NT - 15.03.1985, Page 24
Við tökum við ábendingum um fréttirallan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvcldsimar: askrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
■---------------------
Skýrsla um mengun frá álveri við Eyjafjörð
Kvikfjárrækt
vafasöm á2600
hektara svæði
- heimamenn telja rannsóknina ekki gefa nægiiega skýr svör
■ Flúormengun frá hugsan-
legu álveri viö Dysnes í Eyja-
firði kemur í veg fyrir kvikfjár-
rækt á 600 hektara svæði næst
verksmiðjustæðinu. Þar eru nú
6 bæir með 29 kýr og 500 ær.
Svæði þetta mun þó að mestu
fara undir sjálfa verksmiöjulóð-
ina. A 2600 hektara svæði, sem
nær frá Hjalteyri í norðri til
Dagverðareyrar í suðri eru líkur
á, að einhverra áhrifa verði vart
í kvikfé, án þess þó að þeirra
verði endilega vart í óllum
gripum. Innan þessa svæðis eru
15 bæir með 123 kýr og 1340 ær.
Þar eru dregin innri mörk meng-
unarinnar. Innan ytri markanna,
5000 hektara svæðis, er 41 bær
með 530 kýr og 3900 ær. Utan
þeirrar markalínu eru taldar
litlar líkur á að grasbítar
verði fyrir mengunaráhrifum,
en því er þó ekki hægt að slá
föstu. A milli ytri og innri
markanna er hvorki hægt að
segja, að mengunin sé yfir
hættumörkum eða undir.
Þessar upplýsingar komu
fram á blaðamannafundi, sem
staðarvalsnefnd hélt á Akureyri
í fyrrakvöld, þar sem kynnt var
bráðabirgðaskýrsla um dreifingu
flúormengunar frá hugsanlegu
álvcri í Eyjafirði. Skýrslan, sem
unnin var af norskum sér-
fræðingum, gerir ráð fyrir
130.000 tonna framleiðslu á ári
og gert er ráð fyrir, að verk-
smiðjan verði búin fullkomnuin
þurrhreinsi- og vothreinsibún-
aði. Lokaskýrslan er væntanleg
í síðari hluta næsta mánaðar og
þá er von á aðalhöfundi hennar
hingað til lands til þess að gera
nánari grein fyrir niðurstöðun-
um. Óvissumörk línanna, sem
dregnar eru um dreifingu meng-
unarinnar eru 10-50%, en þau
munu ekki breytast mikið, þeg-
ar lokaskýrslan liggur fyrir.
Mengunarmörkin ná austur
yfir Eyjafjörðinn, eins og sjá
má af meðfylgjandi korti, en
flúormengunin hefur engin áhrif
á lífríki sjávarins.
Flúormengunin viðytri mörk-
in er 0.2 míkrógrömm í hverj-
um rúmmetra lofts, en 0,4
míkrógrömm í rúmmetra við
innri mörkin. Norsku rannsókn-
armennirnir tclja það vera
skaðvænleg mörk fyrir grasbíta.
Hvað plöntur áhrærir, er talið,
að flúorinnihald eins rúmmetra
lofts megi vera allt að 1 míkró-
grammi, án þess að það hafi
skaðvænleg áhrif á plönturnar
sjálfar. Skaðsemismörkin fyrir
grasbítana eru lægri vegna þess,
að flúor safnast fyrir í beinum
þeirra.
Rannsóknin erunnin ágrund-
velli takmarkaðra veðurfars-
gagna og í henni eru ýmsir
fyrirvarar, en hún er engu að
síður vísbending um hvers
■ Á laugardaginn er búist við sunnan hæg-
viðri, úrkomulitlu veðri og hlýnandi. Á sunnudag-
inn þykknar upp með sunnan- eða suðvestan
átt og skúrum um sunnan og vestanvert landið
en léttir til á Norður- og Austurlandi.
.-hjalXyri
'^SyALBARÐSE^RI;
SkjafðwrvtA
Svón Aakk
'Bakkaeyn
• Páirflholy^^,
,;6flsbakV.
i—H£|-UPAtj —F - g/m* Drafnastaöa-
SUMAR 1 .. „
fjall
- - w .^LOFTK
? \ • .• . DAGUR
\ * . Aslákss»frf \
* % } I GarósWk
\^-¥sey,‘ ywgnm*
-----•'
\ ' VpglB-
. Skógat
AKUREYRI
SKÝRINGAR
Þéttbyii
Fr»ó*ó land
dyp» m
vænta megi, og verða áhrif
mengunarinnar metin af hæf-
ustu aðilum, eins og sérfræðing-
um Rannsóknarstofnunar land-
búnaðarins.
Það kom fram í máli fulltrúa
staðarvalsnefndar, að tilgangur
rannsóknarinnar var ekki að
benda á hvort þarna væri æski-
legt að byggja álver eða ekki.
Það væri ákvörðun, sem stjórn-
málamenn þyrftu að taka. Stað-
arvalsnefnd legði staðreyndirn-
ar á borðið, en síðan yrðu
málsaðilar að meta það hver
fyrir sig hvort þeir vildu álver á
svæðið, og byggja þá ákvörðun
sína á efnahagslegum forsend-
um - vilja menn fórna bújörðum
fyrir álver - og gildismati.
Síðdegis á miðvikudag hélt
staðarvalsnefnd fund með sam-
ráðshópi heimamanna, sem í
eiga sæti m.a. fulltrúar úr at-
vinnumálanefnd Akureyrar,
fulltrúar náttúrverndarmanna
og fulltrúar búnaðarsambands-
ins. Á þeim fundi kom m.a.
fram óánægja heimamanna með
hversu óljós skýrslan væri.
Höfðu þeir vonast eftir betri
upplýsingum um mengunar-
hættuna. Þá varstaðarvalsnefnd
einnig gagnrýnd fyrir „iila
undirbúinn fund", eins og einn
heimamanna orðaði það.
Sjá viðbrögð
heimamanna í
NT á morgun
■ Uppdrátturinn sýnir dreifingu flúormengunar út frá hugsanlegri
álverksmiðju við Dysnes í Eyjafirði. Við ystu línuna og þá heilu er
mengunin 0.2 míkrógrömm í hverjum rúmmetra lofts. Við brotnu
línuna er mengunin 0.4 míkrógrömm í hverjum rúmmetra lofts. Þessi
mengun getur haft skaðleg áhrif á kvikfénað. Utan heilu línunnar er
ekki iíklegt, að skaðleg áhrif veröi, en þó er ekkert hægt að fullyrða um
þaö. flf1 , ,
Back, ballett,
sjúkdómarogsvindl
Helgarblaðsmenn Ijósrituðu pen•
ingaseðla I nýrri Ijósritunarvél sem
nú er komin á markaðinn. Þessi
heimilisiðnaðurreyndistmeð ágæt•
um og ekki virtist neinum erfiðleik•
um háð að eyða „peningunum"
LesiðumþaðalltíHelgarblaðiNT