NT


NT - 31.05.1984, Side 1

NT - 31.05.1984, Side 1
Konan sem framseld var til íslands vegna 7 ára gamals fíkniefnamáls frjáls: Sakirósannaðar ■ Ríkissaksóknari hefur ákveðið að gefa ekki út ákæru á hendur konunni, sem framseld var af dómstóli í Kaliforníu í apríl sl., að krófu ís* lenskra yfirvalda, vegna meintrar aðildar hennar af fíkniefnabrotum hér á landiárin 1977 til 1978. Konan, sem um ræðir, fór til Kaliforníu árið 1979 en skömmu áður hafði verið gefin út handtökuskipan á hendur henni. Gerð var krafa um að hún yrði framseld til íslands og stóðu málaferli yfir í San Di- ego í Kaliforníu í tæp tvö ár, þar til konan tapaði málinu og varsendtilíslands 25. aprílsl. Síðan hafa staðið yfir yfir- heyrslur og samprófanir vegna þessa máls hjá Sakadómi í ávana-og fíkniefnamálum en ríkissaksóknara voru send málsgögnin 16. maí. Ríkissak- sóknari tilkynnti síðan í bréfi dagsettu 28. maí til Sakadóms í ávana-og fíkniefnamálum að ekki væru lagarök fyrir að gefa út ákæru á hendur konunni, og eru í bréfinu raktar ástæður fyrir því. Þar er fyrst tekið fram að menn þeir sem báru konuna sökum árið 1979 geti ekki talist óaðfinnanleg vitni í málinu og þrír þeirra hafi fyrir dómi í apríl og maí sl. dregið að meira eða minna leyti úr fyrri framburðum sínum um hlut konunnar að fíkniefnabrotum. Þá er tekið fram að hin ætluðu brot konunnar hafi ver- ið talin framin í júní 1977 til september 1978, en hún var ekki yfirheyrð í dómi fyrr en 25. apríl 1984. Þess séu ekki dæmi að opinbert mál hafi verið höfðað á hendur manni ef liðið hafa meira en fimm ár frá verknaði til dómsyfirheyrslu Skýra megi ákvæði laga um fyrningu sakar svo að sakir konunnar væru nú fyrndar þó sannaðar væru. Að lokum er tekið fram að hæstiréttur geri ríkar kröfur til sannana þegar brotamenn bera um samsekt annarra. Rann- sóknargögn í þessu máli þykja ekki vera líkleg til sakfellis konunnar gegn staðfastri neit- un hennar. Frumbýlingar flytja inn í Grafarvoginn ■ Það er svo sem ekki hægt að segja að tiltakanlega búsældarlegt sé um að litast á Logafold 126 í Grafarvoginum. Þar stendur blátt timburhús eitt sér og er eins og hálf umkomulaust þarna úti í auðninni. Um- hverfið mótast aðallega af djúpum skurðum og moldar- og malarhaugum. Þó voru frumbyggjar Grafar- vogarins ekkert óhressir á svip- inn í gær þegar þeir tóku við lyklunum að húsi sínu. Arnar Sigurbjörnsson og Sig- rún Sverrisdóttir eru fyrstu íbú- ar í nýja íbúðahverfinu í Grafar- vogi og ekki varð betur séð en þau litu framtíðina björtum augum. Þau sögðust flytja úr íbúð í Breiðholtinu og voru harðákveðin í því að gera sér ástandið að góðu - svona til að byrja með. Enn sem komið er er hvorki matvöruverslun né skóli á staðnum, en þau sögðu að börn- in yrðu sótt í skóla á morgnana og skilað aftur á kvöldin, svo þar væri ekki undan neinu að kvarta. Auk þess ætti að vera hægt að kaupa í matinn á leiðinni heim úr vinnunni. Fyrsta íbúðarhæfa húsið í Grafarvoginum er byggt af Ösp hf. og kostaði uppkomið og frágengið að utan og innan um 4,2 milljónir króna. Það verður sýnt almenningi tvær næstu helgar. ■Graeme Souness fyrirliði Liverpool mundar sjálfan Evrópubikarinn í knatl* spyrnu, eftir sigur Liverpool á Roma í Rómarborg í gærkvöld. Sjá nánar íþrÓttaSÍðU blS.26. Siman.yndPolfoto Göngin skoðuð ■ Búrfellsvirkjun verður stöðvuð á morgun og að- rennslisgöng og annað tekjð til skoðunar í fyrsta sinn í 15 ár. Nú er nóg vatn við aðrar virkjanir og þess vegna hægt að stöðva Búrfellsvirkjun án þess að rafmagnsskortur verði. Hliðstæðar sköðanir hafa hins vegar verið gerðar við aðrar virkjanir. Sjá bls. 3 Listahátíð: Á fulla ferð um helgina ■ „Dansleikur ársins“ verður annað kvöld í Laugardalshöllinni eða svo lofa fqrráðamenn Listahátíðar 1984. í helg- arpakkanum á bls. 11-18 er greint frá nokkrum at- riðum sem vcrða á dagskrá hátíðarinnar um helgina. Myndlistarsýn- ingar verða opnaðar í öllum helstu sýningar- sölum borgarinnaT, sænskt gestaleikrit verður sýnt í Gamla bíói, norræn rokk- hátíð verður í Laugardals- höllinni, jass í Norræna húsinu og Broadway, klassísk tónlist í Bústað- akirkju og uppákomur í miðbænum. Þar með er hafin Listahátíð. Fíkniefnamálið: Úrskurðaðir í 15*30 daga gæsluvarðhald ■ Tveir af mönnunum Sakadómi í ávanaog fíkni- viöurkennt aö hafa fyrr á fimm, sem handteknir voru efnamálum. Hinir þrír þessu ári smyglaö amfeta- vegna smyglsins á 700 höfðu áður verið úr- míni og hassi til iandsins. grömmum af amfetamíni og skurðaðir í-15 til 21 dags Fíkniefnalögreglan hefur 400 grömmum af hassolíu, gæsluvarðhalds. fylgst með þessum mönnum voru í gær úrskurðaðir í 30 undanfarið. daga gæsluvarðahald í Tveir af mönnunum hafa Myndbandaleiga stingur bíóin af - keypti vídeórétt ýmissa mynda í Cannes ■ Forstöðumenn mynd- bandaleigunnar Mynd- bergs og fyrirtækisins Myndforms brugðu sér á kvikmyndahátíðina í Cannes á dögunum til að kaupa myndir. Þeir verj- ast allra frétta af ferðinni, en segjast hafa átt jákvæð- ar viðræður við marga að- ila og samningar séu á leið til landsins. Myndirnar, sem um er verið að semja, munu ekki hafa verið keyptar í íslensk kvik- myndahús. Að sögn Gunnars Guðmundssonar, lögfræð- ings samtaka rétthafa myndbanda, þar sem full- trúar kvikmyndahúsanna eiga m.a. sæti, er það algengt að kvikmynda- húsaréttur og my ndbanda- réttur einstakra kvik- mynda séu seldir hvor í sínu lagi.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.