Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 27.08.2004, Síða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Tilkynning um innlausn hlutabréfa í TVG-Zimsen hf. Stjórn Eimskipafélags Íslands ehf., sem hefur eignast meira en 9/10 hluta af hlutafé í TVG-Zimsen hf., og stjórn TVG-Zimsen hf. hafa á grundvelli 24. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995 tekið ákvörðun um innlausn hluta í TVG-Zimsen hf. Félögin hafa falið LOGOS lögmannsþjónustu að annast innlausn hlutafjárins. Samkvæmt hlutafélagalögum skal tilkynning um innlausn birt með sama hætti og aðalfundarboð. Kveða samþykktir félagsins á um að það skuli gert með auglýsingu í dagblöðum í Reykjavík og skriflega til allra hluthafa í hlutaskrá sem óskað hafa eftir skriflegri boðun. Tilkynning mun í dag einnig verða send hluthöfum bréflega á þau heimilisföng sem fram koma í hlutaskrá félagsins. Innlausnarverðið, sem byggir á mati KPMG endurskoðunar hf., miðast við kaupgengið 5,6. Rétt er að vekja athygli á því, að niðurstaða mats KPMG endurskoðunar hf. sýnir að innlausnarverðið er sanngjarnt fyrir hluthafa. Hér með er skorað á hluthafa TVG-Zimsen hf. að snúa sér til LOGOS lögmannsþjónustu sem mun annast greiðslu innlausnarverðsins gegn framsali hlutafjárins fyrir 25. september 2004. Verði hluthafar ekki við áskorun um framsal er heimilt að greiða innlausnarverðið á geymslureikning á nafni hluthafa og telst Eimskipafélag Íslands ehf. frá og með þeim tíma eigandi hlutafjárins. Hlutafélagalög mæla svo fyrir um að vakin skuli athygli á því að vilji hluthafar sem sæta þurfa innlausn ekki sætta sig við skilmála innlausnarinnar og matsgrundvöll innlausnarverðsins, megi skjóta því til ákvörðunar matsmanna sem dómkvaddir skulu á heimilisvarnarþingi TVG-Zimsen hf. Ef ákvörðun matsmanna leiðir til hærra innlausnarverðs en boðið er, gildir það fyrir alla sem sæta verða innlausninni. Kostnað við ákvörðun verðsins greiðir sá sem innlausnarinnar krefst nema dómstóll telji, vegna sérstakra ástæðna, að viðkomandi minnihluti hluthafa skuli að nokkru eða öllu leyti greiða kostnaðinn. Hluthöfum er bent á að snúa sér til LOGOS lögmannsþjónustu í síma 540 0300 vegna innlausnarinnar eða með tölvupósti á netfangið sigridurk@logos.is. F.h. Eimskipafélags Íslands ehf. og TVG-Zimsen hf. 27. ágúst 2004 LOGOS lögmannsþjónusta Helga M. Óttarsdóttir hdl. FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur snið- gengu stjórnarfund í gærmorgun þar sem samþykkt var viljayfirlýsing um að Og Vodafone taki yfir hluta- bréf OR í Línu.neti. Á móti tekur Orkuveitan ljósleiðaralagnir Og Vodafone yfir. Var forstjóranum fal- ið að vinna áfram að málinu. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson sögðu í bréfi til forstjóra fyrirtækisins í gær að mikilvægum spurningum um for- sendur samstarfsins væri ósvarað. Samið hefði verið um það á stjórn- arfundi á þriðjudag, að svör lægju fyrir áður en fundurinn yrði haldinn, en við það hefði ekki verið staðið. Það sé hrein vanvirða við borgarbúa og eigendur Orkuveitunnar að láta stjórnarmönnum ekki í té upplýsing- ar til að byggja ákvörðun sína á þeg- ar um sé að ræða hagsmuni borg- arbúa sem nemi milljörðum. Engar forsendur fylgdu Þorbjörg segir þau hafa fengið sent skjal klukkan hálf tólf í fyrra- kvöld með tilbúnu dæmi, en engar forsendur hefðu legið fyrir né hvern- ig niðurstaðan væri fengin. Engin viðskiptaáætlun fylgdi þessum upp- lýsingum; ekki áætlun um arðsemi verkefnisins, ekki hvernig OR ætlaði að þróa það áfram, engar upplýsing- ar um stöðu viðskiptavina og allt mjög óskilgreint. Hún segir samninginn flókinn og það sé ábyrgðarhluti fyrir stjórnar- menn að kynna sér ítarlega forsend- ur hans. Því hefði hún spurt um fjöl- marga hluti á stjórnarfundi á þriðjudag, eftir að hafa fengið samn- inginn í hendur kvöldið áður, en ekki fengið skýr svör. Því hefði verið haldið fram að svörin væru á reiðum höndum en svo reyndist ekki að sögn Þorbjargar. Þetta bæri þess merki að vera illa undirbúið og illa unnið. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitunnar, segir að öll- um skriflegum spurningum sjálf- stæðismanna hafi verið svarað og send út daginn fyrir stjórnarfund. Þeir hafi haft allar forsendur til að taka málefnalega afstöðu til málsins. Í raun og veru hafi stjórnarmenn haft aðgang að ítarlegri upplýsing- um um Línu.net en eðlilegt geti tal- ist. Þó fyrirtækið sé í meirihlutaeigu Orkuveitunnar verði að gæta jafn- ræðis á milli allra hluthafa. „Ég lít það mjög alvarlegum aug- um að kjörnir stjórnarmenn Orku- veitunnar skrópi á stjórnarfund. Ef um forföll er að ræða ber mönnum að kalla inn varamenn, en það var ekki gert,“ segir Alfreð. Ástæðan fyrir þessu upphlaupi sjálfstæðismanna nú sé væntanlega vegna vonbrigða með fullnægjandi svör sem leiddu ekkert óeðlilegt í ljós. Hélt hann að sjálfstæðismenn myndu frekar fagna þessum aðskilnaði þar sem þeir hefðu krafist þess til margra ára að þetta fyrirtæki væri ekki á sam- keppnismarkaði. Meirihluti stjórnar OR samþykkti bókun á fundinum í gærmorgun þar sem m.a. kom fram að enginn drátt- ur hefði verið á afhendingu upplýs- inga. Stjórnarmenn OR hefðu fengið afhent uppgjör og milliuppgjör Línu.nets jafnvel þótt milliuppgjör væru ekki opin gögn hjá fyrirtækinu. Jafnframt segir í bókuninni að af- hent hefðu verið viðskiptaáætlanir og viðskiptamannalisti fyrirtækisins. Alfreð segir að milliuppgjörið fyrir fyrstu sex mánuði þessa árs hafi ver- ið dreift á stjórnarfundinum í gær. Guðlaugur Þór segir að aldrei áður hafi milliuppgjör verið afhent síðan hann settist í stjórn ólíkt því sem komi fram í bókun meirihlutans. Svörin nægðu Tryggvi Friðjónsson er fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveit- unnar. Segist hann hafa fengið svör við spurningum sjálfstæðismanna í fyrradag, eins og Alfreð heldur fram, og þau hafi verið fullnægjandi. Að- spurður hvort viðskiptaáætlun og annað sem spurt var um hafi fylgt með segir Tryggvi svo hafa verið. Upplýsingarnar og svörin hefðu ver- ið fullnægjandi til að byggja ákvörð- un sína á. Stjórn OR samþykkir samstarf við Og Vodafone Harðar deilur um afgreiðslu málsins Morgunblaðið/Golli FREMUR furðulegur fiskur var á svamli í höfninni í Þorlákshöfn í gærmorgun. Félagar björgunarsveitarinnar í Þorlákshöfn brugðust fljótt við og fóru út í höfnina á gúmmíbát og fönguðu dýrið með því að krækja haka í hnúð á baki fisksins en hann var að dauða kominn þegar björgunarsveitarmenn komu að honum. Enginn viðstaddra hafði hug- mynd um hvaða furðufiskur var þarna á ferðinni. Síðar kom í ljós að um tunglfisk var að ræða sem ber nafnið Mola Mola á latínu en á þýsku er hann nefndur Mondfisch og á ensku kallast hann Ocean Sunfish. Tunglfiskur getur orðið allt að 350 cm langur og tvö tonn að þyngd en sá sem var að svamla í höfninni í Þorlákshöfn var um tveggja metra langur. Tunglfiskur lifir við marg- víslegar aðstæður og í misjafnlega heitum sjó, en er sjaldséður. Ekki er ljóst hvað gert verður við fiskinn sem náðist í gær en hann var settur í frysti og segir Ásgeir koma til greina að hann verði stoppaður upp og settur á safn. Rúnar Marvinsson, kokkur á veitingastaðnum Við Tjörnina, eld- aði tunglfisk fyrir nokkrum árum en tók undir það að fiskurinn væri sjaldséður og nokkuð sérstakur í laginu. „Það er eins og einhver hafi keyrt aftan á hann,“ segir Rúnar. Holdið af tunglfiski er nokkuð svipað túnfiski, þó bragðið sé ekki eins. Tunglfiskurinn mæltist vel fyrir þegar Rúnar eldaði hann og segist hann hafa áhuga á að kom- ast yfir fiskinn sem náðist í höfn- inni í gær og spreyta sig á því að elda hann aftur. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmunds Ásgeir Guðmundsson, björgunarsveitarmaður í Þorlákshöfn, með tungl- fiskinn sem hann og félagar hans í sveitinni náðu á land í gærmorgun. Tveggja metra tunglfiskur í höfninni Þorlákshöfn. Morgunblaðið VÉLAMIÐSTÖÐIN ehf. hefur eins og mörg önnur fyrirtæki leit- að tilboða hjá bönkunum um lána- viðskipti en þau kjör eru, líkt og hjá öðrum fyrirtækjum í landinu, trúnaðarmál milli bankans og fyr- irtækisins. Þetta segir Hersir Oddsson, framkvæmdastjóri Vélamiðstöðv- arinnar ehf. vegna ummæla stjórn- arformanns Gámaþjónustunnar í Morgunblaðinu þess efnis að Véla- miðstöðin njóti betri kjara í bönk- um og sé þar af leiðandi í sterkari samkeppnisstöðu. Leitað tilboða hjá bönkunum Hersir segist á sínum tíma, þeg- ar fyrirtækið varð einkahlutafélag árið 2002, hafa leitað tilboða hjá þremur bönkum og einum spari- sjóði. Á endanum hafi verið samið við Landsbankann þótt afar lítill munur hafi verið á tilboðum tveggja banka. „Ég held að við séum svo sem með ágætis kjör en þau eru trúnaðarmál milli bankans og okkar. Þau kjör eru stöðugt breytileg,“ segir Hersir. Hann segir Landsbankamenn hafa heimsótt fyrirtækið, skoðað starfsemina og kynnt sér rekstur þess. „Þeir gengu mjög faglega til verks, fannst mér, og gáfu sér góðan tíma í þetta.“ Aðspurður hvort tekið hafi verið sérstaklega fram að ábyrgð annars aðila væri á bak við Vélamiðstöð- ina ehf. segir Hersir það alls ekki hafa verið. „Þetta er bara Vélamiðstöð ehf. Gylfaflöt 9 í Reykjavík. Ég veit ekki hvaða kjör þeir hjá Gáma- þjónustunni hafa. Ég ætla bara að vona að þau séu góð og óska þeim alls góðs,“ segir Hersir Oddsson aðspurður. Hefur starfað sem einkahluta- félag í langan tíma Hann segir að þótt stofnað hafi verið til einkahlutafélags árið 2002 hafi Vélmiðstöðin í langan tíma alltaf starfað sem sjálfstætt fyr- irtæki. „Við höfum aldrei verið upp á neina peninga frá borgarsjóði komnir. Það er frekar að við höf- um lagt okkar eigendum til pen- inga á liðnum árum,“ segir Hersir Oddsson. Hersir Oddsson framkvæmdastjóri Vélamiðstöðvarinnar ehf. Semja við banka rétt eins og önnur fyrirtæki Sömdu við Landsbankann 2002

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.