NT


NT - 31.05.1984, Side 28

NT - 31.05.1984, Side 28
T uttugu ára stríðið - í algleymingi á Akureyri Stríðsöxin grafin: Myndbanda- leigur leggja fram sam- starfsgrund- völl við sam- tök rétthafa ■ Nýstofnuð samtök myndbandaleiga hafa lagt fram tillögur um sam- starfsgrundvöll við samtök rétthafa myndbanda, en oft hefur verið grunnt á því góða á milli þessara aðila. Tillögurnar miða m.a. að því, að pappírar með öllum myndböndum verði sendir til samtakanna og þau muni síðan sjá um að taka til hliðar þær myndir, sem samtök rétthafa hafa myndbandarétt á. Pá vilja samtök myndabandaleiga einnig fá upplýsingar um þær myndir, sem eftir á að sýna í kvikmyndahúsum, þannig að hægt verði að sneiða hjá árekstrum vegna myndbandaspóla með myndum, sem eftir á aö sýna í kvikmyndahús- unum. Samtök rétthafa mynd- banda halda fund á þriðju- dagsmorgun, þar sem af- staða verður tekin til til- lagna myndbandaleig- anna. ■ Um tuttugu ára gamalt stríð milli aldraðrar konu á Akureyri og um tuttugu krakka hóps stendur í hámarki þessa dagana. Málavextir eru þeir að fast að húslóð konunnar liggur fótbolta- völlur í eigu Akureyrarbæjar, sem krakkar hafa leikið sér á gegn um tíðina, en konan telur sig hafa orðið fyrir miklu ónæði af. Upp úr sauð nýlega er bolti frá krökkunum fór inn á húslóð konunnar, yfir girðingu sem sett hefur verið upp milli lóðarinnar og vallarins. Nokkrir drengir, sem hugðust sækja bolta sinn, fengu neitun. Var þá tekið til þess ráðs að kalla á lögeglu á staðinn og fékkst þá boltinn afhentur eftir nokkur orða- skipti. Að sögn foreldris eins krakk- anna hefur konan haldiðuppi aðgerðum með því að sprauta vatni á völlinn og jafnvel einu sinni á krakkana sjálfa. „Ég hef aldrei sprautað á krakkana - og dytti það ekki í hug. Hins vegar sprautaði ég á völlinn eina nóttina, því ein- hvern tíma verður maður að fá frið“, sagði konan, er NT bar fullyrðingar foreldrisins undir hana. Þegar þessi leikvöllur var settur upp kvað hún því hafa verið lofað að þetta yrði ekki fótboltavöllur. Hún kvað marg- búið að brjóta rúður í húsinu, jafnframt því sem hún hefði fyrir löngu gefist upp á að setja. niður blóm eða annan gróður þar sem hann væri strax eyði- lagður. „Ég skil afstöðu bless- aðra barnanna mjög vel, en einhvern tíma verð ég líka að fá frið“, sagði konan. ■ Kornið fyllir mælinn, segir máltæk- ið. í þessu tilfelli var það bolti, sem sparkað var inn á lóð gömlu konunnar þrátt fyrir 3 metra háa varnargirð- ingu um fótboltavöll krakkanna. NT-mynd Kolbeinn Roksala á íslandsferðum í Bretlandi og á Norðurlöndunum: Bókanir haf a nú þeg- araukistum 12-14% ■ Tólf til fjórtán prósent aukning er nú fyrirsjáanleg á ferðamönnum frá Norðurlöndum og Bretlandi í sumar. Þá er einnig um aukningu að ræða frá Bandaríkjunum og Islendingar munu ferðast meira í sumar en á umliðnum arum. Umdæmisstjórar Flugleiða á Norðurlöndunum og Bretlandi hafa borið saman bækur sínar hér á landi undanfarið, og í samtali við NT sagði Sigfús Erlingsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða, að 12- 14% aukningværifyrirsjáanleg. Stöðnun hefði ríkt undanfarið í fjölda farþega frá Skandinavíu og Danmörku, en aukning hefði verið undanfarin tvö til þrjú ár frá Bandaríkjunum og Bret- landi og héldi hún áfram. Aðal- málið væri nú hótelrými í Reykjavík, en þar eru mjög þétt setnar kojur um háanna- tímann. Aðpurður um áhrif verkfalls- ins á bókanir sagði Sigfús að nokkur stöðnun á bókunum hefði orðið, þegar fréttir um flugmannaverkfall bárust, en það hefði farið í gang aftur. Vegna mikillar eftirspumar hefur verið bætt við tveim ferð- um í viku til Noregs í sumar, en Flugleiðir munu í sumar fljúga sex ferðir í viku til Osló, 12 ferðir til Kaupmannahafnar, 4 til Stokkhólms, 6 til London, 3 til Glasgow, 1 til Gautaborgar, 2 til Frankfurt, 1 til Parísar og eina til Grænlands. Pá sagði Sigfús Erlingsson að bókanir íslendinga út væru fleiri en í fyrra, einnig jafnari og betri dreifing yfir allt tímabilið, sem stendur frá byrjun júní til loka september. Fuglaverndunarfélagið: Krefur sýslu mann rann- sóknar á gæsadrápi ■ Fuglaverndarfélag íslands hefur sent sýslu- mannsembættinu á Sauðár- króki bréf þar sem farið er fram á rannsókn á þeim ummælum formanns Skot- veiðifélags íslands í Morg- unblaðinu, um síðustu helgi, að feðgar frá Akur- eyri hafi skotið hátt í þrjú hundruð gæsir í Skagafirði fyrir skömmu, en gæsir eru alfriðaðar á þessum tíma. Hjá sýslumannsembætt- inu á Sauðárkróki fengust þær upplýsingar, að þetta mál yrði athugað og ef þetta reyndist rétt myndi bréf Fuglaverndarfélagsins gilda sem kæra. Engar yfirheyrsl- ur hefðu enn farið fram, en málinu yrði væntanlega vís- að til lögreglunnar á Akur- eyri þar sem hugsanlegir sakborningar eru þaðan.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.