Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Endurreisn Þjóðminjasafns:
Saga Þjóðminjasafnsins.
Viðtal við Margréti Hallgrímsdóttur
þjóðminjavörð.
Guja Dögg Hauksdóttir skrifar um
breytingar á safnhúsinu.
Magnús Gestsson skrifar um nýja
grunnsýningu á minjum safnsins.
Greinar um rannsóknarstarf safnsins og aðra starfsemi
innan þess.
Annað í Lesbók:
Bourne er jarðbundin Bond: Umfjöllun um kvikmyndina
The Bourne Supremacy.
Stalín góði: Umfjöllun um nýjustu skáldsögu rússneska
rithöfundarins Viktors Jerofejevs.
Krísan hennar Dísar
Silja Hauksdóttir, leikstjóri Dísar, og
Álfrún Helga Örnólfsdóttir, sem leikur
Dís, segja að svolítil Dís leynist innra
með okkur flestum.
Lífið er eitt stórt leiksvið
Þótt Ólöf Inga Halldórsdóttir sé bundin
við hjólastól, lætur hún hindranir ekki
stöðva sig.
Músik og minningar fyrir nátthrafna
Barcelona er ekki aðeins borg sólar og sjávar og merkilegs
arkitektúrs, heldur barþúsunda.
Slá í gegn . . . og líka út í sjó
Jón Arnór Stefánsson, atvinnumaður í körfuknattleik, sýndi fína
tilburði miðað við byrjanda í golfi.
Lækningajurt erkiengilsins
Þráinn Þorvaldsson og Elín G. Óskarsdóttir ferðuðust um landið
og skáru hvönn í tonnavís í sumar.
Endurreisn
ÞjóðminjasafnsMeðal efnis í Lesbók
Morgunblaðsins á morgun:
Meðal efnis í Tímariti
Morgunblaðsins á sunnudaginn:
Sunnudagur 29.08.04
DRAUMADÍS
SILJU OG ÁLFRÚNAR
Þótt Ólöf Inga Halldórsdóttir sé bundin við hjólastól lætur hún ekki hindranir stöðva sig á leiksviði lífsins
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, segist
ánægður með fund framsóknar-
kvenna á miðvikudag, og þá ályktun
sem samþykkt var á fundinum, en á
honum var staða kvenna innan
flokksins rædd í kjölfar ákvörðunar
um að Siv Friðleifsdóttir gengi úr
ríkisstjórn.
„Ég geri mér grein fyrir því að
um þetta mál eru skiptar skoðanir
og það er óánægja innan flokksins
um þær ákvarðanir sem bæði ég og
þingflokkurinn tók. Ég er tilbúinn
að vinna með konunum innan
flokksins eins og ég hef gert frá því
ég varð formaður, og ég tel það
nauðsynlegt og eðlilegt að jafnrétt-
issjónarmið séu höfð í huga við allar
ákvarðanir. Það hef ég gert og
hyggst gera það áfram,“ segir Hall-
dór. Hann segir mikilvægt að fram-
sóknarkonurnar hyggist auka sitt
starf innan flokksins og fagnar
þeirri ákvörðun. Halldór segir að
von hafi verið á óánægju alveg sama
hver ákvörðun um ráðherramál
hefði orðið. „Það má segja að það sé
alltaf erfitt þegar verið er að fækka
ráðherrum í ríkisstjórn.“
Segir of fáar konur í
stjórnum flokksins
Aðspurður hvernig hann hyggist
starfa með konum innan flokksins
segir Halldór að þær séu með ýms-
ar hugmyndir sjálfar, m.a. um að
taka virkari þátt í starfi flokksins.
„Það eru að mínu mati of fáar konur
í stjórnum kjördæmissambandanna
og í miðstjórn. Ég vildi gjarnan sjá
fleiri konur á Alþingi innan flokks-
ins. Þetta eru mál sem við verðum
að vinna saman og ég fagna þeim
áherslum sem konurnar hafa í þessu
sambandi.“ segir Halldór.
Hann segir að ekki hafi verið tek-
in nein ákvörðun um uppstokkun í
ríkisstjórn, sem hann boðaði þegar
tilkynnt var að Siv Friðleifsdóttir
myndi hætta í ríkisstjórninni. „Ég
tel eðlilegt að jafnréttissjónarmið
séu höfð í huga við þá ákvörðun
þegar þar að kemur,“ segir Halldór.
Aðspurður hvort hann sé með þessu
að boða að Siv Friðleifsdóttir komi
aftur inn í ríkisstjórn segir hann að
ekki sé hægt að segja það fyrir,
ræða þurfi við þingflokkinn þegar
þar að komi, valdið sé hjá honum.
Ánægður með fund
framsóknarkvenna
ÞOTA Icelandair, sem fara átti frá
London um hádegi á miðvikudag,
tafðist um níu klukkustundir eftir að
hlaðmaður, sem var að afferma vél-
ina, taldi sig hafa brennst á höndum
við að handfjatla hættulegt efni sem
lekið hafði úr farmi vélarinnar.
Mikill viðbúnaður var þegar sett-
ur í gang á Heathrow-flugvelli, flug-
vélin einangruð og eiturefna-
sérfræðingar slökkviliðs
flugvallarins kallaðir til, segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair. Þegar ljóst var að tafir
yrðu á fluginu var ný áhöfn og flug-
virki send frá Íslandi, og þegar ís-
lenski flugvirkinn leit inn í vélina
staðfesti hann endanlega grun
heimamanna. Efnið hættulega sem
hafði stöðvað vélina í margar
klukkustundir reyndist vera þorska-
lýsi sem lekið hafði úr kassa sem
verið var að flytja til London. Ekki
reyndist um mikinn leka að ræða.
Ekki meint af lýsinu
Guðjón segir að hlaðmaðurinn,
sem uppgvötvaði lekann, hafi talið
sig hafa brunnið á höndunum við að
komast í snertingu við efnið, og því
verið sendur beint til læknis. Honum
varð þó ekki meint af því að hand-
fjatla þorskalýsið og gat snúið aftur
til vinnu eftir læknisskoðunina.
Um 170 farþegar þurftu að bíða á
flugvellinum á meðan meint eitur-
efni voru skoðuð, og komust þeir
ekki til Íslands fyrr en um miðnætti.
Guðjón segir mikið af þessu fólki
hafa verið á leið vestur um haf til
Bandaríkjanna, og hafi það þurft að
gista hér á landi eina nótt þar sem
það missti af tengifluginu.
Lýsisleki
stöðvar far-
þegaþotu
MANNBJÖRG varð þegar báturinn
Fjarki ÍS 44 sökk um 8 sjómílur suð-
austur af Gjögri, skammt frá Veiði-
leysufirði í Húnaflóa, um fjögurleyt-
ið í gærdag. Einn maður var um borð
og komst hann í gúmbjörgunarbát
og var skömmu síðar bjargað um
borð í bátinn Björgu Hauks, sem þar
var skammt frá. Manninn sakaði
ekki.
Að sögn Tilkynningarskyldunnar
barst neyðarkall frá bátnum um
hálffjögurleytið en leki var þá kom-
inn í vélarrúm og voru fjórir nær-
liggjandi bátar beðnir um að koma
bátnum til aðstoðar. Þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar var í við-
bragðsstöðu. Um klukkan 16 var
báturinn tekinn að sökkva en mað-
urinn var þá kominn um borð í gúm-
björgunarbát, sem fyrr segir, og var
bjargað skömmu síðar. Siglt var með
manninn á Drangsnes.
Reyndi að taka bátinn í tog
Annar bátur, Eyjólfur Ólafsson,
tók bátinn í tog en þá stóð aðeins
stefnið upp úr sjónum. Eftir um hálf-
tíma stím í átt að Gjögri slitnaði
taugin og Fjarki sökk.
Fjarki var 5,88 brúttótonn að
stærð.
!""
Bjargað
eftir að bát-
ur sökk í
Húnaflóa
UMHVERFISRÁÐHERRAR
Norðurlandanna funduðu hér á
landi í gær. Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra segir að þar
hafi m.a. verið rædd sú ákvörð-
un breskra stjórnvalda að
minnka verulega losun á geisla-
virka efninu teknisíum 99 í haf-
ið við Sellafield. „Við erum
mjög ánægð með þá ákvörðun
en munum þó hafa auga með
Sellafield áfram,“ segir hún.
Siv segir að ráðherrarnir hafi
einnig rætt samstarf Evrópu-
sambandsins við nýju nágranna
sína eftir stækkun sambands-
ins. Samstarf við Rússland hafi
þar m.a. verið rætt, en aðspurð
segir hún að Norðurlöndin hafi
lengi haft áhyggjur af umhverf-
ismálum þar. Til dæmis hafi
þau áhyggjur af mengun í Bar-
entshafi og í Eystrasalti.
„Norðurlöndin hafa mikið
reynt að aðstoða Rússa við að
takast á við fortíðarvanda sinn í
þessum efnum.“
Fjöldamörg önnur mál voru
rædd á fundunum að sögn Sivj-
ar. Ráðherrarnir munu m.a.
heimsækja Nesjavallavirkjun í
dag en þeir fara af landi brott
síðdegis.
Hafa áfram
auga með
Sellafield
ÓVENJU lítill snjór er nú á Heklu,
eins og hún blasir við frá dyrapalli
ljósmyndara á Stokkseyri og hefur
þessi fjalladrottning ekki farið var-
hluta af hlýindunum í sumar. Elstu
menn muna vart jafn lítinn snjó á
fjallinu. Hekla gaus síðast í upphafi
árs 2000, en hún hefur gosið á 10
ára fresti undanfarið.
Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson
Hekla séð frá Stokkseyri, bærinn
Traðarholt í forgrunni.
Lítill snjór
á Heklu
Stokkseyri. Morgunblaðið.
TVEIR menn björguðust þegar
eikarbáturinn Björgvin ÍS 468 sökk
um 17 sjómílur undan Dýrafirði í
gærmorgun. Báturinn var á drag-
nótarveiðum og var mjög gott veð-
ur á veiðislóðinni. Ekki er ljóst
hvað olli slysinu sem virðist hafa
borið mjög brátt að því hvorugum
bátsverja tókst að kalla á hjálp um
talstöð eða í síma.
Neyðarkallið barst bæði um
gervihnött og um Sjálfvirku til-
kynningarskylduna, STK, klukkan
10:11 en í bátum með slíkan búnað
er neyðarhnappur sem nægir að
ýta einu sinni á til að senda út
neyðarkall.
STK gefur, ólíkt gervihnatta-
sendingum, upp mjög nákvæma
staðsetningu og því gat Tilkynning-
arskyldan kallað út þann bát sem
var staddur næst Björgvini. Það
var Steinunn ÍS 817 sem var í að-
eins fimm sjómílna fjarlægð og að-
eins leið um hálftími þar til bát-
urinn var kominn á staðinn þar sem
Björgvin maraði í hálfu kafi. Hann
sökk stuttu síðar.
Jafnframt var björgunarskip
Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
Gunnar Friðriksson, frá Ísafirði,
kallað út ásamt þyrlu Landhelg-
isgæslunnar en áður en skipið og
þyrlan lögðu af stað bárust fregnir
af því að mennirnir væru komnir
um borð í Steinunni.
Magnús Kristján Guðmundsson,
afleysingaskipstjóri á Steinunni,
sagði að mennirnir tveir hefðu verið
vel á sig komnir enda báðir í flot-
göllum og í björgunarbát. Skip-
brotsmennirnir fengu far með
Steinunni inn á Þingeyri en síðan
var henni haldið aftur til veiða.
Björgvin var 25,6 brúttótonna
eikarbátur, smíðaður í Hafnarfirði
árið 1974, samkvæmt upplýsingum
úr skipaskrá. Hann hét áður Viðar
ÞH 17 og var gerður út frá Rauf-
arhöfn.
Mannbjörg þegar eikarbátur sökk úti fyrir Dýrafirði
Höfðu ekki ráðrúm
til að kalla á hjálp
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Björgvin ÍS 468 var 25,6 brúttó-
tonna eikarbátur. Hann hét áður
Viðar ÞH og var gerður út frá
Raufarhöfn.
!
♦♦♦