NT - 10.07.1985, Síða 4
Lestunar-
áætlun
Hull/Goole:
Dísarfell ...............15/7
Dísarfell ...............29/7
Dísarfell .............. 12/8
Dísarfell ...............26/8
Rotterdam:
Dísarfell ...............30/7
Dísarfell ...............13/8
Dísarfell ...............27/8
Antwerpen:
Dísarfell ...............31/7
Dísarfell .............. 14/8
Dísarfell ...............28/8
Hamborg:
Dísarfell ........... 15-19/7
Dísarfell ................2/8
Dísarfell .............. 16/8
Dísarfell ...............30/8
Helsinki:
Hvassafell .
Larvik:
Jan ......
Jan .......
Jan........
Gautaborg:
Jan .............
Jan .............
Jan .............
Kaupmannahöfn:
Jan..............
Jan .............
Jan .............
15/7
22/7
. 5/8
19/8
23/7
. 6/8
20/8
24/7
. 7/8
21/8
Svendborg:
Jan ........
Jan.........
Jan .........
Jan .........
Aarhus:
Jan .....
Jan......
Jan .....
Jan .....
11/7
25/7
. 8/8
22/8
11/7
25/7
. 8/8
22/8
Gloucester, Mass.:
Jökulfell......... 20-23/7
New York:
Jökulfell.....
24/7
Portsmouth:
Jökulfell...........25/7
SKIRADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
INNANHÚSS
OG UTAN
ALLA LAUGAR-
DAGA
Reykjavíkurhöfn skilaði
á 13. milljón kr. gróða
■ Kaupgleði okkar á síðasta
ári skilaði Reykjavíkurhöfn hátt
í 17 milljónum króna í tekjur
umfram það sem áætlað hafði
verið í fjárhagsáætlun. Gert hafði
verið ráð fyrir 10% samdrætti í
innflutningi, frá árinu 1983.
Þess í stað varð 11,3% aukning
á vöruflutningum um höfnina.
Jukust því vörugjaldatekjur
á tímabilinu um tæp 53% í stað
tæplega 12% eins og áætlað
hafði verið, eða um nær 16
milljónir króna.
Rekstrartekjur hafnarsjóðs á
síðasta ári námu 144,8 milljón-
um króna, sem var 12,5% meira
en áætlað hafði verið. Rekstrar-
gjöld að meðtöldum afskriftum
námu 121,6 millj. kr. Hagnaður
varð því um 23,1 millj. króna.
Vegna mikilla fjarmagnsgjalda
umfram tekjur - um 56 millj. í
vaxtagjöld, gengismun og verð-
bætur á móti tæplega 35 millj.
króna vaxtatekjum, arði og
reiknuðum tekjum vegna verð-
breytinga - verður endanlegur
hagnaður ársins 12,4 millj.
króna. Það er þó nær fjórum
sinnum hærri upphæð en hagn-
aður ársins 1983, sem var 3,2
millj. króna. Heildareign
Reykjavíkurhafnar samkvæmt
efnahagsreikningi nemur 1.961
milljón.
Til Reykjavíkurhafnar komu
um 886 þús. tonn af vörum
erlendis frá á síðasta ári, þar af
um 407 þús. tonn af olíu og um
435 þús. tonn af ýmsum vörum,
sem var aukning um 17,5% á
síðari liðnum. Frá innlendum
höfnum komu um 146 þús.
tonn (þar af um 84 þús. tonn af
sementi), og því alls rúmlega
ein milljón tonna af vörum sem
til hafnar komu.
Flutningar til útlanda voru
um 196 þús. tonn, eða aðeins
innan við fjórðungur af því sem
kom utanlands frá. Þar af voru
um 103 þús. tonn afsjávarafurð-
um. Frá Reykjavíkurhöfn og út
á land voru flutt um 297 þús.
tonn, þar af um 199 þús. tonn af
olíu, eða nær helmingur inn-
flutningsins. Vöruflutningar til
og frá höfninni voru því alls
rösklega 1,5 milljónir tonna eða
hátt í 42 þús. tonn á degi
hverjum að meðaltali. Til við-
bótar bárust þangað 1,2 milljón-
ir tonna af dældum steinefnum
og nær 96 þús. tonn af fiski úr
veiðiskipum.
Víkingahátíð
á Laugarvatni
■ „Þannigvaraðégvarstadd-
ur í Danmörku og hitti þá menn
sem buðu mér á sýningu hjá
danska áhugamannaleikflokkn-
um Vikingspillet í víkingabæn-
um Frederikssund þar sem
svona sýningar hafa verið haldn-
ar í 34 ár og kanna í framhaldi
af því hvort grundvöllur væri
fyrir því að setja upp svona
sýningu á íslandi. Fyrirtækið
Víkingateiti sf var síðar stofnað
og það sér um þessa Víkinga-
hátíð ásamt dönsku áhugaleik-
urunum," sagði Gunnar Árna-
son hjá Víkingateiti sf þegar NT
spurði hvað þessi Víkingahátíð
sem halda á að Laugarvatni um
helgina væri fyrir nokkuð og
hvers vegna væri verið að halda
slíka hátíð á íslandi.
Gunnar sagði að Víkinga-
hátíðir á borð við þessa væru
haldnar bæði í Danmörku og
Noregi en danski víkingaleik-
flokkurinn hefði einnig farið
víða um Evrópu með sýningar
sínar. Ferð þeirra til Islands
vekti liins vegar mikla athygli
heima fyrir þar eð íslendingar
væru oftlega taldir vera mestir
víkingar á Norðurlöndum. Ef
aðsókn á Víkingahátíðina um
helgina yrði góð væri ef til vill
hægt að halda slíka hátíð annað
hvert ár og jafnvel koma upp
íslenskri víkingaleiksveit og ís-
lenskum víkingabæ.
Auk danska leikflokksins sem
flytur leikritið „Hagbarður og
Signý“ munu Jón Páll sem ku
vera sterkasti víkingur í heimi,
Hermann Ragnar Stefánsson,
Guðmundur Haukur og Harald-
ur Sigurðsson (bróðir Ladda)
o.fl. skemmta.
■ Ingibjörg Sveinsdóttir og Jóhannes Jónsson eiga demantsbrúðkaup á morgun. Þau hafa verið gift
í 60 ár, og geri aðrir betur.
Enginn vandi ef mað-
ur lifir svo lengi
- segir Jóhannes Jónsson, en hann og Ingibjörg
Sveinsdóttir eiga demantsbrúðkaup á morgun
■ Dönsku víkingarnir verða aldeilis vígalegir með vopnin sem þeir
kaupa hjá vopnasalanum í leikritinu Hagbarður og Signý enda nóg
af hagsmunum að verja og um að gera að sýna karlmennsku meðan
ennþá gefst færi á því. Leikritið er byggt á Eddukvæðum.
■ „Okkur líður nú svona
nokkurn veginn. Við gerum
ekki neitt, nema hvað konan er
að prjóna svolítið. En ég geri
ekki nokkurn hlut, og kann vel
við mig.“
Petta segir Jóhannes Jónsson
vistmaður á Dvalarheimili aldr-
aðra í Borgarnesi, en á morgun
eiga hann og kona hans, Ingi-
björg Sveinsdóttir, 60 ára brúð-
kaupsafmæli. í tilefni dagsins
verður slegið upp veislu í Hótel
Borgarnesi kl. 15-18.
Það er ekki öllum gefið að
láta hjónabandið endast í 60 ár,
og aðspurður sagði Jóhannes,
að það hefði gengið þegjandi og
hljóðalaust, engin vandamál.
„Við höfum lifað svona hvort
fyrir annað,“ segir hann.
- Er þetta þá enginn vandi?
„Nei, ekki ef maður lifir svo
lengi. En ég held, að þaðsé ekki
vanalegt nú, eftir því sem blöðin
segja.“
Þau Ingibjörg og Jóhannes
gengu í hjónaband í Stafholti
Almennur raforkumarkaður
vex um 70% til aldamóta
■ Almenn raforkunotkun í
landinu mun aukast urn 4,1% á
ári til 1990, um 2,7% á árunum
1990-2000 og um 1.8% frá árinu
2000 til ársins 2015, samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum raf-
orkuspár til ársins 2015. Spáin
gerir ráð fyrir, að aimenni raf-
orkumarkaðurinn vaxi um 70%
fram til aldamóta, en á síðustu
tíu árum óx hann um 80%.
Þetta eru meðal þeirra upp-
lýsinga, sem komu fram í erindi
Jóns Viihjálmssonar deildar-
stjóra hjá Orkustofnun, sem
hann hélt á aðalfundi Sambands
íslenskra rafveitna á Akureyri
undir lok síðasta mánaðar.
Raforkuspáin, sem nú er f
undirbúningi, gerir ráð fyrir
minni aukningu raforkunotkun-
ar en síðasta orkuspá, sem var
gefin út árið 1981. Sú spá reynd-
ist of há, og eru þrjú atriði, sem
skýra það.
í fyrsta lagi gekk hægar að
útrýma olíukyndingu húsrýmis
en spáin frá 1981 gerði ráð fyrir,
auk þess sent jarðvarmi var
heldur meira nýttur til húshitun-
ar, en áætlað var. Þessi þáttur
skýrir um 60% af þeim mun,
sem er á spánni frá 1981 og
rauntölum fyrir 1984.
I öðru lagi óx raforkunotkun
á heimilum minna en búist var
við, en þar var tekið mið af
sænskri og bandarískri spá.
Þessi þáttur skýrir um 10% af
fráviki spár frá rauntölum 1984.
f þriðja lagi er svo talið, að
30%, sem eftir eru, megi skýra
með minni raforkunotkun í at-
vinnulífinu. Skýringin þar á er
líklega samdráttur í efnahagslífi
undanfarin ár, og bætt orkunýt-
ing.
þann 11. júlí 1925, og það var
séra Gísli, sem gaf þau saman.
Ekki mundi Jóhannes hvers son
presturinn var. Þau voru þá
nýbyrjuð búskap í Stapaseli,
þar sem þau bjuggu næstu 12
árin. En mæðiveikin hrakti þau
á brott og fóru þau á Flóðar-
tanga.
Þegar hjónin voru komin
undir sjötugt, fluttu þau til
Reykjavíkur, þar sem þau
höfðu vetursetu næstu árin, en
eyddu sumrunum á Flóðar-
tanga. Það var fyrir 21 ári. Til
Borgarness fluttu þau fyrir 7-8
árum. En hvers vegna þangað?
„Ég vildi heldur vera hér, auk
þess sem ég hefði ekki fengið að
vera í Reykjavík, af því að ég
átti heima upp frá. Én börnin
mín eru flest í Reykjavík,"
segir Jóhannes. Börnin eru sjö,
og öll mannvænlegt fólk. „Ég
held, að það sé kallað það, en
það er ekki að marka þótt ég
segi það.“
60 ára brúðkaupsafmæli er
kallað demantsbrúðkaup, og
var Jóhannes spurður hvort
hann ætlaði að gefa Ingibjörgu
demant í tilefni dagsins.
„Ætli það. Hún hefur ekki
orðið vör við miklar gjafir frá
mér, og ég býst ekki við að taka
upp á því núna,“ segir Jóhannes
Jónsson, sem heldur upp á
démtansbrúðkaup sitt á
morgun.fimmtudaginn ll.júlí.