NT - 27.08.1985, Blaðsíða 13
Kynningarþjónustan / Krass
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
ÞRÓUNARFÉLAG ÍSLANDS
Ríkisstjórnin gengst fyrir stofnun Þró-
unarfélags íslands á grundvelli laga nr.
69/1985 um þátttöku ríkisins í hlutafé-
lagi til aö örva nýsköpun í íslensku
atvinnulífi.
Þróunarfélagiö verður hlutafélag -
öllum opiö. Nú skapast því tækifæri
fyrir hiö opinbera og einkaaöila til að
sameinast um aö leggja hönd á plóginn
tíl nýsköpunar í atvinnulífinu.
Tímabært er aö hagnýta þekkingu í
atvinnulífinu í meira mæli og leita
fullkomnustu tækni á öllum sviöum til
aö auka framleiðni, bæta afkomu fyrir-
tækja, gera þeim kleift aö greiða hærri
laun og keppa meö betri árangri en
hingað til á erlendum mörkuöum.
Þróunarfélag íslands mun stuðla að
þessu meö því aö taka þátt í áhættunni
sem fylgir því aö stofna ný fyrirtæki eöa
ráöast í nýja framleiðslu.
Frestur til aö skrifa sig fyrir hlutafé
stendur til 30. september n.k., en
stofnfundur veröur haldinn fyrir 10.
október. Lágmarkshlutur er 10.000 kr.
og er ráögert aö hlutafé veröi greitt í
fernu lagi á þremur árum.
Einstaklingar og félög í atvinnurekstri
eiga kost á láni til fjögurra ára úr ríkis-
sjóöi til hlutabréfakaupa, ef lagöar eru
fram 100.000 krónur eöa meira sem
hlutafé. Lánsupphæö nemur helmingi
af hlutafjárframlagi.
Frá og meö morgundeginum mun
stofnskjal Þróunarfélags íslands
ásamt kynningarbæklingi um félagið
liggja frammi í öllum bönkum og útibú-
um þeirra. í bæklingnum eru eyöu -
blöð til að skrifa sig fyrir hlutafé og
sækja um lán til hlutabréfakaupa.
Nánari upplýsingar um hiö væntanlega félag
og starfsemi þess veitir starfsmaður undirbún-
ingsnefndar að stofnun félagsins, Bjarki
Bragason, í síma 91- 25133.
betri lífskiör
Undirbúningsnefnd að stofnun Þróunarfélags íslands hf.gP