NT - 14.08.1984, Blaðsíða 21
GE
Þriðjudagur 14. ágúst 1984 21
‘ 'N
Skotbardagar
á Sri Lanka
Colombo-Reuter.
■ Átök milli skæru-
liða af tamil-þjóðflokki
og stjórnvalda á Sri
Lanka halda áfram að
harðna. A.m.k. fimm-
tán skæruliðar tamil-
skra aðskilnaðarsinna
létu lífið í tveimur skot-
bardögum við öryggis-
sveitir hersins í gær.
Samkvæmt opinberum
tölum hafa nú 95 manns.
fallið í þessum átökum
frá því að herinn hóf
sókn sína gegn þjóðern-
issinnuðum tamilum
þann 4. ágúst síðastlið-
inn. En margir tals-
menn tamila halda því
fram að margfalt fleiri
hafi fallið, aðallega
óbreyttir borgarar.
Mikil reiði er nú á
Indlandi vegna aðgerða
hérsins á Sri Lanka
gegn tamilum en á Ind-
landi eru tamilar einnig
mjög fjölmennir. Her-
inn hefur m.a. verið
ásakaður fyrir að skjóta
á óbreytta borgara án
tilefnis og sagt er að
hermenn hafi lagt eld
að 300 búðum og íbúð-
arhúsum í Adampan-
þorpi, í hefndarskyni
fyrir árásir tamilskra
skæruliða á herflokka
stjórnarinnar.
Einn af leiðtogum
Sameinaðrar frelsis-
fylkingu tamila sagði í
gær að svo virtist sem
stjórnvöld hefðu einsett
sér að leysa þjóðern-
isvandamálin á Sri
Lanka með hervaldi.
Hann sagði að slíkt
myndi aldrei takast þar
sem allir tamilar myndu
þá snúast gegn stjórn-
inni. Hann sagði enn
fremur að ýmislegt
benti til þess að herinn
væri agalaus og léti ekki
að stjórn.
Eistlenskur ráðherra:
Flúði til
Svíþjóðar
Berlínarmúrinn 23 ára
■ í gær voru 23 ár liðin
síðan Berlínarmúrinn, var
reistur. Á meðal þeirra sem
minntust þessara tímamóta
var Bandaríkjamaðurinn
Joseph Werner frá New
York, sem tók sér stöðu með
mótmælaspjald við „Check-
point Charlie“, hlið á múrn-
um sem gætt er af Ameríku-
mönnum en þetta hlið kemur
oft við sögu í njósnaskáld-
sögum.
Polfoto-símamynd
Stokkhólmur-Reuter.
■ Aðstoðarráðherra í eist-
lensku stjórninni hefur flúið til
Svíþjóðar ásamt eiginkonu sinni
og beðið þar um pólítískt hæli,
að sögn sænsku lögreglunnar.
Nafni mannsins er haldið leyndu
en talsmaður lögreglunnar bar
til baka fréttir um að flóttamað-
urinn væri Jaak Viller, aðstoð-
armenningarmálaráðherra og
þekktur leikstjóri.
Talsmaður lögreglunnar
sagði að um væri að ræða einn
af aðstoðardómsmálaráðherr-
um Eistlands sem hefði farið
frá Eistlandi í opinberum er-
indagerðum fyrr í þessum mán-
uði.
Flótti ráðherrans fylgir í
kjölfar ádrepu sem sovésk yfir-
völd veittu þeim eistlensku þann
1. ágúst s.í. fyrir að taka ekki
nógu harða afstöðu gegn þjóð-
ernishyggju í landinu, og voru
eistnesk yfirvöld hvött til að
berjast gegn vestrænum og
andsovéskum áhrifum.
Eistland er lýðveldi innan
Sovétríkjanna en Svíþjóð fylgir
þeirri stefnu að veita öllum
flóttamönnum frá Sovétblokk-
inni pólítískt hæli. Þar er aðal-
miðstöð eistlenskra flótta-
manna og hefur Sovétstjórn oft
gagnrýnt starfsemi þeirra.
■ ÞEGAR hinn nýi forsætis-
ráðherra Kanada, John
Turner, boðaði í síðastl. mán-
uði til þingkosninga 4. septem-
ber næstkomandi, bentu skoð-
anakannanir til þess, að flokk-
ur hans, Frjálslyndi flokkur-
inn, myndi vinna auðveldan
sigur.
Kjósendur virtust vænta
mikils af hinum nýja forsætis-
ráðherra og því fór fylgi Frjáls-
lynda flokksins vaxandi sam-
kvæmt skoðanakönnunum eft-
ir að Ijóst var orðið að Turner
yrði kjörinn formaður flokks-
ins á þingi flokksins, sem var
haldið í júní.
Turner hafði ekki tekið þátt
í stjórnmálum um 10 ára skeið,
en áður hafði hann verið þing-
maður og ráðherra og unnið
sér gott orð. Talið var að fyrri
reynsla hans myndi koma hon-
John Turner
Brían Mulroney
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
ætli að verða nokkuð ágengt.
Síðasta skoðanakönun í Qu-
ebec spáir Frjálslynda flokkn-
um 47 % fylgi, en íhalds-
flokknum 38 %. Þetta er mikil
breyting því að í þingkosning-
Mulroney hefur sigrað Turner
í einvígunum í sjónvarpinu
Báðir bjóða þeir sig fram í vonlitlum kjördæmum
um að góðu gagni, þegar hann
kæmi til sögu að nýju.
Það studdi sigurlíkur
Turners, að aðalkeppinautur-
inn, Brian Mulroney, virtist í
lægð eftir að hann hafði notið
vaxandi fylgis fyrst eftir að
hann var kosinn formaður
íhaldsflokksins á síðastl. ári.
Mulroney tókst þá að ná kosn-
ingu eftir harða keppni við Joe
Clark, sem verið hafði formað-
ur flokksins og um skeið for-
sætisráðherra. Mulroney hafði
ekki komið nálægt stjórnmál-
um áður, en verið fengsæll á
viðskiptasviðinu. Hann naut
þess að vera snjall ræðumaður,
sem kom vel fyrir á sjónvarps-
skerminum.
Vinsældir þær, sem Mulron-
ey tókst að afla sér um skeið
ýttu undir það að Trudeau dró
sig fyrr til baka en ella sem
forsætisráðherra og formaður
Frjálslynda flokksins.
Skoðanakannanir sýndu, að
kjósendur voru orðnir þreyttir
á honum eftir samfellda stjórn-
arforustu í næstum tvo áratugi.
Hann hafði áður tilkynnt að
hann myndi draga sig til baka,
en flýtti því af áðurgreindum
ástæðum.
Eftir það varð mikil breyting
á fylgi flokkanna samkvæmt
skoðanakönnunum. íhalds-
flokkurinn fór að tapa, en
Frjálslyndi flokkurinn að vinna
á. Flokkur sósíaldemókrata
stóð í stað.
ÞEGAR kosningabaráttan
hófst í síðasta mánuði stóðu
því leikar þannig, að Turner
var talinn nokkurn veginn sig-
urviss.
Þetta er nú hins vegar breytt.
Nú benda skoðanakannanir til
þess, að íhaldsflokkurinn sé
líklegri til að fara með sigur af
hólmi en Frjálslyndi flokk-
inn.
Meginástæðan virðist sú, að
í sjónvarpseinvígum, sem þeir
hafa háð, hefur Mulroney þótt
standa sig áberandi betur.
Turner virðist hafa farið aftur
meðan hann stóð utan hinnar
pólitísku baráttu. Það hefur
dregið úr þeim áróðri Frjáls-
lynda flokksins, að styrkur
Turners sé reynslan.
Hins vegar hafa sjónvarps-
einvígin styrkt þann áróður
íhaldsflokksins, að nýir vendir
sópi best.
Málefnalega ber þeim Turn-
er og Mulroney ekki mikið á
milli. íhaldsflokkurinn ákvað
fyrir nokkru að taka upp öllu
frjálslyndari og umbótasinn-
aðri stefnu en áður og kallar
sig því Framfarasinnaða
íhaldsflokkinn (Progressive
Conservative Party). Bilið
milli flokkanna hefur því
minnkað og hefur enn minnk-
að við það, að Turner er meira
til hægri en Trudeau.
Það má því segja, að kosn-
ingabaráttan í Kanada snúist
nú öllu meira um persónur en
stefnur. Um margt eru þeir
Turner og Mulroney áþekkir.
Þeir eru lögfræðingar að
menntun og hafa starfað sem
lögfræðilegir ráðunautar stórra
fyrirtækja. Báðir eru jafnvígir
á ensku og frönsku. Báðir eru
frekar íhaldssamir, en lýsa þó
yfir því, að þeir vilji í stórum
dráttum viðhalda velferðar-
skipulaginu.
Þegar þannig stendur á, get-
ur framkoman í sjónvarpi
reynst mikilvæg og virðist líka
hafa orðið það. Þar virðist
Mulroney hafa gengið betur.
BÁÐIR tefla þeir Turner og
Mulroney djarft í kosningabar-
áttunni á þann hátt, að þeir
bjóða sig fram í kjördæmum,
þar sem tvísýnt er að þeir vinni
sigur.
Fylgi flokkanna er þannig
háttað, að meginfylgi Frjáls-
lynda flokksins er íausturhluta
landsins, einkum þó í Quebec,
þar sem frönskumælandi fólk
er í meirihluta. Mulroney hef-
ur ákveðið að gera mikið
strandhögg hjá Frjálslynda
flokknum í Quebec, en hann er
ættaður þaðan og uppalinn
þar, og býður sig nú fram í
frekar vonlitlu kjördæmi þar.
Svo virðist sem Mulroney
unum 1980 fékk íhaldsflokkur-
inn aðeins 12.5 % greiddra
atkvæða.
Frjálslyndi flokkurinn hefur
nú öll 75 þingsætin í Quebec,
nema eitt. Ihaldsmenn gera
sér nú vonir um að geta unnið
20. Það yrði söguleg breyting.
íhaldsflokkurinn hefur haft
aðalfylgi sitt í vesturfylkjun-
um. Turner sem ekki á sæti á
þingi, býður sig fram í vestasta
fylkinu, British Columbia, en
þar hefur Frjálslyndi flokkur-
inn ekkert þingsæti. Turner
býður sig fram í kjördæmi,
sem er talið frekar vonlítið.
Svo getur farið, að báðir
flokksforingjarnir falli. Sá
skellur þarf þó ekki að útiloka
þá frá þingsetu, því að einhver
þingmaður í öruggu kjördæmi
yrði látinn standa upp fyrir
þeim.