NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 10.08.1984, Qupperneq 14

NT - 10.08.1984, Qupperneq 14
Útvarp í kvöld klukkan 22.35: Rólyndur „Battle" og sægur af fólki Magnús Rafnsson les 3. lestur þýðingar sinnar á útvarpssögunni „Að leiðarlokum“ eftir Agöthu Christie ■ „t>að er nú voðalega erfitt að segja svona frá sögu, maður gefur allt of mikið upp", sagði Magnús Rafnsson, Bakka í Strandásýslu, og ég sé strax fyrir mér hvernig öll Stranda- sýslan liggur á línunni til að hlera hvað gerist næst í fram- haldsögunni. „í þriðja lestri er ennþá meira og minna verið að kynna persónurnar og eins og kannski hefur komið fram í fyrstu lestrunum, er þetta einskonar æfing hjá Agöthu að búa til morðsögu sem byrjar ekki á morði. Hún leggur þarna meira upp úr aðdragandum og ástæðunum. Peir sem koma við sögu er gríðarlegur hópur af fólki, en sagan byggist mest upp í kringum eina fjölskyldu, og gerist að mestu leyti á sveitasetri á Suður-Englandi. megintemað í sögunni er kannski hvernig ólíklegasta og óskyldasta fólk dregst saman í eina krísu sem verður að morð- máli. Það skeður lítið í byrjun nema forsögur persónanna sem eru margar. Þær eru tekn- ar fyrir hver á eftir annarri og kynntar í fyrstu lestrunum. Og síðan kemur að því að þær smám saman smalast saman og eitthvað fer að gerast. Þeir sem koma við sögu eru til dæmis gömul hefðarfrú, Car- lile, sem býr á þessu sveita- setri. Þar er líka fóstursonur hennar, fyrrverandi og núver- andi kona hans og fleiri vinir og kunningjar þessa fólks. Á endanum kemur svo náttúr- lega lögreglumaður við sögu. Það er líka fylgst með honum alveg frá byrjun, þó hann drag- Föstudagur 10. ágúst 1984 14 ■ „Tamarindfræið“ er mynd um ástarævintýri tveggja starfsmanna bresku og sovésku leyniþjónustunnar. Aðalhlutverk leika Julie Andrews og Omar Sharif . Sjónvarp í kvöld klukkan 21.05: Ástarævintýri á Barbados ■ Föstudagsmynd sjónvarps- ins, „Tamarindfræið" („The Tamarind Seed“), er bresk bíómynd frá árinu 1974. Leik- stjóri er Blake Edwards, en aðalhlutverkin leika Julie Andrews, Omar Sharif og Syl- via Syms. Þýðandi er Kristrún Þórðardóttir. Judith Farrow (Julie Andrews) starfsmaður bresku leyniþjónustunnar hittir hátt- settan sovéskan starfsbróður sinn, Feodor Sverdlow (Omar Sharif) í leyfi á Barbados í Vestur-Indíum. Þau verða ást- fangin og eyða leyfinu saman. Á safni eyjanna heyrir Judith söguna um Tamarindfræið, sem hefur mikil áhrif á hana. Sagan segir að fræ Tamarind trésins líkist mannshöfði síðan þræll, ásakaður um sauða- þjófnað, var hengdur saklaus í Tamarindtréi. Eftir leyfið snýr Judith aftur til London og Feodor fer til Parísar þar sem hann starfar undir því yfirskini að hann sé sendiráðsstarfsmaður. Þá kemur í Ijós að ástarævintýri þeirra hefur vakið grunsemdir um svik þeirra beggja. ■ Að vísu er meistari Þórbergur pípulaus á þessari mynd, en hann er hinsvegar með ágætan staf. Útvarp klukkan 10.45: Meistari Þórbergur ogtóbakspípangóða Einar Kristjánsson frá Her- mundarfelli sér um þáttinn „Mér eru fornu minnin kær“ ■ Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli er rneð þáttinn „Mér eru fornu minnin kær“ klukkan 10.45. „Síðasti þáttur var úr „Ofvit- anum" eftir Þórberg Þórðar- son, og sagði frá því þegar hann var að vinna á Tuliniusar- bryggjunni hérna á Akureyri“, sagði Einar. „Þessi þáttur er frásögn Þór- bergs af því þegar hann sá ungan mann, spjátrung, lík- lega kaupmannsson, standa fyrir utan hús og reykja af skósíðri tóbakspípu. Þórbergi fannst að enginn gæti verið alsæll og fullkominn maður, nema hann ætti svona pípu, svo hann fór í búðina daginn eftir og keypti sér tóbakspípu. En þar fékkst engin skósíð, hún náði ekki nema niður á hnéskelina. Og hún reyndist nú engin sérstök lífsánægja þegar fram í sótti. En það var sama, hann lét þetta eftir sér, þetta kostaði hann þrenn eða tvenn daglaun. Félagar hans, Þorleifur og Gunnar höfðu hann að háði og spotti fyrir þessa verslun. Þá bjuggu þeir allir hérna þar sem hét Landsbanki þá, niðrí miðbænum, uppí risi í herbergiskompum þar. Þeirra vandamál var aðallega að losa úr næturgagninu. Þeir gátu ekki gert það nema fara niður tröppurnar eða jafnvel út á götuna og þeir áttu við þetta að stríða þangaðtil þeir fengu sér þernu til að gera þetta. Því þetta var nú svolítið erfitt fyrir unga menn að koma með kopp í hendi út á götuna . Þórbergur kunni að gera sér mat úr öllu, og mjög smávægilegu efni eins og þessi þáttur fjallar um. Hann fjallar nær eingöngu um þessa tóbakspípu sem er vafa- laust frægust tóbakspípa á ísl- andi.“ Rás 2, klukkan »• :lili Átakalítil tónlist í vikulokin Helgi Már Barðason sér um þáttinn ■ Á dagskrá Rásar 2 á föstu- dögum klukkan 17 er þátturinn „1 föstudagsskapi". Stjórnandi er Helgi Már Barðason. „í föstudagsskapi" er þáttur sem byggður er upp á þægi- legri, átakalítilli tónlist í viku- iokin. Gjarnan eru rifjuð upp lög sem að miklu leyti eru hætt að heyrast, aðallega frá árun- um 1972-1982. Tónlistinni fylgir létt rabb um ýmislegt sem henni tengist, og einnig er spjall- að um föstudagstilveruna, helgina framundan og annað er snýr að vikulokunum. Markmið þáttarins er að kynda dálítið undir föstudags- og helg- arskap hlustenda með vel völd- um lögum og léttri tónlist, enda vinnuvika flestra á enda og framundan ofurlítil hvíld frá daglegu amstri. Þáttur þessi er á dagskrá Rásar 2 vikulega og flytur sem sé tónlist úr öllum hugsan- legum og óhugsanlegum áttum, en þó einkum afslapp- andi og streitulosandi létt rokk, sem naut vinsælda fyrir fáum árum. ■ Agatha Chrístie, höfundur leynilögreglusagnanna frægu. ist ekki inn í málið alveg strax. Það má kannski taka fram að þetta er ekki einn af frægustu lögreglumönnum Agötu þó hann komi fyrir í nokkrum öðrum bókum. Ég held að í flestum þar sem hann kemur fyrir sé hann aukapersóna en hann er sem sagt aðalpersóna í þessari. Hann heitir „Battle" eða orrusta og er hinn full- komni breski rólyndismaður." útvarp Föstudagur 10. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fróttir. Bæn. í bítið. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Eiríks Rögn- valdssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Frá Ólympíuleikunum. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Arndís Jónsdóttir, Selfossi talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Sumarævintýri Sigga" eftir Guðrún Sveinsdóttur Baldur Pálmason les (8). 9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli sér um þáttinn (RÚVAK). 11.15Tónleikar 11.35 „Agúrkuspretta nútíðar" Geirlaugur Magnússon les eigin Ijóð. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning- ar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 14.00 „Við biðum“eftir J.M. Coutz- ee Sigurlína Daviðsdóttir les þýð- ingu sina (3). 14.30 Miðdegistónleikar Fantasía i f-moll op. 49 eftir Frédéric Chopin. Arturo Benedetti Michelangeli leikur á píanó. 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eir- íksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fróttir. Dagskrá. 16.15 Veöur- fregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. 17.00Fréttiráensku 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Víð stokkinn Stjórnandi: Gunnvör Braga. 20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg Thoroddsen kynnir 20.40 Kvöldvaka 21.10 Hljómskálamúsik Guðmundur Gilsson kynnir. 21.35 Framhaldsleikrit: „Gilberts- málið" eftir Frances Durbridge Endurtekinn IV. þáttur: „Klúbb- urinn La Mortola" (Áður útv. 1971). Þýðandi: Sigrún Sigurðar- dóttir. Leikstjóri: Jónas Jónasson. Leikendur: Gunnar Eyjólfsson, Helga Bachmann, Benedikt Árna- son, Steindór Hjörleifsson, Brynja Benediktsdóttir, Jón Aðils, Pétur Einarsson, Margrét Helga Jó- hannsdóttir og Þorleifur Karlsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagská morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 „Að leiðarlokum" eftir Agöt- hu Christie Magnús Rafnsson les þýöingu sína (3). 23.00 Ólympi'uleikarnir íhandknatt- leik: Úrslit Stefán Jón Hafstein lýsir síðari hálfleikfrá Los Angeles. 23.45 Fréttir frá Ólympiuleikunum 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. 24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. én Föstudagur 10. ágúst 10.00-12.00 Morgunþáttur Fjörug danstónlist, viðtal, gullaldarlög, ný lög og vinsældarlisti. Stjórnendur: Jón Olafsson og Kristján Sigur- jónsson. 14.00-16.00 Pósthólfið Lesin bréf frá hlustendum og spiluð óskalög þeirra ásamt annarri léttri tónlist. Stjórnandi: Valdís Gunnarsdóttir. 16.00-17.00 Bylgjur Framsækin rokktónlist. Stjórnendur: Ásmund- ur Jónsson og Árni Daníel Júlíus- son. 17.00-18.00 i föstudagsskapi Þægi- legur músikþáttur i lok vikunnar. Stjómandi: Helgi Már Baröason. 23.15-05.00 Næturvakt á Rás 2 Létt lög leikin af hljómplötum. Stjórn- andi: Þorgeir Ástvaldsson. (Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00 og heyrist þá í Rás-2 um allt land). Föstudagur 10. ágúst 18.00 Ólympíuleikarnir í Los Ange- les. íþróttafréttirfrá ólympíuleikun- um 1984. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. (Evróvision - ABC og Danska sjónvarpið) 19.35 Umhverfis jörðina á áttatiu dögum. 14. Þýskur brúðumynda- flokkur. Þýðandi Jóhanna Þráins- dóttir. Sögumaður Tinna Gunn- laugsdóttir. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Á döfinni. Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. 20.45 Grínmyndasafnið 5. Chaplin gerist innbrotsþjófur Skopmynda- syrpa frá dögum þöglu myndanna. 21.05 Tamarindfræið. (The Tamar- ind Seed) Bresk bíómynd frá 1974. Leikstjóri Blake Edwards. Aðalhlutverk: Julie Andrews, Omar Sharif og Sylvia Syms. Starfsmað- ur bresku leyniþjónustunnar kynn- ist háttsettum, sovéskum starfs- bróður sínum í leyfi í Vestur-lndí- um. Ástarævintýri þeirra vekur grunsemdir um svik I herbúðum beggja og stofnar Rússanum í lífsháska. Þýðandi Kristrún Þórð- ardóttir. 23.05 Ólympíuleikarnir í Los Ange- les. Iþróttafréttir frá ólympiuleikun- um 1984. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. (Evróvision - ABC og Danska sjónvarpiö) 00.20 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.