Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 20
20 | 14.12.2003
Öll þrjú lyfin má alls ekki taka með „sprengilyfjum“, hvorki þeim skammvirku
eins og Nitromex- og Glytrin-úða né langvirkum nítrötum eins og Sorbangil eða Imd-
ur (samheitalyf Ismo og Mónít-L) og forðaplástrinum Diskotrine.
Lyflæknar á ráðstefnunni lögðu mikla áherslu á að útiloka bæri hjartasjúkdóm hjá
þeim sem kvörtuðu yfir ristruflunum. Álíka stórar æðar ættu hlut að máli í getn-
aðarlim og í kransæðum. Þannig getur sjúklingur, sem finnur fyrir ristruflun, fengið
hjartadrep tveimur til þremur árum
síðar.“
Sigurður benti jafnframt á að hár
blóðþrýstingur og sykursýki gætu einn-
ig orsakað ristruflun, sem gæti verið
fyrsta einkenni sjúkdómsins. Hollt fæði
og regluleg hreyfing reynist stuðla gegn
getuleysi alveg eins og gegn hjartasjúk-
dómum. Hjartasjúkdómur þyrfti hins
vegar ekki að útiloka notkun rislyfja,
nema fyrrgreinda takmörkun á notkun
nitrat-lyfja.
„Blóðrásartruflanir eru helsta
ástæða dvínandi getu,“ sagði Sigurður
ennfremur.
„Risið getur þó einnig truflast vegna
ýmissa annarra ástæðna. Bólgur og
verkir í kynfærum, eins og við þráláta
bólgu í blöðruhálskirtli, draga einnig
verulega úr getu, að minnsta kosti
tímabundið meðan verkir eru verulegir
og staðbundin óþægindi. Blöðruháls-
kirtilsstækkun og þvagteppa sem henni
tilheyrir er einnig óhagstæð fyrir risið.
Lágt testósterón veldur lakari stinn-
ingu, en dregur þó ekki síður úr kyn-
hvöt.“
Sigurður sagði að skoðanir manna á
ráðstefnunni hefðu verið mjög skiptar
varðandi umfang hormónameðferðar
og hvar draga ætti mörkin.
Hormónaframleiðsla karla minnkar
nokkuð með aldri, en aðallega vegna
sjúkdóma, sem verða tíðari með aldr-
inum. Hjá þeim einstaklingum getur
testósterónið fallið talsvert, tímabundið
eða varanlega. „Karlkyns tíðahvörf eru
hins vegar ekki til,“ sagði Sigurður
varðandi þetta atriði. „Karlar geta
haldið áfram að framleiða sæði til ævi-
loka. Við tíðahvörf hætta hins vegar
eggjastokkar kvenna framleiðslu eggja
og þá hættir hormónaframleiðsla
þeirra líka. Dálítið estrógen er þó fram-
leitt í nýrnahettum og í fituvef.
Offita, sykursýki, hreyfingarleysi,
hjartasjúkdómar og sjúkdómar í
blöðruhálskirli geta dregið úr magni
testósteróns. Mjög mikill munur getur
verið milli einstaklinga varðandi test-
ósteróngildi. Áttræður karl getur verið
með mun hærra magn en annar maður
á besta aldri. Félagslegir þættir eins og
streita og vinnuálag geta leitt til lægra
testósteróns hjá viðkomandi. Samlífs-
vandi í hjónabandi getur einnig haft
neikvæð áhrif og þannig mætti lengi
telja.“
Á ráðstefnunni var rætt um að ofát
og hreyfingarleysi væri vandamál í vestrænum löndum og hefði neikvæð áhrif á
heilsufar fólks. „Í stað þess að menn taki sig varanlega á og breyti lífsháttum til hins
betra stunda þeir megrunarkúra, sem oft eru fitandi þegar til lengri tíma litið,“ sagði
Sigurður og bætti því við að af nógu væri enn að taka í þessum efnum. Hann kvaðst
vona að allur almenningur kynnti sér þessi mál. „Þrátt fyrir framfarir í lyfjameðferð
sannast enn og aftur að hollir lífshættir skila sér í bættri heilsu.“
lífi. Aðrir sjúkdómar eins og nýrnaveiki eða lifrarsjúkdómur geta orsakað vanda,
einkum ef þessi líffæri fara að gefa sig.
Framangreindar upplýsingar koma meðal annars fram í bæklingi sem liggur
frammi á heilsugæslustöðvum og ber heitið Leiðbeiningar til karlmanna um vel-
gengni í kynlífinu. Þar segir ennfremur að meira en helmingur allra manna, sem
komnir eru yfir fertugt, hafi átt í erfiðleikum með að ná og viðhalda stinningu. Á Ís-
landi er talið að meira en 20 þúsund
menn kunni að eiga við þennan vanda
að stríða. Meðal þess sem getur orsak-
að erfiðleika við stinningu má nefna
hækkandi aldur, veikindi, slys, reyk-
ingar, uppskurði, áfengi og lyf.
Njóttu lífsins er samheiti á bækling-
um sem gefnir hafa verið út til að leið-
beina karlmönnum með risvandamál
vegna sjúkdóma. Í einum þeirra, sem
sérstaklega höfðar til karla á aldrinum
40 ára til 70 ára, segir að augljóst sam-
hengi sé á milli aldurs og stinningar-
vanda, en hann sé þó ekki eðlileg og
óumflýjanleg afleiðing þess að eldast.
Miklu fremur sé um að ræða afleið-
ingu sjúkdóma og aðstæðna sem fylgja
hækkandi aldri. „Hér er æðakölkun
mikilvægt atriði. Við æðakölkun
þrengjast æðar og verða ekki eins
teygjanlegar og áður. Því verður blóð-
streymið minna. Æðakölkun hefur
áhrif á allar æðar í líkamanum, líka
æðarnar í limnum. Minnkandi blóð-
streymi í lim hefur í för með sér vanda
við stinningu.“ Staðreyndin er hins
vegar sú að það má meðhöndla ris-
truflun hjá langflestum. Margar leiðir
til meðhöndlunar eru fyrir hendi og
því engin ástæða til að sætta sig bara
við að búa við þessi vandkvæði.
Rislyf
Á heimsráðstefnu um karlaheilsu er
vitaskuld óhjákvæmilegt að ræða
stinningarvandamál, enda var það gert
á ráðstefnunni í Vínarborg, ekki síst
með hliðsjón af þeim úrræðum sem
fyrir hendi eru.
„Á síðustu árum hafa komið mjög
virk lyf við ristruflunum,“ sagði Sig-
urður þegar þetta vandamál bar á
góma. „Fyrst á markaði var Viagra fyr-
ir um fimm árum. Nú hafa bæst á
markaðinn tvö ný lyf úr sama flokki.
Cialis skilst hægar úr líkamanum og
getur virkað í marga daga hjá þeim
sem eru með vægar ristruflanir, sem al-
gengar eru meðal miðaldra einstak-
linga. Ein 20 milligramma tafla dugar
þá flestum í hálfa eða heila viku. Hjón
eru þá ekki bundin við að skipuleggja
kynlíf sitt fyrirfram. Áhrifin koma að-
eins, ef kynferðisleg örvun verður, og
engin þörf er á því að taka töfluna
sama kvöld og fólk hefur samfarir.
Þetta hefur orðið til þess að Cialis nýt-
ur vaxandi vinsælda hjá körlum sem
eru að þreifa sig áfram með rislyf. Vi-
agra er hins vegar það lyf sem hefur mestu reynslu og rannsóknir að baki og er enn
langmest notað af þessum lyfjum eða um 9 töflur á sekúndu í heiminum. Þriðja lyfið
er einnig komið á markað sem heitir Levitra. Það er öllu sérhæfðara og mögulega ör-
litlu öflugra en hin tvö fyrrnefndu. Hentar þá helst sykursjúkum og eldri mönnum,
sem næstum þurfa að „rísa upp frá dauðum“, ef svo má að orði komast. Hefur sama
galla og Viagra að virka fremur stutt.
4 4 4 4 44
44
!
"
#
#$ . 1
,6!6 6 0 , .7
8"",
0 +9 .
4 !
"
#
$% &'&&
4 4 4 4 44
( )
* !
" +'
4
,
"%
#-#
&
&&&
;
<.
M ikilvægt er að þekkja ákveðin líkamleg einkenni og bregðast rétt viðþeim verði þau viðvarandi. Ýmis einkenni, svo sem hósti og þvag-tregða, benda ekki alltaf til alvarlegs sjúkdóms en geta þó verið ein-
kenni um krabbamein. Því er nauðsynlegt að bregðast rétt við einkennum því líkur
á lækningu eru meiri því fyrr sem krabbamein greinist.
Í upplýsingabæklingi Krabbameinsfélagsins, sem gefinn er út 1998 og ber heitið
Karlar og krabbamein, eru rakin nokkur einkenni og er þessum upplýsingum ætlað
að auðvelda mönnum að greina og þekkja algeng einkenni krabbameina og hvetja
þá til að bregðast við þeim á réttan hátt.
Í þessum átta einkennum er vísað til eftirfarandi krabbameina, en þess ber að
geta að tölur eru miðaðar við útgáfuár bæklingsins, 1998:
1. Krabbamein í munni og koki, en á Íslandi greindust 5 til 10 karlar með slík krabbamein ár-
ið 1998.
2. Lungnakrabbamein, árlega greindust um 50 karlar.
3. Krabbamein í meltingarvegi, árlega greindust krabbamein í meltingarvegi hjá 120–130 ís-
lenskum körlum árið 1998.
4. Krabbamein í þvagblöðru, 30 til 40 karlar greindust með slíkt krabbamein.
5. Blöðruhálskirtilskrabbamein, 120–130 greiningar 1998 (160 greiningar 2003).
6. Krabbamein í eistum, árið 1998 greindust um 10 karlar.
7. Sortuæxli og önnur krabbamein í húð. Árlega greindust 10 til 15 karlar með sortuæxli og
álíka margir með önnur krabbamein í húð.
8. Eitilfrumukrabbameini, árleg greining um 15 karlmenn.
Hefur þú orðið var við eitthvert þessara einkenna?
Ef svo er, leitaðu læknis sem fyrst.
1. Langvarandi óþægindi í munni og koki eða breyting á rödd (hæsi). 2. Þrálátur hósti. 3.
Óþægindi frá maga eða ristli. 4. Blóð í þvagi. 5. Erfiðleikar við þvaglát. 6. Hnútur í
eista/pung. 7. Einkennileg varta eða breyting á fæðingarbletti á líkamanum. 8. Hnútar
eða þykkildi á líkamanum.
ÁTTA EINKENNI
Krabbamein karla
KARLLÆGIR KRANKLEIKAR