NT - 27.08.1985, Side 4
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
Löggubílarniröskraá íslensku
■ Hraðamælirinn sýnir tölu-
vert meiri hraða en lög leyfa.
Landið þýtur hjá og ökumaður
nýtur þess að aka góðum bíl
sínum. En allt í einu er kyrrðin
rofin. Rautt blikkandi ljós sést í
baksýnisspeglinum og öskrandi
löggubíll nálgast. Andsk. radar-
inn. Það þýðir ekkert að segjast
ekki skilja þessi skilaboð lögg-
unnar, því nú öskra bílarnir
ba-bu, ba-bu á íslensku!
íslenskur rafeindavirki og
hugvitsmaður Sigurður Harðar-
son hefur framleitt sírenur, sem
meðal annars eru notaðar í
löggubílana. En Sigurður hefur
gért meira. Þeir eru ófáir inn-
brotsþjófarnir sem óþyrmilega
hafa rekið sig á þjófavarnar-
kerfi sem hann hefur hannað,
margir ökumenn nota tals'töðva-
loftnet sem hann hefur lagað að
íslenskum aðstæðum. Upptaln-
ingin getur verið lengri, hér
stoppum við að sinni og tökum
hugvitsmanninn tali.
Sírenur
„Það má segja að vinnan við
sírenurnar hafi byrjað við
Kröfluvirkjun. Ég var fenginn til
að útbúa viðvörunarkerfi sem
sett var upp um allt vinnusvæð-
ið. Ég setti upp sírenur á stöðv-
arsvæðinu og þeim stöðum sem
borað var. Síðan var sírenunum
startað Jjráðlaust gegnum CB
talstöð. Ég hannaði eina rásina
fyrir þau hljóðmerki.
Það var svo einu sinni sem
oftar að ég var fengin til að gera
við sírenu á lögreglubíl sem
hafði bilað. Þeir gátu ekki án
hennar verið svo ég lánaði þeim
eina sem ég hafði gert fyrir
björgunarsveit sem ég er í. Sú
sírena kom mjög vel út hjá
lögreglunni og nú er ég búinn að
selja einhverstaðar á milli 20-30
sírenur til þeirra.
Þetta hleður svo utan um sig.
Það var eitthvað vesen með
kalda vatnið upp í Mosfellssveit
og þeir spurðu mig hvort ég
hefði einhverja hugmynd um
hvort einhverstaðar í heiminum
fengist viðvörunarbúnaður sem
segöi til ef vatnsborðið yrði og
lágt. Ég sagði þeim að þeir
þyrftu ekki að leita til útlanda,
því ég gæti sennilega liðsinnt
þeim. Eg kom með einfalda
lausn á þessu vandamáli og setti
Þökk sé Sigga Harðar
upp sjálfvirkt sírenukerfi sem
fer í gang þegar vatnsborðið er
komið niður í einhverja
ákveðna hæð.“
Fjarskipti í
öryggishjálmi
„Nú sem stendur er ég að
vinna að fjarskiptakerfi fyrir
sigmenn. Þar sem þeir hanga í
klettaveggnum þurfa þeir oft að
ná sambandi við þann. eða þá
sem uppi eru, en geta það ekki
með venjulegum talstöðum því
þeir eru með báðar hendur
bundnar. Ég er búinn að hanna
fjarskiptabúnað sem lítið fer
fyrir, og búnaðinn hef ég sett
inn í öryggishjálm. Hljóðnem-
inn er á lítilli stöng sem liggur
frá hjálminum að munni þess
sem talar. Þegar hljóðneminn
nemur eitthvað hljóð, sendir
búnaðurinn hann út og útsend-
ingin hættir um leið og viðkom-
andi hættir að tala. Þetta er
engin ný tækni heldur einföld
lausn á þessu vandamáli, engir
takkar og sigmaðurinn getur
unnið og talað við þá sem hann
þarf.
Stundum hanna ég hluti sam-
kvæmt pöntunum, en stundum
vantar mig líka mæla og tæki,
sem ég verð þá að búa til sjálfur.
Ég get nefnt mælitæki sem við
notum til að gera við stjórnborð
rafsuðuvéla. Við vorum með
erlendan mæli sem við vorum
ekki ánægðir með og bjuggum
því til annan og betri. Núna þarf
fólk ekki að koma 2-300 kílóa
vélum á verkstæði, það er nóg
að senda okkur stjórnborðið og
við getum með hjálp mælitækis-
ins gert við það á staðnum."
Gjaldeyrissparnaður
„Jú þessi framleiðsla er vissu-
lega gjaldeyrissparandi, sér-
staklega vil ég nefna talstöðvar-
loftnetin í því sambandi.
Aðstæður eru erfiðar hér á
landi og íslendingar gera miklar
gæðakröfur. Við höfum því þró-
að upp og lagað að íslenskum
aðstæðum sérstaka tegund tal-
stöðvarloftneta. Þessi tegund
okkar er iangtum fyrirferðar-
minni en sambærilegar erlendar
tegundir og nýtist betur hér, því
við höfum lagað loftnetið að
aðstæðum þannig að það vinnur
einungis á þeim tíðnum sem við
notum.
Þetta loftnet tryggir lfka
mörgum atvinnu. Ég læt smíða
allt í það hér á landi. Hérer það
plasthúðað og festing þess gal-
vaníseruð. Þetta smáhleður.
svona utan á sig."
Tímafrekt
„Það má fullyrða að það er
tímafrekt að vinna að hönnum
sem þessari. Þú ert til dæmis
fenginn til að leysa eitthvert
smá vandamál, en ert að velta
því fyrir þér í svefni jafnt sem
vöku marga daga. Þú ert aldrei
í fríi þegar unnið er að einhverri
hönnun. Það kemur til að
mynda fyrir mig að ég vakna
upp á nóttunni með lausnina,
eða er á leið í bæinn þegar
lausnin kemur eins og elding
yfir mig. Þá gleymist erindið og
ég fer beina leið uppá verkstæð-
ið aftur.
Svona vinnu er dálítið erfitt
að verðleggja, því það er
minnsti tíminn sem fer í smíðina
sjálfa, en það er í raun eini
tíminn sem ég get verðlagt. Það
kemur því oft fyrir að ég segi
mönnum að það sé ekki hægt að
gera það sem þeir biðja um ef
um ómerkilega hluti er að ræða,
sem augljóslega kosta mikið í
framleiðslu."
■ Innan um vélar, mæla og
annað dót situr Sigurður eins og
kóngur í ríki sínu, með sírenu
fyrir framan sig. Það er vonandi
að lögreglan geti haldið uppi
lögum og reglum í þessu ágæta
landi okkar með hjálp Radíó-
þjónustu Sigga Harðar.
NT-mynd: Róbert
Hver að verða síðastur að
skrá sig á gítarnámskeið
■ Á myndinni sjáum við leiðbeinendurna á gítarnámskeiðinu þá
Siegfried Kobilza og Símon ívarsson.
víða um land ásamt Símoni
ívarssyni.
■ Tónskóli Sigursveins D.
Kristinssonar heldur gítarnám-
skeið dagana 30. ágúst til 1.
september n.k. Leiðbeinandi
verður austurríski gítarlcikar-
inn Siegfried Kobilza en Símon
ívarsson verður honurn til að-
stoðar.
Siegfried Kobilza er talinn
vera einn fremsti fulltrúi klass-
ískrar gítartónlistar í Austur-
ríki. Hann ferðast víða og held-
ur tónleika og leiðbeinir á nám-
skeiðum. Hann er íslendingum
að góðu kunnur fyrir fjölmarga
tójijeika sem hana hefur hakliö •
Námskeiðið skiptist í „Meist-
erkurz“ þar sem þátttakenduL
leika verk sín fyrir leiðbeinand-
ann og fyrirlestra um ýmsar
hliðar gítarleiks og gítar-
kennslu.
Gögn um námskeiðið liggja
fyrir í flestum tónlistarskólum
landsins og enn er rúm fyrir
nokkra þátttakendur. Umsókn-
areyðublöð liggja frammi á
skrifstofu Tónskólans Hellu-
siuidi 7.. ..................• -
Leiðrétting
■ Meinleg villa var í frétt NT um 10 ára afmælishátíð
Jazzvakningar. Þar sagði að Ole-Kock Hansen léki
dúett með Niels-Henning Orsted Pedersen, hið rétta
er að Tete Montoliu leikur dúett með Niels-Henning.
Þessi viðburður verður í Háskólabíói fimmtudags-
kvöldið 12. september.
■ Lögreglan í Rangárvallasýslu tók í notkun nýja lögreglu-
stöð, nú nýlega. Húsnæðið er mun veglegra en það gamla, enda
var það varla bjóðandi lögregluumdæmi af stærðargráðunni sem
Rangárvallasýsla er. Á myndinni, sem tekin var við vígslu
stöðvarinnar, sést lögreglulið Rangæinga, fyrir framan nýju
stöðina.
Milliveggir dýrir
- 75 fm íbúð 220 þús. dýrari
með 4 herb. en tveim
■ Á fasteignamarkaðinum
geta milliveggir í blokkaríbúð-
um í Reykjavík sannarlega ver-
ið fokdýrir. Samkvæmt könnun
Fasteignamats ríkisins hækkar
söluverð jafn stórra íbúða um í
kringum 110 þús. krónur fyrir
hvert herbergi. Það vill segja,
að t.d. 75-80 fermetra íbúð selst
almennt fyrir um 220 þús. krón-
um hærra verð ef í henni eru 4
herbergi í stað tveggja herbergja.
Þessi regla mun vera nær algild
fyrir íbúðir á bilinu 60-110 fer-
metrar.
Sýnist því ljóst að það borgar
sig illa að kaupa íbúð með
nokkrum Htlum herbergjum
með það í huga t.d. að rífa
niður vegg til að stækka stofuna.
ísleifsreglan í Skálholti:
Tíðasöngur með
gamla laginu
■ Isleifsreglan, félag um
Gregorsöng, heldur sumarmót
dagana 27. til 28. ágúst þar sem
sunginn verður tíðasöngur eins
og tíðkað var hér áður fyrr og
sunginn verður Prím, Sext,
Vesper og Completorium.
Mótið sem er árlegur við-
burður er að þessu sinni haldið
í Selfosskirkju. Smári Ólafsson
mun að auki halda erindi um
samanburðarrannsóknir á
„gömlu“ passíusálmalögum
Hallgríms Péturssonar.
Á þriðjudag 27. ágúst verða
einnig orgeltónleikar Björns
Sólbergssonar. Aðalfundur ís-
leifsreglunnar verður svo hald-
inn miðvikudaginn 28. ágúst kl.
15 en mótinu lýkur með há-
messu í Selfosskirkju kl. 18.