NT - 15.02.1985, Page 9
Föstudagur 15. febrúar 1985
9
Umsjón: Jón Danielsson
Þú getur þurft
að borga allt
að 70% „vexti“
■ Það er dýrt að taka fé
að láni á íslandi um þessar
mundir. En þeir sem eru í
þeirri aðstöðu að geta lán-
að út fé, eða jafnvel aðeins
haft milligöngu um það,
hafa góðan afrakstur af
þeirri starfsemi.
NT kannaði örlítinn
anga af þessari blómstr-
andi okurlánastarfsemi í
vikunni, þegar við spurð-
umst fyrir um verð og
afborgunarkjör á sjón
varps og myndbandstækj
um í 11 verslunum
Reykjavík. Samalagðui
kostnaður við að taka fé
að láni, við afborgunar
kaup, reyndist vera allt
upp í 70% af lánsfjárhæð-
inni, reiknað á ársgrund-
velli. Og ekki ber á öðru
en þetta sé allt saman
löglegt.
- „Trixið“ heitir
staðgreiðsluafsláttur
Pað er hinn svokallaði „stað-
greiðsluafsláttur" sem hækkar
lántökukostnaðinn svo ntjög
að varla er hægt að tala um
annað en okur í þessu sam-
bandi. Staðgreiðsluafsláttur-
inn er á bilinu 5-15% af stað-
greiðsluverði, sem virðist
kannski ekki beinlínis stór-
hættuleg tala, en þegar farið er
að athuga hversu hátt hlutfall
þetta er af því fé sem fengið er
að láni, kemur annað í Ijós.
Staðgreiðsluafslátturinn er
sem sé á bilinu 11-34% af því
fé sem kaupandinn fær að láni
þegar hann kaupir sjónvarps
eða myndbandstæki með af-
borgunarskilmálum. Venju-
legir bankavextir bætast svo
við þetta.
- Jáin og neiin
bankastjóranna
Það liggur náttúrlega í aug-
um uppi að lækka mætti þenn-
an hrikalega lánakostnað, ef
kaupandinn færi í banka og
fengi þar lánað það fé sem
hann þarf á að halda með
venjulegum skuldabréfavöxt-
urn, þ.e. hæstu lögleyfðu
bankavöxtum. Málið er þó
ekki alveg svona einfalt og
þeir sem ekki trúa því ættu að
prófa að ganga fyrir banka-
stjóra og biðja um lán til að
fjármagna sjóvnarps- eða
myndbandskaup. Fjármagn
liggur yfirleitt ekki á lausu í
bönkum til þeirra hluta.
Og þó. - Það vill svo
skemmtilega til að eftir að þú
hefur án árangurs leitað til
bankastjóra í þessum tilgangi
og síðan skrifað undir afborg-
unáskilmálana í versluninni. -
þá fer verslunareigandinn með
skuldabréfið þitt í bankann og
■ Geturðu staðgreitt þetta?
Þá sleppurðu vel. Það er nefni-
lega óheyrilega dýrt að vera
fátækur!
sclur það sama bankastjóran-
um, sem fyrr um daginn neitaði
þérumþettasamalán. Munur-
inn er ekki annar en sá, að
verslunin sern seldi þér tækið
og hafði milligöngu um lánið,
er orðinn staðgreiðsluaf-
slættinum ríkari.
- Ódýrustu tækin
Hér verður ekki lagður
TAFLAI sjónvarpstæki
Fyrirtæki Stærð Tegundarheiti Fjarst. Stgr.verð Afb.álag Afb.verð Útb. Lánstími Vextir Álagsem ársvextir Kostn. alls semvextir
GunnarÁsg. 20” Sanyo CPT 6226 - 27.900,- 7% 29.900,- 'h 7mán. 37% 17% 54%
Fálkinn 20" DeccaFT1253 - 29.958,- 11% 33.287,- 'h 6mán. 37% 30% 67%
Gellir 20” ITT3325 Já 32.200,- 7% 34.600,- 'h 6mán, 37% 20% 57%
eðahærri útborgun 32.200,- 7% 34.600,- 'h 6mán 2% 28% 30%
Heimilistæki 20” Philips 20 CT1’ - 28.014,- 5% 29.488,- 'h 6mán 37% 14% 51%
Japis 20” Sony KV 2062 iá 39.900,- 8% 42.900,- 'h 6mán 37% 20% 57%
Nesco 20” OrionNE20xar já 26.900,- 15% 30.900,- 6.900,- 6mán 37% 34% 71%
eða hærri útborgun 26.900,- 7% 28.900,- 13.900,- 6mán 37% 26% 63%
Radíóbúðin3' 20” Nordmende SC1530 - 32.280,- 5% 33.980,- 8.000,- 8mán 37% 11% 48%
Radíóstofa Vilbergs
og Þorsteins 20” HitachiCPT2082 - 35.055,- 5% 36.900,- 'h 7mán 32%” 14% 46%
Sjónvarpsbúðin 20” FischerFTM251 - 29.980,- 6% 31.815,- 'h 6mán 37% 18% 55%
EinarFarestveit 22” Toshibal F3W já 37.905,- 5% 39.900,- 'h 6man 37% 16% 53%
Hljómbær 22" Luxor5634 +3000 39.330,- 5% 41.400,- 'k 6mán 4% + láns kjaravisi tala
eðaskemmri lánstími 39.330,- 5% 41.400,- 'k 5mán 37% 17% 54%
Ekki til, en væntanl. i næstu viku á u.þ.b. sama verði
^’Vixilvextir
3>Radíóbúðin hefur að undanförnu auglýst þessi kjör sem tilboð.
■ Taflan sýnir mismunandi verð og afborgunarskilmálaá sjónvarpstækjum Næstaftastidálkurinn sýnir mismuninn á
afborgunarverði og staðgreiðsluverði sem ársvexti af lánsfjárhæðinni og aftasti dálkurinn sýnir heildarmismuninn á því
sem greitt er við staðgreiðslu annars vegar og hins vegar því sem alls er greitt, þegar borgaðer í áföngum, - einnig sem
ársvexti af þeirri upphæð sem tekin er að iáni.
í stað þess að reikna hinn svokallaða „staðgreiðsluafslátt“ af afborgunarver in er hann hér reiknaður sem
„afborgunarálag" ofan á staðgreiðsluverðið, sem virðist sönnu nær.
TAFLAII myndbandstæki
Álagsem Kostn.alls
Fyrirtæki Gerð Tegundarheiti Fjarst. Stgr.verð Afb.álag Afb.verð Utb. Lánstími Vextir ársvextir semvextir
GunnarÁrsg. VHS BlaupunktRTV301 Þráðafj. 39.990,- 11% 44.479,- 'h 7mán. 37% 26% 63%
GunnarÁsg. BETA SanyoVTC10 Þráðfj. 38.058,- 5% 40.063,- 'h 7mán. 37% 14% 51%
Fálkinn VHS Kenwood Kv 903 Já 48.760,- 11% 54.178,- 'h 6mán. 37% 30% 67%
Gellir VHS ITT3605' Já 44.580,- 5% 46.930,- 'h 6mán. 37% 16% 53%
eða hærri útborgun 44.580,- 5% 46.930,- 'k 6mán. 2% 22% 24%
Heimilistæki VHS PhilipsVR6460 Já 44.077,- 5% 46.397,- 'h 8mán. 37% 12% 49%
eða skemmri lánstími 44.077,- 5% 46.397,- 'k 6mán. 37% 14% 51%
Japis VHS PanasonicNV370 Þráðfj. 42.129,- 8% 45.300,- 'h 6mán. 37% 22% 59%
BETA SonySLC 30 Já 45.105,- 8% 48.500,- 'h 6mán. 37% 22% 59%
Nesco VHS XenonVHF-2B Þráðfj. 35.900,- 11% 39.900,- 9.900,- 6mán. 37% 26% 63%
eða hærri útborgun 35.900,- 6% 37.900,- 18.900,- 6mán. 37% 22% 59%
Radióbúðin" VHS NordmendeV-110 Já 41.980,- 12% 46.980,- 8.000,- 8mán. 37% 18% 55%
Radióstofa Vilbergs og Þorsteins VHS Hitachi VT34 já 41.900,- 6% 44.600,- 'h 7mán. 32% 15% 47%
Sjónvarpsbúðin VHS Fischer P-618 Þráðfj. 41.900,- 7% 44.900,- 10.000,- 6mán. 37% 18% 55%
Einar Farestveit BETA Toshiba V8700 Já 47.405,- 5% 49.900,- 'h 6mán. 37% 14% 51%
Hljómbær VHS FunaiVCR4000 jL 36.575,- 5% 38.500,- 'k 6mán. 4% +lánskjara vísitala
eða skemmri iánstími 36.575,- 5% 38.500,- 'k 5mán. 37% 17% 54%
"Radióbúðin hefur aö undanförnu auglýst þessi kjör sem tilboð
Taflan sýnir verð og afborgunarskilmála á myndbandstækjum á sama hátt og fjallað er um sjónvarpstækin í töflu I.
neinn dómur á það hvar bestu
(cða skástu) kaupin vcrða
gerð. Þcir sein kunna að vera
í sjönvarps- eöa myndbands-
huglciðingum ættu hins vegar
að gcta haft nokkurt gagn af
því að kynna sér töflurnar hér
á síöunni í smáatriðum.
Vcrð þessara tækja cr ákaf-
lcga mismunandi og vel má
vera að vcrðmunurinn sé aö
einhvcrju leyti í samræmi viö
hugsanlegan gæðamun, en á
það verður scm sagt enginn
dómur lagður hér.
Þessi könnun fór þannig
fram að hringt var í vcrslanirn-
ar og þær beönar um verð á
ódýrustu tækjunum scm þær
höfðu á boðstólum. Bcðið var
um vcrð á 20 tommu litsjón-
varpstækjum, en væru þau
ckki til voru skráð verð 22
tommu tækja í staðinn.
Til að ganga úr skugga um
að réttar upplýsingar fengjust
á hvcrjum staö, fór þó „vcnju-
legur kúnni" líka í verslanirnar
og spuröi nokkurn veginn
sömu spurninga.
- Réttmæti reiknings-
aðferðarinnar
Trúlcga má dcila um um
réttmæti þcss aö reikna lána-
kostnaðinn á þann hátt sem
hérhefur veriðgert. Söluaðilar
þessara tækja halda því t.d.
statt og stöðugt fram aö stað-
greiðsluafslátturinn sé aflsátt-
urogcigi ekkert skylt við vexti.
Út frá sjónarmiði neytand-
ans virðist þó mjög sanngjarnt
að líta á þennan afslátt sem
vexti. Verslunareigendur kom-
ast trauðlega hjá að viður-
kenna, aö hið svo kallaða stað-
greiðsluverð er það verð sem
þeir eru rciðubúnir að selja
tækin fyrir. Af því leiðir að
inni í því veröi er eðlileg
álagning verslunarinnar. Það
veröur heldur ekki séð að
verslunin beri neinn kostnað
af því að selja tækin með
afborgunum. Skuldabréfin
sem kaupandinn skrifar undir
eru í flestum tilvikum seld í
baka og seljandinn þarf ekki
að hafa áhyggjur af þeim fram-
ar - nema þá í þeim tilvikum
sem kaupandinn stendur ekki
í skilum, en þá mun hið selda
tæki yfirlcitt standa fyrir sínu
og jafnvel gott betur.
Út frá sjónarmjði neytand-
ans sem kaupir vöruna og þarf
að greiða þennan kostnað
skiptir það náttúrlega heldur
alls engu máli, hvað menn láta
sér detta í hug að kalla pening-
ana. Þá þarf að borga eftir sem
áður. Og þegar heildarkostn-
aðurinn - hverju nafni sem
hann kann að nefnast - við
lántöku er kominn upp í 70%
af lánsupphæðinni. þá getur
það varla kallast annað en
okur, 'eða ...?