NT - 11.09.1985, Side 20
Dagbók
■ Forsíðumyndin á 4. tbl.
Skinfaxa er af Unni Stefánsdótt-
ur sem keppti fyrir HSK á lands-
móti dönsku ungmennafélag-
anna í sumar.
Skinfaxi
■ 4. tölublað 76. árgangs Skin-
faxa er nýkomið út. Það er gefið
út af Ungmennafélagi íslands
og ritstjóri er Guðmundur
Gíslason. Margvíslegt efni er í
blaðinu. Mám.a. nefnafrásagn-
ir frá Íþróttahátíð HSK og
myndir frá hátíðinni, sem haldin
var á Selfossi 12.-14. júlí. Sagt
er frá Danmerkurferð UMFÍ
1985,26. júní til 3. júlí. íslenskir
ungmennafélagar fóru til þátt-
töku í landsmóti dönsku ung-
mennafélaganna í Odense í
boði DDGU. Keppendur eða
þátttakendur í þessu stórmóti
voru milli 25-30 þúsund og bar
þarmestáfimleikafólki. íslend-
ingar voru um 30 manns. Sagt er
frá ýmsum fleiri íþróttamótum,
og eins er í blaðinu bridgeþátt-
ur, vísnaþáttur, viðtal við göngu-
garpinn Reyni Pétur Ingvars-
son og Hvaða fugl er þarna?
grein um fugla með myndum
eftir Þorstein Einarsson. Minn-
ingargrein er um Sigurð Greips-
son fyrrum skólastjóra í Hauka-
dal, heiðursfélaga UMFÍ.
Greinina skrifar Pálmi Gísla-
son. Forystugreinin heitir:
Frjálsar íþróttir-Á uppleið eða
undanhaldi? Hún er rituð af
Guðmundi Hauki Sigurðssyni
og hann íhugar stöðu þessara
íþróttagreina og segir að frjálsar
íþróttir hafi alltaf borið hátt í
starfsemi ungmennafélaga og sé
að flestra dómi hápunktur
Landsmóta UMFÍ. Hann nefnir
í greininni, að keppnisfólk
UMFI sé nýlega komið úr fræki-
legri för á Landsmót dönsku
ungmennafélaganna og staðið
sig þar með prýði og hafi unnið
til fjölda verðlauna.
Tónleikar
Tónleikar
Kórs Langholtskirkju
■ Kór Langholtskirkju er nú
að hefja vetrarstarf sitt. Fyrsta
verkefni starfsársins eru tón-
leikar, sem tengjast eins árs
vígsluafmæli Langholtskirkju,
en hún var vígð 16. sept. sl. ár.
Haldnir verða tvennir tón-
leikar og flutt verk af efnisskrá
kórsins á tónleikaferð hans um
Austurríki, Pýskaland og Ítalíu
í júní sl. Fyrri tónleikarnir verða
laugardaginn 14. sept. kl. 17.00
í Langhoitskirkju og þeir seinni
í Selfosskirkju sunnudaginn 15.
sept. kl. 17.00.
Ferðir
Útivistarferðir -
Helgarferðir 13.* 15. sept.
■ 1) Haustlitaferð í Þórsmörk
- Haustlitadýrðin er nú j mest-
um Ijóma. Góð gisting í Útivist-
arskálanum í Básum. Göngu-
ferðir við allra hæfi.
2) Prestahnúkur-Þórisdalur.
Skemmtilegt hálendissvæði við
Langjökul. Svefnpokagisting í
Brautartungu. Sundlaug.
Upplýsingar og farmiðar á
skrifstofunni Lækjargötu 6a
símar 14606 og 23732.
Útivistarferðir
Dagsferðir sunnud. 15. sept
■ 1) Kl. 08.00 Þórsmörk -
haustlitir. Gott tækifæri til að
kynnast haustlitadýrðinni.
2) Kl. 10.30 Norðurbrúnir
Esju. Skemmtilegar gönguleiðir
á Esju. Fararstjóri er Páll Ólafs-
son.
3) Kl. 13.00 Kræklingafjöru-
ferð í Hvalfjörð. Kræklingur
tíndur og steiktur á staðnum.
Hugað að fjörulífi. Létt ferð.
Fararstjóri Einar Egilsson o.fl.
Brottför frá bensínsölu BSÍ.
Farmiðar við bíl, en frítt er fyrir
börn með fullorðnum.
Sýning
Kvikmyndasýningar MÍR
hefjast að nýju
■ Fyrsta kvikmyndasýning
haustsins í húsakynnum MÍR
að Vatnsstíg 10 verður nk.
sunnudag, 15. sept. kl. 16.
Sýndar verða fræðsíu- og frétta-
myndir frá Sovétríkjunum, m.a.
um listiðkun í Eystrasaltslýð-
veldunum. Skýringar á íslensku
flytur Sergei Halipov dósent í
Leningrad.
Kvikmyndasýningar verða
reglulegar hvern sunnudag kl.
16 að Vatnsstíg 10. Aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
Félagsstarf MÍR
að loknu sumarleyfi
■ Félagsstarf MÍR, Menning-
artengsla íslands og Ráðstjórn-
arríkjanna, er nú að hefjast að
nýju að Vatnsstíg 10 að loknu
sumarleyfi. Kvikmyndasýning-
ar verða framvegis á hverjum
sunnudegi kl. 16.00, en fyrsta
sýningin verður sunnud. 15.
sept. Þá verða sýndar frétta- og
fræðslumyndir frá Sovétríkjun-
um, m.a. mynd um list og
listiðkun í Eystrasaltslýðveld-
unum. Skýringar á íslensku flyt-
ur Sergei Halipow, dósent í
Leningrad.
Námskeið MÍR í rússnesku
hefjast einnig eftir helgina, en
fimmtudaginn 12. sept. kl. 20.30
verður kynningarfundur um
kennsluna að Vatnsstíg 10.
Stjórnandi og aðalkennari verð-
ur eins og í fyrra Boris Migúnov
frá Moskvu.
„Opið hús“ verður að Vatns-
stíg 10 í vetur með líku sniði og
sl. vetur, og efnt verður til
myndakvölds með þátttakend-
um í hópferð MÍR 1985 í okt-
óber, en 64 MÍ R-félagar ferðuð-
ust í júií og ágúst um Síberíu og
austustu héruð Sovétríkjanna,
sem og lönd í Mið-Asíu og við
Svartahaf.
(Fréttatilkynning frá MÍR)
Helstu vextir banka og sparisjóða
(Allir vextir merktir X eru breyttir frá síðustu skrá og gilda frá og með dagsetningu þessarar skrár)
I. Vextir ákveðnir af Seðlabanka sem gilda fyrir allar innlánsstofnanir:
Dagsetning síðustu breytingar: 1/9 1985
Sparisjóðsbækur 22.0
Afurða- og rekstrarlán v/ framleiðslu fyrir innlendan markað 26.25
Afurðalán, tengd SDR 9.75
Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, allt að 2,5 ár 4.0
Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, minnst 2,5 ár 5.0
Óverðtryggð skuldabréf, útgefin fyrir 11/8 1984 32.0 (þ.a. grunnvextir 9.0)
Dagvextir vanskila, ársvextir 45.0
Vanskilavextir (dráttarvextir) á mánuði, fyrir hvern byrjaðan mánuð 3.75
II Aðrir vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóðum að fengnu samþykki Seðlabanka:
Dagsetning Lands- banki Útvegs- banki Búnaðar- banki Iðnaðar- banki Verzl- banki Samvinnu- banki Alþýðu- banki Spari- sióðir
Síðustu breyt. 1/9 21/7 1/9 1/9 21/7 11/8 1/9 1/9
Innlánsvextir: Óbundiðsparifé 7-34.0 22.-34.6 ?34.0 22.-31.0 22.-31.6 27.-33.0 3.0’>
Hlaupareikningar 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Ávísanareikn. 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 17.0 10.0
Uppsagnarr. 3mán, 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 25.0 25.0
Uppsagnarr. 6mán. 29.0 28.0 28.0 31.0 30.0 30.0 28.02)
Uppsagnarr. 12mán. 31.0 32.0 32.0
Uppsagnar. 18mán. 36.0
Safnreikn.5.mán. 23.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0
Safnreikn. 6. mán. 23.0 29.0 26.0 28.0
Innlánsskírteini. 28.0 28.0
Verðtr. reikn.3mán. 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 1.5 1.0
Verðtr. reikn.6mán. 3.0 3.0 3.5 3.5 3.5 317 3.5 3.0
Stjörnureikn I, og III Sérstakar verðb. á mán 1.83 1.83 2.0 2.0 2.0 2.0 8-9.0 2.0 1.83
Innlendir gjaldeyrisr.
Bandaríkjadollar 7.5 7.5 7.5 8.0 7.0 7.5 8.0 8.0
Sterlingspund 11.5 11.0 11.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5
V-þýsk mörk 4.5 4.5 4.5 5.0 4.0 4.5 4.5 5.0
Danskar krónur 9.0 9.0 8.75 8.0 10.0 9£l 9.5 9.0
Útlánsvextir:
Víxlar (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
Viðsk. víxlar (forvextir) 32.5 ...3) 32.5 ...3) 3) ...3) 32.0 31,03)
Hlaupareikningar 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
Þ.a. grunnvextir 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0
Almenn skuldabréf 32.04> 32.04) 32.04) 32.04) 32.0 32.04) 32.0 32.04)
Þ.a.grunnvextir 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0
Viðskiptaskuldabréf 33.5 ...3) 33.5 ...3) ...3) ...3) 33.53)
. 1) Trompreikn. sparisj. er verðtryggður og ber 3.0% grunnvexti. 2) Sp. Hafnarfjarðar er með 32.0% vexti. 3)
Útvegs-, Iðnaðar-, Verzlunar- og Samvinnubanka, Sp. Hafnarfj., Kópavogs, Reykjavíkur og í Keflavík eru
viðsk.víxlar og skuldabréf keypt m.v. ákveðið kaupgengi. 4) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilaláns er
2% á ári og á það einnig við um verðtryggð skuldabréf.
Heilsugæsla
Apótek
Kvöld, nætur og helgidagavarsla
apóteka I Reykjavík vikuna 6.-12.
sept. er I Lyfjabúðinni löunni. Einnig
er Garðs apótek opið til kl. 22 öll kvöld
vikunnar nema sunnudagskvöld.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apó-
tek og Norðurbæjar apótek eru
opin á virkum dögum frá kl. 9 til kl.
19 og á laugardögum frá kl. 10 til
14.
Apótekin eru opin til skiptis ann-
an hvern sunnudag frá kl. 11-15.
Akureyri: Akureyrar apótek og
Stjörnu apótek eru opin virka daga
á opnunartíma búða. Apótekin
skiptast á sína vikuna hvort að
sinna kvöld-, nætur og helgidaga-
vörslu. Á kvöldin er opið í því
apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19. Á helgidögum er opið frá
kl. 11 -12, og 20-21. Á öðrum tímum
er lyfjafræðingur á bakvakt. Upp-
lýsingar.eru gefnar í síma 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka
daga kl. 9-19. Laugardaga, helgi-
daga og almenna fridaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið
virka daga frá kl. 8-18. Lokaö I
hádeginu milli kl. 12.30 og 14.
Læknavakt
Læknastofur eru lokaðar á laugar-
dögum og helgidögum, en hægt er
að ná sambandi við lækna á
Göngudeild Landspítalans alla
virka daga kl. 20 til kl. 21 og á
laugardögum frá kl. 14 til kl. 16.
Simi 29000. Göngudeild er lokuð á
helgidögum. Borgarspítalinn:
Vakt frá kl. 08-17 alla virka daga
fyrir fólk sem ekki hefur heimilis-
lækni eða nær ekki til hans (sími
81200) en slysa- og sjúkravakt
(Slysadeild) sinnir slösuðum og
skyndiveikum allan sólarhringinn
(sími 81200). Eftir kl. 17 virka daga
til klukkan 8 að morgni og frá
klukkan 17 á föstudögum til klukkan
8 árd. Á mánudögum er læknavakt
í síma 21230. Nánari upplýsingar
um lyfjabúðir og læknaþjónustu
eru gefnar í símsvara 18888
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna
gegn mænusótt fara fram í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur á
þriðjudögum kl. 16.30-17.30. Fólk
hafi með sér ónæmisskírteini.
Neyðarvakt Tannlæknafélags ís-
lands er í Heilsuverndarstöðinni á
laugardögum og helgidögum kl. 10
til kl. 11 f.h.
Sálræn vandamál
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf í sál-
fræðilegum efnum. Sími 687075.
Miðvikudagur 11. september 1985 20
Ráðstefna
Kvennaráðstefnan FORUM
’85 kynnt í máli og myndum
■ Fimmtudaginn 12. sept. kl.
20.30 að Litlubrekku, verður
Hólmfríður Garðarsdóttir með
frásögn og litskyggnur frá at-
burðum og umræðum sem fóru
fram á Forum ’85, kvennaráð-
stefnu félagssamtaka í Nairobi.
Konur eru eindregið hvattar
til að nýta þetta eina tækifæri til
að sjá og heyra frá Forum ’85,
en Hólmfríður var eini íslend-
ingurinn sem sat þessa ráð-
stefnu.
(Fréttatilkynning frá Kvenna-
listanum)
Fyrirlestur
Háskólafyrirlestur:
„Erfðir og greind“
Miðvikudaginn 11. sept-
ember n.k. flytur H.J. Eysenck
fyrirlestur á vegum Félagsvís-
indadeildar Háskóla íslands
sem nefnist „Erfðir og greind’L
greind".
Fyrirlesturinn verður hald-
inn í stofu 101, Odda og hefst
kl. 17.15.
H.J. Eysenck er prófessor í
sálfræði víð Lundúnaháskóla'
og er meðal þekktustu núlif-
andi sálfræðinga.
Fyrirlesturinn verður fluttur
á ensku og er öllum opinn.
Félagsvísindadeild Háskóla
íslands.
Háskólafyrirlestur:
„Aristóteles
og Snorri“
■ Halvard Mageröy,
prófessor í íslensku við háskól-
ann í Osló, flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands fimmtu-
daginn 12. september kl. 17.15
í stofu 423 á Árnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist „Arist-
óteles og Snorri" og verður
fluttur á íslensku.
Öllum er heimill aðgangur.
Málþing
í Lögbergi HÍ:
Er hugmyndafræði nauðsynleg?
■ Ofangreind spurning verður
umræðuefni málþings, sem
haldið verður á Lögbergi í HÍ,
stofu 101, í dag, miðvikudaginn
11. sept. kl. 20.00. Skipuleggj-
endur málþingsins eru Samtök
prátista.
Frummælendur verða: Pétur
Gunnarsson rith. Jóhanna Mar-
ía Lárusdóttir kennari, Ævar
Kjartansson útvarpsmaður og
Guttormur Sigurðsson. Sérstak-
ur gestur er AC. Mahaprajinan-
ada frá Bandaríkjunum. Hann
mun flytja inngangserindi á
ensku og svara spurningum, en
annars er málþingið á íslensku.
Fundarstjóri verður doktor
Sigurður Grétarsson. Öllum er
heimill aðgangur nieðan hús-
rúm leyfir.
Samtök prátista
Brúðkaup
■ Guðveig JónaHilmarsdótt-
ir og Stefán Örn Ástvaldsson.
■ Þann 17. ágúst sl. voru gefin
saman í hjónaband í Bústaðar-
kirkju af sr. Sólveigu Láru
Guðmundsdóttur, Guðveig
Jfóna Hilmarsdóttir og Stefán
Örn Ástvaldsson. Heimili
þeirra er að Ásenda 10, Reykja-
vík.
(Mynd: Ljósmyndastofa
Reykjavíkur Hverfisgötu 105)
■ Jóhanna S. Ingimarsdóttir
og Marinó Birgisson
■ Þann 10. ágúst sl. voru gefin
saman í hjónaband í Neskirkju
af sr. Guðmundi Óskari Ólafs-
syni, Jóhanna S. Ingimarsdóttir
og Marinó Birgisson. Heimili
þeirra er að Hamraborg 22
(Mynd: Ljósmyndastofa
Reykjavíkur Hverfisgötu 105)
Námsstefna
Námstefna um:
Starfsmenntun í f iskiðnaði
og tvífrystingu sjávarafla
■ Fiskiðn, fagfélag fiskiðnað-
arins, mun halda námstefnu um
starfsmenntun í fiskiðnaði og
tvífrystingu sjávarafla þann 21.
sept. (laugardag) nk. Námstefn-
an verður í veitingahúsinu Ris-
inu að Hverfisgötu 105 í Reykja-
vík, við hliðina á lögreglustöð-
inni. Hún verður sett kl. 10.00
og stendur til kl. 16.00 og er
öllum opin.
Fiskiðn vonast til að sem
flestir sjái sér fært að mæta. Það
er líka vonast til að atvinnurek-
endur geti stutt starfsmenn sína
í að mæta með þátttöku í
greiðslu farar- og aðgangseyris
þeirra.
Gengisskráning nr. 170-10. september 1985
Kaup Sala
Bandaríkjadollar.......................42,450 42,570
Sterlingspund...........................55,355 55,511
Kanadadollar............................30,950 31,038
Dönsk króna............................ 3,9805 3,9917
Norsk króna............................ 4,9507 4,9647
Sænsk króna............................ 4,9260 4,9399
Finnskt mark........................... 6,8440 6,8634
Franskur franki........................ 4,7311 4,7445
Belgískur franki BEC................... 0,7142 0,7162
Svissneskur franki......................17,4835 17,5325
Hollensk gyllini........................12,8395 12,8758
Vestur-þýskt mark.......................14,4253 14,4661
itölsk líra............................ 0,02167 0,02173
Austurrískur sch....................... 2,0533 2,0591
Portúg. escudo......................... 0,2447 0,2454
Spánskur peseti........................ 0,2453 0,2460
Japanskt yen........................... 0,17473 0,17522
írsktpund...............................44,855 44,982
SDR (Sérstök dráttarréttindi) 09/09 ...42,7001 42,8215
Belgískur franki BEL................... 0,7088 0,7108
Simsvari vegna gengisskráningar 22190