Morgunblaðið - 14.12.2003, Qupperneq 41
Nú hefur hún borist hingað til lands, byltingin sem hrokkinhærðir hafa fagnað unnvörpum: Að-ferð til að slétta hár varanlega án þess að eyðileggja það. Þeir þremenningar og eigendur hár-greiðslustofunnar Rauðhettu og úlfsins, Magni Þorsteinsson, Kristján Kristjánsson og Ingvi
Þorsteinsson, hafa tileinkað sér þessa aðferð. Magni skellti sér til London í haust til að læra galdurinn
sem kenndur er við japönsku hárgreiðslukonuna Yuko Yamashita. „Þessa japanska tækni sem kölluð er
Yuko System hefur verið notuð í nokkur ár erlendis en ég verð samt að játa að ég hafði miklar efasemdir
um þetta þegar ég fór út, því þetta er eitt af því sem á eiginlega ekki að vera hægt að gera án þess að
skemma hárið. En ég komst að því að þetta virkar og nú getum við boðið viðskiptavinum okkar upp á
þessa þjónustu,“ segir Magni hinn kátasti. En það er heilmikið sem hrokkinhærðir þurfa að leggja á sig
til að verða slétthærðir með Yuko System, því meðferðin tekur heilar sex klukkustundir og kostar sitt.
Auk þess þarf að toga mikið í hárið á meðan á þessu stendur og fara með mjög heitt sléttujárn alveg upp
að hársverðinum sem getur verið svolítið óþægilegt. „Járnið er hitað í hundrað og áttatíu gráður á Cels-
íus og sléttunin er mikið vandaverk og það þarf að passa vel
að ekki eitt einasta hár verði útundan. Hárið er brotið niður
með sérstökum efnum en það er byggt upp aftur með öðrum
efnum sem gera það silkimjúkt og háglansandi. En árangur
erfiðisins er mikill því hárið helst slétt í nokkra mánuði og
ekki þarf að fara aftur fyrr en hárið hefur vaxið svo mikið að
slétta þarf rótina.“ Magni leggur áherslu á að þetta sé ekki
eingöngu fyrir fólk með krullað hár, heldur ekki síður fyrir
þá sem eru með „loðið“ hár eða stíft og óviðráðanlegt.
Fræga fólkið í Hollywood hefur óspart notfært sér Yuko
System-aðferðina til að láta slétta á sér hárið og má þar nefna
Jennifer Aniston, Gwyneth Paltrow, Juliu Roberts, Söruh
Jessicu Parker og Julianne Moore. Einnig hafa hin snarkrull-
hærða Chelsea Clinton sem og íslenska söngkonan Björk
gerst svo frægar að prófa hina japönsku hársléttunaraðferð.
khk@mbl.isAð sex tímum liðnum er Margrét orðin rennislétthærð og alsæl.
KRULLURNAR BURT MEÐ
JAPANSKRI AÐFERÐ
Margrét M. Ró-
bertsdóttir fyrir
sléttun með liðað
hárið sem hún
var orðin leið á.
L
jó
sm
yn
di
r:
G
ol
li
Kristján og Magni
einbeittir við hina
vandasömu hár-
sléttun.
HÁRTÍSKA