Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 6
6 | 1.2.2004 Skapar fegurðin kvikmyndastjörnuna? Kannski ekki einog sér, en kvenkyns kvikmyndastjarna getur þó allsekki án hennar verið. Leikkonur, sama hversu góðar þær eru, geta gleymt því að stíga skrefið frá leikkonu yfir í Hollywood-stjörnu nema að þær líti glæsilega út (eða séu alla- vega þannig af guði gerðar að þær eigi möguleika á því með rækilegri yfirhalningu). Eldri leikkonur í Hollywood segja að kröfurnar um óaðfinnanlegt útlit séu alltaf að aukast og að nú þurfi ungar leikkonur að a) hafa hæfileika og b) líta út eins og ofurfyrirsætur, enda geti bransinn leyft sér að gera kröfur um hvort tveggja þegar þúsundir ungra leikkvenna sækjast eftir hverju bitastæðu hlutverki. Leikkonan Rosanne Arquette gerði nýlega heimildamynd sem fjallar um útlitskröfur og æskudýrkun í Hollywood. Myndin heitir ,,Leitin að Debru Winger“ og vakti mikla athygli þegar hún var sýnd í bandarísku sjónvarpi. Þar koma fram leik- konur á öllum aldri og ræða hreinskilnislega um starfsaðstæður sínar og hvað breytist þegar þær eldast. Fram kemur að meiri- hluti karla sem leika í kvikmyndum eru eldri en 35 ára, en að- eins 8% kvenna (samkvæmt þessu virðast keppnisíþróttakon- ur eiga von á lengri starfsævi en kvikmyndaleikkonur). Einnig kemur fram að í 250 stærstu kvikmyndunum sem framleiddar voru í Hollywood árið 2001 voru aðeins 25% sögupersóna konur, konur skrifuðu 10% af handritunum og aðeins 6% var leikstýrt af konum. Leikkonurnar sem koma fram í heimilda- mynd Arquette eru sammála um að Hollywood sé frumskógur fyrir leikkonur og vilja sumar meina að það hafi með þroska þeirra sem stjórna stóru myndverunum að gera. Hin 33 ára gamla leikkona Samantha Mathis vill meina að um sé að ræða ,,hefnd busanna“, það er að segja að forstjórarnir séu fyrrverandi nördar sem fengu enga at- hygli frá stelpum í menntaskóla en voru þeim mun duglegri að læra, hafi því komist í góðar stöður og fái nú kikk út úr því að láta fallegustu stelpur heimsins keppast um að vinna hjá sér. Einnig hafi þessir biss- nessmenn meiri áhuga á því að höfða til stærsta markhópsins, unglingsstráka, en að gera metnaðarfullar myndir. Þess vegna þurfi ,,eldri“ leikkonur í síauknum mæli að snúa sér að leikhús- unum og smærri kvikmyndum sem gerðar eru af sjálfstæðum framleiðendum, eða til Evrópu. ,,Í Frakklandi, Bretlandi og í allri Evrópu þykir reisn yfir því að eldast,“ segir hin breska Tra- cey Ullman og bandarískar starfssystur hennar taka undir þess- ar áhyggjur af útlitstengdri æskudýrkun landa sinna. Francis McDormand segist hafa sín plön varðandi fegrunaraðgerðir – hún ætlar aldrei í slíka aðgerð. ,,Eftir tíu ár“, segir hún ,,verða sagðar sögur af 54 ára konum, en þá verða engar konur sem líta út fyrir að vera 54 ára,“ og bætir því við að þá verði staðan von- andi breytt þannig að hún fái öll hlutverkin. Þó virðist fátt benda til þess að útlitsdýrkunin í Hollywood sé í rénum. Meira að segja ,,ljótu konu“ hlutverkin eru frátekin fyrir fallegustu konur heims. Leikkonurnar eru þá ýmist settar í fitun og/eða gerðar ljótar með aðstoð færustu förðunarmeist- ara, en ná svo af sér aukakílóunum, taka af sér gervinefin, ból- urnar og örin, áður en þær þurfa að koma fram fyrir hönd myndveranna og sinna hlutverki sínu sem kvikmyndastjörnur; það er að segja að sitja fyrir á forsíðu Vogue, veifa til áhorfenda af rauða dreglinum og helst verða valin sú best klædda á Ósk- arnum. Þannig hefur líkamleg fegurð kvikmyndastjörnunnar öðlast gildi í sjálfu sér, sem nær út fyrir sjálfa kvikmyndina og hvernig stjarnan kemur fyrir sjónir þar. Fólki nægir að vita að það sé að horfa á fallega manneskju, það þarf ekki að sjá fegurð hennar. Því má segja að fegurð þessara leikkvenna sé komin á guðlegan stall. Enda gjarnan sagt að fegurðardýrkun sé trúar- brögð nútímans… bab@mbl.is Fegurð stjarnanna Birna Anna Meira að segja ,,ljótu konu“ hlut- verkin eru frátek- in fyrir fallegustu konur heims. S tefán Ingi Stefánsson er fæddur 1976 í Bergen í Noregi þar sem for- eldrar hans voru við nám. Árið 1980 flutti hann í Hlíðarnar sem hafa ekki yf- irgefið hann síðan. Stefán gekk í Hlíðar- skóla, þá í Menntaskólann við Hamrahlíð og háskólanám hans fór einnig fram í Hlíð- unum. „Ég var í sjúkraþjálfun í Háskóla Ís- lands, en hún var kennd í Skógarhlíð,“ segir hann og að nú sé hann að vinna í Skaftahlíð. Ferðalög hafa alltaf heillað Stefán og áð- ur en hann lauk stúdentsprófi var hann skiptinemi í Costa Rica í Mið-Ameríku skólaárið 1994–1995. Eftir útskrift í Há- skólanum 2001 vann Stefán við endurhæf- ingu sjúklinga á Grensásdeild og fannst það dásamlegur vinnustaður: Kraftaverka. Hann vann einnig sem sjúkraþjálfi á Bata í Kringlunni. Stefán hefur lengi haft áhuga á alþjóða- málum og veturinn 2002–2003 tók hann að kanna möguleika á því að opna skrifstofu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Ís- landi. „Ég hafði samband við skrifstofuna í Genf og spurðist fyrir um hvað þyrfti til að stofna landsnefnd fyrir UNICEF hér á landi,“ segir hann (www.unicef.org). UNI- CEF Ísland mun vinna m.a. að umburð- arlyndi, samkennd og samstöðu í þágu barna, auk þess að styðja við verkefni UNI- CEF í þróunarlöndunum. Stefán fann strax mikinn áhuga hér á landi fyrir málinu og unnu margir með hon- um að framgöngu málsins. „Fjölmargir hafa stutt málið af miklum hug,“ segir Stefán. „Má þar nefna Hrein Loftsson lögmann sem hefur hjálpað mjög mikið við að koma þessu á fót.“ Sjálfseignarstofnunin UNI- CEF á Íslandi var svo stofnuð rétt fyrir síð- ustu jól og eru Baugur, Pharmaco og Alli- anz aðalstyrktaraðilar skrifstofunnar, sem er í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna í Skafta- hlíð 24 ásamt Félagi SÞ og UNIFEM á Ís- landi. Stefán hefur ferðast um víða veröld. „Mér finnst gaman að ferðast og flakka um heiminn,“ segir hann og áhuginn hafi vakn- að snemma. Hann var m.a. í alþjóðasum- arbúðum á Martinique-eyjum í Karíbahaf- inu. Hann hefur einnig gaman af íþróttum og var í körfubolta með Val á unglingsárun- um en stundar helst sund og hlaup, auk þess hefur hann stundað hugleiðslu í átta ár. guhe@mbl.is Stefán Ingi Stefánsson LOFAR GÓÐU L jó sm yn d: G ol li Setti á fót skrifstofu Barnahjálpar SÞ á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.