NT - 29.06.1984, Page 4
Föstudagur 29. júní 1984 4
■ Mótið í turninn, cn við
smíðina verða plötur af þcssari
stærð boltaðar saman.
T refjaplastsúrheysturn
eru smíðuð úr tré og flutt í
verksmiðjuhúsnæðið. Þar fer
framleiðslan þannig fram að
trefjaplasti er sprautað í mótin
með sérstakri hyssu sem á
sama tíma sker niður trefja-
þræðina og blandar þeint sam-
an við plastið sem veldur
storknun þess og lit er blandað
í plastið áður en það fer í
byssuna. Fyrir hverja plötu
þarf að fara nokkrar yfirferðir
þar sem lit er blandað í þá
fyrstu og síðustu.
Hægt er að framleiða trefja-
plastplötur með penslun og
þannig hafa þeir tveir trefja-
plastsúrheysturnar verið fram-
leiddir. Sú nýjungsem innleidd
er hjá Fossplast er tæknivæð-
ing sem gerir fjöldaframleiðslu
mögulega. Turnarnireru fram-
leiddir í misþykkum plötum,
þykkast neðst sem svo eru
boltaðar saman og þoldu bolt-
arnir fimm tonna þunga í
prófun Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins sem gerð
var fyrir skemmstu.
■ Það er allt í lagi að fara inn
í hana þessa núna en verður
kannski ekki eins geðslegt
seinna meir. Hér liggur á hlað-
inu hjá Fossplast fullbúin
rotþró sem ekkert er eftir að
gera við annað en senda til
kaupenda og planta þar ofaní
jörðina. NT-myndir Ari og Gudni
■ í þcim votviðrasumrum
sem verið hafa á Suðurlandi og
víðar undanfarin ár hefur
mönnum orðið tíðræddara um
aukna votheysverkun sem
leyst gæti rigningarstríðið af
hólmi. Grundvöllurinn undir
votheysverkun er að sjálfsögðu
að menn geti komið sér upp
votheysgeymslum á ódýran og
hagkvæman máta. Nú þessa
dagana er fyrirtækið Fossplast
á Selfossi að hefja framleiðslu
á votheysturnum úr trefja-
plasti. NT brá sér austur fyrir
fjall og ræddi við eiganda fyrir-
tækisins, Astráð Guðmunds-
son um reksturinn og þessa
nýjung í framleiðslunni.
„Þetta er svo breitt fram-
leiðslusvið að það er alltaf nóg
að gera og enginn einstakur
þáttur sem gengur betur þar en
annar“, sagði Ástráður Guð-
mundsson í trefjaplastverk-
smiðjunni Fossplast á Selfossi
sem framleiðir jafnt garðlaug-
ar, fóðursílo og nú síðast súr-
heysturna úr trefjaplasti.
Framleiðsla á turnunum er enn
ekki hafin en mótin eru tilbúin
og gengið verður frá þeim
pöntunum sem þegar hafa bor-
ist á næstu vikum. Fyrirtæki
Ástráðs er ekki stórt, þar vinna
þrír menn allan ársins hring.
Aðdáunarvert
þegar fólk reynir
Aðspurður um hugsanlega
stækkun á fyrirtækinu svarar
Ástráður því til að allt slíkt
velti á því hvað mikið maður
leggi á sig. „Það er náttúrlega
mikið atvinnuleysi hér á Sel-
fossi en þegar maður er í allri
mótasmíðinni og eiga svo að
fara að stjórna miklum
ntannskap, það er spurning
hvort maður fer út í það“,
segir Ástráður. „En annars
finnst mér alltaf aðdáunarvert
þegar fólk reynir eitthvað í
þessu. Þó svo að fyrirtæki geti
farið á hausinn þá er það jú
það sem er alltaf verið að tala
um en aldrei neitt gert“.
Framleiðsla Fossplast er í
iðngörðum í Gagnheiði en
mótasmíðnina stundar Ást-
ráður sjálfur á heimili sínu í
Gaulverjabæjarhreppi. Mótin
\i\ngur
Símar:
99-3757
99-3957
Utgerð
frysting, söltun
skreiðarvinnsla
síldarsöltun og fleira
r^/áksV°
Kaupum afla af dragnóta
trollbátum.
Framleiðum fóðurmeltu
■ ■:"rwm HSIil W!^yý\yy:'‘ • /áik
l: .ú
^■■■■■■■■■■- ■ ■ • • ■■■mmmmmm&r--'-