NT - 29.06.1984, Síða 15
Útvarp á laugardag kl. 20.40:
Föstudagur 29. júní 1984 15
Laugardagur
30. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Benedikt
Benediktsson talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir.) Óskalög
sjúklinga, frh.
11.20 Súrt og sætt. Sumarþáttur fyrir
unglinga. Stjórnendur: Sigrún Hall-
dórsdóttir og Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Á ferð og flugi.
Þáttur um málefni líðandi stundar
í umsjá Ragnheiöar Davíösdóttur
og Sigurðar Kr. Sigurössonar.
14.50 íslandsmótið í knattspyrnu -
I. deild: Breiðablik - Akranes
Ragnar Örn Pétursson lýsir síðari
hálfleik frá Kópavogsvelli. Tón-
leikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: „Andlits-
laus morðingi" eftir Stein Rivert-
on III. þáttur: „Neyðaróp úr
skóginum" Utvarpsleikgerö:
Björn Carling. Þýðandi: Margrét
Jónsdóttir. Leikstjóri: Lárus Ymir
Óskarsson. Leikendur: Jón Sigur-
björnsson, Siguröur Skúlason,
María Sigurðardóttir, Árni
Tryggvason, Þorsteinn Gunnars-
son, Sigurður Karlsson, Steindór
Hjörleifsson, Sigriður Hagalín, Jón
Júlíusson og Erlingur Gíslason.
(III. þáttur verður endurtekinn
föstudaginn 6. júli kl. 21.25).
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Frá tónleikum Kammersveit-
ar Reykjavfkur að Kjarvals-
stöðum og Bústaðakirkju s.l.
vetur a. Tríó í Es-dúr op. 40 fyrir
píanó, fiðlu og horn eftir Johannes
Brahms. b. Kvintett í Es-dúr K. 407
fyrir fiðlu, tvær víólur, selló og horn
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
18.00 Miðaftann í garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Ambindryllur og Argspæing-
ar. Einskonar útvarpsþáttur. Yfir-
umsjón: Helgi Frímannsson.
20.00 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka. Stjórn-
endur: Guðrún Jónsdóttir og Mál-
fríður Sigurðardóttir.
20.40 „Þrjár sortir,“ smásaga eftir
Jónas Guðmundsson Höfundur
les.
21.05 „Ég fékk að vera,“ Ijóðasaga
eftir Nínu Björk Árnadóttur Krist-
ín Bjarnadóttir les.
21.45 Einvaldur í einn dag Samtals-
þáttur i umsjá Áslaugar Ragnars.
Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Risinn hvíti" eftir Peter Bo-
ardman Ari Trausti Guðmundsson
les þýðingu sína (14). Lesarar
með honum: Ásgeir Sigurgestsson
og Hreinn Magnússon.
23.00 Létt sfgild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá Rás 2 til kl.
03.00.
én
Laugardagur
30. júní
24.00-00.50 Listapopp. Endurtekinn
þáttur frá Rás 1. Stjórnandi: Gunn-
ar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næsturvaktinni Létt
lög leikin af hljómplötum. Stjórn-
andi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Rás 2 um allt land).
Laugardagur
30. júní
16.30 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Börnin við ána Annar hluti -
Sexmenningarnir Breskur fram-
haldsmyndaflokkur i átta þáttum,
gerður eftir tveimur barnabókum
eftir Arthur Ransome. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 f blíðu og stríðu Sjöundi
þáttur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur í niu þáttum. Þýð-
andi Þrándur Thoroddsen.
21.00 Bankaránið (The Bank Shot)
Bandarísk gamanmynd frá 1974.
Leikstjóri: Michael Anderson.
Aðalhlutverk: George C. Scott, Jo-
anna Cassidy og Sorell Booke.
Oftast nær láta bankaræningjar
sér nægja að láta greipar sópa um
sjóði og fjárhirslur en ræningjarnir
í þessari mynd hafa á brott með
sér banka með öllu sem í honum
er. Þýðandi Jón 0. Edwald.
22.20 Minnisblöð njósnara (The
Guiller Memorandum) Bresk bíó-
mynd frá 1966, gerð eftir sam-
nefndri njósnasögu Ivans
Foxwells. Leikstjóri: Michael
Anderson. Handrit: Harold Pinter.
Aðalhlutverk: George Segal, Max
von Sydow, Alec Guinness og
Senta Berger. Breskum njósnara
er falið að gráfast fyrir um nýnas-
istahreyfingu í Berlín. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
00.10 Dagskrárlok
■ Það er George C. Scott sem leikur Walter Ballantine, Streiger fangelsisstjóra leikur Clifton
James, Sorrel Booke leikur A1 Karp, Joanna Cassidy El, og Gower Champion er leikstjórinn.
Bankaránið
- Bandarísk bíómynd frá 1974
■ Fyrri kvikmyndin á laugar-
dagskvöldið er Bankaránið.
Hún hefst klukkan 9, á eftir
sjöunda þætti gamanmynda-
flokksins í blíðu og stríðu.
Myndin er tiltölulega ný, eða
frá 1974.
Efni myndarinnar er þetta:
Walter Ballantine er atvinnu-
glæpamaður sem situr í Strei-
ger öryggisgæslufangelsinu.
Maður að nafni A1 Karp
heimsækir hann og smyglar til
hans korti af svæðinu og áætlun
um að hjálpa Ballantine að
sjeppa. Ballantine kemst upp í
gríðarstóran jarðvinnslutrakt-
or, brýst gegnum girðinguna
og sleppur.
Þegar út er komið hittir
Ballantine hina dáindis fögru
E1 og fær að vita af hverju
Karp hjálpaði honum að
sleppa. Hann er nefnilega að
undirbúa stórt bankarán.
Bankastofnun nokkur er tíma-
bundið til húsa í húsvagni á
verslunarsvæði. Til að draga
athyglina frá sér setja þau á
svið sjálfsmorðstilraun og
draga gervallan bankann í
burtu á meðan.
Það líður ekki á löngu áður
en yfirvöld koniast á slóð ræn-
ingjanna. Karp reynir að kom-
ast undan með því að mála
húsvagninn bleikan og fela
hann í húsvagnastæði. En Her-
manni X, skápamanninum,
tekst ekki að opna peninga-
skápinn, og E1 og Ballantine
flýja undan yfirvöldunum með
vagninn í togi. Hvernig þessu
lýkur fáum við að sjá á laugar-
dagskvöld.
Þrjár sortir
- Smásaga eftir
Jónas Guðmundsson
sem höfundur les
■ Klukkan tuttugu mínútur
í níu á laugardagskvöld les
Jónas Guðmundsson smásögu
sína Þrjár sortir í útvarpinu.
Þessi saga er úr þriðja smá-
sagnasafni hans, sem mun
brátt koma út, en áður hefur
Jónas gefið út tvö smásagna-
söfn. Auk þessa lesturs verða
nokkrar sögur úr safninu lesn-
ar í erlendum útvarpsstöðvum.
■ Jónas Guðmundsson rit-
höfundur
Senta Berger í hlutverki Ingu.
George Segal í hlutverki Quillers
Sjónvarp á laugardaginn kl. 22.20:
Minnisblöð njósnara
- njósnakvikmynd sem gerist í Berlín
■ Síðari kvikmyndin á laug-
ardagskvöldið frá 1966, gerð
eftir samnefndri njósnasögu
Ivans Foxwells. Sagan hefur
komið út í íslenskri þýðingu
undir nafninu Njósnir í Berlín,
og er sagan ein af mest spenn-
andl njósnasögum sem þýdd
hefur verið á íslensku.
Sagan gerist í Berlín. Njósn-
arinn Quiller, sem leikinn er af
George Segal, rannsakar ný-
nasistahreyfingu sem starfar í
Vestur-Berlín. Yfirmaður
hans, Pol (Alec Guinness) var-
ar Quiller við og segir að
verkefnið sé hættulegt, tveir
menn hafi þegar látið lífið. En
Gibbs (George Sanders) í
London telur að Quiller sé
rétti maðurinn í starfið. Quill-
er segir Poi að hann vilji ekki
að Weng (Robert Helpman)
og Hengel (Peter Carsten)
hjálpi sér við verkefnið. Hann
vill starfa einn. Quiller fylgir
ábendingu sem Ieiðir til skóla
nokkurs þar sern einn kennar-
anna hefur hengt sig. Hann
hafði verið háttsettur nasisti í
stríðinu, og fortíðin hafði
heimsótt hann. 1 skólanum
hittir Quiller aðlaðandi
kennara, Ingu (Senta Berger)
sem býður vináttu sína en
getur ekki vísað á nasistana.
Nýnasistarnir ná Quiller og
hann er dreginn fyrir foringj-
ann, Oktober (Max Von
Sydow). Oktober vill fá að vita
hve mikið Quiller viti um ný-
nasistahreyfinguna og einnig
hvar stjórnstöð aðgerða Quill-
ers sé. Pótt Quiller sé útúrdóp-
aður af lyfjum sem nasista-
læknar hafa sprautað í hann til
að fá hann til að tala ségir hann
ekki neitt. Oktober skipar því
svo fyrir að Quiller skuli
drepinn. Quillcr lifir það af og
kemst til meðvitundar í skurði
.í Berlín. Hann grunar að lífi
hans hafi verið þyrmt til að láta
hann vísa nasistunum til höf-
uðstöðva sinna. Hann heim-
sækir Ingu og biður um hjálp,
en nýnasistarnir hafa einmitt
gert ráð fyrir því....
Leikstjórinn er Miehael
Anderson.
Sjónvarp á laugardag kl. 21.
Útvarp á laugardag kl. 16.20:
Andlitslaus morðingi
3. þáttur - Neyðaróp úr skóginum
■ Á laugardaginn er á
dagskrá þriðji þáttur fram-
haldsleikritsins Andlitslaus
morðingi eftir Stein Riverton.
Nefnist þessi þáttur Neyðaróp
úr skóginum.
í öðrum þætti gerðist þetta:
Ivan Rye höfuðsmaður er
grunaður um að hafa ráðist á
tilvonandi tengdaföður sinn,
Holger ofursta, úti í skógi
vegna þess að ofurstinn hafði
skyndilega skipt um skoðun
varðandi giftingu dóttur sinnar
og höfuðsmannsins. Flest gögn
í málinu benda til þess að Rye
sé hinn seki en Krag leynilög-
reglumaður er þó sannfærður
um sakleysi hans. Dularfullt
bréf, sem Holger ofursti fær
skömmu fyrir árásina, torveld-
ar málið og þegar Krag hittir
lögfræðing með vafasama
fortíð, Boman að nafni, sem
einnig kveðst vera að rannsaka
málið, styrkist grunur hans um
að ekki sé allt með felldu.
Leikendur í 3. þætti eru:
Jón Sigurbjörnsson, Sigurð-
ur Skúlason, María Sigurðar-
dóttir, Árni Tryggvason, Por-
steinn Gunnarsson, Sigurður
Karlsson, Steindór Hjörleifs-
son, SigríðurHagalín, Jón Júl-
íusson og Erlingur Gíslason.
Leikstjóri er Lárus Ýmir
Óskarsson en þýðinguna gerði
Margrét Jónsdóttir. Tækni-
menn eru Friðrik Stefánsson
og Hreinn Valdimarsson.
3. þátturverðurendurtekinn
föstudaginn 6. júlí kl. 21.35.