Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 13

Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 13
ára, kom pabbi hans með smáskífu með hljómsveitinni Buzzcocks með sér heim til Íslands. „Þegar ég hlustaði á Spiral Scratch fann ég loks eitthvað sem ég kunni að meta og þegar ég fór svo út sumarið 1977 leitaði ég uppi pönkara og pönktónlist.“ EINAR ÖRN Í KULDA OG TREKKI Tónlistaráhuginn jókst jafnt og þétt úr þessu og þegar Einar Örn fór í Menntaskólann við Hamrahlíð 1978 var tónlistin orðin hans aðaláhugamál. „Ég fór að lesa mér til um tónlist, keypti [bresku tónlistarvikuritin] Sounds, Melody Maker, ZigZag og New Musical Express, fór í hverri viku að sækja blaðapakkann minn og las allt sem ég komst yfir, viðtöl og plötudóma, tónleika- gagnrýni og tónleikadagskrá. Mikið af tónlistinni hafði ég heyrt þó hún væri ekki fáanleg hér á landi þar sem ég fór reglulega til London og notaði þá tækifærið til að kaupa plötur. Pabbi sendi mér líka plötur eða kom með bunka með sér þegar hann var að koma heim. Ég fór líka að hanga niðri í Karnabæ, hjá Gulla Fúsa, og inni á lager hjá Steinum hf. þar sem ég komst í prufuplötur sem ég fékk að hlusta á og sumt að kaupa. Ég hafði því ágætan aðgang að tónlist og það var alls ekki bara pönk.“ Lítið var um nýja tónlist í Gufunni, Ríkisútvarpinu, á þeim tíma, en Einar Örn átti ráð við því, fékk lánaðan Sunbeam-bíl móður sinnar á kvöldin og ók upp í Hlíðar þar sem hann náði BBC World Service og gat hlustað á John Peel. „Þar sat ég í bílnum á kvöldin, oft í skítakulda, hlustaði á John Peel og heyrði þar í Fall, AuPairs og fleiri breskum hljómsveitum sem voru að gera spennandi hluti.“ EINAR ÖRN PÖNKARI Pönkið var ekki bara tónlist, það var líka fatatíska og Ein- ar Örn segir fötin líka hafa skipt máli. Það seldu engar búðir pönkaraföt, menn þurftu að bjarga sér sjálfir og Einar Örn fór til að mynda í Andersen og Lauth á Vest- urgötunni, Andlát eins og hann kallar það, keypti þar buxur og skyrtur sem voru svo komnar úr tísku að þær voru pönkaðar í sniðinu. Síðan gekk hann í gatslitinni grænni peysu af föður sínum, „leikstjórapeysu“ segir hann, raðaði öryggisnælum í jakkann og bjó sér til grifflur; klæddi sig upp í pönkgallann, en þess má geta til gamans að í rokksögunni hans Gunnars Lárusar Hjálmarssonar sem kom út fyrir tveimur árum segir hann að Einar Örn hafi verið fyrsti „alvöru“ pönkarinn í Reykjavík. „Þetta gaf mér meðvitund um mig og umhverfi mitt, þessi DIY-stefna, gerðu það sjálfur. Maður varð að búa hlutina til sjálfur og mér fannst það gaman að þegar ég hitti þessar gömlu stjörnur sem ég hélt svo mikið upp á löngu síðar, fólk eins og Siouxsie and the Banshees, komst ég að því að ég hafði rétt fyrir mér, þau urðu líka að gera hlutina sjálf, vildu gera hlutina sjálf.“ EINAR ÖRN MH-INGUR Þegar vinirnir úr Hagaskólanum fóru í menntaskóla var Einar Örn sá eini sem fór í MH, flestir fóru í Menntaskólann í Reykjavík, en þeir Friðrik og Bragi í Verzlunarskólann. Friðrik hætti þar reyndar snemma og fór í Myndlista- og handíðaskólann, en Bragi kom í MH þegar hann var kominn með verslunarpróf. Þeir voru þá báðir í hljómsveitinni Bakkusi í Hagaskóla með fleiri fé- lögum sínum og Einars Arnar en hann hafði aldrei áhuga á að vera í hljómsveit þrátt fyrir mikinn áhuga á tónlist. „Ég lét mér nægja að hlusta og spilaði stundum plötur á nýbylgjukvöldum, ég kunni ekki á neitt hljóðfæri og ekki var ég nú neitt viss um að ég gæti sungið. Eiginlega handviss að frá mér kæmi allt annað en söngur. Því var bara betra að fylgjast með“ segir hann og bætir við að eina eiginlega tónlistaruppeldið sem hann bjó að hafi verið tónlistartímarnir hjá Magnúsi Péturssyni í Melaskóla. Hann var þó ekki alveg laus við áhuga á að spila pönk því síðar í spjalli okkar rifjast upp fyr- ir honum að hann hafi tekið inntökupróf í Fræbbblana sem bassaleikari en fallið á því prófi, sem segir kannski sitt um kunnáttuna. „Mér finnst það eiginlega niðrandi fyrir tónlistarmenn að kalla mig tónlistarmann, sumir tónlistarmenn gætu orðið reiðir yfir því að vera settir á sama bekk og ég,“ segir hann og kímir. Fyrir áhuga sinn á pönki og tónlist almennt þekkti Einar Örn vel til þess sem var að gerast í íslenskri tónlist á þeim tíma, pönkbyltingunni sem var að hefjast. Hann hafði til að mynda hjálpað Fræbbblunum við að koma út plötunni sinni False Death í gegnum kunningja í Sheffield í upphafi árs 1980 og kom síðan að því að fá Clash hingað til lands það sumar. EINAR ÖRN UMBOÐSMAÐUR Haustið 1980, þegar Einar Örn var sautján ára, hringdi Danny Pollock, einn Utangarðsmanna, og spurði hann hvort hann væri ekki til í að vera umboðsmaður hljómsveitarinnar sem var þá að hefja sinn frægðarferil. Þó Einar Örn hafi í sjálfu sér ekki átt mikið sameiginlegt með þeim Utangarðsmönnum, þeir nokkru eldri en hann og að leika öðruvísi tónlist en hann hélt upp á, ekki eig- inlegt pönk, kunni hann samt vel að meta þá eftir að hafa séð þá spila í Tjarnarbíói snemma árs 1980 og heyrði þar gítarhljóm sem hann kunni vel að meta. „Þessi út- lenski gítarhljómur Pollock-bræðra, þessi stilling á gíturum, opni e eða opni g,“ segir Einar og talar eins og tónlistarmaður. „Þetta hafði ég aldrei heyrt á Íslandi, þarna var eitthvað sem ég fílaði, hart, gott rokk.“ Þetta var í maí eða júní, árið sem Ísbjarn- arblúsinn og fyrsta Utangarðsmannaplatan komu út. Einar segir að þetta hafi verið mikil en skemmtileg vinna. Hann var í skólanum og notaði tíkallasímann niðri í matsal til að hringja út um allt að bóka hljómsveitina og skipulagði svo tónleikaferðirnar heima eftir skóla. „Utangarðsmenn voru tónleika- sveit sem spilaði yfirleitt ekki á böllum en ef þeir tóku böll þá spiluðu þeir tón- leikaprógrammið tvisvar eða þrisvar sinnum, þannig að þetta var líka rosalegt púl fyr- ir þá. Þeir voru rosalega fínir og það var ekki fyrr en undir það síðasta hér heima sem mér fannst þeir missa sjónar á sjálfum sér, fóru að haga sér eins og kjánar. Svo fórum við til Ósló og þar var legið í reykskýi en þá var mín saga með Utangarðsmönnum eig- inlega búin.“ Þó Einar Örn hafi verið að vinna með Utangarðsmönnum, eða réttara sagt fyrir þá, eins og hann leggur áherslu á, hafði hann ekki eytt tíma með þeim félögum utan vinn- unnar, hann átti sína vini áfram. „Utangarðsmenn voru líka allir eldri en ég, ég komst þannig ekki inn á fyrsta giggið sem ég bókaði fyrir þá á Hótel Borg, var of ungur, og því var ákveðin fjarlægð á milli okkar sem hentaði mjög vel að vissu leyti.“ EINAR ÖRN PURRKUR Meðal vina Einars Arnar á þessum tíma voru enn þeir Friðrik og Bragi en einnig Ásgeir Bragason og snemma árs 1981, áttunda mars nánar tiltekið, stofnuðu þeir hljómsveit saman, fengu lánaðar græjur hjá Utangarðsmönn- um, sömdu níu lög á fyrstu æfingunni og spiluðu þau næsta kvöld. Einar Örn segir að hann hafi aldrei ætlað sér að verða söngvari í hljómsveit. „Þeir réttu mér bara míkró- fóninn og sögðu nú átt þú. Upphaflega ætluðum við að vera með skemmtiatriði, uppákomu, og ég átti að spila á hávaðapedala, sem ég fékk lánaðan hjá Danny Poll- ock, þetta átti aldrei að vera nein popptónlist.“ Ásgeir var þekktur sem bassaleikari en hafði aldrei snert á trommukjuðum opinberlega, en þeir Friðrik og Bragi voru á réttum hljóðfærum. „Hjá þeim Frikka, Braga og Ásgeiri var aldrei spurning um hvort þetta væri í lagi hjá mér, þeir sögðu alltaf haltu áfram, haltu áfram, svo ég hélt bara áfram.“ Þremur vikum eftir fyrstu tónleikana, 1. apríl, fóru Purrkar í hljóðver með Danny Pollock og tóku upp tónleikaprógrammið, tíu lög á níu tímum, sem gefin voru út á 7" tilf einum mánuði og fjórum dögum síðar. Þannig var saga Purrksins í hnotskurn, allt unnið hratt og örugglega sem skýrir að nokkru hve mikið liggur eftir hljómsveitina; þó hún hafi aðeins starfað í hálft annað ár sendi hún frá sér tvær smáskífur, eina stóra plötu, eina tvöfalda plötu og tónleikaplötu, tilf og No Time to Think, Ekki enn, Googooplex og Maskínuna. EINAR ÖRN ÚTGEFANDI Þegar Einar Örn var að pæla sem mest í pönkinu, um það leyti sem það var að berast hingað til lands, kynntist hann þeim Guðna Rúnari Agn- arssyni og Ásmundi Jónssyni sem unnu í plötubúðinni Fálkanum á Laugavegi. Þar fékk hann að hlusta á plötur sem þeim bárust, fékk þær jafnvel lánaðar heim, og hann leyfði þeim að heyra það sem hann var að fá að utan eða kaupa í Bretlandsferðum sínum. Ás- mundur og Guðni voru þá með útvarpsþáttinn Áfanga þar sem þeir kynntu nýja tónlist. Plöturnar hans Einars Arnar áttu eftir að vera áberandi í Áföngum og Ásmundur lét þau orð falla eitt sinn að pönkstraumarnir sem Einar Örn bar með sér hafi gerbreytt þættinum sem hafði aftur talsverð áhrif á tónlistarsmekk manna á þeim tíma, enda eini staðurinn þar sem hægt var að heyra nýja tónlist reglulega. Eftir fyrstu tónleika Purrksins langaði þá félaga að gefa tónlistina út, enda í anda pönksins að gera hlutina sjálfir, að bíða ekki eftir því að aðrir gerðu þá fyrir mann, minnumst þess að mottó hljómsveitarinnar var: þetta er ekki spurning um hvað mað- ur getur heldur hvað maður gerir. Það lá beinast við að leita til Ásmundar sem vann hjá hljómplötufyrirtæki og -verslun, en svo fór að Grammið var stofnað af Ásmundi Jónssyni, Dóru Jónsdóttur, Birni Valdimarssyni og Einari Erni til að gefa plötuna út. Grammið varð síðar plötubúð í kjallaranum Hjá Báru þar sem hægt var að fá nýjustu tónlistina frá Bretlandi. EINAR ÖRN Í SÚPERGRÚPPU Eins og getið er lifði Purkkur Pillnikk í hálft ann- að ár, síðustu tónleikarnir voru á Melarokki í lok ágúst 1982. Þeir félagar voru í ýms- um hljómsveitum eftir það, öllum skammlífum. EINAR ÖRN EFTIR TÓNLEIKA Í TATE-LISTASAFN- INU Í LUNDÚNUM. HVER ER EINAR ÖRN? 14.12.2003 | 13

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.