NT - 27.08.1985, Blaðsíða 11
tflh-
Nýja flug-
stöðin í
fullri hæð
- verður að öllum líkindum
fokheld í október n.k.
Þriðjudagur 27. ágúst 1985 11
Fréttir
■ Hin nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli.
■ Nýja flugstöðin á Keflavíkurflug-
velli er nú risin í fulla hæð. Af því
tilefni efndu þeir aðilar sem að fram-
kvæmdum hafa staðið til reisugillis
sfðastliðinn föstudag. Þar var mikið
fjölmenni saman komið til að fagna
þessum áfanga.
Framkvæmdir hófust í október
1983 og er áætlað að byggingin verði
fokheld í október n.k. Kostnaður
verður þá orðinn um 500 miljónir
íslenskra króna. Hagvirki h.f. hefur
séð um jarðvinnu, frárennslis- og
vatnslagnir; ístak hefur séð um upp-
steypu hússins og Stilwell Inter-
national Corp. sér um burðargrind og
glerskála. Eftirlit með fram-
kvæmdum byggingarinnar hefur og
verður í höndum Hönnunar h.f.,
Verkfræðistofu Stanleys Pálssonar og
Almennu Verkfræðistofunnar.
Nýja flugstöðvarbyggingin er rúntir
12 þús. fermetrar og skiptist hún í tvo
meginhluta þ.e. aðalbyggingu og
landgang. Núverandi flugstöð er um
7 þús. fermetrar.
Aðkoma og brottför farþega verð-
ur á neðri hæð hússins. Par verður og
farangursskáli og ýmis almenn þjón-
usta svo og aðstaða fyrir starfsfólk. Á
efri hæð hússins verður biðsalur
(transit) fyrir miðju, skrifstofur,
verslanir, fríhöfn og veitingabúð. Á
efri hæðinni verður gengið beint út í
landgang til flugvéla, en þessi
landgangur getur þjónað 6 flugvélum
samtímis. Hann verður hægt að
stækka ef þörf krefur.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson for-
maður byggingarnefndar sagði við
athöfnina að byggingarnefnd hafi far-
ið þess á leit við Leif Breiðfjörð
listamann að hann gerði glerlistaverk
fyrir flugstöðina og hefur hann þekkst
boðið. Sverrir sagði einnig að efnt
yrði til samkeppni meðal íslenskra
listamanna um listaverk sem staðsett
yrðu utan húss. Jafnframt væri í
80% hængar
■ Undarleg skipting milli hænga og
hrygna hefur verið í Svartá, það sem
af er veiðitímanum. Um 80% þeirra
fiska sem veiðst hafa, eru hængar.
Vanalega eru hrygnurnar fyrri til
göngu. Hugsanleg skýring er sú að
hængurinn sé harðari af sér en
hrygnan, með fullri virðingu fyrir
jafnrétti.
Gæsin: Undarleg hegðun
Gæsaveiðimenn á Norðurlandi
hafa orðið vitni að undarlegum hlut-
um síðustu daga. Fyrir um 10 dögum
hafði gæsin hópað sig svo hundruðum
skipti í Hörgárdal og Eyjafirði. Menn
hugsuðu sér gott til glóðarinnar. Mik-
ið var umaðmenn færu að Hörgárós-
um um helgina, og var ætlunin að
taka nokkra fugla en varla sást kvik-
indi. Að sögn skotveiðimanna var
ekki eftir nema einn tíundi hluti
hópsins sem var á ferðinni í Hörgár-
dal.
Þá er veiði í Árnessýslum og Rang-
árvallasýslu mjög takmörkuð, og allt
útlit að gæsin sé enn að mestu á
hálendinu.
Fór í lax, fékk gæs
Menn eru mismiklir veiðimenn í
sér. Margir eru þó með byssuna með
sér seinnihluta sumars, þegar farið er
í laxinn. Gæsin er jú farin að fljúga.
Hann sá ekki eftir því veiðimaðurinn
sem fór í Fnjóská nú um helgina.
Hann hugðist krækja sér í lax. Ekki
vildi svo vel til. Eins og sannur
sportveiðimaður á þessum árstíma
var hann með byssuna með sér. Það
kom líka á daginn að meira var um
fugl en fisk. Þegar veiðidagurinn var
liðinn láu fimm gæsir í valnum, en
laxinn tók ekki.
Lélegt ungahlutfall
Veiðihornið hafði spurnir af tveim-
ur mönnum sem fóru á gæs, fyrstu
daga veiðitímabilsins. Á tveimur dög-
um höfðu þeir félagar, sem voru
tveir, tuttugu gæsir. Báðir eru þeir
þaulvanir veiðimenn og hafa mikið
skotið á sama stað, og því vel kunnug-
ir lifnaðarháttum fuglsins. Það vakti
sérstaka athygli hvesu fáir ungar voru
í aflanum. Einungis fimm.
■ Lögregla og slökkvilið í Hafnarfirði var kallað út á miðnætti á föstudag. Volkswagen bifreið stóð í Ijósum logum á
Reykjanesbraut sunnan við álverið í Straumsvík. Bíllinn er að heita má ónýtur eftir brunann. Ekki er vitað um
eldsupptök. /;
athugun að koma fyrir fleiri listaverk-
um á svæði flugstöðvarinnar.
Páll Sigurjónsson forstjóri ístaks
minnti á þær miklu breytingar sem
oröið hafa á samgöngum íslendinga
síðastliðin 100 ár og kvað það brýnt
að Ijúka flugstöðinni svo hægt verði
að mæta nýjustu kröfum um sam-
göngur.
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra sagði að mjög vel hefði verið að
verki staðið og kvað það nánast
ótrúlegt að aðeins væru tæp tvö ár
síðan fyrsta skóflustungan hafi verið
tekin. Hann sagði menn þarna saman-
komna til að skerpa hugann til áfram-
haldandi framkvæmda svo mannvirk-
ið komi að tilætluðum notum sem
fyrst. Hann minnti á að tilgangur
flugstöðvarinnar væri þríþættur;
fyrsta lagi að aðgreina farþegaflug frá
starfsemi varnarliðsins, í öðru lagi að
stórbæta alla aðstöðu t'yrir starfsfólk
sem ynni ábyrgðarmikil störf ogsíðast
en ekki síst að stórauka alla þjónustu
við farþega, hvort sem þeir væru
erlendir eða innlendir og með nýju
flugstöðinni gætum við íslendingar
boðið þeim farþegum serh aðeins
stoppa í flugstöðinni þá þjónustu og
aðstöðu sem okkur væri sómi að.
■ „..Skerpum hugann til að Ijúka
frantkvæmdinni..“ sagði Geir Hall-
grímsson í reisugilli flugstöðvarinnar.
Barnabuxur frá kr. 390,-
Barnapeysur frá kr. 350,-
Barnabolir frá kr. 150,-
Dömuj akkar frá kr. 690,-
Dömukápur frá kr. 1.990,-
Dömubuxur frá kr. 690,-
Dömupils frá kr. 590,-
Kjólar frá kr. 990,-
Herrapeysur frá kr. 590,-
Herrabuxur frá kr. 490,-
Herraskyrtur frá kr. 280,-
Herraj akkar frá kr. 990,-
Barnaskór frá kr. 100,-
Dömuskór frá kr. 295,-
Herraskór frá kr. 590,-
Auk þess margt fleira ódýrt og fallegt
NT-mynd Sverrir.