NT - 11.09.1985, Qupperneq 7
01
Miðvikudagur 11. september 1985
Páfinn blaðamatur
Páfastóll mótmælir frjálslegri endursögn á heilögum boðskap
Páfagarður-Reuter.
■ Stórblöð víðs vegar um
heim, sem tengjast Murdoch-
blaðahringnum, birtu um síð-
ustu helgi fyrstu greinina sem
samin er upp úr ræðum og
yfirlýsingum Jóns Páis páfa II
um heimsmálin. Talsmaður
páfastóls hefur mótmælt með-
ferð blaðahringsins á boðskapi
páfa þar sem greinin er merkt
þannig að ætla mætti að Jón Páll
hafi ráðið sig sem dálkahöfund.
Greinin var birt undir yfir-
skriftinni „Aðskilnaðarstefna"
og hún var rækilega merkt Jóni
Páli páfa II og tekið fram að
fréttastofurnar The Times of
London og News America, sem
þjóna 200 blöðum, væru hand-
hafar höfundarréttarins.
Páfastóll hefur margoft lýst
því yfir að orð páfa séu frjáls
öllum til birtingar og að enginn
geti helgað sér höfundarrétt að
þeim. Giulio Nicolini talsmaður
páfastóls segir notkun blaðanna
á nafni hins heilaga föður í
viðskiptatilgangi algjörlega
óheimila.
Talsmaður páfastóls for-
dæmdi líka að þótt greinin sé
eignuð páfa séu ekki notaðar
beinar tilvitnanir í hann heldur
séu yfirlýsingar hans slitnar úr
samhengi og tengdar saman án
þess að vitnað sé í heimildir.
Hann sagði að páfastóll hefði
aldrei samþykkt á nokkurn hátt
slíka og þvílíka notkun á orðum
páfa.
En Arthur Klebanoff tals-
maður Murdoch-hringsins segir
að birting páfagreinanna muni
halda áfram. Hann sagðist telja
að páfastóll ætti að fagna því að
blöðin reyndu að boða orð páfa
til sem flestra. Margir starfs-
menn páfastóls hefðu lýst yfir
ánægju með áætlunina jrm
greinarnar á meðan þær voru
enn í undirbúningi. Monsjör
Nicolini og aðrir blaðafulltrúar
páfastóls væru ekki aðdáendur
dálksins en það byggju margir
aðrir í Páfagarði.
Astralía:
■ Ýmsir aðilar hafa á undan-
förnum árum unnið að því að
gera boðskap páfans alþýðlegan
til þess að ná til sem flestra. Það
hefur meira að segja verið geflð
út myndablað um æfí Jóns Páls
páfa.
Mótefni gegn
tannskemmdum
Mclboume-KeuliT.
■ Ástralski vísindamaðurinn
Geoffrey Smith tilkynnti fyrir
skömmu að hann hefði fundið
upp mótefni gegn tannskemmd-
Steingervinga-
fundur:
Fornalda*
höfrungur
á suður-
heimskauti
Wellington-Reuter.
■ Nýsjálenskur sér-
fræðingur í steingervingum
segist hafa fundið steingerv-
inga af áður óþekktri höfr-
ungategund á suðurheim-
skautinu.
Steingervingar þessir eru
taldir mjög merkilegir m.a.
vegna þess að þeir eru aðeins
tveggja milljón ára gamlir.
Flestir steingervingar sem
hingað til hafa fundist á
suðurheimskautinu hafa ver-
ið meira en 40 milljón ára.
Sérfræðingurinn, sem
heitir Euan Fordyce, segir
að steingervingarnir bendi
til að heill hópur af áður
óþekktum höfrungategund-
um hafi verið til á forsögu-
legum tímum.
um. Að hans sögn mun þetta
efni gerbreyta öllum tann-
lækningum.
Smith sagði að mótefnið
yrði lagað að þörfurn hvers
sjúklings fyrir sig með því að
senda sýni úr munni til rann-
sóknarstofu. Hann bætti því
við að þetta væri ntun vænlegri
aðferð hcldur en sú sem
bandarískir vísindamenn
vinna að og byggist á einu
sérstöku mótefni.
Rannsóknir Smith með nýja
mótefnið bentu til þess að þeir
sem það fá séu þrisvar sinnunt
betur varðir gegn tann-
skemmdum en aðrir.
■ Gaddafí vill græna byltingarverði frá öðrum löndum til að gæta öryggis síns.
Gaddafi vill alþjóð-
lega byltingarverði
Abe Dhabi-Reuter.
■ Embættismaður í upplýs-
ingaráðuneyti Líbýu hefur skýrt
frá því að Líbýumenn muni
stofna alþjóðlegan byltingar-
Finnar kvarta
yfir sovéskri
hráolíutregðu
Helsinki-Reuter
■ Neste. olíufyrirtæki
finnska ríkisins, hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem
skýrt er frá því að Sovétmenn
muni aðeins láta Finnum í té
um sex milljón tonn af hrá-
olíu á þessu ári í stað átta
milljón tonna eins og samið
var um.
Neste hefur að undan-
förnu reynt að fá Sovétmenn
til að standa við olíusamning-
ana og senda meira af olíu til
Finnlands en sovéskir emb-
ættismenn bera við erfiðleik-
um við framleiðslu sem stafi
m.a. af miklum vetrarhörk-
um fyrr á þessu ári.
Svo virðist sem samdráttur
í olíuframleiðslu á Tyumen
olíusvæðinu í Vestur-Síbe-
ríu, sem sovésk blöð hafa
skýrt frá, hafi haft töluverð
áhrif á heildarframleiðslu So-
vétmanna á olíu.
Finnar hafa nú aukið olíu-
innflutning sinn frá öðrum
ríkjum til að vega upp sam-
dráttinn í olíuinnflutningn-
um frá Sovétríkjunum.
vörð fyrir Muammar Gaddafi til
að gæta öryggis hans þegar hann
heimsækir Sameinuðu þjóðirn-
ar á næstunni.
Byltingarverðirnir verða hluti
af sendinefnd Líbýumanna til
Sameinuðu þjóðanna þegar 40
ára stofnafmæli samtakanna
verður minnst. Þeir verða valdir
úr ýmsum samtökum araba og
alþjóðlegum „byltingarhópum
og andspyrnuhreyfingum" sem
Líbýumenn styðja.
Verðirnir verða kallaðir „Al-
þjóðlegir byltingarsinnaðir
grænir verðir“ en grænn litur er
gjarnan tengdur múhameðstrú
og Gaddafi hefur gefið úr ritling
sem gengur undir nafninu
„Græna bókin“ þar sem hug-
niyndir hans um islamskan sós-
íalisma eru reifaðar.
Eiturbjórí
Austurríki
Vín-Reuter
■ Þaðerekkiaðeinsvín-
ið sem hefur verið eitrað í
Austurríki heldur hafa
austurrísk yfirvöld nú lagt
hald á mörg þúsund bjór-
flöskur sem innihalda
hættulega mikið magn af
sótthreinsunarefnum.
Rannsóknir sýndu að
bjórinn hafði að geyma
meira en tíu milligrömm
af brómediksýru á lítra.
Brómediksýra er notuð til
að sótthreinsa bjórílát en
rannsóknir á dýrum hafa
sýnt að þetta efni hefur
skaðvænleg áhrif á lifur,
vöðva og nýru.
Austurríkismenn hafa
að undanförnu gert upp-
tækar milljónir lítra af víni
þar sem í Ijós kom að
vínið var blandað hættu-
legum frostlegi.
Sovétríkin:
Áhyggjur vegna
uppskerubrests
Moskva-Kcuter.
■ Sovétmenn hafa nú áhyggj-
ur af því að kornuppskera þessa
árs verði langt undir því marki,
sem stjórnvöld höfðu sett, sjö-
unda árið í röð.
Sovétmenn stefndu upphaf-
lega að því að ná 239 milljón
tonna kornuppskeru á þessu ári
en eftir kalt og votvirðrasamt
vor og sumarbyrjun sögðust þeir
búast við 200 milljón tonna
uppskeru sem er töluverð aukn-
ing frá því í fyrra þegar uppsker-
an var 170 milljón tonn.
En sovéskir landbúnaðarsér-
fræðingar eru nú ekki eins bjart-
sýnir þar sem uppskerustörf hafa
gengið mjög hægt. Nú er aðeins
búið að skera upp korn á 77,7
milljón hekturum lands og
þreskja 68,9 milljón tonn sem
er mun minna en á sama tíma í
fyrra.
Bandarískir landbúnaðar-
sérfræðingar hafa spáð því að
kornsuppskera Sovétmanna á
þessu ári verði 190 milljón tonn
og að þeir verði að flytja inn um
40 milljon tonn frá öðrum lönd-
um samanborið við 55 milljón
tonna innflutning í fyrra.
NEWSINBRIEF
September 10 Reuter.
BIRMINGHAM, Eng-
land - Fresh riots erupted
in Birmingham, Britain's
second city, with youths
ovcrturning police vans
$ and using them as blazing
OC barricades. Massive police
®Q reinforcements were able
^ to control the violence but
{/j an uncasy calm prevailed.
LUXEMBOURG - Eur-
opean Community For-
eign Ministers failed to
reach unanimous agree-
ment on imposing sancti-
ons on South Africa after
Britain refused to wit-
hdraw its military attache
from the republic.
PARIS - The head of
French railways resigned
after a series of sumer
crashes which killed 84
Ul pcople
Andre Chadeau
C£ said that as chairman, he
OQ must „objectively bear the
responsibility for these
accidents".
SO
OSLO - Prime Minister
Willoch narrowly survived
Norway’s general electi-
ons after a Labour oppos-
ition campaign for more
oil rcvenue to be spent on
welfare cut his centre-
right coalition’s majority
to one seat.
BAHRAIN - Iraq and
Iran reported more than
4.500 troops killed on the
northcrn Gulf war front in
}jj conflicting accounts of an
& Iranian offensive in the
Cq Kurdistan mountainsyest-
^ erday.
i
■ Ui BEIRUT - Syrian-backed
^ efforts to end eight days of
fíghting in Beirut between
Palestinians and Shi’ite
Moslems appeared to run
inton diffículties as shoot-
ing continued around the
Bourj Al-Barajneh refu-
1 gee camp.
VATICAN CITY - The
Vatican condemned as
shocking the manner in
which the Times of
London and News Amer-
ica News syndicates, own-
ed by publisher Rupert
Murdoch, had handled a
column based on pron-
U. ouncements hy Pope John
Uj Paul. It said the syndicates
QC had ignored elementary
principles of professional
$ ethics.
MOSCOW - Anatoly
Karpov and Garry Kasp-
arov drew the third game
of their world chess title
rematch after 20 moves.
•
ATLIT - Israel - The
Israeli army freed the last
of more than 10.000 pris-
oners it captured in its
threeýear military campa-
ign in Lebanon. The fínal
batch of 119 detainees,
mostly Shi’ite Moslem gu-
errillas, were handed over
to the Red Cross.
•
ISLAMABAD - A big
Soviet offensive against
guerrillas in Afghanistan’s
Paktia province appears
to be over with heavy
Soviet casualties, Western
diplomats said.
NEWSINBRIEF_