NT - 31.05.1984, Síða 1
Konan sem framseld var til íslands vegna
7 ára gamals fíkniefnamáls frjáls:
Sakirósannaðar
■ Ríkissaksóknari hefur
ákveðið að gefa ekki út
ákæru á hendur konunni,
sem framseld var af
dómstóli í Kaliforníu í
apríl sl., að krófu ís*
lenskra yfirvalda, vegna
meintrar aðildar hennar
af fíkniefnabrotum hér á
landiárin 1977 til 1978.
Konan, sem um ræðir, fór til
Kaliforníu árið 1979 en
skömmu áður hafði verið gefin
út handtökuskipan á hendur
henni. Gerð var krafa um að
hún yrði framseld til íslands og
stóðu málaferli yfir í San Di-
ego í Kaliforníu í tæp tvö ár,
þar til konan tapaði málinu og
varsendtilíslands 25. aprílsl.
Síðan hafa staðið yfir yfir-
heyrslur og samprófanir vegna
þessa máls hjá Sakadómi í
ávana-og fíkniefnamálum en
ríkissaksóknara voru send
málsgögnin 16. maí. Ríkissak-
sóknari tilkynnti síðan í bréfi
dagsettu 28. maí til Sakadóms
í ávana-og fíkniefnamálum að
ekki væru lagarök fyrir að gefa
út ákæru á hendur konunni, og
eru í bréfinu raktar ástæður
fyrir því.
Þar er fyrst tekið fram að
menn þeir sem báru konuna
sökum árið 1979 geti ekki talist
óaðfinnanleg vitni í málinu og
þrír þeirra hafi fyrir dómi í
apríl og maí sl. dregið að
meira eða minna leyti úr fyrri
framburðum sínum um hlut
konunnar að fíkniefnabrotum.
Þá er tekið fram að hin
ætluðu brot konunnar hafi ver-
ið talin framin í júní 1977 til
september 1978, en hún var
ekki yfirheyrð í dómi fyrr en
25. apríl 1984. Þess séu ekki
dæmi að opinbert mál hafi
verið höfðað á hendur manni
ef liðið hafa meira en fimm ár
frá verknaði til dómsyfirheyrslu
Skýra megi ákvæði laga um
fyrningu sakar svo að sakir
konunnar væru nú fyrndar þó
sannaðar væru.
Að lokum er tekið fram að
hæstiréttur geri ríkar kröfur til
sannana þegar brotamenn bera
um samsekt annarra. Rann-
sóknargögn í þessu máli þykja
ekki vera líkleg til sakfellis
konunnar gegn staðfastri neit-
un hennar.
Frumbýlingar
flytja inn í
Grafarvoginn
■ Það er svo sem ekki hægt að segja að
tiltakanlega búsældarlegt sé um að litast á
Logafold 126 í Grafarvoginum. Þar stendur
blátt timburhús eitt sér og er eins og hálf
umkomulaust þarna úti í auðninni. Um-
hverfið mótast aðallega af djúpum skurðum
og moldar- og malarhaugum.
Þó voru frumbyggjar Grafar-
vogarins ekkert óhressir á svip-
inn í gær þegar þeir tóku við
lyklunum að húsi sínu.
Arnar Sigurbjörnsson og Sig-
rún Sverrisdóttir eru fyrstu íbú-
ar í nýja íbúðahverfinu í Grafar-
vogi og ekki varð betur séð en
þau litu framtíðina björtum
augum. Þau sögðust flytja úr
íbúð í Breiðholtinu og voru
harðákveðin í því að gera sér
ástandið að góðu - svona til að
byrja með.
Enn sem komið er er hvorki
matvöruverslun né skóli á
staðnum, en þau sögðu að börn-
in yrðu sótt í skóla á morgnana
og skilað aftur á kvöldin, svo
þar væri ekki undan neinu að
kvarta. Auk þess ætti að vera
hægt að kaupa í matinn á
leiðinni heim úr vinnunni.
Fyrsta íbúðarhæfa húsið í
Grafarvoginum er byggt af Ösp
hf. og kostaði uppkomið og
frágengið að utan og innan um
4,2 milljónir króna. Það verður
sýnt almenningi tvær næstu
helgar.
■Graeme Souness fyrirliði Liverpool
mundar sjálfan Evrópubikarinn í knatl*
spyrnu, eftir sigur Liverpool á Roma í
Rómarborg í gærkvöld. Sjá nánar
íþrÓttaSÍðU blS.26. Siman.yndPolfoto
Göngin
skoðuð
■ Búrfellsvirkjun verður
stöðvuð á morgun og að-
rennslisgöng og annað
tekjð til skoðunar í fyrsta
sinn í 15 ár. Nú er nóg
vatn við aðrar virkjanir og
þess vegna hægt að stöðva
Búrfellsvirkjun án þess að
rafmagnsskortur verði.
Hliðstæðar sköðanir hafa
hins vegar verið gerðar
við aðrar virkjanir.
Sjá bls. 3
Listahátíð:
Á fulla
ferð um
helgina
■ „Dansleikur ársins“
verður annað kvöld í
Laugardalshöllinni eða
svo lofa fqrráðamenn
Listahátíðar 1984. í helg-
arpakkanum á bls. 11-18
er greint frá nokkrum at-
riðum sem vcrða á
dagskrá hátíðarinnar um
helgina. Myndlistarsýn-
ingar verða opnaðar í
öllum helstu sýningar-
sölum borgarinnaT, sænskt
gestaleikrit verður sýnt í
Gamla bíói, norræn rokk-
hátíð verður í Laugardals-
höllinni, jass í Norræna
húsinu og Broadway,
klassísk tónlist í Bústað-
akirkju og uppákomur í
miðbænum. Þar með er
hafin Listahátíð.
Fíkniefnamálið:
Úrskurðaðir í
15*30 daga
gæsluvarðhald
■ Tveir af mönnunum Sakadómi í ávanaog fíkni- viöurkennt aö hafa fyrr á
fimm, sem handteknir voru efnamálum. Hinir þrír þessu ári smyglaö amfeta-
vegna smyglsins á 700 höfðu áður verið úr- míni og hassi til iandsins.
grömmum af amfetamíni og skurðaðir í-15 til 21 dags Fíkniefnalögreglan hefur
400 grömmum af hassolíu, gæsluvarðhalds. fylgst með þessum mönnum
voru í gær úrskurðaðir í 30 undanfarið.
daga gæsluvarðahald í Tveir af mönnunum hafa
Myndbandaleiga
stingur bíóin af
- keypti vídeórétt ýmissa mynda í Cannes
■ Forstöðumenn mynd-
bandaleigunnar Mynd-
bergs og fyrirtækisins
Myndforms brugðu sér á
kvikmyndahátíðina í
Cannes á dögunum til að
kaupa myndir. Þeir verj-
ast allra frétta af ferðinni,
en segjast hafa átt jákvæð-
ar viðræður við marga að-
ila og samningar séu á leið
til landsins. Myndirnar,
sem um er verið að semja,
munu ekki hafa verið
keyptar í íslensk kvik-
myndahús.
Að sögn Gunnars
Guðmundssonar, lögfræð-
ings samtaka rétthafa
myndbanda, þar sem full-
trúar kvikmyndahúsanna
eiga m.a. sæti, er það
algengt að kvikmynda-
húsaréttur og my ndbanda-
réttur einstakra kvik-
mynda séu seldir hvor í
sínu lagi.