NT - 27.08.1985, Page 17
iriui i nn
Þórmundur Bergsson (ábm.), Gylfi Þorkelsson og Sveinn Agnarsson
■ Lagt af stað í maraþonhlaupinu á sunnudag. Innfellda myndin er af sigurvegaranum, Hermann, að koma í mark
NT-mynd: Róbert
Reykjavíkurmaraþonið 1985:
Þýskir þrautseigir
áttu sigurvegara í maraþoni og hálf-maraþoni
■ Reykjavíkurmaraþonið var
háð í annað sinn á sunnudaginn.
Keppendur voru fjölmargir eða
um 500. Keppt var í þremur
hlaupum. Sjálfu maraþoninu sem
er um 42 km, hálf-maraþoni 21
km og skemmtiskokki sem var
7 km. Sigurvegari í maraþon-
hlaupinu varð V-Þjóðverjinn
Josef Hermann en hann skeið-
aði 42 km á 2 klst. 30:03,5 mín.
Næstur honum kom annar V-
Þjóðverji, Reinhard Bussmann,
sem var rúmum fimm mínutum
á eftir Hermann.
í kvennaflokki í maraþoninu
sigraði breska hiaupakonan
Lesley Watson á 2 tímum 52
mín. og 44,3 sek. Hún var
nokkuð á undan næstu konu
sem var Lillý Viðarsdóttir er fór
hlaupið á rúmum hálftíma
meira en Watson.
í hálfmaraþoninu sigraði einn-
ig V-Þjóðverji. Herbert Stettnu
heitir sá en hann fékk nokkra
keppni frá Sigurði P. Sigmunds-
syni sem setti íslandsmet í hálf-
maraþoni hljóp á 1:08,13,8.
Stettnu hljóp á 1:06,09,0. í
kvennaflokki í hálfmaraþoninu
sigraði Ásta M. Ásmundsdóttir
á 1:35,00,5 en rétt á eftir henni
varð Fríða Bjarnadóttirsem var
rúmri mínútu seinni.
í skemmtiskokkinu náði
Hannes Hrafnkelsson bestum
tíma eða 21:58,4 en hjá stúlkum
varð Helena Ómarsdóttir hlut-
skörpust á tímanum 27:24,9.
Pess má geta að þrír fatlaöir
íþróttamenn tóku þátt í skemmti-
skokkinu og voru þeir í hjóla-
stólum. Komust þeir allir í leið-
arenda og Baldur Guðnason
fyrst á 44:09,1.
Þátttakendur voru allir leystir
út með verðlaunapening og má
segja að hlaupið hafi heppnast
mjög vel. Veður var hið þokka-
legasta og nú er bara beðið eftir
næsta Reykjavíkurmaraþoni sem
setur óneitanlega skemmtilegan
svip á borgina meóan á því
stendur.
Islandsmótið 3. deild:
Selfoss ósigrað
Magni og Einherji leika urslitaleikinn í B-riðli
■ Selfyssingar fóru í gegnum
Á-riðil 3. deildar án taps og
unnu yfirburðasigur í riðlinum.
Síðasti leikur þeirra var á Akra-
nesi gegn HV á laugardaginn
var og þar unnu þeir 4-0. Hverj-
um Selfyssingar mæta í úrslita-
leikjum 3. deildar er enn óljóst.
Mikil spenna er í B-riðli og þar
berjast Magni og Einherji um
sigurinn. Þessi iið eigast við á
Grenivík um næstu helgi og er
það úrslitaleikurinn. Tindastóll
missti af lestinni eftir að hafa
verið með forystu lengst af.
Selfyssingum gekk illa á
Akranesi í fyrri hálfleik og voru
heimamenn ekki síðri. í síðari
hálfleik fór markaskorarinn
Sumarliði Guðbjartsson hins
vegar á kostum og gerði þrennu.
Þórarinn Ingólfsson skoraði síð-
an fjórða markið.
Reynir sigraði Stjörnuna í
Sandgerði með fjórum mörkum
gegn tveimur. Ári Haukur og
Þórður Þorkelsson skoruðu tvö
mörk hvor fyrir Reyni en Haf-
steinn Bragason gerði mark
Stjörnunnar.
Víkingur Ol. sigraði IK á
heimavelli sínum 2-1. Jónas
Kristófersson og Pétur Finnsson
skoruðu fyrir Víkinga cn Þórir
Gíslason svaraði einu sinni. Að
sögn ÍK-manna var um veruleg-
an heimadómara að ræða við
stjórnvölinn í leiknum.
Loks gerðu Grindavík og
Ármann jafntefli á gervigrasinu
í einhverjum lélegasta leik
sumarsins. Ekkert mark var
skorað.
í B-riðli náði Magni sigri á
Reyðarfirði. Bjarni Gunnars-
son skoraði markið eina í leikn-
um og Valur lá.
Einherji fékk Tindastól í
heimsókn í stórleiknum um
helgina og gerðu liðin jafntefli
1-1. Þetta setur Tindastól úr
leik. Stefán Guðmundsson
skoraði fyrir Einherja en Ey-
jólfur Sverrisson svaraði.
Huginn sigraði HSÞ létt, 7-1.
Sigurður Helgason skoraði
þrennu og þeir Sigurður Víðis-
son og Kristján Jónsson gerðu
tvö mörk hvor.
Þá léku Þróttur og Leiknir á
Norðfirði ogsigraði Leiknir2-4.
Steinþór Pétursson, Steinn
Jónsson (2) og Óskar Ingimund-
arson gerðu mörk Leiknis en
Birgir Ágústsson skoraði úr
tveimur vítum fyrir Þrótt.
Staðan í 3. deild:
A-riðill (lokastaða):
Selfoss ...14 10 4 0 37-11 34
Grindavik ... ... 14 6 5 3 24-17 23
Reynir S ...14 6 4 4 30-21 22
ÍK ...14 4 6 4 25-23 18
Ármann ...14 4 5 5 19-17 17
Stjarnan .... ...14 4 4 6 13-24 16
HV . .. 14 4 2 8 20-26 14
Víkingur Ól. . B-riðill: ...14 2 2 10 12-41 8
Einherji ...15 10 3 2 33-16 33
Magni ...15 10 2 3 30-16 32
Tindastóll ... ...15 8 6 1 20-7 30
Leiknir ...15 9 1 5 24-21 28
Austri ...15 4 6 5 24-21 18
Þróttur ...16 4 4 8 22-25 16
Valur ... 15 4 2 9 14-28 14
Huginn . .. 15 4 2 9 23-34 14
HSÞ . . . 15 1 2 12 18-46 5
Staðan...
■ Staðan í 2. deild:
Breiðablik . . 15 9 4 2 28-13 31
ÍBV.......... 15 8 6 1 37-13 30
KA .......... 14 8 3 3 28-13 27
KS........... 15 7 3 5 21-19 24
Völsungur . . 14 5 3 6 22-22 18
ísafjörður ..15 3 7 5 14-21 16
Njarðvik ... 15 4 4 6 10-17 16
Skallagr. ... 15 4 4 7 19-34 16
Fylkir....... 14 3 3 8 12-18 12
Leiftur...... 15 2 3 10 10-31 9
Markahæstu menn:
Tryggvi Gunnarsson, KA 13
Tómas Pálsson, ÍBV 11
Jón Þórir Jónsson, UBK 10
ómar Jóhannsson, ÍBV 7
Hlynur Stefánsson, ÍBV 7
Jóhann Grétarsson, UBK 6
Jónas Hallgrímsson, Völs. 6
Getraunir
■ Siðastliðinn laugardag, 24.
ágúst, var fyrsta leikvika Islenskra
getrauna. Seldar voru 219.192 raðir
og vinningsupphæð kr. 410.985.
Knattspymudeild Fylkis var sölu-
hæsti umboðsaðilinn þessa vikuna,
seldu tæpar 27.000 raðir.
Engum tókst að hafa alla leikina
rétta að þessu sinni. En tvær raðir
komu fram með 11 rétta og fær hvor
um sig kr. 143.840.- í vinning. Fram
komu 44 raðir með 10 rétta leiki og
vinningur þar er 2.802 -
Til gamáns má geta að eigandi
annarrar ellefunnar er áttræður að
aldri, svo af því má sjá að aldur
skiptir ekki máli þegar taka á þátt í
knattspyrnugetraunum.
Enska knattspyrnan:
Rush á skotskóm
■ Liverpool, með marka-
skorarann Ian Rush, varaði
önnur lið við því að telja sér trú
um að Liverpoolmaskínan væri
að bresta er liðið sigraði Ipswich
sannfærandi í ensku deildinni í
gærkvöldi 5-0. Rush gerði tvö
mörk en þeir Jan Mölby, Steve
Nichol og Craig Johnston skor-
uðu einnig. Kenny Dalglish,
framkvæmdastjóri, var við hlið-
arlínuna en hann er frá vegna
meiðsla. Mölby átti góðan leik
með Liverpool og átti m.a. skot
í slá.
Everton fór til London í gær-
kvöldi og lék gegn Tottenham
og hafði betur. Það var enginn
annar en Gary Lineker sem
sökkti Spurs með sínu fyrsta
deildarmarki fyrir Everton.
Þá léku Manchester United
og West Ham á Old Trafford og
hafði United sigur og trónir nú
á toppi deildarinnar með fullt
hús stiga. Mark Hughes skoraði
eins og hann hefur gert í öllum
leikjunum hingað til. Strachan
skoraði seinna maik United og
50 þúsund áhorfendur fóru glað-
ir heim.
Sheffield Wednesday heldur
öðru sætinu í deildinni með sigri
á Watford á heimavelli. Þeir
geta þó þakkað markverði
sínum.Steve Hodge, fyrir stigin
því hann varði víti frá Blissett.
Sterland og Champman skor-
uðu fyrir Wednesday. Blissett
náði inn marki Watford.
Úrslit í gærkvöldi:
(Þessi úrslit vantar inní töfluna á bls. 19)
Liverpool-Ipswich................ 5-0
Man. Utd.-West Ham............... 2-0
Sheff. Wed.-Watford ............. 2-1
Tottenham-Everton................ 0-1
2. deild:
Hull-Blackburn................... 2-2
Stoke-Leeds ..................... 6-2
Wimbledon-Bradford............... 1-0
Molar-Molar
■ ...Gordon Cowans sem nú spilar á Ítalíu en
lék áður með Aston Villa fótbrotnaði í aðeins
öðrum leik sínum á keppnistímabilinu. Hann
var að leika með liði sínu Bari gegn Ascoli í
bikarkeppninni ítölsku. Cowans kom til Bari
ásamt Paul Rideout frá Villa. Rideout skoraði í
leiknum...
...Búlgarinn Naim Suleimanov setti nýtt
heimsmet í fjaðurvigt í lyftingum um helgina.
Hann setti metið í snörun og var það 143 kg...
...V-Þjóðverjinn Bernard Langer sigraði á
Opna-þýska meistaramótinu í golfi um helgina.
Hann fór 72 holur á 183 höggum en annar varð
Mike McLean frá Bretlandi á 190 höggum.
Spilað var í Bremen í Þýskalandi...
...ísraelskur knattspyrnumaður fær ekki að
spila með landsliði ísrael næstu tvo leiki. Hann
heitir Sholomo Shirazi og var handtekinn fyrir
aðild að ránum. Hann hjálpaði þó lögreglunni
við að ná fleiri þjófum en knattspyrnusamband-
ið vill ekki að hann leiki fyrir en allt málið sé
komið í Ijós...
...Niki Lauda sigraði í hollenska Grand-Prix-
kappakstrinum um helgina. Hann varð rétt á
undan Alain Prost frá Frakklandi.
Sími
79230
Sólbaðstofan
Hléskógum 1.
Erum meö extra breiða og
djúpa bekki með mjög góö-
um andlitsperum: GÓÐUR
ÁRANGUR EFTIR AÐEINS 5
SKIPTI. Sér klefar og góö
sturtu- og snyrtiaöstaöa.
Tónlist á staönum.
ATH:
Bjóúum upp á ókeypis
krem eftirsólböó.
VERIÐ VELKOMIN
Opiö:
Mánud.—föstud. 8—22
Laugardaga 8—20.
Sunnudaga 14—20.
Ennfremur má sérpanta jafnt
karla- sem kvennatíma.