NT - 14.08.1984, Qupperneq 24
—
HRINGDU ÞÁ Í SÍMA 68
Vid tökum við ábendingum um frétftir allan sólarliringinn.
Greiddar verða 10OO krónur fyrir Hverja ábendingu sem leidir
til fréfttar í bladinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leidír
til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gaett
■ Mikið er um, að fólk flækist út á flugbrautir Reykjavíkurflugvallar og stofni lífi sínu og annarra í stórhættu. Þessi maður
verði alltaf.
með skrekkinn, en ekki er víst að svo
NT-mynd: Ámi Bjama
Hættulegur leikur:
Hljóp í veg fyrir flugvél
Boðf lennur tíðar á brautum Reykjavíkurf lugvallar
■ Sunnudaginn 29. júlí síðast-
liðinn kl. 09.15 munaði aðeins
hársbreidd, að maður yrði fyrir
flugvél á Reykjavíkurflugvelli.
Maðurinn hljóp yfir flugbraut í veg
fyrir vél í flugtaksbruni, en flug-
maðurinn náði að hemla í tæka
tíð. Nokkrum dögum síðar varð
farþegaflugvél að hætta við
lendingu vegna þess, að maður
gekk út á flugbrautina, þar sem
hún átti að lenda.
Þetta eru aðeins tvö dæmi af
mörgum um það hvernig um-
gengnisreglum við Reykjavíkur-
flugvöll er ekki fylgt.
„Ég fagna því, að það verði
undirstrikað hversu hættulegt
það er fyrir almenning að álpast
út á flugbrautir. Pær eru fyrir
flugvélar. En þetta hefur verið
vandamál frá upphafi," sagði
starfsmaður á Reykjavíkurflug-
velli, þegar NT spurði hann um
óboðna gesti á brautum vallar-
ins.
Að sögn starfsmannsins hafa
enn ekki orðið slys vegna þessa
hættulega leiks, en oft hefur
hurð skollið nærri hælum, eins
og dæmin hér að ofan sanna.
„Það hefur verið gert mikið
átak í því að girða í kringum
völlinn, en það virðist ekki duga
til,“ sagði starfsmaðurinn.
Þeir sem staðnir eru að því að
fara yfir flugbrautir í leyfisleysi
eru færðir í hendur lögreglunnar
og hafa þeir gefið ýmsar
skýringar á ferðum sínum.
Óboðnir gestir eru þó ekki að-
eins gangandi. Bandaríkjamað-
ur nokkur sem eitt sinn var
staðinn að því að aka út á
flugbraut gaf eftirfarandi skýr-
ingu: „Ég hélt að þetta væri
vegurinn inn í bæ.
Metvika
hjá Flug-
■ Flugleiðir fluttu 25271
farþega á áætlunarleiðum
sínum vikuna 29. júlí til 4.
ágúst og hafa þeir aldrei
verið fleiri. Sömu viku í
fyrra voru farþegarnir
tæplega 22 þúsund.
Flestir farþegar voru á
J Evrópuleiðum félagsins,
| 9621. Farþegar á Norður-
Atlantshafsleiðinni voru
9115 og innanlands voru
| þeir 6535.
Aukning farþega í N-
Atlantshafsíluginu miðað
við árið í fyrra er 20.5%,
í Evrópufluginu 22.4% og
3.2% íinnanlandsfluginu.
Atvinnuleysisdagar í júlí:
Tvö þúsund fleiri
en á síðasta ári
- yfir 50% af skráðu atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu
■ Fyrstu sjö mánuði vfir-
standandi árs hafa í heild verið
skráðir 263.000 atvinnuleysis-
dagar á öllu landinu og svarar
það til þess að rösklega I.700
manns hafi verið á atvinnu-
leysisskrá að meðaltali og jafn-
gidir það 1,5% af áætluðum,
mannafla að meðaltali á árinu.
í júlímánuði s.l. voru skráð-
ir tæpir 17.000 atvinnuleysis-
dagar á landinu öllu og jafn-
gildir það því að 775 manns
hafi verið á atvinnuleysisskrá
allan mánuðinn. Mun það
svara til að 0,6% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaðinum
hafi verið á atvinnuieysisskrá.
Skráðum atvinnuleysisdögum
hefur fækkað frá mánuðinum
á undan en eru hins vegar um
2.000 fleiri nú en í júlímánuði
í fyrra.
Athygli vekur að yfir 50%
■af skráðu atvinnuleysi er á
höfuðborgarsvæðinu, þrátt
fyrir þá þenslu sem þar er talin
vera í atvinnustarfsemi. Þar
voru 8.516 atvinnuleysisdagar
í júlímánuði s.l. og er það
heldur meira en var í fyrra. Þá
voru 384 skráðir atvinnulausir
á höfuðborgarsvæðinu í júlí-
mánuði en voru 393 í júlí á
þessu ári. Atvinnuleysi hefur
aukist víðast hvar á landinu í
júlímánuði í ár, miðað við
sama mánuð í fyrra, ef undan
er skilið Norðurland vestra,
Austurland og Rykjanes. Þar
hefur atvinnuleysi minnkað.
Nánar verður farið ofan í
saumana á atvinnuleysinu í NT
á morgun.
■ Þannig lítur hann út,
Lessli burstinn frá frænd-
um okkar Norðmönnum,
sem auðveldar fólki morg-
un- og kvöldverkin, því
hægt er að bursta tennur
jafnt utan sem innan í
sömu sveiflunni.
Tvöfaldur
tannbursti
það sem
koma skal?
■ Lessli heitir ný tegund
tannbursta sem er svo til
óþekkt hérlendis og er frá-
brugðin venjulegum tann-
burstum að því leyti, að á
öðrum enda hans eru tveir
stuttir armar með
burstum, þannig að fram-
og bakhliðar tannanna eru
hreinsaðar samtímis.
Bursti þessi kemur frá
Noregi og hefur verið not-
aður þar um nokkurra ára
skeið. Njáll H. Jónsson
þroskaþjálfari kynntist
notkun burstans á Emma
Hjort vistheimilinu í Bær-
um fyrir utan Osló og kom
því til leiðar að burstinn
var tekinn í notkun við
Vistheimilið Sólborg á Ak-
ureyri.
Að sögn Þórhildar Svan-
bergsdóttur deildarstjóra
á Sólborg lofar árangurinn
mjög góðu, sérstaklega við
tannholdsbólgu, sem er
ekki síður vandamál en
tannskemmdir.
Sólborg er með innflutn-
ingsleyfi fyrir þessum burst-
um og eru þeir framleidd-
ir með mjúkum hárum og
í einni stærð. Er það nokk-
ur ókostur við bursta þenn-
an því erfitt er fyrir börn að
nota hann þar eð hann er
nokkuð fyrirferðarmikill.