NT - 31.05.1984, Blaðsíða 25
Jffl p| Fimmtudagur 31. maí 1984 25
11 Útlönd
Kona vara-
forsetaefni?
■ Margir leiðtogar Denió-
krataflokksins bandaríska hafa
látið þá skoðun uppi að sjálfsagt
sé að kona verði í framboði sem
varaforseti fyrir flokkinn í for-
setakosningunum sent fram fara
í október í haust.
Meðal þeirra eru ríkisstjór-
ar. öldungardeildarþingmenn.
leiðtogi flokksins í fulltrúadcild-
inni og margir fleiri. Verkalýðs-
leiðtogar eru því hlynntir að
kona verði fyrir valinu svo að
ekki sé talaö um kvenréttinda-
hreyfingarnar, sem eru öflugar
í Bandaríkjunum. Tvær stærstu
fylkingarnar af því tagi styðja
Demókrataflokkinn.
Thomas P.O'NeilI forseti full-
trúadeildarinnar hefur bent á
Geraldina A. Ferraro, fulltrúa-
deildarþingmann frá New York
sem besta valkostinn. Allir
leiðtogar flokksins sent látið
hafa uppi álit si'tt á málinu eru
eindregið á þeirri skoðun að
Ferraro sé sjálfsagt varafor-
setaefni Demókrataflokksins og
virðist hún enga keppinauta
eiga nteðal kvnsystra sinna.
Sá sent nær útnefningu sem
forsetaefni á flokksþingi velur
varaforsetaefni sér við Itlið.
■ Geraldine A. Ferraro er
líklegasta varalorsetaefni
Demókrata, cf kona verður fyr-
ir valinu.
Persaflói:
Skip brenna og
afsláttur á olíu
Bahrain-Keuler
■ frakar gerðu enn eina
árás á risaolíuskip nálægt
Khargeyju í Persaflóa í gær.
Talið var að skipið væri frá
Líberíu þótt það hefði enn
ekki fengist staðfest í gær.
Stöðugt fleiri ríki hafa nú
ákveðið að hætta olíuverslun
við Persaflóaríkin, og þá
sérstaklega írani, vegna
hættu á árásum á olíuskip.
íranir hafa þess vegna gripið
til þess ráðs að bjóða olíuna
á niðursettu verði.
ísrael:
Stungu augun
úrskæruliðunum
Jerusalcm-Keuter
■ Óstaðfestar fréttir frá ísrael
hermaað ísraelskiröryggisverð-
ir hafi stungið augun úr palest-
ínsku skæruliðunum sem þeir
eru ásakaðir fyrir að hafa myrt
í seinasta ntánuði.
Eins og komið hefur fram í
fréttum létu skæruliðarnir lífið
eftir að þeir Itöfðu verið teknir
fastir af öryggisvörðum. í
skýrslu sem stjórnin lét gera um
þetta mál kemur í Ijós að hátt-
settir foringjar í hernum séu
blandaðir í málið og bcri a.nt.k.
að hluta til ábyrgð á morði
skæruliðanna.
Kínverjar
boða aukna
samvinnu við
Vesturlönd
París-Keuler
■ Forsætisráðherra Kína,
Zliao Ziyang, sagði í gær í
ræðu, sem hann hélt á
franska þinginu. að hann
vildi að samvinna Kína og
Evrópu ykist ntikið á öllunt
sviðurn. Slíkt myndi vera
báðuni aðilunt til góðs í
efnahagsmálum auk þess
sem aukin samvinna Kín-'
verja og Evrópubúa myndi
minnka spcnnu á alþjóða-
vettvangi.
Zltao sagði að krafa íbúa
Evrópu urn afvopnun risa-
valdanna væri réttmæt og
hann líkti risaveldunum við
sverð Dymoclesar í grískri
goðsögn en það hékk á mjó-
um þræði yi'ir höfði fórnar-
lamba Dantoclesar. Hann
lagði til að alþjóölcg ráð-
stcfna yrði kölluð saman þar
scm ræddar yrðu ýmsar leiðir
til að draga úr kjarnorkuvíg-
búnaði.
Kínverski forsætisráðherr-
ann skýrði frá því að Kín-
vcrjar myndu jeggja sig fram
um að skapa góð skilyrði til
að starfa í Kína. Þannig
hyggðust þeir laða fjármagn
og tækniþekkingu til Kína
frá Evrópu.
Áskrifta- 11 sími tl 1 86300
■ Botha kannar lífvörð við komu sína til Portúgal ásamt Soares forsætisráð-
herra. Símamynd í'olfoto
Mikil mótmæli vegna
komu Botha til Evrópu
Lissabon, Jóhannesbor}>-Keuler m
■ Portúgal er fyrsta landið sem Botha
forsætisráðherra Suður-Afríku heimsæk-
ir í fvrstu Evrópuför forsætisráðherra frá
Suður-Afríku í 20 ár. Par var honum vel
tekið af stjórnvöldum og í gær ræddi
hann við Eanes forseta. Portúgalir hafa
reynt að halda uppi samskiptum við
fyrrverandi nýlendur sínar í Afríku og
nýverið hafa Suður-Afríkumenn gert
griðasáttamála við sósíalistastjórnirnar í
Angóla og Mosambique.
Botha mun heimsækja átta Evrópu-
lönd í för sinni. í dag fer hann til Sviss.
Stjórnarandstaða margra þeirra landa
sern Botha sækir heim hafa mótmælt
komu hans og sendiherrar annarra
Afríkuríkja hafa borið frant mótmæli við
stjórnvöld fvrir að taka á móti honum.
í Pýskalandi hefur komu Botha harð-
lega verið mótmælt og í Bretlandi hefur
stjórnarandstaðan og samtök sem starfa
á móti aðskilnaðarstefnu kynþátta lagst
hart gegn heimsókninni. Til London
kentur Botha á laugardag og mun ræða
við Thatcher forsætisráðherra. Er búist
við miklum mótmælaaðgerðum á meðan
hann dvelur í London.
í gær mættu 1500 stúdentar við stærsta
háskóla í Suður-Afríku ekki í tímá'.
Skólinn er í Jóhannesarborg og voru það
stúdentar af öllum kynþáttum sent að
mótmælunum stóðu. Stúdentarnir mót-
mæltu því að ríkisstjórnir í Evrópu tækju
í mál að sýna forsætisráðherranum gest-
risni. Stúdentarnir efndu til kröfugöngu
og fór hún friðsamlega fram.
Fyrr í þessum mánuði lokuðu stjórn-
völd nokkrum skólum í grennd Pretóríu
eftir mótmælaaðgerðir. Biöð í Suður-
Afríku hafa varað stjórnvöld við að
bregðast ekki harkalega gegn mótmæla-
aðgerðum súdenta og minna á hvernig
fór 1976 þegar miklar stúdentauppreisnir
voru í tandinu.
í göngunni í gær voru svartir stúdentar
í miklum meirihluta og sungu þeir
baráttusöngva og kröfðust jafnréttis. Hin
79 ára gamla baráttukona fyrir jafnrétti,
Helen Joseph, átaldi evrópskar ríkis-
stjórnir fyrir aö taka á nióti Botha.
Sérstaklega réðst hún að Margréti Thatc-
her og sagöi að það væri fáránlegt að hún
og Botha mundu gæða sér saman á
krásunt á sama tíma og börn væru
vannærð í Suöur-Afríku. Kvaðst hún
ekki geta ím .Jað sér hvar þau ættu að
hafa matfrið fyrir mótmælaaðgerðum og
stakk upp á að þau ættu að snæða saman
í loftbelg, óg'letIjósi þá ósk, „að helvítis
maturinn kæfði þau."
!> 1IOK1M U
■“kningar
/tsKUbparnaður / Lífeyrissparnaður
Nú er sama á hverju gengur í verðbólgustríðinu. Með fullri
verðtryggingu og 5% vöxtum að auki, veita hinir nýju stjörnureikn-
ingar Alþýðubankans algjört öryggi og góða ávöxtun.
Við förum af stað með tvo sparireikningaflokka undir samheit-
inu Stjörnureikningar, annan fyrir æskuna og hinn fyrir lífeyris-
þega eða þá sem nálgast eftirlaunaaldurinn.
ÆSKUSPARNAÐUR
Hann er ætlaður foreldrum, öfum og ömmum, eða öllum þeim
sem vilja gefa barni yngra en 16 ára sparifé. Þegar barnið verður
16 ára er upphæðin, með verðtryggingu og vöxtum laus til
útborgunar og gott vegarnesti út í lífið.
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Hann er fyrir 65 ára eða eldri - tryggur bakhjarl þegar aldurinn
eonia til sín og tekjurnar dragast saman.
Verðtryggð innistæða
og 5% vextir að auki!
a
Viö gerum vel við okkar fólk
Alþýðubankinn hf.