NT - 14.08.1984, Side 23
■ Þessi mynd er úr fyrri leik Selfyssinga og Stjörnunnar í 3. deild. Þá sigruðu Stjörnumenn en Selfyssingar hefndu grimmilega
um helgina. NT-mynd: Ámi Bjama
3. deildin í knattspyrnu:
Skothríð
Víkinga
- góðir sigrar ÍK og Vals
■ Leikið var í 3. deildar
keppninni um helgina og voru
leikir bæði í A og B riðli. í
A-riðli urðu úrslit þessi:
Grindavík - Víkingur ÓL .... 0-4
Snæfell-HV................... 3-0
Selfoss - Sljarnan ......... 3-1
ÍK - Reynir................. 2-1
Liðin af Snæfellsnesinu
komu vel út um helgina og
unnu bæði stóran sigur. Víking-
ar náðu í mjög dýrmæt og erfið
stig á Suðumesjum er þeirsigruðu
Grindvíkinga á þeirra heima-
velli með mörkum Péturs
Finnssonar, sem gerði 2, og
Guðmundar Kristjánssonar og
Halldórs Gíslasonar, sem
gerðu eitt hvor.
Snæfell vann stórsigur á
slöku liði HV og skoraði
Guðmundur Stefán Maríasson
2 en Pétur Rafnsson eitt. Hvort
þetta dugar Snæfellsmönnum
til að forðast fall er ekki gott að
segja því ÍK vann einnig um
helgina.
Selfyssingar unnu stórsigur
á Garðbæingum, sem eru að
missa flugið. Þeir komust þó
yfir á móti rokinu og var staðan
í hléi 1-0 fyrir Stjörnunni. En
strax í upphafi síðari hálfleiks
skoraði Jón Birgir Kristjánsson
mark eftir mjög fallega sóknar-
lotu Selfyssinga. Heimir Bergs-
son „fiskaði“ svo víti og Þórar-
inn Ingólfsson skoraði af
öryggi úr spyrnunni. Stefán
Halldórsson skoraði þriðja
Happadrætti HSÍ
■ Nýlega var dregið í
skyndihappadrætti HSI
og féllu vinningar á eftir-
talin númer: 112, 1417,
2213, 2735, 1883, 1271,
467, 2275, 583.
Frekari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
HSÍ í síma 685422.
markið áður en Einari Jónssyni
Selfyssingi var vísað af velli.
IK vann óvæntan en sann-
gjarnan sigur á efsta liðinu,
Reyni, 2-1. Eru þeir Kópavogs-
búar nú komnir að mestu úr
fallhættu en þó getur allt gerst.
ÍK menn voru heldur frískari í
fyrri hálfleik og áttu m.a. skot
í slá eftir óbeina aukaspyrnu. í
síðari hálfleik gerði Orri
Hlöðversson tvö mörk með ör-
'stuttu millibili og fór þá að fara
um Reynismenn. Um miðjan
seinni hálfleik skoraði Ari
Haukur fyrir Reyni en þeim
tókst ekki að jafna. Þessi stig
voru mjög dýrmæt fyrir ÍK og
jafnslæmt fyrir Reyni að tapa í
hinum harða slagi í A-riðli.
Staðan í A-riðli:
Fylkir....... 12 9 1 2 31-15 28
Víkingur ÓL . . 13 9 1 3 29-16 28
Reynir ......... 12 8 3 1 28-10 27
Selfoss ........ 12 6 2 4 21-15 20
Stjarnan ....... 13 6 2 5 30-20 20
Grindavík .... 12 3 4 5 13-20 13
ÍK ............. 13 2 3 8 14-25 9
HV............ 12 2 2 8 16-29 8
Snæfell .... 13 1 2 10 10-37 5
Úrslit i B-riðli:
Þróttur N - Valur.............. 2-4
Austri - Lciftur............... 2-0
Huginn - Magni ................ 2-0
Valsarar náðu góðum sigri á
Neskaupstað og voru komnir í
4-0 áður en þeir leyfðu Þróttur-
um að minnka muninn.
Þá léku Austri og Leiftur og
Sigruðu Austramenn og
bundu þar með enda á sigur-
göngu Leifturs en það er of
seint því Leiftur hefur þegar
sigrað í riðlinum. Sigurjón
Kristjánsson og Kristján Svav-
arsson skoruðu fyrir Austra.
Loks unnu Seyðfirðingar
góðan sigur á Magna, 2-0.
Staðan í B-riðli:
Leiftur .......... 10 7 2 1 25-9 23
Austri......... 10 4 4 2 14-10 16
HSÞ............... 9 4 2 3 11-15 14
Þróttur .......... 8 3 3 2 18-13 12
Magni............ 10 3 2 5 13-16 11
Huginn ........... 8 14 3 13-21 7
Vaiur ............9 117 12-25 4
■ Eric Black gerði tvö mörk.
Skoska 1. deildin:
Black með
tvö mörk
■ Fyrsta umferð í skosku deildarkeppninni
var leikin um helgina og hófu Skotlandsmeistar-
ar Aberdeen titilvörn sína með góðum sigri á
Dundee, 3-2. Eric Black var hetja Aberdeen og
gerði hann tvö mörk í síðari hálfleik eftir að
Dundee hafði komist í 2-1 með mörkum Ray
Stephen og Stuart Rafferty. Þriðja mark Aber-
deen gerði Billy Stark.
Glasgow Rangers varð að sætta sig við
jafntefli gegn St. Mirren, 0-0. Þá gerðu Celtic
og Hibernian einnig jafntefli 0-0. Morton vann
Dumberton með tveimur mörkum gegn einu.
Þá lagði Dundee United Hearts auðveldlega,
2-0.
Sýningarferð
■ Sýningarhópur frá íþróttafélaginu Gerplu í
Kópavogi er á förum til Brasilíu þann 17. ágúst
n.k.. í hópnum eru 30 manns. í dagskrá hópsins
eru 23 sýningaratriði, blanda af fimleikaatriðum,
íslenskir þjóðhættir, söngur og hljóðfæraleikur.
I ferðinni eru áætlaðar nokkrar sýningar í
ýmsum borgum Brasilíu m.a. Rio de Janero, Sao
Paulo og Porto Alegre. Ferð Gerplu er í boði
Fimleikasambands Brasilíu og verður heimsókn
þessi væntanlega endurgoldin að ári.
Þriðjudagur 14. ágúst 1984 23
Úrval af skrifborðum,
bókahillum og skrifborðs-
stólum fyrir skólafólk.
Joker skrifborðið kostar aðeins kr.
3.850.- með yfirhiilu.
Vandaðir skrifborðsstólar á hjólum.
Verð frá kr. 1.590.-
Húsgögn og
. . . ** Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 6-86-900
MUNIÐ
FERÐA
VA$A
BOKIJSA
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnumumallt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sími 91-81290