NT


NT - 31.05.1984, Síða 6

NT - 31.05.1984, Síða 6
■ Apple-2 tölvurnar sem allri úlfúðinni ollu ■ Atlantis tölvan sem einnig kom til álita dýnustærð 200x90 cm. Verð kr. 12.600, Cabina rúmsamstæðan er komin aftur Húsgögn og . , . Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar simi 86-900 JOKER skrifborðin eftirsóttu eru komin Verð með yfirhillu kr. 3.850.- Eigum einnig vandaða skrifborðsstóla á hjólum Verð kr. 1.590.- Húsgögn og . > ., . Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar simi 86-900 Tölvuvæðing framhaldsskólanna: Apple-tölvan úrelt hönnun? Óánægja með að tilboði Radíóbúðarinnar skyldi tekið ■ Allt útlit er fyrir að geng- ið verði að tilboði Radíóbúð- arinnar vegna fyrirhugaðrar tölvuvæðingar framhalds- skólanna í landinu. Radíó- búðin hefur Apple-tölvur á boðstólum en mikillar ó- ánægju hefur gætt vegna þessarra fyrirhuguðu samn- inga, m.a. hjá tveim aðilum sem gerðu tilboð: Atlantis og Þór h.f. Ekki hefur verið gengið formlega frá samning- um við Radíóbúðina. Apple-2 úrelt hönnun ■ Oddur Einarsson, við Commodore tölvuna sem Þór hf. bauð framhaldsskólunum. NT-mynd: Árni Bjarna. Lcifur Steinn Elísson hjá Atlantis, tjáði NT að hann teldi að framhaldsskólar ættu ekki að vera að tölvuvæða sig með tölvum sem eru að vcrða „úrelt hönnun.“ „Apple-2 tölvan var mjög merkileg vél þegar hún kom fram á sínum tíma", sagði Leifur „en hún stenst ekki kröfur tímans og er ekki af þeim klassa sem t.d. PC tölvan er og ekki næstum því jafn öflug. Nemendur fram- háldsskólanna eiga að hafa aðgang að tölvum sem þeir síðan kynnast úti í atvinnu- lífinu en Apple tölvur eru engin atvinnutæki. Þær eru svo litlar að þær afkasta ekki fyrirtækjum. Þær hafa ekki sömu möguleika og okkar tölvur á að tengjast stærri tölvum þannig að skóli senr fær Apple tölvur verð- ur ekki með neitt annað. Staðreyndin er sú, að öll þróun í hugbúnaði sem á sér stað um þessar mundir, hún er fyrir tölvur, sambærilegar við Atlantis tölvuna." Leifur sagði að lokum að þessi kaup væru óhagkvæm fyrir ríkið þegar til lengdarléti. Apple- 2 tölvurnar eru, að Leifs sögn, gömul hönnun og þess- vegna jafn ódýrar og raun ber vitni. „Það er verið að undirbjóða, því gera má ráð fyrir að fljótlega fari að draga úr sölu þeirra. Atlantis tölv- urnar eru hinsvegar ekkert að fara af markaðnum." Leifur bætti því við að At- lantis tölvan sé dýrari vél en hún er framleidd innanlands, „þannig að mikið af þessu verður til í landinu og skilar sér aftur til ríkisins. Menn ■ Leifur Steinn Elísson: öllumskilningi. hafa greinilega tekið peningahliðina fram yfir þá hlið er snýr að gæðunum." Illa staðið að þessu Þá var haft samband við Þór h.f. „Það hefur verið mjög illa að þessu staðið", sagði Oddur Einarsson í tölvudeild Þórs h.f. „í fyrsta lagi vegna þess að þeir sem stóðu að þessu vali eru menn sem lítið hafa kynnt sér þær tölvur sem fyrir eru í skólun- um og sennilega hafa þeir lítið komið nálægt kennslu." Oddur sagði jafnfram að Þór hf. hefði verið afvegaleiddur með illa gerðu útboði. 1 útboðinu hefði verið farið franr á mun flóknari og Þessi kaup eru óhagkvæm í NT-mynd: Ámi Bjarna. öflugri vélar heldur en þær sem síðan voru valdar. „Við buðum ranga tölvu vegna rangra upplýsinga sem lagðar voru fram í útboðinu. í útboðinu var talað um við- bótarörtölvur, lögð áhersla á graffík og stækkunarmögu- leika. Við vorum því afvega- leiddir, enda hefðum við vel getað boðið sambærilega tölvu og Apple-2, jafnvel ódýrari, hefði útboðið hljóð- að öðruvísi. Þetta þýðir að við sem höfum átt mjög stór- an hluta af skólamarkaðn- um, dettum upp fyrir. Það er mjög. hæpið að velja aðeins eitt merki í skólum landsins og þetta getur ýtt undir á- kveðna stöðnun því vissir tölvuseljendur munu draga sig frá skólamarkaðnum“ sagði Oddur að lokum. Viðunandi samningar „Ég held að þessir samn- ingar séu viðunandi fyrir báða aðila" Sagði Grímur Laxdal hjá Radíóbúðinni, þegar NT hafði samband við hann. „Það er ekki búið að ganga frá neinum endan- legum samningum um kaup en það er verið að velja Apple tölvur og senda til- kynningu til skólanna þar sem þeir eru beðnir um að tilkynna um hvað þeir vilja fá.“ Aðspurður sagði Grímur allt benda til þess að þetta þýddi Apple tölvur í alla framhaldsskóla hér eftir. „Þarna er valið ákveðið kerfi og þá er erfitt að koma öðru við.“ Hörður Lárusson, deildar- . stjóri skólarannsóknardeild- ar vildi lítið tjá sig um þessa hlið málsins. Hann sagði það mat manna að þetta tilboð Radíóbúðarinnar væri hag- stæðasta tilboðið þegar á allt væri litið. „Ég get ekki tjáð mig um hin tilboðin, það er svo flókið mál og margþætt.“ Ekkihorftnema2ár fram í tímann „Þetta er gert samkvæmt tillögum menntamálaráðu- neytisins. Við göngum fyrst og fremst frá viðskiptalegu hlið- inni en forsendur valsins liggja í menntamálaráðúneytinu," sagði Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Innkaupastofnunar. „Það liggur ekki fyrir hversu stór samningur þetta er, það fer eftir fjármagni, en við reiknuðum með að geta keypt þarna allt að 120 tölvur á einu til tveim árum, 30 til 40 tölvur í fyrstu afgreiðslu. í þessum áfanga er stefnt á Appel tölvur en þetta er ekki langt tímabil" sagði Ásgeir „það erekki horft lengra fram í tímann en eitt til tvö ár.“ Aðspurður sagði Ás- geir að engin ákvörðun hefði verið tekin í sambandi við það hvað síðar gerist „Tölvur breytast svo ótrúlega fljótt“, sagði hann að lokum.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.