NT - 29.06.1984, Side 16
Sjónvarp kl. 21.50 á sunnudagskvöld:
GeorgeOrwell
Fyrri hluti heimildarmyndar um ævi hans
■ Á sunnudagskvöld fáum
við að sjá mynd um þann fræga
mann George Orwell, sem
skrifaði m.a. bækurnar 1984
og Animal Farm. Hann er einn
af frægustu rithöfundum 20.
aldarinnar, og myndin, sem er
í tveimur hlutum, er byggð á
traustum heimildum. Ævi-
söguritari Orwells, Bernard
Crick, var til aðstoðar og leið-
beiningar við gerð myndarinn-
ar.
Eric Blair (George Orwell)
fæddist á Indlandi 1903, þar
sem faðir hans var breskur
embættismaður. Hannólstupp
í Oxfordshire í Englandi og fór
í Eton skólann 1917. Hann var
ekki sérstakur námsmaður en
gat sér orð fyrir að vera and-
snúinn yfirvöldum og hefðum.
Þegar hann lauk skólanum fór
hann til Burma og var þar í
bresku lögreglunni í fimm ár.
Hann sneri aftur 1927 og hafði
þá fengið andstyggð á viðhorf-
um þeirra sem störfuðu fyrir
breska . heimsveldið. Hann
ákvað að verða rithöfundur.
Orwell dvaldist um skeið í
París og vann fyrir sér með því
að skrifa ritdóma. Að lokum
lenti hann í því að starfa sem
uppvaskari, og var sárfátækur
á þessu tímabili. Þessi reynsla
varð síðar efni bókarinnar
Down and Out in Paris and
London, sem kom út 1933.
Síðan fór Orwell að kenna, en
varð að hætta því vegna las-
leika og fór að afgreiða í
bókabúð. Um þetta tímabil
fjallar bókin Keep the Asp-
idistra Flying.
1936 fékk hann það verkefni
að skrifa frásögn af eymd at-
vinnuleysingja í Bretlandi, og
árangurinn varð bókin The
Road to Wigan Pier. í þeirri
bók kemur skýrast fram um-
hyggja Orwells fyrir fátækl-
ingum. Eftir þetta giftist Orw-
ell fyrri honu sinni, Eileen
O’Shaughnessy, en fór
skömmu síðar til Spánar til að
berjast við fasista. Hann fór
1937 og var í nokkra mánuði í
eldlínunni, en sneri aftur særð-
ur og hafði orðið fyrir von-
brigðum með það hvernig
kommúnistar fórnuðu lífum
saklausra og hugdjarfra her-
manna. Um þetta efni skrifaði
hann bókina Animal Farm,
sem út kom 1945, og varð það
fyrsta bók hans sem náði al-
mennri hylli. Hann var áður
vel þekktur sem blaðamaður.
Orwell flúði athyglina sem
hann fékk eftir útgáfu Animal
Farm og flutti til Jura-eyjar við
Skotland, þar sem hann skrif-
aði 1984, síðustu meiriháttar
skáldsögu sína og mestu for-
dæmingu á alræðishyggju sem
nokkurn tímann hefur verið
skrifuð. Á þessum árum varð
hann æ veikari af berklum, og
lést loks 1950, 46 ára gamall.
Föstudagur 29. júní 1984 16
■ George Orwell
Geimhetjan
Danskur science f iction-myndaf lokkur
■ Á sunnudaginn byrjar nýr
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þetta er danskur
myndaflokkur í þrettán tutt-
ugu mínútna þáttum og kallast
hann Geimhetjan á íslensku,
en Crash á frummálinu. Höf-
undur er Carsten Overskov.
Birgir er aðalsöguhetjan.
Hann kemst að því að herberg-
ið hans er geimskip og getur
flogið út í geiminn. Hann
flýgur til geimstöðvar Barry
Slisks og fær að vita að hann
hefur verið útnefndur til að
bera boðskap Slisks til jarðar-
innar. Ef jörðin beygir sig ekki
undir veldi Slisks, þá verður
henni eytt.
Þegar Birgir kemur heim er
hann ekki tekinn alvarlega.
Hann hefur áður hitt stúikuna
íris úti í geimnum, og hann fer
til heimaplánetu hennar, Piet-
os, til að vara íbúana við Barry
Slisk. En hann er tekinn til
fanga, en tekst að sleppa með
íris. Skömmu síðar eru þau
aftur fönguð, nú af Barry Slisk,
og þau verða vitni að fjölda-
morðum Goplos. Þeim tekst
að bjarga þremur íbúum þess
hnattar frá tortímingu.
Birgir fer með þá til Pietos.
Hann fer í tímaferðalag til
ársins 1000, og nær í landa
Úr myndaflokknum danska, Geimhetjan.
okkar Leif Eiríksson og flytur
hann til nútíðarinnar. Leifur
er settur af á Pietos. Barry Slisk
sendir annað af tveimur sér-
geimförum sínum niður í
Svörtu holuna og lætur það
eyðast þar. Barry Slisk tekur
Birgir og íris með í hinu geim-
skipinu, og Birgir fær 24 tíma
frest til að aðvara jarðar-
búa....
Sjónvarp á sunnudag kl. 18.10:
Úr Forboðinni ást.
Sjónvarp kl. 20.50 á sunnudagskvöld:
Forboðin
ást
■ Á sunnudagskvöld kl.
20.50 verður á dagskrá í sjón-
varpinu fjórði þáttur mynda-
flokksins Sögur frá Suður-Afr-
íku, sem gerður er eftir smá-
sögum Nadine Gordimer.
Þessi þáttur fjallar um þýskan
jarðfræðing og blökkustúlku
sem fella hugi saman, en sam-
band þeirra brýtur í bága við
kynþáttalög.
Útvarp kl. 20.00 á sunnudag:
Sumarútvarp
unga fólksins
- Getraunaleikur í átta hlutum
■ í þættinum „Sumarútvarp
unga fólksins," sem veróur á
dagskrá á sunnudagskvöld kl.
8, hefst hlustendagetraun með
harla nýstárlegu sniði. Þrautin
er í 8 hlutum og verður meðal
efnis Sumarútvarpsins næstu
átta sunnudagskvöld. Til þess
að geta tekið þátt í getrauninni
verða hlustendur að heyra alla
hluta hennar.
í hverjum þætti verður á
einhvern hátt gefinn til kynna
einn ákveðinn bókstafur. Þess-
ir bókstafir mynda átta stafa
orð og verður orðið að sjálf-
sögðu lýðum ekki Ijóst fyrr en
allir starfirnir hafa verið gefnir
til kynna.
Þátttakendur útbúa sér blað-
snepil þar sem þeir bæta hverj-
um bókstaf inn í raðleikinn um
leið og þeir hafa uppgötvað
staf hvers þáttar. Síðan senda
þeir lausnina til þáttarins þegar
getrauninni er lokið. Vegleg
bóka- og hljómplötuverðlaun
verða veitt fyrir rétt svar að
þrautinni lokinni og allir þátt-
takendur fá auk þess viður-
kenningarskjal frá Ríkisút-
varpinu.
Fyrsti bókstafur þessa dular-
fulla orðs verður sem fyrr segir
gefinn til kynna næstkomandi
sunnudagskvöld og síðan koll
af kolli næstu sjö sunnudaga á
eftir. Stafirnir verða gefnir í
skyn með ýmsum hætti en þó
þannig að fæstum ætti að veit-
ast erfitt að ráða við þrautina.
■ Helgi Már Barðason.
Þótt til mikils sé að vinna er
getraun þessi fyrst og fremst
leikur sem flestir ættu að
geta haft eitthvert gam-
an af, hvort sem þeir eru
unglingar eða einungis ungir
og hressir í anda. ítrekað skal
að mikilvægt er að fylgjast
með frá byrjun, geyma svar-
seðilinn vel og senda hann
síðan þættinum í ágústlok þeg-
ar loks upplýsist hvaða orð um
er að ræða.
Unglingar eru vitaskuld
hvattir til þess að vera með í
leiknum og einnig til þess að
senda þættinum bréfkorn um
hvað sem vera vill og viðkemur
málefnum unglinga - eða allt
sem mönnum dettur í hug að
kunni að eiga erindi til ann-
arra.
útvarp
Sunnudagur
1. júlí
8.00 Morgunandakt Séra Kristinn
Hóseasson prófastur, Heydölum,
flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveit
Ríkisóperunnar í Vínarborg leikur;
Josef Leo Grúber stj.
9.00 Fréttir.
9.05 Frá orgelvígslu útvarpsins í
Vínarborg 16. janúar í fyrra Edg-
ar Krapp frá Frankfurt leikur Tokk-
ötu og fúgu i d-moll, Sónötu nr. 5
í C-dúr, „Schmúcke dich, o liebe
Seele", sálmaforleik og Prelúdíu
og fúgu í D-dúr eftir Johann Se-
bastian Bach og Sónötu í A-dúr
eftir Felix Mendelssohn.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 llt og suður. Páttur Friðriks
Páls Jónssonar.
11.00 Setning Prestastefnu í Skál-
holtskirkju (Hljóðr. 26. f.m.)
Prestur: Séra Ólafur Skúlason
vígslubiskup. Orggnleikari: Glúm-
ur Gylfason. Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Á sunnudegi Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson.
14.15 Ástir samlyndra hjóna
Blönduð dagskrá í umsjá Þórdísar
Bachmann. Flytjendur ásamt
henni: Arthúr Björgvin Bollason,
Bríet Héðinsdóttir og Arnar
Jónsson.
15.15 Lífseig lög Umsjón: Ásgeir
Sigurgestsson, Hallgrimur Magn-
ússon og Trausti Jónsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Háttatal. Þáttur um bókmennt-
ir. Umsjónarmenn: Örnó’furThors-
son og Árni Sigurjónsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Siðdegistónleikar: Norsk 19.
aldar tónlist Flytjendur: Fílharm-
óniusveitin í Osló, Eva Knardahl,
Knut Skram, kór og hljómsveit
Norsku óperunnar. Stjórnendur:
Kjell Ingebretsen, Per Dreier og
Öivin Fjeldstad. a. Andantino,
pastorale og scherzo eftir Otto
Winter-Hjelm. b. Idyll, Berceuse
og Vársang eftir Halfdan Kjerulf. c.
Serenade og Sommervise eftir Ag-
athe Backer-Gröndahl. d. Nord-
mandssang og e. „Maria Stuart í
Skotlandi" eftir Rikard Nordraak. f.
„Zorahayda", tónaljóð eftir Johan
Svendsen.
18.00 Það var og... Út um hvippinn
og hvappinn meö Þráni Bertels-
syni.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Eftir fréttir. Þáttur um fjölmiðl-
un, tækni og vinnubrögð. Umsjón:
Helgi Pétursson.
19.50 Ljóð - gömul og ný, eftir
Ragnar Inga Aðalsteinsson, frá
Vaðbrekku Höfundpr les.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins
Stjórnandi: Helgi Már Barðason.
21.00 Merkar hljóðritanir Artur
Schnabel og Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leika Pianókonsert nr. 1
í C-dúr op. 15 eftir Ludwig van
Beethoven; Sir Malcolm Sargent
stj.
21.40 Reykjavík bemsku minnar -
5. þáttur. Guðjón Friðriksson ræð-
ir við Örn Clausen. (Þátturinn
endurtekinn í fyrramálið kl. 11.30).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Risinn hviti“ eftir Peter Bo-
ardman Ari T rausti Guðmundsson
les þýðingu sína (15). Lesarar
með honum: Ásgeir Sigurgestsson
og Hreinn Magnússon.
23.00 Djasssaga - Seinni hluti Öld-
in hálfnuð. - Jón Múli Árnason.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
1. júlí
18.00 Sunnudagshugvekja Séra
Þorbergur Kristjánsson flytur.
18.10 Geimhetjan (Crash) Nýr
flokkur Danskur framhalds-
myndaflokkur fyrir börn og ung-
linga i þrettán þáttum eftir Carsten
Overskov. Aðalhlutverk: Lars
Ranthe, 14 ára. III öfl úti í himin-
geimnum ógna jörðinni og öllu
sólkerfinu með gjöreyðingu.
Danskur piltur er numinn brott og
fluttur langt út i geiminn. Þar kemst
hann á snoðir um ráðabruggið og
reynir síöan að afstýra heimsendi.
(Nordvision - Danska sjónvarpið)
18.30 I skugga pálmanna Heimilda-
mynd um líf og kjör barna á
Maldíveyjum á Indlandshafi. Þýð-
andi Jón O. Edwald. (Nordvision -
Danska sjónvarpið)
19.10 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Sögur frá Suður-Afríku 4.
Forboðin ást Myndaflokkur í sjö
sjálfstæðum þáttum sem gerðir
eru eftir smásögum Nadine Gor-
dimer. Þýskur jarðfræðingur qg
blökkustúlka fella hugi saman en
samband þeirra brýtur í bága við
kynþáttalög. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
21.50 George Orwell - fyrri hluti
Bresk heimildamynd um ævi Ge-
orge Orwell, höfundar „1984“, Fé-
laga Napóleons og fleiri bóka. f
myndinni er dregið fram það
helsta, sem hafði áhrif á ritsmíðar
Orwells, og gerði hann að einum
áhrifamesta rithöfundi Breta á
þessari öld. Síðari hluti myndarinn-
ar verður á dagskrá Sjónvarpsins
mánudaginn 2. júlí. Þýðandi Krist-
rún Þórðardóttir
23.00 Dagskrárlok.