NT - 31.05.1984, Blaðsíða 3

NT - 31.05.1984, Blaðsíða 3
4 -r.n I V BB Fimmtudagur 31. maí 1984 r? í !<!. Söguleg stund við Búrfell: Virkjunin stöðv uð um helgina Aðrennslisgöng og fleiri þættir skoðaðir í 1. sinn í 15 ár ■ „Tilgangurinn er fyrst og fremst að kanna breytingar, sem hafa orðið á aðrennslisgöngunum, og hvort slit hefur orðið á gangnaveggj- um. Þá verða kannaðar hugsanlegar sprungur í bergi og slit í stálfóðringum fyrir ofan vélasamstæður í Búrfelli.“ Land og synir og Útlaginn á myndbönd ■ Myndbandaeigendur, aðdáendur íslenskrar kvikmyndagerðar, geta nú kæst, þar sem mynd- bandaleigan Videosport hefur gert samning við Is- film sf. um dreifingarrétt kvikmyndanna Útlagans og Lands og sona á mynd- böndum hérlendis. Það er fyrirtækið Bergvík sf. sem mun annast dreifinguna fyrir hönd Videosports. íslenskar kvikmyndir hafa lítið sést á mynd- böndum fram til þessa og vonandi er þetta aðeins fyrsta skrefið í stóraukinni útgáfu þeirra mynda á böndum. Útlaginn og Land og synir nutu mikilla vin- sælda, þegar þær voru sýndar á sínum tíma, og hafa þær gert víðreist um heiminn, m.a. var Útlag- inn sýndur í franska sjón- varpinu fyrir skömmu. Þetta sagði Helgi Bjarnason verkfræðingur hjá Landsvirkjun í samtali við NT um stöðvun Búr- fellsvirkjunar um helgina. Bjarnarlón fyrir ofan Búrfell verður vatnstæmt á föstudag og á laugardag verður farið inn í að- rennslisgöngin að virkjuninni og þau skoðuð. Jafnframt verður lón- botninn skoðaður, svo og að- rennslisskurðir og fallpípur niður að virkjuninni, og framkvæmt eðlilegt viðhald á þeim. Aðferðir sem þessar hafa aldrei farið fram við Búrfell síðan virkj- unin þar var tekin í notkun árið 1969, en hliðstæðar skoðanir hafa verið gerðar við aðrar virkjanir. Helgi sagði ástæðuna fyrir því, að skoðun þessi færi fram einmitt nú, vera þá, að nóg vatn væri til fyrir aðrar virkjanir og einnig væri álag lítið á þessum tíma árs. Aðspurður sagði Helgi, að nokkur eftirvænting ríkti meðal starfsmanna Landsvirkjunar vegna þessarar stöðvunar og skoðunar. „Hér eru margir sem unnu við Búrfellsvirkjun á sínum tíma og þeir eru spenntir að kom- ast þangað aftur til að skoða," sagði Helgi Bjarnason. Búrfellsvirkjun verður svo gangsett á ný aðfaranótt mánudags eða á mánudagsmorgun. ■ Svona litlu göngin út fyrir 15 árum. Á morgun verður farið inn í þau og kannað hvernig þau hafa staðist tímans tönn. Hér verður „bólað“ í ár ■ Framkvæmdum miðar nú ört í Öskjuhlíðinni, þar sem verið er að byggja nýja íþrótta- og heilsuræktarmiðstöð. Að sögn Jóns Hjaltasonar, eins af eigendum, er áætlað að fyrsti áfangi verði tilbúinn á þessu ári. í þessum fyrsta áfanga verður fyrst og fremst aðstaða fyrir „bóling“ að sögn Jóns, en í framtíðinni er ætlunin að byggja tvær hæðir ofan á þá sem rís af grunni í sumar. Áætlaður kostnaður við byggingu fyrsta áfanga er rúmar tuttugu milljónir króna. NT-rmnd: Arni Bjarnasun Heimsókn: 329 dátar í Reykjavík ■ ' Á föstudagsmorgun koma til Reykjavíkur þrjú skip frá hollenska flotanum í kurtcisisheimsókn. Er hér um að ræða eina freigátu, kafbát og hafrannsóknar- skip. Áhafnir skipanna telja alls 329 menn. Stærst er hafrannsóknar- skipið, HNLMS Tydeman, cða 2977 tonn. Síðan kemur freigátan, HNLMS Evertsen sem cr 2800 tonn og hefur 198 rnanna áhöfn. Kafbátur- inn, HNLMS Tijgerhaai, cr 2350 tonn og áhöfnin er 69 menn. Skipin koma klukkan áíta á föstudagsmorgun en fara aftur tíu á mánudaginn. Skipin verða til sýnis almenn- ingi milli 14 og 16 laugardag og sunnudag. Holland mun nú vera hið sjötta í röðinni af viðskipta- löndum okkar, miðað við umfang verslunar. Verslun við Holland hefur aukist mjög að undanförnu að sögn Árna Kristjánssonar, aðal- ræðismanns Hollands á ís- landi. Sagði Árni að mikið hefði munað um Amster- damflug Arnarflugs. Þá sagði Árni að á íslandi byggju nú milli 40 og 60 Hollendingar. Áformað er að HNLMS Evertsen taki olíu í Hvalfirði þann 11. júní. Nú byrjar símanúmerið á WREVFL/ á SEX V\REVF/LZ.Opið allan sólarhringinn

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.