NT - 18.05.1984, Blaðsíða 4

NT - 18.05.1984, Blaðsíða 4
’nV.* íhÍ.6? ' Föstudagur 18. maí 1984 Fjögur banaslys í um- ferðinni í júnímánuði? ■ Samkvæmt líkum töl- fræðinnar verða fjögur banaslys í umferðinni í júní. Samkvæmt meðaltali síðastliðinna 18 ára hafa orðið tvöfalt fleiri banaslys í umferðinni í júní en í maí. Þetta kemur m.a. fram í skýrsiu sem Umferðarráð hefur tekið saman um umferðarslys á árinu 1983 samkvæmt skráningu lög- reglu. Heildarslysatala er einnig mjög há yfir sumarmánuðina, sérstaklega í dreifbýli, þegar umferð á þjóðvegum landsins eykst verulega. A fundi sem stjórn U mferðar- ráðs hélt með fréttamönnum nýlega kom fram að reynslan sýndi að þegar aksturssicilyrði ■ Líkur benda til að umferðarslysum fjölgi verulega í ár miðað við síðasta ár, og tölfræðilegar lýkur benda til að 24 látist í umferðarslysum árið 1984. Cannes: Mekka kvikmyndanna Frá Gudlaugi Hergmunds.syni blaðamanni NT í Cannes. ■ Kvikmyndahátíðin í Cann- es er nú rétt rúmlcga hálfnuð og í gær lifnaði aftur yfir borg- inni eftir tveggja daga synda- flóð. Strendurnar fylltust og smástirnin eða „starletturnar" eins og þær eru kallaðar tóku aftur að fækka fötum fyrir Ijósmyndara og aðra sem vildu fylgjast með. Hefðirnar má' ekki brjóta. Alls hafa nú verið sýndar ellefu kvikmyndir í opinberu samkeppninni og höfundar þeirra eru nokkrir af fremstu starfandi kvikmyndaleik- stjórum, menn eins og Verner Herzog frá Þýskalandi, Grikk- inn Theo Angelopoulof, Marta Meszarof frá Ungverjalandi og franski leikstjórinn Bertrand Pavernier. Auk þess hafa tveir nýliðar vakið athygli, danski leikstjórinn Lars von Prier og „Verðum að sækja réttlætið sjálf“ Philippínski leikstjórinn Sino Brocka fordæmir harðstjórn Marcosar Philipseyjarforseta Frá Guðlaugi Hcrgmundssyni blaðamanni NT í Canne.s ■ „Ég lagði ekki áherslu á listrænt gildi, þegar ég gerði þessa kvikmynd. Hún var gerð til að koma ríkisstjórn Marcosar í klípu. Við gerum allt til að lýsa fyrirlitningu okkar á stjóminni og við viljum að hún fari frá." Þetta sagði philippínski leikstjórinn Sino Brocka á fundi með frétta- mönnum í gær eftir sýn- ingu myndar hans Bayan- Ko, sem tekur þátt í sam- keppninni. Pað má kalla myndina sakamálamynd, en bakgrunnurinn er fé- lagslegt óréttlæti, harð- stjórn og kúgun á Philipps- eyjum. Sino Brocka gerði my ndina með ley nd og var henni smyglað úr landi svo hún gæti komist á hátíðina í Cannes, þar eð stjórnvöld hefðu aldrei leyft henni að fara úr landi og óvíst er hvort hún fæst nokkurn tíma sýnd í heimalandi höfundarins. Sino Brocka á það á hættu að verða handtekinn og jafnvel dæmdur í fangelsi ef hann snýr aftur til heimalands síns, en hann ætlar samt að fara og halda áfram að berjast fyrir mannréttindum Philipps- eyinga. Brocka sagði, að með því að smygla mynd- inni úr landi hefði hann verið að brjóta lög. En með því að fara eftir lögum landsins, væri ekki hægt að gera myndir sem væru einhvers virði. „Við munum því halda áfram að brjóta lögin,“ sagði hann. Brocka sagði að eftir morðið á Benigno Aquino hefðu listamenn á Philipseyjum komist að því að ekki þýddi að vinna iiver í sínu horni gegn stjórninni, heldur yrðu þeir að sameinast í barátt- unni. „Stjórnvöld hafa sagt okkur að okkar starf sé að skemmta almenningi en ekki að taka þátt í stjórn- málum, en kvikmyndin er besti miðillinn til að vekja pólitíska vitund almenn- ings. Phiiippínska þjóðin krefst réttlætis og þar sem núverandi stjórnvöld veita það ekki verðum við að sækja það sjálf,“ sagði Sino Brocka kvikmynda- leikstjóri frá Philipps- eyjum. Pat O’Connor frá írlandi. Á þessari stundu er erfitt að segja nokkuð um hvaða mynd er sigurstranglegust, því enn eiga nokkrir frábærir leikstjór- ar eftir að sýna myndir sýnar. Þar skal fyrstan telja gömlu kempuna John Houston, en mynd hans Undir eldfjallinu verður sýnd í dag. Aðrir eru indverski snillingurinn Stayajit Ray, Vim Wenders, Jerzy Skolimowski og Marco Bel- klocchio. Þá verður sýnd ný mynd eftir spaghetti kónginn Sergio Leone: Once upon a time in America. Þetta er fyrsta mynd Leone í tíu ár og er hún sýnd utan samkeppni. Það á einnig við um síðustu mynd Woody Allens: Broad- way Danny Rose. Það virðast einkum vera fjórar myndir sem hafa fengið hvað jákvæðasta gagnrýni til þessa. Sunnudagur í sveitinni, eftir Pavernier, Ferðalag til Cythera, eftir Angelopoulof. Dagbókarbrot eftir Meszarof og Heilögu sakleysingjarnir eftir Spánverjann Darío Camus. Kvikmyndahátíðin í Cannes er þó ekki eingöngu sam- keppni um Gullpálmann. Hér eru einnig nokkrar smærri hlið- arhátíðar þar sem reynt er að sýna það athyglisverðasta sem ungir leikstjórar alls staðar í heirninum eru að fást við og skal þar nefna LaQuimzaine des Rdafisadeurf, þar sem Atómstöðin var sýnd. En hér er ekki bara verið að sýna myndir til að sýna þær. Samtímis kvikmyndahátíðinni sjálfri fer fram alþjóðlegur kvikmyndamarkaður þar sem frantleiðendur falbjóða vöru sína, allt frá klámi upp í svokallaðar listrænar myndir. Cannes er því sannkölluð Mekka kvikmyndalistarinnar og kvikmyndaiðnaðarins þessa maí daga. Lokatónleikar Söng- skólans í Reykjavík w ■ Lokatónleikar úr Söngskól- anum í Reykjavík verða 18., 23., og 25 maí kl. 20.30 og 20 maí kl. 15.00 í Tónleikasal söng- skólans að Hverfisgötu 45 í Reykjavík. VIII stig próf taka Hanna Eiríksdóttir, Svanhildur Sveinbjörnsdóttir, Friðrik S. Kristinsson, Theodóra Þor- steinsdóttir og Sigurjón Guð- mundsson. Kennarapróf taka Kjartan Ólafsson og Stefán Guðmundsson, og einsöngspróf Elín Ósk Óskarsdóttir. hér á landi eru best, verða einn- ig flest og alvarlegustu umferð- arslysin, e.t.v. vegna aukins aksturshraða. Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðar- ráðs, sagði að svo virstist sem þörf væri á að senda öku- mönnum viðvaranir í fjölmiðl- um, eitthvað á þessa leið: Góðir ökumenn, í dag er bjart veður og akstursskilyrði góð. Sýnið því sérstaka varúð í umferðinni. Umferðarslysum fækkaði töluvert á Norrænu umferðarör- yggisári 1983, miðað viðfyrriár, m.a. létust 18 í umferðarslysum sem er það fæsta síðan árið 1969. Reynsla fyrri ára og slysa- tölur það sem af er þessa árs benda þó eindregið til þess að mun fleiri umferðarslys verði á árinu 1984 en í fyrra. Á fundin- um kom fram að minna fjár- magni er veitt til Umferðarráðs og annarra aðila sem starfa að umferðarmálum, til umferðar- fræðslu og áróðurs en í fyrra, og hefði það að sjálfsögðu sitt að segja þó starf Norræna umferð- arársins hefði tvímælalaus haft varanlegt áhrif. Samkvæmt þessu áætlar Um- ferðarráð að búast megi við 24 banaslysum í umferðinni í ár ef miðað er við tölfræðilegt með- altal undangenginna ára. ■ Úr þessum manni hafa augun verið stungin. Myndin er tekin í E1 Salva- dor 1981. „Stöðvum pyntingar“ á Lækjar- torgi í dag ■ „Pyntingar er hægt að stöðva" eru einkunnarorð útifundar sem haldinn verður á Lækjartorgi kl. 17 í dag. Kristín Ölafs- dóttir og Þorvaldur Örn Árnason, skemmta fund- argestum með tónlist og Sveinn Einarsson les frumort Ijóð auk þess sem haldnar verða stuttar ræður. Útifundurinn er liður í herferð Amnesty Inter- national gegn pyntingum en þær eru enn stundaðar víða um heim, m.a. í vissum löndum Vestur Evrópu. Kynnir á fundinum verður Ævar Kjartansson, dagskrárstjóri. ■ Benedikt Jóhannesson, kennari, Finnur Lárusson, annar kepp- andinn, og Viðar Ágústsson, þjálfari Ólympíuliðsins. Vilhjálmur Þorsteinsson, sem einnig keppir fyrir Islands hönd, var ekki á blaðamannafundinum þar sem myndin var tekin. Ólympíuleikar í eðlisfræði íslendingar meðí l.sinn ■ Það hefur löngum veríð æðsta takmark íslenskra afreks- manna í frjálsum íþróttum að komast á Olympíuleika eins og best sést á því hvað margir þeirra æfa nú stíft til að ná iág- marksárangri í sinni grein til að fá að vera með í Los Angeles í sumar. En það eru fleiri Islend- ingar en frjálsíþróttamenn að æfa fyrir Ólympíuleika um þess- ar mundir. Við munum í fvrsta skipti eiga okkar fulltrúa á Ól- ympíuleikunum í eðlisfræði, en þeir verða haldnir í Sigtuna í Svíþjóð síðustu vikuna í júní og á þeim verða þátttakendur frá 22 þjóðum. Ökkar menn verðá þeir Finn- ur Lárusson og Vilhjálmur Þor- steinsson en þeir urðu efstir í úrslitakeppni um þátttökurétt- inn sem fram fór í HÍ í apríl síð- astliðnum, en báðir voru þeir fulltrúar Menntaskólans ■ Hamrahlíð. „Þjálfunin hófst strax í I vorprófa og var haldið áfr; þangað til annar strákan þurfti að fara utan um tíma, þrem dögum áður en hak verður út munum við taka u þráðinn að nýju,“ sagði Vic Ágústsson. eðlisfræðikennar Fjölbrautaskólanum í Bre holti, en hann sér um þjálf Finns og Vilhjálms. Viðarsagði að þjálfunin fæl í því að reikna út dæmi úr har bók frá síðustu Ólympíuleiku sem haldnir voru í Póllandi. Si an hefði verið farið í tilraunir unnið stuttlega úr þeim, er Sigtuna verður einum keppn degi varið til verklega þáttarii Síðan væru það dæmareiknir ar og þrautalausnir meiri reik ingur og fleiri lausnir.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.