NT - 27.08.1985, Blaðsíða 15

NT - 27.08.1985, Blaðsíða 15
 m Þriðjudagur 27. ágúst 1985 15 u w einsetunni síðustu 16 árin. Hann var einn þeirra mörgu manna, sem láta eftir sig litla sögu, þótt þeir lifi lengi og aðrir menn hnjóta eigi um lífs né látna, en nágrannar og mál- kunningjar minnast með hlýjum huga til leiðarloka. Öskar og Kristján bjuggu saman meðan báðir lifðu. Óskar var alla tíma heima, en Kristján oft á flökti. Enginn veit hvernig þeir skiftu kostnaði búsins milli sín, né heldur hvað þeim fór á milli er þeir sömdu síðast. Ósk- ar tók þá við kindum Kristjáns og fór með sem sínar upp frá því. Enda efalaust allra manna best kominn að þeim. Ein systurdóttir Óskars lét ■ Þorkell Óskar Magnússon sér lengi annt um hann. Henni gaf hann allan arf eftir sig. V Kristján Magnússon bóndi á Efri-Hömrum 5. júlí 1910 - 15. september 1966. Kristján átti heima á Hömrum alla æfi sína. Engum er kunnugt hvaðan hann fékk nafn sitt. Hvort hann hét eftir dönskum kóngi eða einhverjum gleymd- um Flóakarli. Hitt er kunnugt að síðara nafn sitt átti hann að þakka glaðværri móður, sem var gædd þeim sálargáfum, að geta gert slys og erfiðleika að góðlátum gamanmálum. Baðstofan í Vesturbænum var tekin ofan og endurbyggð á fyrstu æfivikum þessa drengs. Móðir hans hafði í mörgu að snúast - og vinnukona í Austur- bænum bætti því ofan á annir sínar að fóstra hvítvoðunginn fáar vikur. Hún hafði hann í rúmi sínu og haldið var að hún hefði syfjuð velt sér ofan á hann. Hann meiddist á handlegg, svo að hann beið þess aldrei fullar bætur. Móðir hans taldi hann heimtan úr helju - og hafa sloppið vel - og lét skíra hann að öðru nafni Ófeig. Kristján var snotur lágur meðalmaður, grannvaxinn og léttur á fæti, mannblendinn og málkunnugur mörgum. Athug- ■ Þorbjörn Magnússon ull og fróður um flest, sem gerðist í kringum hann. Málreifr ur og kunni að segja skemmti- lega frá. Ýmsir héldu að hann væri ýkinn. Mér fannst hann aldrei ýkja meira en nauðsyn- legt var, til að gera frásögn eftirminnilega. Kristján fór ungur til sjávar eins og flestir af kynslóð hans. Var vetrum saman söltunar- maður á togurum. Hann bjargað- ist nauðlega af skipreka þegar Skúli fógeti fórst. Síðan var hann margar vertíðir matsveinn á fiskibátum við Faxaflóa - hagsýnn, hreinlátur og notaleg- ur. Eigi er mér kunnungt að Kristján ætti neitt í kvennamál- ■ Kristján Ófeigur Magnús- son um. Enda jók hann engu við misgott mannkyn. Kristján dó af krabbameini 56 ára gamall. Meira en helm- ingur Hamrasystkina hefur orð- ið þeim herfilega mannsbana að bráð. Svo virðist sem mörgu fólki komnu af Bjólumanna- kyni, sé hættara en í meðallagi, við því banameini. Ef vel væri skyldi allt fólk af ættinni forðast að verða að ginningarfíflum andskota þeirra, sem undirbúa mannsskrokka til móttöku krabbameina: Tóbaks, áfengis, kókakóla, mikils saltmetis, harð- steikts matar og hvftasykurs í öllum samböndum. Auk margs annars - að ógleymdu óhófsáti. Ég minnist Stjána á Efri- Hörnrum, sem gíaðværs gests og góðkunningja. Hann vakti víða bros á vanga, með hnytti- legri gamansögu, sem gerði fáum eða engum mein. Enda var hann aufúsugestur víða þar sem hann kom. VI Nú er hljóður bær á Hömrum og enginn heimamaður til að taka á móti gestum. Margir eigendur Efri-Hamra: Sonur og barnabörn Hamrahjóna, eru ásátt um að láta jörðina standa í eyði næstu ár og safna gæðum. Hún er að mestu húsalaus og mýrarnar óskemmdar af skurða- greftri. Á sumum jörðum vofir það yfir að stórir skurðir grafnir í halla verði að jarðföllum og djúpum giljum. Ekki fæ ég orða bundist urn það hve þriðjungur jarðarinnar sýnist vera ákjósanlegur til nytjaskógræktar. Hallendið móti sól og suðri, milli Steins- lækjar og holtabrúna. Einkum skákin austan Þrándarholtsgils. Ekki get ég rneð neinu m'óti óskað Hamraætt betri heilla, en að henni megi auðnast að gefa sér og niðjum sínum, til sam- eignar um langa framtíð, þenn- an arf sinn eftir afa og ömmu. - Og að hamingjan gefi henni tröllatrú á nytjaskógrækt á þeim ættarreit. - Og að „Hamrafólk" ungt og aldið, megi njóta sumar- sælu í skjóli eigin skóga. Ef ég horfi í huga mínum hundrað vetur fram í tímann, sé ég sígrænan barrskóg breiða sig um allan hallann. - Tugþúsund- ir - hundrað þúsund furu og grenitré. Og lerki og lauftré inn á milli í skjóli hinna trjánna. - Og þá búa þrenn hjón á Hömrum! Helgi Hannesson Frímerkjasafnarinn XIV Óæskilegar útgáfur ■ Alþjóðasamtök frímerkja- safnara hafa gefið út sérstakar reglur um hvað frímerkjaút- gáfur verði að hafa til að bera, svo að þeim sé safnað. Sem dæmi má taka, að sé yfirverð þeirra of hátt eða meira en helmingur burðar- gjaldsverðs, þá eru þær taldar óæskilegar. Þó er sú undan- tekning að sé verið að - safna fé vegna náttúruhamfara, þá má hafa yfirverðið hærra en helming. Þá er einnig talið óeðlilegt að gefa út frímerki sem hvort tveggja í senn eru höfð tökkuð til póstnota og ónotuð í smáörkum til að plokka fé úr vösum safnar- anna. Samtökin hafa farið þess á leit við ASCAT, alþjóðasam- tök þeirra er gefa út frímerkja- verðlista, að þeir auðkenni slík merki með svörtum tígli, svo að söfnurum sé ljóst að bannað er að sýna þau á frímerkjasýn- ingum á vegum samtakanna. En hér er sem annarsstaðar, að enginn getur sagt safnaran- um fyrir um hverju hann má safna og hverju ekki. Og ætla ég að þunnt þætti mönnum að mega ekki hafa Skálholtsmerk- in í frímerkjasafninu sínu. eða þá Háskóla smáörkina. Undir- ritaður bar á sínum tíma fram tillögu hjá F.I.P. um að útilok- un þessara merkja frá íslandi yrði felld niður, þar eð tryggt gæti talist að svonalagað endurtæki sig ekki. Tillagan var ekki afgreidd, en á síðari árum hefi ég ekki rekist á sérauðkenningu þessara merkja, nema í Facit. Óæskilegar útgáfur. Svarti listinn. Bönnuð merki, allt eru þetta nöfn á svona útgáfum. Þessar útgáfur hafa t.d. þann eiginleika að hækka mjög í verði í sumum löndum, eins og merki úr hverri útgáfu í Aust- ur-Þýskalandi, sem er haft í miklu minna upplagi en öll hin, en það er líka bannað. Alla vantar þessi merki og fá þau ekki keypt nema dýrum dómum. Þótt reynt sé að staðla hvað sé óæskilegt eru mörkin svo þröng á stundum, að safn- ararnir láta sér fátt um finnast. Þannig verða þessi merki sér- staklega æskileg í bókum kaupmannanna, bæði fyrir þá og viðskiptavinina. þótt bann- að sér að safna þeim, eða kannske þess vegna. Til viðbótar þeim reglurn sem áður er minnst á, rná geta þess að frímerki verður að vera hægt að kaupa á öllum pósthúsum heimalandsins. Það má ekki selja allt upplagið til útlanda og á hinu skráða verði merkjanna. En þarna gilda undantekningar um merki vegna náttúruhamfara eins og áður og frímerki gefin út vegna (911HÁSKÖLIÍSLANDS 19< BENEDIKT SVEINSSON SLAND 1S' frímerkjasýninga, þ.e. heims- sýninga. Reglan um ótökkuðu frímerkjaarkirnar gildir aðeins frá 1/1 1968. Svo er kannske enn hættu- legra að eiga frímerki frá lönd- um sern í raun eru ekki til. En af því að þau eru ekki til, sem lönd eru merki þeirra eðilega ekki skráð í neinum frímerkja- lista. Þar á meðal er eyjan St. Kilda, en eitt sinn taldi íslensk- ur maður sig vera hertoga af St. Kildu. Tilgangslítið er að vera að birta einhvern lista hér yfir slík landaheiti, sem ekki eru nein landaheiti. Besta ráðið til að ganga úr skugga um hvort landið í raun er til, er að gá í einhvern hinna þekktu frí- merkja verðlista og sjá hvort það finnst þar. Ef það gerir það ekki þá er ekki um neitt frímerkjaland að ræða. En vit- anlega má hver sem vill eyða fé í það, safna fallegum lím- miðum frá útgefendum slíkra merkja. Alveg eins og ég safna t.d. öllum fyrirtækjamiðum og hverskonar íslenskum merkj- um í frímerkjastærð. Ekki til að sýna slíkt á neinum alþjóð- legum sýningum. heldur að- eins til ánægju fyrir sjálfan mig. Mest gaman er að eiga slíka miða álímda á bréf frá þeim tíma er þeir voru í raun notaðir, en þá geta þeir líka lent á alþjóðlegum sýningum ogenginnsegirneitt. Svosakar ekki að rifja upp jólamerkja- söfnunina. Þar eru einnig til samtök félög og klúbbar, sern nteira að segja halda sýningar. Sigurður H. Þorsteinsson Valgerður Sigrún M. Inga Þyrí Ulfhildur Unnur Ingibjörg Þrúður Þórdís Drífa 2. Landsþing Landssambands framsóknarkvenna haldið að Laugarvatni 31. ágúst og 1. september 1985. Laugardagur 31. ágúst: Kl. 10.00 Þingsetning, Sigrún Sturludóttir, formaður. Skýrsla stjórnar: a) Formanns Sigrúnar Sturludóttur. b) Gjaldkera Drífu Sigfúsdóttur. Umræður um skýrslu stjórnar. Kl. 11.30 Ávörp gesta. Kl. 12.00 Hádegisverður. Framsöguerindi: Kl. 13.00 Framboösmál. Sigrún Magnúsdóttir. Ingibjög Pálmadóttir. Kl. 13.30 Launamál kvenna: Gerður Steinþórsdóttir. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. Kl. 13.50 Fjölskyldupólitík: Þórdís Bergsdóttir. Guðrún Jóhannsdóttir. Kl. 14.10 Starfsval kvenna: Inga Þyrí Kjartansdóttir. Þrúður Helgadóttir. Kl. 14.20 Umræður um framsöguerindi. Kl. 15.15 Kaffihlé. Vörukynning frá Kjötiðnaðarstöð SÍS. Kl. 16.20 Hópstarf. Kl. 20.20 Kvöldverður. Kl. 22.00 Kvöldvaka í umsjón Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu. Nætursnarl frá Osta og smjörsölunni. Sunnudagur 1. september: Kl. 8.00 Gufubað. Kl. 9.00 Morgunverður. Kl. 10.00 Erindi: a) Stjórnmálaástandið: Valgerður Sverrisdóttir. b) Stjórnmálaþátttaka kvenna: Drífa Sigfúsdóttir. c) Hvernig efla má starf LFK: Unnur Stefánsdóttir. Kl. 10.45 Umræður um erindin. Kl. 12.30 Hádegisverður. Kl. 14.00 Niðurstöður umræðuhópa kynntar. Kl. 15.00 Umræður og afgreiðsla mála. Kl. 16.00 Kaffihlé. Kl. 17.00 Kosningar. a) formaður b) meðstjórnendur í framkvæmdastjórn (4) c) landsstjórn (6) d) varamenn í framkvæmdastjórn (3) Kl. 18.00 Þingslit. Skagf irðingar - nærsveitamenn Héraðsmót framsóknarmanna Skagafirði verður í Miðgarði laugardaginn 31. ágúst, góö skemmtiatriði.Hljómsveit Geir- mundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. Nánar auglýst síðar. Nefndin. Framsóknarbali Verður í Árnesi laugardaginn 31. ágúst. Ræðumaður kvölds- ins verður Helgi Pétursson, ritstjóri. Bergþóra Árnadóttir skemmtir með söng og spili. Hljómsveitin Úpplyfting leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Félag FÚF Árnessýslu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.