NT - 14.08.1984, Síða 6
Þriðjudagur 14. ágúst 1984 6
Helgi Ólafsson skrifar um skák:
Tíu umferðum lokið á HM unglinga:
Sovétmaðurinn
Andreev efstur
Karl í hópi þeirra efstu
■ Þegartíuumferðumerlok-
ið á heimsmeistaramóti ung-
linga í Finnlandi er Karl Þor-
steins enn í hópi efstu kepp-
enda þrátt fyrir áföll í 7. og 8.
umferð. Hann komst sem
snöggvast í efsta sætið að lok-
inni biðskák úr 6. umferð þeg-
ar hann lagði að velli núver-
andi heimsmeistara unglinga
Kiril Georgiev frá Búlgaríu. í
7. umferð tapaði hann hins
vegar fyrir Dananum Curt
Hansen einum sigurstrangleg-
asta þátttakandanum í mótinu
og í 8. umferð tapaði liann
fyrir Andreev frá Sovétríkjun-
um. Ekki gafst Karl þó upp
þrátt fyrir mótlætið, því í 9.
umferð lagði liann að velli
Svíann Sandström og í gær
lagði hann V-Þjóðverjann
Hadil að velli.
Erfiðlega gekk að afla frétta
af mótinu en Ijóst er þó að
Sovétmaðurinn Andreev er
kominn einn í efsta sætið með
8 vinninga. Curt Hansen er
ekki langt að baki með 7ló
vinning og síðan kemur Karl
ásamt flciri mönnum með 7
vinninga. Frammistaða hans
hefur hingað til verið með
miklum ágætum og verður
fróðlegt að vita hvernig honum
reiðir af í lokaumferðunum.
Norðurlandamót
grunnskóla
Karl verður ekki eini fslend-
ingurinn í eldlínunni við skák-
borðið á Norðurlöndum næstu
daga því sveit Hvassaleitis-
skóla heldur í dag utan til
keppni á Norðurlandamóti
grunnskóla, en það fer fram í
Haparanda í Svíþjóð dagana
17.-19. ágúst. í mótinu taka
þátt sex sveitir frá öllum
Norðurlöndum, en gestgjaf-
arnir Svíar fá að tefla fram
tveim sveitum. íslenska sveitin
er til alls líkleg enda hefur
reynslan sýnt það og sannað að
á þessu sviði standa íslending-
ar Norðurlandaþjóðum lang-
tum framar og ósjaldan borið
sigur úr býtum í keppnum sem
þessum hvort sem um er að
ræða keppni grunnskóla eða
framhaldsskóla.
Sveit Hvassaleitisskóla er
skipuð einstaklingum sem
þrátt fyrir ungan aldur hafa
náð umtalsverðum árangri á
skáksviðinu:
1. borð: Þröstur Þórhallsson,
2035 Elo-stig, 2. borð: Tómas
Björnsson 2005 Elo-stig, 3.
borð: Snorri G. Bergsson,
1855 Elo-stig, 4. borð: Helgi
Hjartarson 1425 Elo-stig. 1.
varamaður: Héöinn Stein-
grímsson, stigalaus.
Piltarnir eru allir 15 eða 16
ára nema Héðinn sem er að-
eins 9 ára gamall og má mikið
vera ef hann verður ekki lang-
yngsti þátttakandinn í mótinu.
Fararstjóri verður Ólafur H.
Ólafsson.
Hort og Húbner sigruðu
íBiel
Þeir félagarnir Vlastimil
Hort sem nýverið sigraði á
tékkneska meistaramótinu og
Robert Hubner deildu efsta
sætinu á hinu sterka alþjóðlega
móti í Biel sem lauk fyrir
nokkrum dögum. Þeir hlutu
báðir 8 vinninga úr 11 skákum.
Viktor Kortsnoj varð í 3. sæti
með 7 vinninga, en síðan komu
V-Þjóðverjarnir Erik Lobron
og Peter Ostermayer með 6V2
vinning .
Pia Cramling vakti gífurlega
athygli er hún sigraði Kortsnoj
í 1. umferð mótsins og hún má
vel við sinn árangur una, 6.-8.
sæti ásamt Kúbumanninum G.
Garcia og Svisslendingnum
Ziiger. Þau hlutu 5 vinninga.
Baráttan um efsta sætið var
geysihörð og Húbner náði
Hort að vinningum með því að
vinna biðskák sína við Tékk-
ann Ftacnik úr 10. umferö.
Skák þessi stóð í hvorki meira
né minna en 15 klst. og voru
alls leiknir 143 leikir!
Kortsnoj náði sér vel á strik
eftir tapið fyrir Piu í 1. umferð,
en mönnum reynist oft erfitt
að ná sér eftir tap í svo stuttu
móti. Kortsnoj tapaði reyndar
annarri skák seinna í mótinu,
andstæðingur hans Erjk Lob-
ron náði snemma yfirburða-
stöðu gegn honum og klykkti
út með laglegri fléttu:
Hvítt: Erik Lobron (V-Þýska-
land)
Svart: Viktor Kortsnoj (Sviss)
Torre-árás
1. Rf3 Rfó
2. (14 e6
3. Bg5 c5
4. e3 Db6
5. Dcl Re4
6. Bh4 Rc6
7. Bd3 d5
8. c3 Bd7
9. Rbd2 f5
10. Bg3 Rxg3!?
(Opnun h-línunnar gefur
svörtum ýmis færi. Best var 10.
- Be7 og svartur má allvel við
una.)
11. hxg3 g6
12. g4! Hc8
(Ekki 12. - fxg4 13. Rg5! og
svartur er illa beygður.)
13. gxf5 exf5
14. Be2 Be7
15. Rb3 c4
16. Rd2 Dc7
17. g3 b5
18. Rh4 0-0
19. a3 HI7
20. Rg2 a5
21. Rf3b4
22. axb4 axb4
23. Kfl Db7
24. Rf3 Ha8
■ Sveit Hvassaleitisskóla ásamt fararstjórum. Fremri röð frá
vinstri: Héðinn Steingrímsson, Snorri G. Bergsson og Tómas
Björnsson. Aftari röð frá vinstri: Krístján Sigtryggsson, Þröstur
Þórhallsson, Helgi Hjartarson og Ólafur H. Olafsson.
25. Kg2 bxc3
26. bxc3 Bf6
27. Hh6 Bg7
28. Hhl Bf6
29. Hh5
(Einhver hefði sætt sig við
jafntefli með 29. Hh6 Bg7 30.
Hhl o.s.frv. En Lobron þessi
er mikill baráttujaxl og er
marghertur í baráttu við
fremstu stórmeistara heims.
Það hvarflar ekki að honum að
semja um jafntefli með betri
stöðu.)
29... Hxal
30. Dxal Ra7
31. Dhl Bc8
32. Rg5 Be7
33. Bf3 Rb5
34. Dal Bd7
• 35. Da5 Be8?
(Svarta staðan var orðin
rnjög erfið og sennilega hefur
Kortsnoj verið kominn í tíma-
þröng. Hann gefur andstæð-
ingi sínum kost á laglegri fléttu
og Lobron þarf ekki að láta
segja sér tvisvar.)
36. Rgxe6!
(Staðan hreinlega krefst
þess að hvítur velji þennan
leik.)
36... Bxh5
(36. - Hxe6 37. Bxd5 er
vitavonlaust.)
37. Bxd5 Da7
38. Dd8t! Be8
39. Rc7t! Kh8
40. Rxe8 Dd7
41. Dxd7
- og hér lagði Kortsnoj niður
vopnin. Hann er alltof miklu
liði undir eftir 41. - Hxd7 42.
Rxf6 o.s.frv.
AUGLYSENDUR ATHUGŒ)
Fylgirit NT um
byggingariðnað kemur út
4. viku í ágúst.
Auglýsingar sem birtast eiga
í blaðinu þurfa að
hafa borist auglýsingadeild NT
í síðasta lagi föstudaginn 17. ágúst.
Símarnir eru 18300 - 687648 - 686300
Þingað fyrir Hendrix
■ Aðdáendur Jimi heitins
Hendrix fá tækifæri til að
minnast hetju sinnar dagstund
með því að fara á fyrsta Jimi
Hendrix þingið sem verður
haldið í Nottingham Retford
Eaton Hall í Englandi 15.
september n.k.
Þingið mun standa frá kl. 9
um morguninn fram til mið-
nættis og mun fjöldi hljóm-
sveita flytja Hendrix-lög og
tónlist undir áhrifum. Það
verður jammað á staðnum og
rætt við fólk sem þekkti mann-
inn í eigin persónu og mynd-
bönd munu ganga linnulaust.
Tækifæri gefst fyrir safnara til
að skiptast á plötum og minja-
gripum og komið verður upp
sérstöku sýningarherbergi með
gíturum Hendrix, mögnurum,
fötum og öðrum persónulegum
munum.
Þeir sem hyggjast skella sér á
þingið geta útvegað sér miða
með því að hafa samband við
John Berry, PO Box 13,
Retford, Nottinghamshire,
DN22 7BZ.
íslenskt unglinga*
landslið í skák
sigursælt í Banda-
ríkjunum:
Vann bæði
tveggja og
þriggja
landakeppni
■ íslenskt landslið í skák,
II til 17 ára er nú statt í
Bandaríkjunum í keppni og
hefur sannarlega gert garð-
inn frægan. Islendingarnir
kepptu við landslið Banda-
ríkjanna í sama aldursflokki
og unnu með 44 vinningum
gegn 38. Tefldar voru fjórar
umferðir, en samtals tóku
þátt í keppninni 25 íslenskir
unglingar. Þá tóku íslensku
skákmennirnir þátt í þriggja
landa keppni, þar sem Isra-
elar bættust í hópinn. Tefld-
ar voru 2 umferðir og sigraði
íslenska liðið. Bandaríkja-
menn urðu í öðru sæti og
ísraelsmenn ráku lestina. ís-
lenska liðinu hefur verið
boðið í keppnisferð til ísrael
á næsta ári.
„Égvar að tala við Þortein
Þorsteinsson formann
Skáksambandsins og hann
sagði að frammistaða ís-
lenska liðsins hefði vakið
mikla athygli í New York,
þar sem keppnin fór fram og
hefði verið fjallað um mótið
bæði í blöðum og sjónvarpi
í gærkvöldi," sagði Árni
Jakobsson hjá Skáksam-
bandi íslands við blaðamann
NT.