taktvissf, vörnina
mjög vel, og sóknarmenn
þeirra eru frískir. Víkingar
iéku betur saman, en vörnin
var ekki eins sterk og KR-inga.
■ Ámundi Sigmundsson Víkingi í baráttu við Stefán Pétursson
KR Ámunda gekk fremur illa í sókninni. NT-mynd Ari.
EINKUNNAGJOF NT:
VÍKINGUR KR
Ogmundur Krlstinsson ......3
Unnsteinn Kárason .........5
Ragnar Gísiason............4
Magnús Jónsson ............3
Ólafur Ólafsson ...........S
Andri Marteinsson .........2
Kristinn Guðmundsson......4
ÓmarTorfason ..............4
Ámundi Sigmundsson........5
Sigurður Aðalsteinsson....3
Heimir karlsson ...........3
■ Skiptingar Einar Einarsson fyrir
Sigurð Aöalsteinsson 83. mín.
Bestu menn KR voru Ómar
Ingvarsson og Ottó Guð-
mundsson, sem var kóngur síns
eigin vítateigs. Andri Marteins-
son bar af Víkingum, þar er á
uppleið frábær leikmaður.
Heimir var og sterkur.
Stefán Jóhannsson ........3
Stefán Pétursson .........4
Willum Þórsson ...........5
Ottó Guðmundsson..........2
Jakob Pétursson ..........4
Gunnar Gíslason ..........4
Ágúst Már Jónsson ........5
Jósteinn Einarsson .......3
Sverrir Herbertsson......4
Sæbjörn Guðmundsson .... 4
Ómar Ingvarsson ..........2
■ Skiptingar Elias Guimundsson
fyrir Sverri Herbertsson á 73. mín.
Leikinn dæmdi Eysteinn
Guðmundsson, og gekk vel,
dæmdi örugglega. Þrír fengu
gul spjöld. Heimir og Sigurður
í Víkingi, og Jakob Þór KR-
ingur. „Þetta var rólegt,,, sagði
Eysteinn.
kynning NT
■ Næst komandi miðviku-
dag mun verða í NT fyrsti
hluti 1. deildarkynningar
blaðsins. Þar verður íslands-
mótið í knattspyrnu kynnt,
liðin og leikmenn þeirra.
Eins og sést hér á síðunni,
er íslandsmótið komið af
stað. Hver leikur fyrstu
deildar mun fá umfjöllun í
blaðinu, skrifað um hann,
leikmönnum gefnar eink-
unnir og leikurinn rakinn „í
hnotskurn". Þá mun verða
leitast við að kynna leikina
fyrirfram.
Einkunnagjöf NT verður
með nýstárlegu sniði hér-
lendis. Einkunnir verða
gefnar með heilum tölum,
frá einum niður í sex. Besta
einkunnin er 1. en sú lakasta
6. Eftir hverja umferð deild-
arinnar verður valið „lið um-
ferðarinnar“, með sama
sniði og lið vikunnar er valið .
hjá mörgum blöðum víða
um heim. Hér á íslandi er
þó ekki hægt að styðjast við
vikuna, því umferðir fyrstu
deildarinnar munu taka
skemmri tíma, og oft spilað-
ar nær tvær umferðir á einni
viku.
NT óskar knattspyrnu-
mönnum og unnendum
gleðilegs knattspyrnusum-
ars.
Leikirnir í kvöld:
Akranes-Fram
Valur-Keflavík
Sverrir Einarsson Fram:
„Ætlum að taka
3 stig heim“
■ „Þetta verður hörkuleikur
og við ætlum okkur helst að
hafa þrjú stig heim með
j okkur“, sagði fyrirliði Fram,
Sverrir Einarsson í samtali
við NT í gær. Fram leikur
viöAkranes. í kvöld á Akran-
esi, klukkan 18.00.
„Leikurinn leggst vel í mig.
Við verðum ekki undir neinni
pressu, fyrirfram er búist við
meiru af meisturunum en liði
sem er að koma upp úr 2. deild.
Ég sé ekkert því til fyrirstöðu
að við vinnum þá á góðum degi.
Þetta verður spennandi og
skemmtilegt mót. Mörg lið-
anna eru algjör spurningar-
merki, og þriggja stiga reglan
kemur til með að auka sóknar-
leiki.nn."
Viltu spá um úrslit mótsins?
Skaginn verður ofarlega, og
ég vona að við Framarar verð-
um það líka, þó við séum
spurningarmerki eins og Valur,
Þór, KA og reyndar fleiri',
sagði Sverrir Einarsson.
Sigurdur Lárusson
„Eg hef aldrei ver-
ið eins hræddur((
■ „Þessi leikur í kvöld leggst
nú ekki meira en sæmilega í
okkur Skagamenn“ sagði Sig-
urður Lárusson fyrirliði
Skagamanna í samtali við NT í
gær, en Skagamenn eiga að
lcika gegn Frömurum á Akra-
nesi kl. 18.00 í kvöld.
„Framararnir eru nýkomnir
upp og verða að sanna sig og
það er mikil pressa á okkur
Akurnesingum. Við verðum að
sanna það fyrir fólkinu hvað
við gátum í fyrra og við verðum
að ná stórleik til þess að vinna.
Ég hef aldrei verið eins
hræddur fyrir keppnistímabil
og nú, en ég held að við
verðum í einu af fjórum efstu
sætunum, þá ásamt Val, KR og
Fram.
Það er mikið álall að hafa
misst stjórnandann af miðjunni
þar sem Sigurður Jónsson er,
en við verðum að bæta við tönn
til að fylla hans skarð og leggja
meira á okkur í staðinn," sagði
Sigurður Lárusson.
Guðmundur Kjartansson
„ Við vinnum leik-
inn í kvöld 2-1.“
■ „Þessi leikur gegn ÍBK
leggst mjög vel í mig, þó með
öllum fyrirvörum" sagði Guð-
mundur Kjartansson, hinn eit-
ilharði varnarmaður Vals-
manna, en í kvöld leika Vals-
menn gegn Keflvíkingum á
Laugardalsvelli kl. 20.
„Við vinnum leikinn í kvöld
2-1, það er mín spá. Ég er
bjartsýnn á mótið , það hefur
verið jafn stígandi í leik okkar
og Reykjavíkurmótið gefur
okkur góðar vonir þótt það sé
kannski ekki mikið mark tak-
andi á því. Maður vonar að
velgengnin haldi áfram eitt-
hvað fram eftir sumri.
Ég hef trú á því að Valur,
Akranes, KR og Fram komi til
með að berjast um toppsætið,
en Þór og Keflavík um botnsæt-
ið. Hvaða lið stendur uppi sem
sigurvegari í lokin, treysti ég
mér ekki til að spá um“ sagði
Guðmundur Kjartansson.
Þorsteinn Bjarnason Keflavík:
„Valsmennirnir
verða erf iðir“
■ „Við skulum vona að betra
liðið standi uppi sem sigurveg-
ari að leik loknum,“ sagði Þor-
steinn Bjarnason markvörður
ÍBK og landsliðsins í samtali
við NT í gær. í kvöld kl. 20.00
leika Kcflvíkingar gegn Val á
Laugardalsvelli.
„Það er alltaf mikilvægt að
vinna sigur í fyrsta leiknum í
mótinu, sérstaklega andlega.
Andlega hliðin hefur ekki
minna að segja en sú líkamlega
hjá mannskapnum. Leikurinn
í kvöld verður erfiður, Vals-
menn eru nýkrýndir Reykja-
víkurmeistarar, og verða erfið-
ir. En mér líst vel á þetta mót
sem er að-fara af stað.“
Viltu spá um úrslit mótsins?
Ég ætla ekki að spá neinu.
Skagamenn eru það lið sem öll
hin vilja vinna. Þeir cru sprækir
og verða ofarlega. Ég vona að
við Keflvíkingar verðum þá á
réttum stað,“ sagði Þorsteinn
Bjarnason.