NT - 29.06.1984, Síða 25
\n£Wi
n/nin
'iTÍ
Föstudagur 29. júní 1984
25
Cabina rúmsamstæðan
■ Jesse Jackson, forsetaframbjóðandi, hitti að máli fjóra af föngunum sem honum tókst að fá látna lausa í Kúbu. Fangarnir
fara með Jackson til Bandaríkjanna á föstudag. Á mvndinni sjást fangarnir hylla Jackson.
POLFOTO-Símamynd
Washington:
Kuldaleg viðbrögð
við lausn fanganna
Managua-Reuter
■ Bandarískir embættismenn í Was-
hington voru ekki uppnumdir yfir
ákvörðun Fidel Castro, sem lofaði Jesse
Jackson að 48 bandarískir fangar á
Kúbu yrðu látnir lausir. Jackson, sem
nú er í Nicaragua, í friðarferð sinni um
Mið-Evrópu, mun koma við á Kúbu í
heimleiðinni og sækja fangana.
Embættismennirnir í Washington
sögðu að lausn fanganna væri áróðurs-
bragð til að koma höggi á Reagan
forseta, en ekki alvarlegt skref í átt til
bættra samskiptra Kúbu og Bandaríkj-
anna. Háttsettur embættismaður, sem
óskaði nafnleyndar sagði þó að Banda-
ríkjastjórn hefði ekki afneitað lausn
fanganna opinberlega og væri með því
að senda Castro merki um að hún væri
reiðubúin til að bæta samskiptin.
En Wayne Smith, fyrrum sendimaður
Bandaríkjanna í Kúbu sagði frétta-
manni Reuters að hann tryði ekki að
Reagan hefði áhuga á bættri sambúð
Kúbu og Bandaríkjanna, og sakaði
Reagan um að hirða ekki um endurtekn-
ar sáttaumleitanir Castros. Smith sagði
að Iausn fanganna væri meiriháttar vís-
bending frá Castro.
Ráðgjafar Reagans líta ekki á bætta
sambúð við Kúbu sem pólitískan ávinn-
ing fyrir forsetakosningarnar í haust.
Og kuldaleg viðbrögð Reagans við lausn
fanganna ættu að falla I kramið hjá
landflótta Kúbumönnum í Florida, sem
eru á móti Castro, en Florida er stórt
fylki sem Reagan er umhugað um að
sigra í.
Breskir læknar reiðir:
Dýralæknir að-
stoðar við aðgerð
Canterbur>-Reuter
■ Bresku læknasamtökin hafa
krafist rannsóknar á uppljóstr-
unum að dýralækni var leyft að
aðstoða við aðgerð á manni.
Skurðlæknirinn Michael
Williams, sem sagðist hafa leyft
ónefndum dýralækni að aðstoða
við skurðaðgerð við kviðsliti í
Canterburysjúkrahúsinu fyrr í
þessum mánuði hefur sagt af
sér.
John Dawson, yfirmaður
siðaregludeildar læknasamtak-
anna sagði að það væri ekki
óalgengt að læknar hjálpuðu
dýralæknum en hitt ætti ekki að
þekkjast að dýralæknar hjálp-
uðu læknum.
Mestu flóð
ísexár
Nýja Delhi-Reuter
■ Hermenn voru í gær sendir til aðstoðar á
flóðasvæðunum í Vestur Bengal á Indlandi en
þar hafa 20 manns farist og milljón manns misst
heimili sín í mestu flóðum sem komið hafa í sex
Flóðin stafa af óvenjumiklum rigningum í
héraðinu. Verst er ástandið í borgunum
Tarakeswar og Ilambasar en einnig hafa orðið
talsverðar skemmdir á mannvirkjum í Kalkútta,
höfuðborg fylkisins.
Pá hafa einnig orðið mikil flóð í öðrum
fylkjum á austanverðu Indlandi í kjölfar regn-
tímans sem hófst í byrjun þessa mánaðar. AIls
hafa rúmlega 200 manns á Indlandi og í
Bangladesh týnt lífi í flóðunum.
er komin aftur
dýnustærð 200x90 cm.
Verð kr. 12.600
Húsgögn og
\ ** Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar stmi 6-86-900
MUNIÐ
FERÐJ
VASA
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnumumallt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sími 91-81290
A10290271
ArngrímurJónKsoa
SAMKVÆMT LÖGUM NR.10
29. MARS 1961
SEÐLABANKI
ISLANDS
Sölubörn NT.
Viö borgum 10 kr.
fyrir hvert selt blað um
óákveðinn tímá.
Sex þeir heppnu fara til
Stuttgart í ágúst
I/
GERIAÐRIR BETUR
W/Æ
M jiflPrc; M 9 H|
f
wml