Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 26

Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 26
26 | 25.4.2004 Gult og hvítt er dæmigerð samsetning fyrir vor og sumar. Sand. Blómamynstur og litadýrð er jafn öruggur vorboði í heimi tísk-unnar og lóan. Litrófið spannar allt frá grasgrænu út ínammibleikt og kóralrautt, eða brenndar appelsínur. Lit- urinn er ekki viðlagið í ár, heldur eitt meginstefið og mestu skiptir að hann sé djúpur og fari húð hvers og eins. Bleikt og blátt eru litatónar sem flestir bera vel og því góður útgangspunktur við innkaupin. Skærir litir með hvítu eru hugmynd úr smiðju Gucci og marglitar mynstraðar flíkur raðað saman draga dám af sköpunarverkum Oscars de la Renta. Skærir litir og svart eru hins vegar bæði ellimerki og gam- aldags, eins og klukkan slær nú. (Dæmi: Svört buxnadragt og bleik skyrta.) Kraftmikil blómamynstur og teikningar sjást sums staðar, til að mynda á flíkum Versace þar sem hitabeltisplöntur eru fyrirmyndin. Svart og hvítt segja grafíska sögu, bæði í mynstri sem kennt er við litl- ar og stórar hundstennur (í fínum boðum), röndum og blómum. Hafið í huga að stórir mynsturfletir yfirbuga netta líkama og fín- gerðir tínast á breiðum búkum. Innanhússmynstur úr fortíðinni eiga best heima á stólum og veggjum. Þær sem vilja horfa til vesturs, í átt að Hollywood, sjá fyrir sér gyðjusíðkjóla úr léttu efni með fellingum og einum hlýra. Tímabilstískan er á sínum stað. Áhrifa sjötta áratugar tuttugustu aldar gætir til að mynda nokkuð í hnésíðum kjólum með víð pils, sem ganga bæði í teboðum og hanastéli, og hringsniðnum dúkkunátt- kjólum. Þriðja áratugarins gætir síðan í flíkum með síðu mitti sem eru þröngar yfir mjaðmirnar. Betra er að velja sitt lítið af hverju en að kokgleypa tiltekið þema, fæstir eru búnir að gleyma tískuslysinu Ni- cole Kidman á síðustu Golden Globe-hátíð. Að ekki sé minnst á „eig- hties“ tískuna. Smáatriðin draga dám af af undirfötum; blúndur, hlýrar, lífstykki, blóm, pífur, slaufur og borðar eru nokkuð sem hafa má í huga. Líka fiðrildi, sem sjá má mjög víða. Litaspjald vorsins nær fram á sumar og haust en á því eru hvítt og kremað með svörtu, dekktir appelsínutónar, bleikt, berjalitur, gult, gult og aftur gult, kryddtónar, súraldingrænt, safírblátt, grá- blátt, ávaxtalitir og brúnt, svo dæmi séu tekin. Mynstur, útsaumur og skraut heldur áfram velli, sem og nýstár- leg áferð þar sem spanskgræna og marmari eru gott minni. Vegvísir Góðar gallabuxur ganga í sífellu og vel þess virði að eyða miklum tíma í leit að sniði sem hentar þér. Víðar buxur með vösum á skálmum og hermannabuxur fara að renna sitt skeið á enda innan tíðar, hugsaðu þig tvisvar um áð- ur en þú teygir þig eftir kortinu. En ef þig dauðlangar í slíkar buxur, reyndu þá að velja flík sem hefur eitthvað sérstakt um- fram aðrar. Ekki gleyma aukahlutunum, veski og skór úr gervikrókódíla- leðri eru góður kostur, sem og platrúskinni eða óekta snáka- skinni. Aðsniðið hnésítt pils, svokallað „pencil skirt“ og rúllu- kragapeysa með sígildu sniði eða kasmírullarpeysa með v-hálsmáli eru fjárfesting, sem endist fram á næsta vetur. Rykfrakkar með belti eru enn í tísku og sígildur Burberry er einn möguleiki. Verðflokkurinn er ekki aðalatriðið, heldur að finna eitt- hvað sem sker sig úr. Stígvél verða áfram í tísku, en góð tilbreyting að endurnýja heild- arsvipinn á klæðaburðinum í ógegnsæjum sokkabuxum eða mynstr- uðum við skærlita skó með skriðdýraáferð. Ef ætlunin er að taka rækilega til í fataskápnum og henda er vert að minna á að sjiffon verður algerlega ómissandi á næstunni. Láttu flíkur sem aldrei hafa passað eða munu aldrei passa lönd og leið. Ef föt sem keypt voru á síðustu útsölu eru enn í skápn- um, eru yfirgnæfandi líkur á því að þau verði á herðatrénu að minnsta kosti út árið 2005. helga@mbl.is Grafísk mynstur á borð við svart og hvítt eru hluti af sumartísk- unni. Next. Tættar útlínur og spottar sjást víða í fatahönnun núna. Frá haust- og vetr- arlínu Versace í Mílanó. Skrautsteinar eru aðalsmerki margra hönnuða núna. Next. Útsaumaðar flíkur hafa aldrei verið fleiri í versl- unum. Next. MYNSTUR OG ÁFERÐ Í FYRIRRÚMI Rendur minna ávallt á hafgolu og sumarfrí. GK. Skór og töskur með skrið- dýraáferð eru vinsælar um þessar mundir. GK. Appelsínugulur og hvítur sjiffonkjóll frá Oscar de la Renta. Sjiffon er mjög áberandi í tískunni um þessar mundir. Einnig er mikið um gyllta og silfurlita sandala og skó. R eu te rs VORTÍSKA | HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.