NT - 10.08.1984, Qupperneq 27
Föstudagur 10. ágúst 1984 27
099
Knattspyrna á ÓL:
Frakkar
í úrslit
- mæta Brasilíumönnum
■ Frakkar og Brasilíumenn
munu leika til úrslita í knatt-
spyrnukeppninni á Ólympíu-
leikunum. Frakkar sigruðu
Júgóslava 4-2 í undanúrslitum
og í hinum leiknum unnu Brasi-
líumenn ítali 2-1.
Frakkar börðust síðast um
gullverðlaunin í knattspyrnu á
ÓL árið 1900, en í leiknum
gegn Júgóslövum var aldrei
spurning unt það hvort liðið
mundi fara með sigur af hólmi.
Frakkar komust í 2-0 snemma
í fyrri hálfleik og í síðari hálf-
leik var tveimur Júgóslövum
vísað af leikvelli. Samt tókst
þeim að jafna 2-2 fyrir leikslok,
en í framlengingunni skoruðu
Frakkar tvívegis. Áhorfendur
á leiknum voru 97.451 fleiri en
nokkru sinni fyrr á knatt-
spyrnuleik í Bandaríkjunum.
Leikur Brasilíu og Italíu var
einnig harður og þar þurfti líka
framlengingu áður en Brass-
arnir tryggðu sér farseðilinn í
úrslitin.
Tugþraut á ÓL:
Sigrar
Thompson?
- er efstur eftir fyrri dag
■ Eftir fyrri daginn í tug-
þrautarkeppninni stefndi allt í
það að nýtt heimsmet yrði sett
í greininni. Bretinn Daley
Thompson var efstur með 4633
stig, 114 stigum meira en skæð-
asti keppinautur hans, V-í’jóð-
verjinn Júrgen Hingsen, sem á
heimsmetið 8.798 stig. f’riðji
var landi Hingsen, Siegfiied
Wintz með 4332 stig.
Thompson sigraði í 100 in
Karfa á ÓL:
Kanarog
Spanjólar
■ Það verða Banda-
ríkjamenn og Spánverjar
sem keppa til úrslita í
körfuboltanum á Ólymp-
íuleikunum. í undanúr-
slitum unnu Bandaríkin
Kanada 78-59 (43-26) og
eru því enn ósigruð á ÓL.
Spánverjar unnu sjálfa
Ólympíumeistara Júgósl-
avíu 74-61 (35-40). Spán-
verjar hafa tapað einum
leik á ÓL til þessa, þeir
töpuðu fyrir Bandaríkja-
mönnum með 33 stiga
mun í riðlakeppninni.
Flestir búast við að
Bandaríkin muni endur-
taka þann leik í úrslita-
leiknum og Júgóslövum
er síðan spáð þriðja sæt-
ínu.
■ Tveir leikir voru í A-riðli 4.
deildar í fyrrakvöld og eftir þá
er ljóst að Ármann er sigurveg-
ari í riðlinum.
Hafnir unnu óvæntan sigur á
Augnabliki úr Kópavogi 2-0.
Það voru Sævar Pétursson og
Annel Þorkelsson sem skoruðu
fyrir Hafnir og var sigur þeirra
nokkuð sanngjarn.
Þá léku Víkverji og Drengur
í A-riðli og sigruðu Víkverjar
auðveldlega 2-0. Það var Tóm-
as Sölvason sem gerði bæði
mörkin.
Staðan í A-riðli er nú þessi:
Ármann ....... 11 9 1 1 27-10 28
AugnabUk .... 12 7 1 4 23-16 22
Aflurelding ... 12 7 0 5 23-19 21
Víkverji.... 12 6 2 4 19-12 20
Haukar...... 12 5 2 5 21-18 17
Árvakur .......11 4 1 6 16-15 13
Hafnir...... 12 2 2 8 11-26 8
Drengur ...... 12 2 1 9 14-33 7
Babers
sigraði
í 400 m
■ Alonzo Babers,
Bandaríkjunum, sigraði
í 400 m hlaupi karla á
Ólympíuleikunum í
fyrrakvöld. Hann náði af-
bragðsgóðum tíma 44,27
sek., fjórða besta tíma
sem náðst hefur í 400 m
hlaupi. Babers var þó
töluvert frá heimsmeti
landa síns Lee Evans,
43,86 sek., sem hann setti
í Mexíkó 1968.
Babers háði mikla
keppni við Gabriel Tiac-
oh, Fílabeinsströndinni,
en Bandaríkjamaðurinn
náði að tryggja sér gullið
á lokasprettinum. Tiacoh
hlaut tímann 44,54 sek.
og varð þar með fyrsti
Fílabeinsstrandarbúinn
tii að hljóta verðlaun á
Ólympíuleikum. í þriðja
sæti var Antonio McKay,
Bandaríkjunum, á tím-
anum 44,71 sek. McKay
var fyrir hlaupið talinn
líklegastur til að hreppa
gullið, þar sem hann hef-
ur náð bestum tíma í
heiminum á þessari vega-
lengd í ár.
Heimsmeistarinn Bert-
land Cameron, Jamaica,
gat ekki tekið þátt í
hlaupinu vegna meiðsla,
en hann hafði þó unnið
sér rétt til þess.
II Carl Lewis og syslir hans Carol eru meðal besta frjálsíþróttafólks í heimi. Carl er fljótasti maður
heims á þessari stundu. Hreint ótrúlegur íþróttamaður.
Carl Lewis:
hlaupi (10,44 sek.) langstökki
(8,01 m ) og í 400 m hlaupi
(46,97 sek.).Þá varð hann annar
í kúluvarpi með 15,72 m og
stökk 2,03 m í hástökki. Ár-
angur Hingsen var þessi: í 100
m hlaupi hljóp hann á 10,91
sek., stökk 7,80 m í lang-
stökki, kastaði kúlunni 15,87
m , stökk 2,12 í hástökki og
hljóp 400 m á 47,69 sek.
4. deild:
Ármann sigrar
í A-riðli
„Guð gaf mér
hæfileika"
■ Thompson að fagna sigri.
Skyldi hann hampa gulli?
■ „Guð gaf mér mikla hæfi-
leika í vöggugjöf og svo lengi
(sem Drottinn lætur mig hreyf-
ast úr stað mun ég halda áfram
að hlaupa,“ sagði Bandaríkja-
maðurinn Carl Lewis eftir að
hafa sigrað í 200 m hiaupi
karla á Ólympíuleikunum í
fyrrakvöld. Þriðju gullverðlaun
Lewis á ÓL og fáir búast nú við
því að hann nái ekíci að krækja
í sitt fjórða gull í 4x100 m.
hlaupinu og leika þar með eftir
afrek Jessé Owens frá ÓL í
Berli'n árið 1936.
Lewis er óumdeilanlegur
konungur spretthlaupanna í
heiminum í dag og hann setti
nýtt Ólympíumet í 200 m
haupinu. Hljóp á tímanum
19,80 sek. og bætti eldra metið
um 0,03 sek. Það met setti
landi hans Tommei Smith í
þunna loftinu í Mexícó borg á
ÓL árið 1968. Lewis var þó
nokkuð frá því að slá heims-
metið, sem hann hafði fyrir
hlaupið vonast til að gera. Það
met á ítalinn Pietro Mennea og
er það 19,72 sek. einnig sett í
Mexícó borg árið 1979.
Bandaríkjamenn unnu þre-
faldan sigur í þessu hlaupi, í
fyrsta sinn sem þeir ná þeim
árangri á ÓL frá því í Mel-
bourne árið 1956. KirkBaptiste
varð annar á 19,96 sek. og
Thomas Jefferson þriðji á 20,26
sek. Mennea varð hins vegar
að láta sér nægja 7. sætið, hljóp
á 20,55 sek;, enda orðinn 32
ára gamall.
400 m grindahl. kvenna:
Einaóskin
aðkomast
í úrslitin
■ „Mín eina ósk var að komast í úrslitin en
allir landar mínir vonuðu að ég mundi
vinna,“ sagði Nawal El Moutawakel frá
Marokkó, er hún hafði náð að kasta mæðinni
eftir sigur sinn í 400 m grindahlaupi kvenna
á; OL í fyrrakvöld. Fyrsta gull Marokkó á
Ólympíuleikunum og mikil gleði ríkti í
landinu eftir sigurinn. Sjálfur Hassan II.,
konungur landsins, hringdi í Moutawakel
eftir hlaupið til að óska henni til hamingju
með árangurinn.
Sigur Moutawakel í hlaupinu var aldrei í
hættu og hún gat meira að segja leyft sér
þann munað að líta um öxl og gá að
mótherjum sínum á síðustu metrunum. Tími
hennar, 54.61 sek. þó ekkert sérstakur,
meira en sekúndu frá heimsmeti sovésku
stúlkunnar Margarita Ponomaryova. Stúlkn-
anna frá A-Evrópu var sárt saknað í hlaup-
inu, en þær urðu í Fimm af sex efstu sætunum
á Heimsmeistaramótinu í fyrra.
I öðru sæti í hlaupinu varð bandaríska
stúlkan Judi Brown á 55,20 sek. og Cristina
Cojocaru, Rúmeníu, hreppti bronsið á 55,41
sek.
QUEEN
hljómleikar í
Feröaskrifstofan Ævintýraferðir býöur sex daga
ferö til London þann 3. september fyrir kr. 14.380.
Innifaliö er: Flug, gisting, rútuferöir, miöi á hljóm-
leika Queen á Wembley og ísl. fararstjórn. Missiö
ekki af þessu einstaka tækifæri.
Uppl. í síma 12720.