Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 1
Fá›u
morgunkoss
fyrir matinn
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
24
84
1
0
8/
20
04
Uppáhald
matgæðings
Spænskir sælkeraréttir á borð-
um í Biskupstungum | Daglegt líf
Ný plata Bjarkar fær almennt
góða dóma | Menning
VEXTIR á peningalánum Íbúða-
lánasjóðs verða 4,35% í september-
mánuði, sem er 0,05 prósentustigum
lægri en vextir á nýjum íbúðalánum
bankanna og 0,15 prósentustigum
lægri en vextir á útlánum Íbúðalána-
sjóðs eru nú. Lífeyrissjóðir eru farn-
ir að huga að lækkun vaxta á sjóð-
félagalánum sínum og Lífeyrissjóður
sjómanna hefur þegar ákveðið
vaxtalækkun um rúmlega hálft pró-
sentustig í 4,3% og tekur vaxta-
breytingin bæði til nýrra og eldri
lána.
Ákvörðun um vaxtalækkun á pen-
ingalánum Íbúðalánasjóðs var tekin
á fundi stjórnar sjóðsins í gær á
grundvelli niðurstöðu annars útboðs
sjóðsins á íbúðabréfum. Bréfin voru
seld erlendum fjárfest-
um í lokuðu útboði eins
og í fyrsta útboðinu fyrir
réttum mánuði. Boðin
voru út íbúðabréf að fjár-
hæð sjö milljarðar króna
og var ávöxtunarkrafa í
útboðinu 3,73% en 3,77%
þegar umsýsluþóknun
hefur verið tekin með,
sem er 13 punkta lækkun
frá fyrra útboðinu.
Vaxtaálag sjóðsins er 0,6
prósentustig og segir Guðmundur
Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs,
að ákveðið hafi verið að rúna vextina
að hálfum eða heilum tug og því hafi
vextirnir verið ákveðnir 4,35%.
Hann sagði að ekkert hefði verið
horft til vaxta bankanna á
íbúðalánum við þessa
ákvörðun.
Lífeyrissjóður sjó-
manna hefur fyrstur líf-
eyrissjóða breytt vaxta-
stefnu sinni í kjölfar
lækkunar á langtímalán-
um bankanna.
Frekari lækkanir
Vaxtamálin hafa verið
til skoðunar hjá stærstu
lífeyrissjóðunum nú að undanförnu
þótt þeir hafi ekki enn breytt vöxtum
sínum en reikna má með að draga
muni til tíðinda í þeim efnum eftir
helgina. Þannig liggur til dæmis fyr-
ir að stærsti lífeyrissjóður landsins,
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins,
mun lækka vexti í næstu viku og að
öllum líkindum í 4,3%.
Árni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs sjó-
manna, segir sjóðinn hafa verið með
50 punkta álag ofan ákveðinn hús-
bréfaflokk en ekki hafi lengur verið
hægt að miða við það vegna þess að
sá flokkur hafi ekki verið virkur
lengur.
„Það var tekin ákvörðun á stjórn-
arfundi í gær [miðvikudag] að taka
mið af skuldabréfum Íbúðalánasjóðs
með 50 punkta álagi og það gerir
4,3%,“ segir Árni.
Vextir á útlánum Íbúða-
lánasjóðs verða 4,35%
Lífeyrissjóður sjómanna lækkar vexti og aðrir sjóðir íhuga lækkun
Ávöxtunarkrafa/12
Bylting/26 HELSTI ráðgjafi Ali al-Sistanis, and-
legs leiðtoga íraskra sjíta, skýrði frá
því í gærkvöld, að uppreisnarklerk-
urinn Moqtada al-Sadr hefði fallist á
tillögu Sistanis um að binda enda á
meira en þriggja vikna bardaga í
hinni helgu borg Najaf. Hefur íraska
bráðabirgðastjórnin samþykkt sam-
komulagið.
Mikill mannfjöldi fylgdi Sistani til
Najafs en það skyggði á, að nokkru
áður en hann kom til borgarinnar var
gerð sprengjuárás á mosku í systur-
borginni Kufa en hún var full af fólki.
Ekki er vitað hverjir voru að verki en
ljóst er, að skotið var frá bækistöð ír-
askra og bandarískra hermanna að
tveimur göngum stuðningsmanna
Sadrs til Najafs frá Kufa og bænum
Diwaniya. Talið var, að 74 menn
hefðu fallið í þessum árásum í gær og
á fjórða hundrað særst.
Sömdu eftir stuttan fund
Þeir Sistani og Sadr ræddust við
seint í gær og aðeins skömmu eftir að
fundur þeirra hófst tilkynnti Hamed
al-Khafaf, ráðgjafi Sistanis, að Sadr
hefði samþykkt friðartillögurnar.
Meginefni þeirra er, að borgirnar
Najaf og Kufa verði lýstar vopnlaust
svæði. Allur erlendur her á að fara
þaðan og aðrar vopnaðar sveitir að af-
vopnast eða fara burt. Öryggisgæsla í
borgunum á að vera í höndum íraskra
lögreglumanna og þá eru einnig
ákvæði um, að íraska ríkisstjórnin
greiði bætur þeim, sem orðið hafa illa
úti í átökunum í Najaf.
AP
Sjítar í Najaf með mynd af Sistani,
æðsta trúarleiðtoga sínum, framan á
bílnum. Urðu margir við kalli hans
um að koma til hinnar helgu borgar.
Friður í
Najaf
Najaf. AP, AFP.
CHERIE Booth Blair, lögmaður og eiginkona
Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, kom
hingað til lands í gær, en hún er sérstakur gest-
ur málþingsins Konur, völd og lögin, sem fram
fer í Háskólabíói í dag. Með í för var fjögurra ára
sonur þeirra hjóna, Leo, og barnfóstran hans
auk öryggisvarðar.
Cherie Blair sagði í samtali við Morgunblaðið
að Þórdís Ingadóttir, lögfræðingur í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu – en þær þekktust –
hefði haft frumkvæði að komu hennar hingað til
lands. „Þórdís bað mig um að koma og halda er-
indi enda hefur mig alltaf langað til að koma til
Íslands,“ sagði hún. „Ég hlakka til að kynnast
þessu áhugaverða landi,“ bætti hún við.
Blair sagði að erindi sitt í dag myndi m.a.
fjalla um mikilvægi þess að konur ynnu saman
og mynduðu tengslanet. „Þá mun ég fjalla um
jafnvægið milli einkalífs og vinnu og hversu mik-
ilvægt það jafnvægi er fyrir bæði konur og
karla.“ Aðspurð sagðist hún þekkja lítillega til
sögu kvenna hér á landi. „Ekki síst vegna þess að
þið voruð fyrst til að kjósa konu sem forseta,“
sagði hún.
Málþingið í dag er haldið á vegum Rann-
sóknastofu í kvenna- og kynjafræðum og Laga-
deildar Háskóla Íslands. Alper Mehmet, sendi-
herra Breta á Íslandi, tók á móti Blair á
Keflavíkurflugvelli í gær, en síðdegis var haldið
boð henni til heiðurs í breska sendiráðinu. Á
morgun munu þau opna sýningu í Listasafninu á
Akureyri, en áformað er að hún haldi af landi
brott eftir helgi.
Cherie Booth Blair komin til landsins og heldur erindi í Háskólabíói
Morgunblaðið/Jim Smart
Móttaka var í breska sendiráðinu í Reykjavík í gær í tilefni af komu Cherie Booth Blair lögmanns hing-
að til lands. Hér er Blair, ásamt Alper Mehmet, sendiherra Breta, og Dorrit Moussaieff forsetafrú.
Ræðir um
jafnvægið
milli einka-
lífs og vinnu
Í NÝRRI skýrslu Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar (WHO)
og Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna (UNICEF) kemur fram að
2,6 milljarðar manna, um 40% jarð-
arbúa, búa við óviðunandi hrein-
lætisaðstöðu og um milljarður er
án ómengaðs drykkjarvatns. Segja
SÞ „þögult neyðarástand“ blasa
við jarðarbúum vegna þessa.
Fátækustu og vanþróuðustu
Afríkuríkin, einkum sunnan Sa-
hara, þjást mest vegna þessa og
sjúkdómar breiðast þar hratt út.
Skortur á hreinu vatni og óviðun-
andi hreinlæti eiga sinn þátt í
dauða 10 milljóna barna á ári
hverju. Drykkjarvatnsskortur leið-
ir þar að auki til vinnutaps í Afríku
upp á 40 milljarða klst.
Áhyggjur hafa aukist vegna
hraðrar iðnvæðingar margra ríkja
sem leitt hefur til þess að hlutfalls-
lega færri hafa aðgang að hrein-
lætisaðstöðu og drykkjarvatni.
Góðu fréttirnar eru þær að 1,1
milljarður manna hefur bæst í hóp
þeirra sem drukkið geta hreint
vatn. Hefur mestur árangur náðst í
Asíu. Fólksfjölgun er sögð eitt
mesta vandamálið en hún veldur
miklu álagi á vatnskerfi fjölmargra
borga.
„Þögult neyðarástand“
Genf. AFP.
Dómar
um Medúllu
STOFNAÐ 1913 233. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Íþróttir í dag
Guðjón Valur fór aldrei af velli
Bandaríkjamenn sigursælir
Tímamót og kynslóðaskipti