NT - 18.05.1984, Blaðsíða 5

NT - 18.05.1984, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. maí 1984 J ! 5 Flugleiðir þurfa að punga út 31 milljón ■ Flugleiðir hafa tapað skaða- bótamáli sem flugmenn Air Bahama höfðuðu á hendur fé- lagsins. Var Flugleiðum gert að greiða flugmönnum 28 miUjónir króna auka 3 mUljóna í máls- kostnað. Dómur í málinu var kveðinn upp í New York. Upphaf þessa máls er, að þegar Flugleiðir tóku að sér vöruflutning fyrir Air India sinntu flugmenn Air Bahama því flugi að öllu leyti. Eftir að samdráttar fór að gæta á Norður-Atlantshafsleiðinni settu Flugleiðir íslenska flug- menn inn í þessi störf í vaxandi mæli til þess að komast hjá því að segja upp íslenskum fluglið- um. Pegar enn þrengdist um árin 1979 og 1980 voru íslenskir flugmenn einnig látnir fljúga á hefðbundnum leiðum Air Ba- hama flugmanna, það er milli Luxemburgar og Nassau á Ba- hama, enda sóttu íslenskir flug- menn mjög fast að fá störf á þessum leiðum. Flugi Air Ba- hama var hætt fyrir nokkru en vöruflutningaflug fyrir Air India hélt áfram þar til fyrir rösku ári. Niðurstaða dómsins byggist á því að flugmönnum Air Ba- hama hafi verið mismunað. Þeim hafi beinlínis verið sagt upp störfum til þess að láta íslenska flugmenn taka við. „Þess má geta að í öll þau ár sem Air Bahama starfaði kom aldrei til verkfalla hjá flug- mönnum félagsins né til tafa af flugmanna völdum", segir í frétt frá Flugleiðum um dóminn. Einnig segir að nú sé verið að athuga hvort málinu verði áfrvi- - af því þeir ráku flugmenn Air Bahama tilað íslenskir flugmenn misstu ekki vinnuna að, en dómurinn var birtur á skrif- stofu Flugleiða í New York í fyrradag. Bifreiðin er gerónýt eftir að hafa lent á tréljósastaur við Elliðavog. NT-mynd Sverrir. Missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði á Ijósastaur: Hlaut alvarleg innvortis meiðsl ■ Ungur maður hlaut innvort- is meiðsl þegar hann missti stjórn á bifreið sinni á EUiða- vogi um kl. 12.00 í gær, með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti á tréljósastaur. Að sögn lögreglu var maðurinn ekki í lífshættu í gærkvöldi en hann hafði þá gengist undir aðgerðir þar sem m.a. þurfti að fjarlægja úr honum miltað. Ekki er vitað nákvæmlega um tildrög slyssins en bifreið mannsins lenti fyrst upp á um- ferðareyju, og rann eftir henni 80-90 metra áður en hún lenti á staurnum. Við áreksturinn kviknaði í bílnum en vegfar- anda tókst að slökkva eldinn áður en hann komst í eldsneyt- istank. Bifreiðin er gerónýt eftir á- reksturinn. Raðsmíðabátar Slippstöðvarinnar á Akureyri illseljanlegir: Fiskveiðasjóður vill ekki lána til bátakaupanna ■ Fiskveiðasjóður hefur hafn- að tveimur umsóknum um lán til kaupa á raðsmíðabátum frá Slippstöðinni á Akureyri. Voru það Þór hf á Eskifirði og aðilar á Þórshöfn sem sóttu um lánin. Bátarnir sem hér um ræðir eru um 280 tonn og var umsamið kaupverð þeirra um 110 mill- jónir fyrir hvorn. Að sögn Más Elíssonar, for- stjóra Fiskveiðasjóðs, lánaði Fiskveiðasjóður ekki til ný- sntíða á síðasta ári, og gerir líklega ekki í ár. Hann sagði að bátar þessir hefðu ekki verið á fjárhagsáætlun sjóðsins fyrir árið 1984. Einnig sagði Már að bátar þessir væru mjög dýrir og óvíst hvort þeir gætu borið sig. Fjármálastjóri Slippstöðvar- innar, Jóhann Pétur Andersen Sagði að þetta væri bagalegt fyrir Slippstöðina: „Þeir verða hérna lagervara hjá okkur ein- hvern tíma.“ Hann sagði einnig að án lánafyrirgreiðslu frá Fisk- veiðasjóði væru bátar þessir ill- seljanlegir. Mársagði að Fiskimálasjóður hefði haft milli tvö og þrjú hundruð milljónir króna til ráð- stöfunar þetta árið og hefði því ■ Már Elísson. fé að mestu verið ráðstafað. Hann sagði að það væri eðli- legur gangur á málum hjá sjóðnum. Lánsloforð væru af- greidd á fyrri hluta ársins. Herferð í gærdag gégn óskoðuðum bílum: Tveir bílar reynd- ust í lagi af 40! ■ Bifreiðaeftirlit ríkisins hóf í gær herferð gegn óskoðum bíl- um í samvinnu við umferðar- deild lögreglunnar í Reykjavík. Kratar sátu ekki hjá ■ í frétt NT í gær um lög á flugmenn var mishermt að al- þýðuflokksmenn í neðri deild hefðu setið hjá í málinu. Hið rétta er að þeir greiddu atkvæði með ríkisstjórninni, samþykktu lögin. Lögreglan færði 40 bfla til skoðunar milli kl. 17-20 og af þeim reyndust tveir vera í lagi, einn fékk frest, notkun á 29 var bönnuð og númer voru klippt af átta bflum. Að sögn Lárusar Sveinssonar í skoðunardeild Bifreiðareftir- litsins segja þessar tölur ekki allt um ástand bíla almennt, því aðallega voru stöðvaðir þeir bíl- ar sem illa litu út. Lárus sagði að fleiri herferðir af þessu tagi væru áætlaðar á næstunni. ■ Hluti bflanna sem lögreglan færði til skoðunar í gær fyrir utan Bifreiðareftirlit ríkisins. NT mynd Róbert.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.