NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 31.05.1984, Qupperneq 25

NT - 31.05.1984, Qupperneq 25
Jffl p| Fimmtudagur 31. maí 1984 25 11 Útlönd Kona vara- forsetaefni? ■ Margir leiðtogar Denió- krataflokksins bandaríska hafa látið þá skoðun uppi að sjálfsagt sé að kona verði í framboði sem varaforseti fyrir flokkinn í for- setakosningunum sent fram fara í október í haust. Meðal þeirra eru ríkisstjór- ar. öldungardeildarþingmenn. leiðtogi flokksins í fulltrúadcild- inni og margir fleiri. Verkalýðs- leiðtogar eru því hlynntir að kona verði fyrir valinu svo að ekki sé talaö um kvenréttinda- hreyfingarnar, sem eru öflugar í Bandaríkjunum. Tvær stærstu fylkingarnar af því tagi styðja Demókrataflokkinn. Thomas P.O'NeilI forseti full- trúadeildarinnar hefur bent á Geraldina A. Ferraro, fulltrúa- deildarþingmann frá New York sem besta valkostinn. Allir leiðtogar flokksins sent látið hafa uppi álit si'tt á málinu eru eindregið á þeirri skoðun að Ferraro sé sjálfsagt varafor- setaefni Demókrataflokksins og virðist hún enga keppinauta eiga nteðal kvnsystra sinna. Sá sent nær útnefningu sem forsetaefni á flokksþingi velur varaforsetaefni sér við Itlið. ■ Geraldine A. Ferraro er líklegasta varalorsetaefni Demókrata, cf kona verður fyr- ir valinu. Persaflói: Skip brenna og afsláttur á olíu Bahrain-Keuler ■ frakar gerðu enn eina árás á risaolíuskip nálægt Khargeyju í Persaflóa í gær. Talið var að skipið væri frá Líberíu þótt það hefði enn ekki fengist staðfest í gær. Stöðugt fleiri ríki hafa nú ákveðið að hætta olíuverslun við Persaflóaríkin, og þá sérstaklega írani, vegna hættu á árásum á olíuskip. íranir hafa þess vegna gripið til þess ráðs að bjóða olíuna á niðursettu verði. ísrael: Stungu augun úrskæruliðunum Jerusalcm-Keuter ■ Óstaðfestar fréttir frá ísrael hermaað ísraelskiröryggisverð- ir hafi stungið augun úr palest- ínsku skæruliðunum sem þeir eru ásakaðir fyrir að hafa myrt í seinasta ntánuði. Eins og komið hefur fram í fréttum létu skæruliðarnir lífið eftir að þeir Itöfðu verið teknir fastir af öryggisvörðum. í skýrslu sem stjórnin lét gera um þetta mál kemur í Ijós að hátt- settir foringjar í hernum séu blandaðir í málið og bcri a.nt.k. að hluta til ábyrgð á morði skæruliðanna. Kínverjar boða aukna samvinnu við Vesturlönd París-Keuler ■ Forsætisráðherra Kína, Zliao Ziyang, sagði í gær í ræðu, sem hann hélt á franska þinginu. að hann vildi að samvinna Kína og Evrópu ykist ntikið á öllunt sviðurn. Slíkt myndi vera báðuni aðilunt til góðs í efnahagsmálum auk þess sem aukin samvinna Kín-' verja og Evrópubúa myndi minnka spcnnu á alþjóða- vettvangi. Zltao sagði að krafa íbúa Evrópu urn afvopnun risa- valdanna væri réttmæt og hann líkti risaveldunum við sverð Dymoclesar í grískri goðsögn en það hékk á mjó- um þræði yi'ir höfði fórnar- lamba Dantoclesar. Hann lagði til að alþjóölcg ráð- stcfna yrði kölluð saman þar scm ræddar yrðu ýmsar leiðir til að draga úr kjarnorkuvíg- búnaði. Kínverski forsætisráðherr- ann skýrði frá því að Kín- vcrjar myndu jeggja sig fram um að skapa góð skilyrði til að starfa í Kína. Þannig hyggðust þeir laða fjármagn og tækniþekkingu til Kína frá Evrópu. Áskrifta- 11 sími tl 1 86300 ■ Botha kannar lífvörð við komu sína til Portúgal ásamt Soares forsætisráð- herra. Símamynd í'olfoto Mikil mótmæli vegna komu Botha til Evrópu Lissabon, Jóhannesbor}>-Keuler m ■ Portúgal er fyrsta landið sem Botha forsætisráðherra Suður-Afríku heimsæk- ir í fvrstu Evrópuför forsætisráðherra frá Suður-Afríku í 20 ár. Par var honum vel tekið af stjórnvöldum og í gær ræddi hann við Eanes forseta. Portúgalir hafa reynt að halda uppi samskiptum við fyrrverandi nýlendur sínar í Afríku og nýverið hafa Suður-Afríkumenn gert griðasáttamála við sósíalistastjórnirnar í Angóla og Mosambique. Botha mun heimsækja átta Evrópu- lönd í för sinni. í dag fer hann til Sviss. Stjórnarandstaða margra þeirra landa sern Botha sækir heim hafa mótmælt komu hans og sendiherrar annarra Afríkuríkja hafa borið frant mótmæli við stjórnvöld fvrir að taka á móti honum. í Pýskalandi hefur komu Botha harð- lega verið mótmælt og í Bretlandi hefur stjórnarandstaðan og samtök sem starfa á móti aðskilnaðarstefnu kynþátta lagst hart gegn heimsókninni. Til London kentur Botha á laugardag og mun ræða við Thatcher forsætisráðherra. Er búist við miklum mótmælaaðgerðum á meðan hann dvelur í London. í gær mættu 1500 stúdentar við stærsta háskóla í Suður-Afríku ekki í tímá'. Skólinn er í Jóhannesarborg og voru það stúdentar af öllum kynþáttum sent að mótmælunum stóðu. Stúdentarnir mót- mæltu því að ríkisstjórnir í Evrópu tækju í mál að sýna forsætisráðherranum gest- risni. Stúdentarnir efndu til kröfugöngu og fór hún friðsamlega fram. Fyrr í þessum mánuði lokuðu stjórn- völd nokkrum skólum í grennd Pretóríu eftir mótmælaaðgerðir. Biöð í Suður- Afríku hafa varað stjórnvöld við að bregðast ekki harkalega gegn mótmæla- aðgerðum súdenta og minna á hvernig fór 1976 þegar miklar stúdentauppreisnir voru í tandinu. í göngunni í gær voru svartir stúdentar í miklum meirihluta og sungu þeir baráttusöngva og kröfðust jafnréttis. Hin 79 ára gamla baráttukona fyrir jafnrétti, Helen Joseph, átaldi evrópskar ríkis- stjórnir fyrir aö taka á nióti Botha. Sérstaklega réðst hún að Margréti Thatc- her og sagöi að það væri fáránlegt að hún og Botha mundu gæða sér saman á krásunt á sama tíma og börn væru vannærð í Suöur-Afríku. Kvaðst hún ekki geta ím .Jað sér hvar þau ættu að hafa matfrið fyrir mótmælaaðgerðum og stakk upp á að þau ættu að snæða saman í loftbelg, óg'letIjósi þá ósk, „að helvítis maturinn kæfði þau." !> 1IOK1M U ■“kningar /tsKUbparnaður / Lífeyrissparnaður Nú er sama á hverju gengur í verðbólgustríðinu. Með fullri verðtryggingu og 5% vöxtum að auki, veita hinir nýju stjörnureikn- ingar Alþýðubankans algjört öryggi og góða ávöxtun. Við förum af stað með tvo sparireikningaflokka undir samheit- inu Stjörnureikningar, annan fyrir æskuna og hinn fyrir lífeyris- þega eða þá sem nálgast eftirlaunaaldurinn. ÆSKUSPARNAÐUR Hann er ætlaður foreldrum, öfum og ömmum, eða öllum þeim sem vilja gefa barni yngra en 16 ára sparifé. Þegar barnið verður 16 ára er upphæðin, með verðtryggingu og vöxtum laus til útborgunar og gott vegarnesti út í lífið. LÍFEYRISSPARNAÐUR Hann er fyrir 65 ára eða eldri - tryggur bakhjarl þegar aldurinn eonia til sín og tekjurnar dragast saman. Verðtryggð innistæða og 5% vextir að auki! a Viö gerum vel við okkar fólk Alþýðubankinn hf.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.