NT - 28.02.1985, Page 2
pr Fimmtudagur 28. febrúar 1985 2
m |> Fréttir
Átak í dagvistunarmálum barna til annarrar umræðu í efri deild:
Fjárhags- og viðskiptanefnd
þríklofin í afstöðu sinni
■ Frumvarp til laga um átak í
dagvistunarmálum barna var til
annarrar umræðu í efri deild
Alþingis í gær og samtímis var
lagt fram nefndarálit fjárhags-
og viðskiptanefndar um málið.
Reyndist nefndin vera þrí-
klofin í afstöðu sinni en meiri-
hluti nefndarinnar, sem í eru
fulltrúar stjórnarflokkanna,tek-
ur undir meginmarkmið frum-
varpsins um að dagvistunarmál-
um barna sé tekið tak sem miði
að því að fullnægja þörf fyrir
dagvistunarrými en er mótfall-
inn því að lögbinda skuli fram-
lög til þessara verkefna eins og
lagt er til í frumvarpinu.
Telur meirihlutinn varhuga-
vert að ganga lengra en orðið er
í að marka tekjustofna ríkisins
til ákveðinna verkefna og leggur
til að frumvarpinu verði vísað
til ríkisstjórnarinar.
Fyrsti minnihluti fjárhags- og
viðskiptanefndar, Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, leggur
ísafjörður:
Rekstrarafgangur
á fjárhagsáætlun
■ Rekstrartekjur bæjarsjóðs
Ísafjarðar fyrir 1985 eru áætlað-
ar 152 milljónir og 300 þúsund
krónur, sem er um 32% hækkun
frá árinu 1984. Heildarútgjöld
bæjarsjóðs eru aftur á móti
áætluð 127 milljónir og 249
þúsund krónur, sem er 24,3%
hækkun frá 1984. Þetta eru
niðurstöðutölur fjárhagsáætl-
unar kaupstaðarins fyrir 1985,
sem samþykkt var á fundi
bæjarstjórnar þann 16. febrúar
síðastliðinn.
Helsti tekjustofn bæjarsjóðs
eru útsvörin, en þau eru áætluð
um 65 milljónir króna. Gert er
ráð fyrir, að útsvarsprósentan
verði hin sama og í fyrra, eða
11%. Tekjurafaðstöðugjöldum
eru áætlaðar 17 milljónir og 400
þúsund og 11 milljónir og 600;
þúsund af fasteignaskatti. Af
öðrum tekjuliðum má nefna
framlag úr jöfnunarsjóði og
landsútsvar að fjárhæð 11 mill-
jónir og 300 þúsund.
Almannatryggingar og félags-
hjálp eru helsti útgjaldaliður
bæjarsjóðsins og er áætlað að
17,5% af sameiginlegum tekj-
um renni til þessa málaflokks.
Til fjárfestingar og reksturs
verklegra framkvæmda er áætl-
að að verja um 14% af tekjun-
um og 12% fara til fræðslumála.
Fjármagnskostnaður tekur 10%
og yfirstjórn kaupstaðarins tek-
ur sömu upphæð.
Fjárhagsáætlunin gerir ráð
fyrir 8 milljón króna framlagi til
byggingar st>prnsýsluhúss og
áætlað er aó verja tæpum 5
milljónum til dagheimilis og
leikskóla við Eyrargötu. Ný-
bygging sjúkrahússins fær rétt
rúmar 2 miljónir og 1300 þúsund
fara til hönnunar nýs íþrótta-
húss. Af öðrum framkvæmdum
má nefna rúmlega 5 milljón
króna framlag til nýfram-
kvæmda við vatnsveitu og rúm-
ar 7 milljónir til gatna- og hol-
ræsisgerðar.
Þetta er nú bara smá forskot á viðreisn þjóðarbúsins
skotssjónum fyrst á eftir. Svo
var a.m.k. um dropateljara
sem tyllti sér þungt hugsi á
stigapallinn heima hjá sér, og
batt skóþveng sinn, morguninn
eftir sýningu myndarinnar.
Bar þá að nágrannakonu
eina og tóku þau tal saman.
Barst talið að umræddri mynd
og bar þeim saman um að fleiri
slíkar myndir mættu vera á
dagskrá sjónvarpsins. Hafði
nágrannakonan mörg og fögur
orð um efni myndarinnar. Þeg-
ar dropateljari stóð á fætur og
bjóst að halda til vinnu sinnar,
runnu þó óneitanlega á hann
tvær grímur við niðurlagsorð
nágrannakonunnar, sem hún
tuldraði brúnaþung um leið og
til að frumvarpið verði sam-
þykkt óbreytt en fulltrúar ann-,
ars minnihluta, Eiður Guðna-
son -og Ragnar Arnalds telja
óeðlilegt að framlög á fjárlög-
um sé tiltekið hlutfall af heildar-
útgjöldum fjárlaga og vilja frek-
ar að tilgreind sé í lögum tiltekin
upphæð sem hækki samkvæmt
byggingarvísitölu frá 1. des.
1984. Leggja þeir til að ár hvert
verði varið til byggingar dagvist-
unarheimila fyrir börn eigi lægri
fjárhæð úr ríkissjóði en sem
svarar 75 milljónum á verðlagi í
desember 1984.
Flutningsmaður frumvarps til
laga um átak í dagvistunarmál-
um barna er Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir en gert er ráð
fyrir því að a.m.k. 0,8% af
A-hluta fjárlaga ár hvert verði
varið til byggingar dagvistunar-
heimila fyrir börn.
Alffreð formaður
framsóknarmanna
■ Síðastliðið mánudagskvöld
var Alfreð Þorsteinsson kosinn
formaður Framsóknarfélags
Reykjavíkur, en prófessor Valdi-
mar K. Jónsson gaf ekki kost á sér
til endurkjörs.
Aðrir í stjórn voru kosnir Krist-
inn Finnbogason, Valur Sigur-
bergsson, Örn Erlendsson, Ragn-
heiður Ásta Jóhannesdóttir, Jónas
Guðmundsson (stýrimaður og
skáld) og Pétur Sturluson. í vara-
stjórn eru Haraldur Ólafsson, Jón-
ína Jónsdóttir, Jón Gunnarsson
og Steinþór Þorsteinsson.
Óþekkur strákur,
Páll
■ Frá æfíngu á Draugasónötunni.
■ Það vakti nokkra athygli í
lok sjónvarpsfrétta í fyrra-
kvöld að Ragnhildur Helga-
dóttir menntamálaráðherra, sá
sig knúna til að veita undir-
mönnum sínum á fréttastofu
sjónvarpsins örlitla ofanígjöf
fyrir að nota orðalagið að upp-
sagnir kennara „komi til fram-
kvæmda" um mánaðamótin.
Ragnhildi þóttisemséað
uppsagnir kennara gætu alls
ekki komið til framkvæmda nú
um mánaðamótin, þar hún hef-
ur sjálf, svosemkunnugter,
framlengt uppsagnarfrest
þeirra um þrjá mánuði. At-
hugasemd frá Ragnhildi um
þetta var lesin upp síðar í
fréttatímanum.
Páll Magnússon var þó ekki
á þeim buxunum að láta segja
sér fyrir verkum um orðalag
einstakra frétta og sagði blá-
kalt að óvíst væri hvort upp-
sagnir kennara „kæmu til fram-
kvæmda“ um mánaðamótin,
þegar hann las okkur fréttir í
daeskrárlok.
Góð mynd
■ Myndin Atomic Café, sem
sjónvarpið hafði til sýningar
síðastliðið mánudagskvöld,
vakti verðskuldaða athygli.
Þar var sýnt fram á hvernig
Bandaríkjamenn beittu áróð-
urstækni sinni til að réttlæta
kjarnokruvopnauppbyggingu
sína á fyrstu árunum eftir stríð
og hversu ósparir þeir voru á
að beita Rússa-grýlunni í þeim
tilgangi. Hefur myndin vafa-
laust staðið mörgum friðsöm-
um Frónbúanum fyrir hug-
Draugasónatan í MS
■ Talía-leiklistarsvið Mennta-
skólans við Sund frumsýnir
Draugasónötu Strindbergs í
gamla Vogaskólanum í kvöld
kl. 8.30. Leikstjóri er Hlín Agn-
hún vatt sér upp á næsta stiga-
pall: „Ég vissi það alltaf -
Rússum er ekki treystandi fyrir
kjarnorkusprengju..."
Listrænt
skemmdarverk
■ NT greindi frá því fyrir
skömmu að skemmdarvargar
hefðu brotist inn í dagheimili
hér í borg og valdið þar ýmsum
spjöllum. Með fréttinni fylgdi
meðfylgjandi mynd sem dæmi
um þau voðaverk sem unnin
voru innandyra.
Svo einkennilega brá þó við,
að einn lesandi blaðsins hafði
samband við Ijósmyndadeild-
ina og fór þess á leit að fá mynd
þessa gefna, þar eð honum
þótti veggskreytingin hin
mesta prýði og hafði fullan hug
á að notfæra sér hugmyndina í
eigin hýbýlum.
Dropateljari er sammála
hinum listræna lesanda og
skorar á starfsfólk dagheimilis-
ins að leyfa veggskreytingunni
að standa, börnum og gest-
komendum til ánægju og ynd-
isauka, því eins og máltækið
segir: Fátt er svo með öllu
illt... o.s.frv.
arsdóttir, en þýðinguna gerði
Einar Bragi.
Draugasónatan var skrifuð
1907 og er í hópi þeirra leikrita
Strindbergs sem kölluð hafa
verið „draumaleikrit“ hans. Þau
hafa af mörgum verið talin for-
verar ýmissa leikrita fáránleika-
leikhússins, einkum verka Ion-
escos og Adamovs.
Sýningar á Draugasónötunni
verða L, 3., 4., 5., 6., 7. og 10.
mars. Allar sýningarnar hefjast
stundvíslega íd. 20.30.
Frelsi og
samkeppni
lækkar
bensínverðið
Þingsályktunartil-
laga frá þingmönn-
um Alþýðuflokks
■ Þingmenn Alþýðuflokksins
hafa lagt fram þingsályktunartil-
lögu á Alþingi þar sem lagt er til
að gefínn verði frjáls innflutn-
ingur á olíuvörum.
I greinargerð kemur fram að
tilgangurinn með tillögunni er
að stuðla að verðlækkun á bens-
íni og olíum með því að koma á
samkeppni og frjálsum innflutn-
ingi. Er bent á að verð á olíum
og bensíni sé mun hærra á
íslandi en í nágrannalöndunum
en þrátt fyrir þetta kvarti olíufé-
lögin yfir taprekstri og knýi á
um frekari hækkanir samtímis
sem þau standi í stöðugum hall-
arbyggingum yfir útsölustöðvar
sínar.
Telja Alþýðuflokksþing-
mennirnir skýringanna á þessu
vera að leita í fyrirkomulagi
olíuverslunar á íslandi. Sam-
keppnin er engin segja þeir en
innflutingur er háður leyfum,
hámarksverð og verðjöfnun er
ákveðin af opinberum stjórn-
völdum og í stað þess að olíufé-
lögin komi fram sem keppinaut-
ar birtast þau sem samvirkur
þrýsitaðili sem ver hagsmuni
sína og knýr á um meira í sinn
hlut vegna kostnaðar sem eng-
inn vegur er að líta eftir. Er
bent á það að núverandi skipu-
lag hafi verið í gildi langa hríð
og hafi það skilað okkur miklu
dýrari olíuvörum en gerist í
grannlöndum okkar og því sé
tími til breytinga kominn.