NT - 29.06.1984, Side 3
Föstudagur 29. júní 1984 3
llla gengur að lækka útborgun í fasteignaviðskiptum:
Koma ríkisvíxlarnir í veg
fyrir betri greiðslukjör?
■ Margir fasteignasalar halda
því fram að sala á ríkisvíxlum
hafi komið í veg fyrir að heil-
brigðari greiðslukjör næðust
fram á fasteignamarkaði. Telja
þeir að fólk, sem hefur lausa
peninga, hafi frekar veðjað á
ríkisvíxla en skuldabréf á frjáls-
um markaði til að fjárfesta.
Þrátt fyrir yfirlýsingar félags-
skapar fasteignasala í vetur um
að í kjölfar lækkandi verðbólgu
sköpuðust aðstæður til að
breyta greiðslukjörum, er enn
ekkert komið fram sem bendir
til að þau séu að breytast.
Ennþá er algengast að fólk borgi
um eða yfir 75% af verði íbúðar
á fvrsta ári og afganginn með
skuldabréfum til fjögurra ára.
„Til þess að breyta þessu
þurfa seljendur að hafa ein-
hverja tryggingu fyrir því að
þeir losni við skuldabréfin fyrir
eftirstöðvunum. Eneinsog mál-
um er háttað núna geta verð-
brefamarkaðirnir ekki gefið
neina tryggingu fyrir því - meðal
annars vegna þess að fölk kýs
ríkisvíxlana frekar," sagði fast-
eignasali í Reykjavík í samtali
við blaðið.
2000 ný
símanúmer
■ í kvöld fjölgar síma-
númerum til ráðstöfunar
á miðbæjarsvæðinu um
eitt þúsund rneð tengingu
nýrrar stafrænnar sím-
stöðvar. Nýju númerin
byrja á 61 og 62 og eru sex
stafa. Þá er áætlað að taka
í notkun aðra samskonar
1000 númera stöð fyrir
Seltjarnarnesið fyrir miðj-
an næsta mánuð.
Þórshöfn:
■ Svona kúnstir dugðu nú skammt hjá Hrekkjalómafélaginu í Vestmannaeyjum, þegar það tapaði
knattspyrnukappleiknum á móti Hildibröndum.
Vestmannaeyjar:
Óvænt karlakroppasýning
- sem konurnar kunnu vel að meta
■ Berir bossar og boxhanskar.
Ekki algeng sjón á knattspyrnu-
völlum landsins og síst af öllu á
knattspyrnumönnunum
sjálfum. Þetta fengu
Vestmannaeyingar þó að sjá í
fyrrakvöld á opnunarhátíð
knattspyrnumóts 6. flokks
drengja, sem þar er haldið á
vegum Iþróttafélagsins Týs og
Tommahamborgara.
Liðin, sem áttust við voru 4.
deildar liðið Hildibrandur úr
Eyjum og Hrekkjalómafélagið.
Hildibrandar mættu til leiks á
pungbindunum einum fata, með
rasskinnarnar málaðar ljósbláar
og bleikar. Hrekkjalómafélag-
ið mætti í öllu hefðbundnari
klæðnaði, Ijósum treyjum og
skræpóttum buxum, en með
boxhanska á höndum.
Leikurinn var æsispennandi
og skemmtilegur og lauk honum
með sigri Hildibrandanna,
sem skoruðu 4 nrörk gegn 2
Hrekkjalómanna.
í Hrekkjalómafélaginu eru
margir af helstu mektar-
mönnum þeirra Vestmanna-
eyinga og er alþingismaðurinn
Árni Johnsen þar fremstur í
flokki. Hildibrandar eru
gamlir æskufélagar og grallarar
miklir.
Tvö þúsund áhorfendur
fylgdust með kappleiknum og
voru konur mjög fjölmennar.
Þær munu hafa kunnað vel að
meta þessa óvæntu karla-
kroppasýningu og ætla að þakka
fyrir sig með því að mæta fram-
vegis á alla leiki Hildibrand-
anna. Ekki fylgir þó sögunni
hvort þeir ætli að leika á
pungbindinu í Islandsmótinu.
■ Kampakátir sigurvegarar, Hildibrandar á pungbindum.
■ Dómaratríóið, séra Jón og ófreskjumar tvær.
■ Gengið fylkt u liði inn á íþróttavöllinn undir fána Týs. Takið eftir
Stóra boltanum lengst til vinstri. M -myndir lnnvcldur (.isladollir
Veiði góð
ogat
vinna er
mikil
Frá Úlfari l'órðarsyni,
Þórshöfn:
■ Á Þórshöfn hefur
togarinn, Stakfell aflað
mjög vel það sem af er
árinu og í vikunni kom
hann að landi með 200
tonn þar af 175 af góðum
þorski. Afli minni báta
hefur aftur á móti verið
lítill en næg atvinna er
samt á staðnum. Næstu
daga verður Stakfell í
landi og er ætlunin að
mála skipið og yfirfara og
stilla vél. Munu heima-
menn vinna þau verk og
hefur björgunarsveitin
Hafliði tekið að sér að
mála.
Afli Stakfells frá ára-
mótum er 1532 tonn að
verðmæti 18 milljónir og
262 þúsund, en skipið var
frá veiðum frá 1. janúar til
15. febrúar. 30. maí land-
aði togarinn 153.9
tonnum, 12. júní 154,3
tonnum og 200 tonnum
25. júní eins og fyrr segir.
Sláttur er ekki hafinn á
bæjum í grcnnd við Þórs-
höfn og ekki reiknað með
að hann hefjist fyrr en um
miðjan júlí. Víða eru tún
tilfinnanlega kalin eftir
harðan vetur.
Nyr salur undir súð
Við framreiðum Ijúffengan mat á báðum hæðum.
$F
1
Hádegisverður frá kl. 11-14 Kaffi og kokur frá kl. 14-17. Kvoldmatur frá kl. 18 Caukur á Stong veitingahus, Tryggvagötu 22, sími 11556
Ath. Þaö er opið alla daga til kl. 1 e.m. nema föstud. og laugard. er opið til kl 5 e.m.