Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 11
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 11
„BRETAR íhuguðu fyrir nokkrum
árum að taka upp veiðistjórnun með
framseljanlegum kvótum, en útveg-
urinn mótmælti því hástöfum. Sam-
kvæmt því sem ég hef séð á Íslandi
virðist kerfið virka,“ segir Ben
Bradshaw, sjávarútvegsráðherra
Breta, í samtali við brezka sjávarút-
vegsblaðið Fishing News.
„Kvótakerfið eykur nálægð sjó-
manna við markaðina, gerir þeim
kleift að taka ákvarðanir, sem byggj-
ast á stöðunni á mörkuðunum. Það
jafnar framboð á fiski, sem er mikill
kostur umfram sóknarstýringu, þar
sem aðeins fæst fiskur þá daga sem
róið er, og í raun er ekki einu sinni
hægt að tryggja það.
Hugmyndir um kvótakerfi á Bret-
landi eru enn á frumstigi og við verð-
um að finna leiðir hvernig koma megi
kerfinu á og hvernig hægt sé að gera
það án þess að aflaheimildirnar safn-
ist saman á fáar hendur,“ segir
Bradshaw.
Hann lýsir mikilli ánægju með
heimsókn sína til Íslands í samtali við
blaðið og segir að Bretar geti lært
mjög mikið af Íslendingum.
Bradshaw tekur í sama streng í
viðtali við brezka dagblaðið Financial
Times. Hann segir að Íslendingum
hafi tekizt að koma á góðri fiskveiði-
stjórn með kvótakerfinu. Kerfið hafi
leitt af sér verulega samþjöppun, sem
leitt hafi til þess að flotinn sé gerður
út með hagnaði, enda fiski þessi floti,
sem sé þriðjungur af stærð brezka
flotans, þrisvar sinnum meira.
Bradshaw segir að það hafi komið
sér á óvart að íslenzkir útvegsmenn
telji að verið sé að veiða of mikið af
þorski. Hann telur mikið til slíkrar
ábyrgðar koma enda hafi hann aldrei
heyrt slíkar raddir í Bretlandi. Þá
nefnir hann að hvatinn til ofveiði
hverfi með kvótakerfinu, því sjómenn
eigi allt sitt undir skynsamlegri nýt-
ingu til langs tíma og loks er hann
hrifinn af hrygningarstoppinu.
Getum margt lært
af Íslendingum
Morgunblaðið/ÞÖK
Starfsbræður; Sjávarútvegsráðherrarnir Árni M. Mathiesen og Ben Brads-
haw ræddu fiskveiðistjórnun á fundi þeirra á Íslandi.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hef-
ur sent bandarísku samtökunum
Monteray Bay Aquarium bréf, þar
sem brugðist er við áróðursherferð
samtakanna gegn neyslu íslenska
þorsksins í Bandaríkjunum og í
Kanada. Samtökin hafa staðið fyrir
dreifingu einblöðungs í vasabroti
með lista yfir fisktegundir sem
neytendur eru hvattir til að neyta
eða forðast á grundvelli náttúru-
verndarsjónarmiða. Í einblöðungn-
um er íslenski þorskurinn tilgreind-
ur sem tegund fisks sem forðast
beri sökum ofveiði.
Einblöðungnum er ætlað að að-
stoða neytendur við val á sjávaraf-
urðum í matvöruverslunum og á
veitingastöðum, auk þess sem hon-
um hefur verið dreift til skóla,
dýragarða, fyrirtækja og stofnana í
matvæla- og fiskiðnaði.
Þannig hefur rúmlega tveimur
milljónum bæklinga verið dreift um
Bandaríkin og Kanada, m.a. með
tímaritaáskriftum og á heimasíðu
samtakanna.
Upplýsingarnar í einblöðungnum
eru sagðar byggja á skýrslu sér-
staks rannsóknaraðila, en þar koma
fram misvísandi alhæfingar og
rangfærslur um stöðu þorskstofns-
ins í Norður-Atlantshafi. Allir
þorskstofnar svæðisins eru settir
undir sama hatt, en íslenski þorsk-
urinn einn er nefndur sérstaklega.
Í bréfi utanríkisráðuneytisins,
sem tekið er saman í samráði við
sjávarútvegsyfirvöld, eru upplýs-
ingar samtakanna hraktar og þau
hvött til afturkalla einblöðunginn
eða leiðrétta rangfærslur sem fram
koma í honum.
Áróðri
mótmælt
NÝR búnaður til að verjast
marglyttu í laxakvíum Sæsilf-
urs í Mjóafirði hefur reynst
mjög vel. Það hefur verið
mikið af marglyttu í Mjóafirði
að undanförnu og marglytta
hefur oft gert mikinn usla í
eldisstöðvum síðari hluta
sumars.
Frá þessu er greint á
heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað. Nýi búnaðurinn
hefur haldið marglyttunni frá
kvíunum hjá Sæsilfri og varið
laxinn fyrir þessum skaðlegu
gestum. Búnaðurinn saman-
stendur af fjórum loftgirðing-
um sem komið er fyrir utan
við kvíarnar. Lofti er dælt út
í sjóinn og þegar marglyttan
kemur yfir fyllist hún af lofti,
flýtur upp og drepst. Hug-
myndin að þessum búnaði er
norsk en hefur verið þróuð
áfram hjá Sæsilfri og ekki er
vitað til þess að nokkur fisk-
eldisstöð í heiminum hafi náð
svo góðum árangri í að verj-
ast marglyttu.
Loft gegn
marglyttu
hjá Sæsilfri