Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 11
1.2.2004 | 11
H
eiðar Ástvaldsson hefur kennt landsmönnum að dansa í næstum hálfa
öld og engan bilbug á honum að finna enda maðurinn í fullu fjöri og
góðu formi sem aldrei fyrr. Hann hefur verið ódrepandi baráttumaður
fyrir framgangi danslistarinnar á Íslandi og með seiglu og óbilandi trú
á málstaðinn hefur honum tekist að ná ýmsu því fram sem hugur hans
hefur staðið til í þeim efnum.
Eitt af baráttumálum Heiðars var að koma danskennslu inn í nám-
skrá sem skyldunámsgrein á grunnskólastigi. Það tókst og nú á hann sér þann draum að reist verði
danshöll í Reykjavík þar sem fólk geti stundað danslistina sér til líkamlegrar styrkingar og and-
legrar upplyftingar. „Dansinn er besta líkamsrækt sem hægt er að hugsa sér og svo er hann líka
svo góð hugarleikfimi, því dansarinn þarf alltaf að hugsa nokkur spor fram í tímann,“ segir Heiðar
og fer svo að segja frá skemmtilegri og lærdómsríkri ferð til Kúbu, sem hann fór í síðastliðið haust,
ásamt fríðu föruneyti.
Dansað á Kúbu
„Ég er ákaflega upptekinn af salsa-dansinum þessa dagana,“ segir Heiðar um ástæðuna fyrir
því að hann lagði land undir fót og hélt til Kúbu, en með í för voru systir hans Harpa Pálsdóttir og
dóttir hennar Erla Haraldsdóttir danskennarar ásamt meðlimum úr Dansklúbbi Heiðars Ást-
STYÐJA, STYÐJA,
CHA, CHA, CHA
Heiðar Ástvaldsson hefur afrekað ýmislegt fleira á sviði danslist-
arinnar en að kenna landsmönnum þann ágæta dans, cha, cha, cha.
Eftir Svein Guðjónsson
Ljósmyndir Golli