NT - 27.08.1985, Page 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónurfyrirhverja ábendingu sem leið ir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavik, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsimar: askrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
NT-mynd Róberl
■ Bikarinn í öruggum höndum Guömundar Steinssonar fvrirliöa Fram. Aðrar hetjur fagna sigri.
Bikarkeppni KSÍ, úrslitaleikurinn 1985:
„B et ra li< tið vam n“
- sagði Hólmbert Friðjónsson þjálfari ÍBK eftir sigur Fram í bikarkeppninni - Pétur gerði tvö mörk
í leiknum - ÍBK lék ekki vel
■ „Betra liðiö vann |>ennan
leik þar er engin spurning,"
sagði Hólmbert Friðjónsson
þjálfari Kcflvíkinga eftir bikar-
úrslitalcikinn 1985 er Keilvík-
ingar töpuðu fvrir sterkum
Frömurum 3-1. Fram er þar
með bikarmeistari 1985 en þctta
er þriðji meistaratitillinn sem
liðið hirðir á þessu ári. Skyldi
íslandsmeistaratitillinn verða sá
fjórði? „Við vorum staðráðnir í
að koma grimmir til lciks og
komast fyrr inní leikinn heldur
en Keflvíkingar. Svo réði það
miklu að okkar lið er allt þraut-
rcynt og sú reynsla skipti
sköpnm," sagði Ásgeir Elíasson
þjálfari og leikmaður nýkrýndra
bikarmeistara Fratn eftir leikinn
á sunnudaginn.
Pað er óhætt að taka undir
orð þjálfaranna beggja. Fram-
arar voru mun betri aðilimt í
leiknum allan tímann og í það
eina skipti sem Keflvíkingar
virtust vera að komast inní lcik-
inn þá drápu Framarar þá niður
strax mcð þriðja markinu.
Reynsla Framara réði líka
ntiklu. Þeirra lið er allt vel sjóað
en hjá Keflvíkingum voru ungu
strákarnir greinilega nokkuð
strekktir og réðu varla við hlut-
verk sitt. Það má segja að
leikurinn hafi í sem stystu máli
farið svona vegna þessað Fram-
arar spiluðu á getu en Keflvík-
ingar voru nokkuð langt frá því
sem lið þeirra getur.
Það var greinilegt strax í upp-
Itafi leiksins að Framarar ætluðu
að reka af sér sleniö sem legið
hefur á þeim að undanförnu því
liðið kont út á völlinn nteð allar
taugar styrkar og ákveðið í að
berjast frá fyrstu rnínútu. Kell-
víkingar voru hins vegar varkár-
ari í byrjun og þaö varð til þess
að þeir náðu aldrei að komast í
takt við leikinn. Framarar spil-
uðu fast og strax á sjöundu
mínútu fékk Viðar að líta gula
spjaldið hjá ágætum dómara
Guðmundi Haraldssyni. Frant-
arar áttu nokkur hálffæri í upp-
hafi leiksins en Keflvíkingar
fengu nær engin færi utan tvö
góö langskot frá lngvari og
Valþór. Guðmundur Torfason
fór á kostum í þessum leik og
það var einmitt styrkleiki hans í
loftinu sem skóp fyrsta mark
Fram á 30. mín. Guðmundur
vann þá skallaeinvígi og boltinn
fór til Péturs Ormslev. Hann
tók boltann með sér inní teig og
skoraði nteð fallegu og föstu
skoti, 1-0. Skömmu seinna
komst Pétur uppað endamörk-
um og sendi fyrir. Þar kom
Guðmundur Steinsson á fullri
ferð en skot hans í dauðafæri
fór í slá og út - óheppinn
Guðmundur.
Eitthvað hefur Hólmbert
reynt að segja Keflvíkingum til
í hléi því strax á 48. mín. átti
Sigurjón Kristjánsson, sem ann-
ars var ntjög daufur í þessum
leik, góðan skalla - ja, reyndar
slæman skalla - í upplögðu færi
en yfir markið. Þarna átti Sig-
urjón að skora og það án erfið-
leika. Það var svo Guðmundur
Torfason sem lagði upp annað
mark Framara á 63. mín. Hann
vann boltann á vallarhelmingi
Keflvíkinga og sendi hann rak-
leiðis til Péturs Ormslev sem
var á auðum sjó, svo auðum að
það virtist vera um rangstæðu
að ræða, Pétur tók boltann á sig
og er Þorsteinn kom stímandi út
úr markinu þá sendi hann tuðr-
una í fallegum boga yfir Steina
og í netið, 2-0. Nú fóru hlutirnir
að gerast hratt. Hólmbert skipti
þeim Sigurjóni Sveinssyni og
Björgvin Björgvinssyni inná fyr-
ir Frey og Jón Kr. og ÍBK fékk
aukaspyrnu á vallarhelmingi
Framara á 69. mín. Sigurjón
Kristjánsson sendi boltann í átt
að markinu og Ragnar Mar-
geirsson fékk liann óvaldaður
inná markteig og þrumaði hon-
um í markið, 2-1 og ný von
kviknaði hjá Keflvíkingum.
Hún var þá snarlega slökkt.
Framarar .tóku miðju pgStejns-
son scndi á Guðmund Torfason.
Hann lék framhjá tveimur Kefl-
víkingum og inní teig. Þar skaut
hann lágum bolta undir Þorstein
og í markið, 3-1 og leikurinn í
höndum Framara. Eftir þetta
var nánast formsatriði að klára
leikinn og voru Framarar nær
að bæta við marki en Keflvík-
ingar. Guðmundur Steinsson
átti t.d. mjög gott færi er hann
var búinn að leika á Þorstein en
hann rnissti jafnvægið og skaut
yfir - grátlegt fyrir Guðmund.
Framarar voru vel að þessum
sigri komnir. Þeirra lið var mun
heilsteyptara og sumir leik-
manna áttu mjög góðan leik.
Guðmundur Torfason fór á
kostum - lygilegt hvað drengur-
inn er sterkur í loftinu. Þar
ræður enginn við hann. Pétur
Ormslev átti góðan leik einnig
og var nú miklu frjálsari en í
fyrri leikjum Fram. Viðar Þor-
kelsson átti líka stórleik í vörn-
inni og tók framherja ÍBK í
karphúsið hvað eftir annað.
Hjá Keflvíkingum var ekki
rnargt um fína drætti. Valþór
Sigþórsson átti einna bestan leik
en aðrir voru frá sínu besta
fornti.
Guðmundur Haraldsson
dæmdi leiþjnn og gerði vel.
Bjarni stórgóður
var besti maður Brann og komst í lið vikunnar
Tony Knapp hugsanlega næsti þjálfari Brann
Frá Arnþrúði Karlsdótlur í Noregi:
■ Bjarni Sigurðsson mark-
vörður átti enn einn stórleikinn
hér í Noregi með liði sínu
Brann. Hann kom í veg fyrir að
Brann tapaði stærra fyrir Start.
Leikurinn fór 3-2 og er Brann
nú í alvarlegri fallhættu. Bjarni
var valinn í lið vikunnar hjá
Verdens Gang og fékk mikið
hól í flestum blöðum. Meðal
áhorfenda á leiknum var Tony
Knapp landsliðsþjálfari fslend-
inga og eru nú uppi getgátur í
norskum blöðum þess efnis að
Knapp taki að sér lið Brann á
næsta keppnistímabili hvort
sem liðið verður í 1. eða 2.
deild. Knapp sagðist sjálfur
vera að kanna hvort Bjarni
væri ekki til í slaginn á Spáni í
næsta mánuði. „Við ætlum að
leggjaSpánverjaþ sagði Knapp.
Heimsmet hjá Budd
- í 5000 m hlaupi í gærdag
■ Suður-afríska stúlkan Zola
Budd sem nú er breskur ríkis-
borgari setti nýtt heimsmet í
5000 m hlaupi á móti í Crystal
Palace í gær. Budd, sem að
vanda hljóp berfætt, hljóp á
14:48,07 og sló þar með heims-
met norsku stúlkunnar Ingrid
Kristiansen sem var 14:58,89 og
var sett í Osló í júní á síðasta
ári.
Kristiansen varð í öðru sæti í
hlaupinu í gær og hún hljóp á
betri tíma en gamla heimsmet-
ið. Budd sagði eftir hlaupið:
„Ég hugsaði ekkert um að setja
heimsmet. Ef Ingrid hefði ekki
verið með hefði heimsmetið þó
ekki falliö. Hún veitti mérslíka
keppni að hraðinn í hlaupinu
varð nægur."
sagði Pétur Ormslev eftir bikarleikinn
■ Það var að vonum mikil
gleði í herbúðum Framara eftir
leikinn. „Við ætluðum ekki að
verða undir í baráttunni í þess-
um leik. Þess vegna komum við
út allir tilbúnir til að berjast vel.
Allir lögðu sig fram. Ég er
auðvitað himinlifandi yfir því
að skora tvö mörk en þetta cr
iiðsheildin sem skapar svoi a
mörk ogsvona leik. Nú, reynsla
okkar hafði mjög mikið að
segja," sagði Pétur Ormslev eft-
ir leikinn.
Guðmundur Steinsson vildi
koma þökkum til áhangenda
Framara sem studdu þá svona
dyggilega í leiknum. „Ég hefði
nú sjálfur átt að skora tvö mörk.
Boltinn lyftist aðeins á einhverri
ójöfnu er ég skaut í slána en ég
varð að lyfta honum aðeins yfir
Þorstein," sagði Guðmundur.
Valþór Sigþórsson fyrirliði
ÍBK sagði eftir leikinn að það
hefði verið eins og einhver
þreyta í mannskapnum. „Við
náðum okkur aldrei á okkar
rétta plan. Þeir voru einfaldlega
bctri. Við höfum verið í mjög
erfiðu prógrammi að undan-
förnu og kannski kom það fram
í þessum leik. Það kom líka í
Ijós að reynsla Framara var afar
dýrmæt," sagði Valþór og
stundi.
■ Pétur Ormslev fær hér að svífa í loftið eftir mörkin tvö.
t,, „ jsXiiuytnlBúhpd.