NT - 27.08.1985, Blaðsíða 18
Einar annar
- í spjótinu og Sigurður sjöundi
Stórsigur UMFN
■ Njarðvíkingar unnu sinn
stærsta sigur í 2. deild um helg-
ina er þeir fengu Skallagrím frá
Borgarnesi í heimsókn. UMFN
náðf forystu strax í upphafi
leiksins er Guðmundur Sigurðs-
son átti skot í Flauk Jóhannsson
og þaðan í netið. UMFN var
mun betra í fyrri hálfleik og þá
sérstaklega á miðjunni þar sem
Skúli Rósantsson átti stórleik.
í síðari hálfleik skoraði
Flaukur mark uppá eigin spýtur
og Þórður Karlsson bætti því
þriðja við áður en yfir lauk.
Njarðvíkingar færast með
þessum sigri heldur frá botnin-
um en falldraugurinn er þó ekki
langt undan.
Grand Prix-mót í Köln:
þó ekki að slá Petranoff út af
laginu í Köln. Petranoff kastaði
88,12 m en Einar kastaði 86,84
m. Þriðji í spjótinu varð Wol-
fram Gambke frá V-Þýska-
landi. Sigurður Einarsson
keppti líka í spjótinu og varð
hann í sjöunda sæti með 77,68
m.
Mörg góð afrek voru unnin á
þessu móti og komu sum úrslit-
anna á óvart. Sergei Bubka
tapaði í stangarstökki og varð
rcyndar í fjórða sæti. Frakkinn
Ouinon varð fyrstur, stökk 5,80
m og Mikc Tully frá Bandaríkj-
unum varð annar með 5,75.
Þriðji varð Brassinn Hintnaus
með 5,70 en Bubka stökk aðeins
5,65 m og olli vonbrigðum.
Mary Slaney og Maricica Pu-
ica háðu harða keppni í 3000 m
hlaupi en svo fór að Slaney náði
sigri á mjög góðum tíma,
8:29,69 en Puica varö önnur á
8:30,32. Þessar stúlkur virðast
nú bera nokkuö af í millivega-
lengdahlaupum og gaman verð-
ur að fylgjast með þeim í fram-
tíðinni. Brassinn Joaquim Cruz
og Scbastian Coe frá Bretlandi
háðu harða keppni í 800 m
hlaupi og fór svo að Cruzsigraði
á besta tíma sem náðst hefur í
þessari grein á árinu 1:42,54 m.
Coe kom í mark á 1:43,07.
Carl Lewis varö aðeins annar
í 100 m en liann hefur verið að
ná sér eftir meiðsl. Hann sýndi
þó að hann á mikið éftir því eftir
slæmt start komst hann á mjög
gott skriö á síðustu 30 m og
komst í 2. sætið. Bandaríkja-
maðurinn Sydney Maree varð
ekki langt frá því að sctja nýtt
heimsmct í 1500 m hlaupi og
taka það þar með frá Said Aouita
frá Marakko sem hann setti í
V-Berlín fyrir stuttu. Maree
hljóp á 3:29,77 sem er aöeins
0,32 sek. frá tíma Aouita.
Meöal annarra sigurvegara má
nefna Kratochvilova sem sigraði
t 800 m hlaupi kvenna á 1:57,83.
Willie Banks vann þrístökkið
með 17,07 m stökki. Stcfka
Kostadinova vann hástökkið á
2,00 m og Larry Myricks vann
langstökk með 8,18 m stökki.
Florence Griffith hljóp 100 m
kvenna á 11,13 og sigraði og
hún vann einnig 200 m á 22,46.
íslandsmet hjá Jóni Páli
■ Jón Páll Sigmarsson setti nýtt íslandsmct í bekkpressu á SVALA-móti sem unglingalandsliðið
kraftlyftingum stóð fyrir í Austurstræti á föstudaginn. Jón Páll lyfti 232, 5 kg. Hjalti „Ursus“ náöi
góðum árangri á mótinu en hann féll þó úr keppni. Hafði áður lyft meiri þyngd í hnébeygju en gildandi
heimsmet. NT-mynd Sverrir
Þriðjudagur 27. ágúst 1985
íþróttir
■ Einar Vilhjálmsson varð í
öðru sæti í spjótkasti á Grand
Prix-stigamóti Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins sem fram
fór í Köln um helgina. Einar
varð næstur á eftir Bandaríkja-
manninum Tom Petranoff en
þeir kappar hafa oft háð harða
keppni og hefur Einar haft betur
að undanförnu. Honum tókst
2. deild:
íslandsmótið 2. deild:
Jón Þórir með tvö
- er Blikarnir komust á toppinn aftur með sigri á KS 2-0.
■ Blikarnir skutust á toppinn
í 2. deild um helgina er liðið
sigraði KS í Kópavogi með
tveimur mörkum gegn engu.
Sigur Blikanna var sanngjarn.
Þeir áttu svo til einu færin í
leiknum sem skiptu máli og
nýttu tvö þeirra. KS-liðið barð-
ist ágætlega lengst af en átti í
erfiðleikum með að finna glufur
i vörn Blikanna. Það var Jón
Þórir Jónsson sem gerði bæöi
mörk Blikanna í þessum leik og
hann hefði auðvcldlcga getað
gert hið þriðja er hann brenndi
af vítaspyrnu undir lok leiksins.
Fyrri hálfleikur var lélegur og
ekkert mark skorað. Strax á 7.
mín. seinni hálfleiks skoraði
Jón fyrra mark sitt. Hann náði
þá að skalla fyrirgjöf Þorsteins
Hilmarssonar í netið af stuttu
færi. Stuttu seinna átti Hákon
góðan sprett upp kantinn og gaf
fyrir en Jón Þórir rétt missti af
boltanum. KS-ingar hófu nú að
sækja nokkuð fast og áttu tvö
þokkaleg færi rétt eftir þetta.
Það var síðan á 33. mín. seinni
hálfleiks sem Jón gerði út um
leikinn. Gunnar Gylfason tók
langt innkast og Jón nikkaði
boltanum í netið frá nær stöng í
hornið fjær - óvænt. Við þetta
hrundu Siglfirðingar og Blikarn-
ir áttu leikinn. Jón klikkaði
síðan á víti. Markvörðurinn sem
hafði greinilega hreyft sig varði
skotið.
Blikarnir tróna því efstir í 2.
deild og 1. deildarsæti innan
seilingar. KS missti af lestinni í
þetta sinn.
1. deild kvenna:
Tvö töp hjá KA
■ Nokkrir leikir voru í 1. deild
kvenna um helgina. KR sigraði
KA 4-1 með mörkum Kristrún-
ar Heimisdóttur sem gerði
þrennu og Örnu Steinsen sem
skoraði fyrsta markið. Þá léku
KA stúlkurnar við Val á sunnu-
daginn og enn varð tap 4-1. Eva
Þórðardóttir skoraði tvívegis
fyrir Val en Ragnheiður Sigurð-
ardóttir og Kristín Arnþórsdótt-
ir gerðu sitt hvor. Borghildur
Freysdóttir skoraði fyrir KA.
ÚBK og Þór léku í Kópavogi
á sunnudag og skildu liðin jöfn
2-2. Anna Einarsdóttir skoraði
bæði rnörk Þórs en Ásta B.
Gunnlaugsdóttir og Erla Rafns-
dóttir skoruðu mörk Blikanna.
Þórsstúlkurnar höfðu farið til
Keflavíkur á laugardaginn og
þar töpuðu þær nokkuð óvænt
fyrir IBK 3-0. Katrín Eiríks-
dóttir gerði tvö marka ÍBK en
Svandís Gylfadóttir gerði eitt.
2. deild:
Auðvelt hjá KA
■ KA fór á Ólafsfjörö
uni helgina og með sigri á
Leiftri í 2. deild þar hélt
liðið 1. deildarvonum sín-
um í miklum blóma.
Sigurinn var 4-1 og var
KA mun sterkari aðilinn
í lciknum er líða tók á
hann. Lciftursmenn sitja
nú í neðsta sæti deildar-
innar og viröast dæmdir
til að falla í 3. deild.
Steingrímur Birgisson
skoraði fyrst fyrir KA en
Leiftursmönnum tókst að
jafna fyrir leikhlé. Tvö
inörk frá Tryggva Gunn-
arssyni innsigluðu sigurinn
Akureyringauna en
Bjarni Jónsson átti þó
allra síöasta orðið í leikn-
um er hann gcrði fjórða
markiö rétt fyrir leikslok.
NMígolfi:
ísland neðst
■ íslendingar urðu i
neðsta sæti í bæði karla
og kvennaflokki á
Noröurlandamótinu í
golli sem fram fór í Finn-
landi um helgina. Danir
urðu Norðurlandameist-
arar í báðum flokkum.
Sigurður Pétursson stóö
sig best íslensku kepp-
endanna. Hann for 72
holurnar á 298 höggum
sem var fjórtándi besti
árangurinn á mótinu.
Steinunn Sæmundsdóttir
var best íslensku kvenn-
anna, fór á 331 höggi.
2. deild
Eyjamenn
náðu jöfnu
■ Eyjamenn náðu að
jafna á síðustu sekúndu í
leik sínum gegn ÍBÍ á
ísaflrði í 2. deild um helg-
ina. Það var Hlynur
Stefánsson sem jafnaði
metin ineð marki af stuttu
færi. ÍBÍ var betri aðilinn
í leiknum og lék liðið
betur en oftast í sumar.
Það var hlutverk Eyja-
manna að ná forystu í
leiknum. Ómar Jóhanns-
son skoraöi þá með föstu
skoti innan vítatcigs. Rétt
fyrir leikhlé jafnaði
Jóhann Torfason með
bombu uppí þaknetið.
Guðjón Reynisson
kom svo heimamönnum
yfir með fallegu skalla-
marki eftir fyrirgjöf
Ragnars Rögnvaldsson-
ar. Hlynur skoraði síðan
sigurmarkið á síðustu
sekútidunni en þá var
komið nokkuð fram yfir
venjulegan leiktíma.
Skíði:
Boe vann létt
■ Skíðavertíðin er að
byrja og um helgina var
keppt á miklu skíðamóti
- eða öllu heldur hátíð í
Ástralíu! Norska stúlkan
og heimsmeistari í göngu
Anette Boe sigraði í 10
km göngu á 34,20 mín. og
virðist vera í góðu formi.
Úrslitakeppni 4. deildar:
Hafnir skelltu Blikinu
■ Augnablik hlaut skell í
Höfnum í úrslitakeppni 4. deild-
ar og verður liðið nú að sigra ÍR
á heimavelli sínum í síðasta
leiknum til að komast í 3. deild.
Það voru Gísli Guðjónsson og
Finnur Bergsveinsson sem
erðu mörk Hafna í leiknum.
R-ingum dugir sem sagt jafn-
tefli í Kópavogi til að fara í 3.
deild.
1 hinum riðlinum sigraði
Vaskur Reyni 2-1 en sá leikur
skipti engú þar sem Reynir
hefur þegar sigrað í riðlinum og
tryggt sér sæti í 3. deild. Hjörtur
Unnarsson og Gunnar Berg
skoruðu fyrir Vask er Björn
Friðþjófsson svaraði fyrir
Reyni.