NT - 29.06.1984, Side 13
Sumarsýning Norræna hússins:
„Landið mitt ísland“ sýning á
myndverkum grunnskólanemenda
■ Við fslendingar erum ekki
aftastir á hrossi í öllum hlutum,
þótt okkur hætti til að álíta
svo. Þótt við skerum niður í
sparnaðarskyni næstum hvar
sem hnífi verður brugðið eru
til þau svið sem aðrir geta
öfundast yfir. Hin árlega
sumarsýning í Norræna húsinu
sem nú hefur verið opnuð er
að þessu sinni myndlistarsýn-
ing skólabarna á íslandi og ber
yfirskriftina „Landið mitt
ísland." Listamennirnir eru
skólabörn á aldrinum 4-14 ára
og þar getur að líta margt
forkunnarfallegra mynda,
sumar eru þannig að manni
finnst að það ætti að vera
börnum ofviða að gera þær.
Hverju sætir þetta, spurðu
blaðamenn, sem boðið var að
skoða sýninguna í gær, og
svarið er; það er lögð meiri
áhersla á myndlist í skólakerfi
okkar en víðast annars staðar
og byrjað fyrr. í flestum stærri
grunnskólum sjá sérmenntaðir
myndmenntakennarar um
kennsluna allt frá sjö ára
bekkjum, en á Norðurlöndun-
um. sem við berum okkur
gjarna saman við, koma ekki
sérmentaðir kennarar inn í
myndmenntakennsluna fyrr en
í efstu bekkjum grunnskól-
anna.
Forstjóri Norræna hússins
Ann Sandelin, átti hugmynd-
ina að þessari sýningu og leit-
aði til Félags íslenskra hand-
menntakennara um fram-
kvæmdina. Kveikjan var hins
vegar sýning sem haldin var í
Norræna húsinu í árslok 1982
og nefndist „Vi ar pá vag,“
úrval af myndum grunnskóla-
nemenda frá öllum Norður-
löndunum. Pórir Sigurðsson
námsstjóri í myndmennt og
einn dómnefndarmanna fyrir
sýninguna taldi að þar hefði
framlag íslendinganna verið
burðamest og skýrði það með
forskoti okkar í myndmennta-
kennslu yfir nágrannaþjóðirn-
ar.
Um 800 myndir bárust til
dómnefndarinnar sem síðan
valdi 137 rnyndir til að sýna á
sumarsýningunni. „Það var
ekki auðvelt að velja,“ sagði
Þórir, og það var mikið af
myndum. sem við hefðum
gjarna viljað sýna, en umfang
sýningarinnar réðist einkum af
stærð sýningarhúsnæðisins.
Hann lauk miklu lofsorði á
frumkvæði Ann Sandelin og
skilning hennar á listsköpun
bama sem í því birtist. Norræna
húsið hefði gert allt til að
sýningin mætti verða sem veg-
legust, gefin var út vönduð
sýningarskrá, plakat af annarri
verðlaunamyndinni og allar
myndirnar eru smekklega inn-
rammaðar. Örn Þorsteinsson
myndlistarmaður sá um upp-
setninguna og það sjónarmið
var látið ráða að hafa sem
smekklegast yfirbragð yfir
henni fremur en að koma sem
mestu magni að, eins og oft vill
verða um skólasýningar.
En hvað var haft til viðmið-
unar, þegar myndirnar voru
valdar? Þórir sagði að mark-
mið sýningarinnar hefði verið
að kenna nemendununt að sjá
og skynja land sitt, en útfærsl-
an á þema sýningarinnar hefði
verið frjáls og mótast í sam-
starfi kennara og nemenda í
hverjum skóla fyrir sig. Sumir
hefðu nálagst það sögulega
aðrir tekið mið af þjóðsögum
og síðan eru ótal tilbrigði þess
utan. Myndirnar eru teiknað-
ar, málaðar og auk þess getur
að líta nokkrar grafíkmyndir.
Tvö verkin á sýningunni
voru valin til að skreyta plakat
annars vegar og sýningarskrá
hins vegar. Tíu ára nemandi úr
Snælandsskóla, Hjalti Haukur
Ásgeirsson, gerði plakatmynd-
ina, enjafnaldri hans úr Laugar-
nesskóla, Ingimar Guðmunds-
son gerði grafíkmynd sem
skreytir sýningarskrá. Ingimar
er staddur erlendis og gat því
ekki verið viðstaddur í gær, en
Hjalti Haukur tók við viður-
kenningu úr hendi Ann Sand-
elin, bókinni íslensk flóra, eftir
Agúst H. Bjarnason nteð
myndum Eggerts Péturssonar.
Myndlistarkennari Hjalta er
Guðrún Sigurðardóttir. Hjalti
sagðist vera ákveðinn í að
verða ekki iistmálari, á því
hefði hann ekki áhuga. En
hæfileikana hefur hann í bak-
höndinni ef honum skyldi snú-
ast hugur, um það ber verð-
launaverk hans vitni.
Gallerí Langbrók:
Sýning
tékkn-
eskrar
lista-
konu
■ Á morgun kl. 14.00
verður opnuð í Gallert'
Langbrók sýning á verk-
urn tékkneskrar listakonu,
Zenku Rusovu, en hún er
nú búsett í Noregi. Á
sýningunni eru eingöngu
grafíkmyndir og eru þær
allar til sölu. Sýningin
verður opin í tvær vikur,
virka daga kl. 12.00 -18.00
og um helgar kl. 14.00 -
18.00.
Skúlptúr í
Listmunahúsinu
■ Nú um helgina lýkur sýn-
ingu Steinunnar Þórarinsdótt-
ur í Listmunahúsinu í Lækjar-
götu 2. Að þessu sinni er
Steinunn á ferðinni með 17
skúlptúra eða höggmyndir sem
hún hefur unnið í gler, járn,
steiristeypu og leir, en þetta
mun vera fjórða einkasýning
hennarhér á landi. Myndefnið
sækir Steinunn eins og svo oft
áður til mannsins og tilfinn-
ingalífs hans. Sýningin er opin
virka daga frá 10 til 18 og 14 til
18 laugardaga og sunnudaga.
Gallerí Borg:
Sýning 11 grafík
listamanna
Haukur Hjalti Ásgeirsson og Ann Sandelin með plakatið af verðlaunamyndinni og verðlaunin.
NT-mynd Árni Bjarna
■ 11 grafíklistamenn sýna
verk sín á veggjum gallerísins,
auk þesS sem verk eftir fleiri
grafíkera eru til sýnis í laus-
blaðamöppum. Þá eru einnig
sýndir munir úr gleri og kera-
mik. Galleríið er opið virka
daga kl. 10-18og 14-18 laugar-
daga og sunnudaga.