NT


NT - 31.05.1984, Síða 16

NT - 31.05.1984, Síða 16
Fimmtudagur 31. maí 1984 16 Listahátfð: Um helgin; ■ Magnús Pálsson NT-mvndir ah ■ Jón Gunnar Arnason Magnús og Jón Gunnar í Nýlist asaf ninu ■ I Nýlistasafninu er nú verið aó setja upp tvær sýningar í tilefni af listahátíð. Það eru cngir smákallar sem þar sýna, þeir Jón Gunnar Árnason og Magnús Pálsson. Jón Gunnar er fæddur 1931, en Magnús 1929, og báóir eiga að baki langan og litríkan feril í myndlist. Þeir hafa m.a. báðir sýnt á Ferieyjabíennalinum, Magnús 1980 og Jón Gunnar 1982. Niðri í Nýlistasafni er enn einu sinni búið að mála, máln- ingarlyktin lá í loftinu þegar við NT-menn komum þangað. Uppi á lofti er sýning Magnús- ar, og þar var Eggert Péturs- son, einn fyrrverandi nemenda Magnúsar að setja upp sýningu á kannslulist lians. Magnús kom skömmu síðar, og við tókum hann tali. Hvað er að gerast hérna? „Petta er sýning á verkum sem ég hef unnið í kennslu, í hópum. Þetta er bæði eftir mig og hópinn. Þetta fer þannig fram að ég legg fram hugmynd eða ramma að verki, sem menn vinna svo úr.“ Er þetta unnið í MHÍ? . „Sumt af því. Líka í fjórum skólum í Hollandi þar sem ég hef kennt." Hvers konar list er þetta? „Ég þori ekki að skilgreina þetta" (í sýningarskrá er þetta kallað kennslulist). Er þctta góð eða vond list? „Mjög góð list, held ég." Hvað er fengist við? „Þarna eru nokkrar bækur, einn útiskúlptúr, sem eingöngu eru ljósmyndir af, hlutfeldi, sem er mín þýðing á orðinu multiples. Það er þegar hlutur er fjöldaframleiddur, í þessu tilfelli 100 eintök. Þarna eru líka nokkur hljóðverk, og kvikmvnd, sem er dokumenta- sjón á uppákomum." Hvað fæst þú við núna? „Ég hef einkum verið að gera leikrit, collage-leikrit. Þetta er límt upp úr úrklippt- um textum, en ekki skrifað. Ég er núna að dunda við að setja það upp." Nokkrar sýningar í vændum? „Það er nokkuð langt síðan ég var með einkasýningu. Við vorum að vísu 4 eða 5 með sýningu á Kjarvalsstöðum fyrir 3-4 árum. Ég á ekki von á því að ég haldi sýningu bráðlega. Eins og þú sérð að þegar menn vilja að ég haldi sýningu þá svni ég verk annarra. Eg hef gert frekar loftkennda hluti að undanförnu, og verð alltaf loft- kenndari og loftkenndari. þetta hverfur svona.“ Og þar með lauk viðtalinu við Magnús. En niðri í kjallara er Jón Gunnar Arnason með tvö verk. og þangað röltum við. Þarna eru dularfullir speglar og grjót hangandi yfir. Við spurðum Jón Gunnar hvað hann kallaði þessi verk. ,,Annað verkið heitir Cosmos. Það skapast ákveðin geim og speistilfinning, þegar steinarnir hanga yfir speglun- um. Hitt verkið heitir Gravity. Það byggist á þyngdarlögmál- inu og er svolítið ljóðrænt. Það þarf ekki annað en að ganga framhjá verkinu og þá skapast súgur og verkið hreyfist. Þegar maður stendur fyrir íraman það þá virðist manni erfitt að sjá það sem er upp og niður. Ánnars er erfitt að segja frá þessu.“ „Ég hef unnið mikið í um- hverfisverkum. og svo bara venjulegum skúlptúr, eins og hjá Framkvæmdastofnun og Broadwry. Ég hef unnið með umhverfið sjálft sem hluta af verkinu." Ég var að vinna með 30 umhverfislistamönnum í Geilo í Noregi. Það var um páskana. Það var allt unnið úti, í snjó og ís. Við vorum á gönguskíðum í metersdjúpum snjó. Það er síðasta sýningin sem ég hef verið á. Ég var þar með 25 metra langt verk úr speglum og trjárenglum, alveg snjóhvítt." Það sást varla, var svo snjóhvítt. Hver er pælingin núna? „Ég hef verið minnst að gera núna. Ég er reyndar að fara til Kaupmannahafnar á umhverf- issýningu þar sem saman koma listamenn frá öllum Norður- löndum og vinna með stein- steypu. Það verða tveir frá hverju landi.“ Er mikið að ske í umhverfis- list á Norðurlöndum? „Það hefur verið það undan- farin ár. Ég og Rúrí og einn danskur listamaður stofnuðum hópinn Experimental environ- ment árið 1979, og 1980 var stór umhverfislistasýning á Korpúlfsstöðum eins og þú kannski manst eftir. Síðan hef- ur mikið verið að gerast á Norðurlöndunum." „Annars skilja þessar um- hverfissýningar lítið eftir nema dokúmentasjónina." Hvað selja umhverfislista- menn? Undirbúningsvinnuna? „Það er aldrei þannig að menn geri ekki plön og hluti á undan umhverfisverkum, og það geta orðið sýningargripir og gefið af sér peninga. En yfirleitt hugsar maður ekki um peninga, maður hugsar um að gleðja sjálfan sig og aðra." Árni Daníel Júlíusson Sunnudagur 3. júní Sjómannadagurinn 8.00 Morgunandakt Séra Kristinn Hóseasson prófastur, Heydölum, flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 8.35 Létt morgunlög Hljómsveit Helmuts Zacharias leikur. 9.00 Fréttir. 9.05 Morguntónleikar a. „Ládeyði og leiði gott", torleikur op. 27 eftir Felix Mendelssohn. Fílharmóniu- sveitin í Berlín leikur; Frítz Leh- mann stj. b. „Hafnarborgirvið Mið- jarðarhaf", eftir Jacques Ibert. Sin- tóníuhljómsveitin í Boston leikur; Charles Miinch stj. c. „Ameríku- maöur í París“, eftir George Gershwin. Hátiöahljómsveitin í Lundúnum leikur; Stanley Black stj. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurtregnir. 10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls Jónssonar. 11.00 Sjómannaguðsþjónusta i Dómkirkjunni Biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, prédik- ar. Séra Hjalti Guðmundsson þjón- ar fyrir altari. Organleikari: Mar- teinn H. Friðriksson. Hádegistón- leikar. 12.10 Dagskrá. Tónleikar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurtregnir. Til- kynningar. Sjómannalög. 14.00 Frá útisamkomu sjómanna- dagsins við Reykjavíkurhöfn Fulltrúar frá ríkisstjórninni, útgerð- armönnum og sjómönnum flytja ávörp. Aldraðir sjómenn heiöraðir með heiðursmerki sjómannadags- ins. 15.00 Frá Vínarkvöldi Sinfóniu- hljómsveitar íslands í Háskóla- biói 12. jan. s.l. Stjórnandi: Her- bert Mogg. Einsöngvari: Sieglinde Kahmann. Flutt eru lög eftir Strauss, Kalman, Ziehrer, Schön- herr o.fl. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt- ir. Umsjónarmenn: ÖrnólfurThors- son og Árni Sigurjónsson. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Frá samsöng kirkjukors Húsavíkur í Húsavíkurkirkju 14. maí í fyrra. Stjórnendur: Sigríður Schiöth og Siguröur Hallmarsson. Organleikari: Ulrík Ólason. 18.00 Við stýrið Umsjónarmaður: Arnaldur Árnason. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Eftir fréttir. Þáttur um fjölmiðl- un, tækni og vinnubrögð. Umsjón: Helgi Pétursson. 19.50 „Misvísun" Janus Hafsteinn les eigin Ijóð. 20.00 Dagskrá í tilefni sjómanna- dagsins Umsjón: Guðmundur Hallvarðsson. 21.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.40 Reykjavík bernsku minnar - I. þáttur Guðjón Friðriksson ræðir við Elías Mar rithöfund. (Þátt- urinn endurtekinn í fyrramálið kl. II. 20). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Risinn hvíti“ eftir Peter Boardman Ari Trausti Guðmunds- son les þýðingu sínar (3). Lesarar með honum: Ásgeir Sigurgestsson og Hreinn Magnússon. 23.00 Kveðjulög skipshafna - Mar- grét Guömundsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Sunnudagur 3. júní 18.00 Sunnudagshugvekja 18.10 Teiknimyndasögur 1. Dufan, lirfan og kötturinn. Finnskur myndaflokkur í fjórum þáttum. Þýðandi Kristin Mántylá. (Nordvis- ion - Finnska sjónvarpið). 18.25 Nasarnir lokaþátlur. Sænsk teiknimyndasaga. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. (Nordvision -Sænskasjónvarpið). 18.35 Börnin á Senju 2. Sumar. Norskur myndaflokkur i fjórum þáttum um leiki og störf á eyju úti fyrir Norður-Noregi. Þýðandi Jó- hanna Jóhannsdóttir. Þulur: Anna Hinriksdóttir. (Nordvision - Norska sjónvarpið). 19.00 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Sjónvarp næstu viku 20.50 „Stolt siglir fleyið mitt„.“ Ný kvikmynd eftir Heiðar Marteinsson um störf íslenskra togarasjó- manna i bliðu og striðu. Kvik- myndun: Heiðar Marteinsson. Hljóð: Sigurður Grímsson. Klipping: Jón Hermannsson. Tónlist: Gylfi Ægisson. Textahöf- undur og þulur: Magnús Bjarn- freðsson. 21.40 Sögur frá Suður-Afriku Nýr flokkur - 1. Lítill skiki lands. Myndaflokkur frá Suður-Afríku í sjö sjálfstæðum þáttum sem gerðir eru eftir smásögum skáldkonunnar Nadine Gordimer. Fyrsti þáttur hefst með viðtali við höfundinn sem hefur látið kynþáttamisrétti í Suður-Afríku til sin taka eins og sögurnar bera vott um. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 22.45 Dagskrárlok.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.