Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 18
♦♦♦
MIRALE
Grensásvegi 8
sími: 517 1020
Opið:
mán.- föstud.11-18
laugard. 11-15
Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina
umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt
af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Kýr í Ölfushöll | Kúa-
sýningin Kýr 2004 verð-
ur haldin í Ölfushöll á
Ingólfshvoli nk. laug-
ardag. Húsið verður
opnað kl. 12.30 og mun
Guðni Ágústsson, land-
búnaðarráðherra, setja
sýninguna, sem hefst
svo með sýningu barna
á kálfum. Keppt verður í fjölmörgum flokk-
um og má búast við hörkukeppni. Nánari
dagskrá má finna á vef Búnaðarsambands
Suðurlands, www.bssl.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Kynning á flugmódelsportinu | Flug-
módelfélag Suðurnesja stendur fyrir kynn-
ingu á flugmódelsportinu sunnudaginn 29.
ágúst nk., frá kl.10 til 12, á flugvelli félags-
ins í Grófinni í Keflavík. Kynningin er háð
því að veður sé hagstætt. Kynningin nýtur
stuðnings Menningar-, íþrótta-, og tóm-
stundaráðs Reykjanesbæjar. Í frétta-
tilkynningu frá félaginu eru bæjarbúar
hvattir til að nýta tækifærið til að með-
höndla flugmódel með aðstoð leiðbeinanda.
Úrgangur rækjuverksmiðju | Hrepps-
nefnd Hólmavíkurhrepps hefur samþykkt
ósk rækjuverksmiðjunnar Hólmadrangs hf.
um lagningu nýrrar fráveitulagnar frá
verksmiðjunni og út í Norðurfjöru. Ljúka á
við fráveituna áður en bundið slitlag verður
lagt á götuna en það er áformað á næstunni.
Fram kemur í fundargerð hreppsnefndar
að einstakir hreppsnefndarmenn hafa efa-
semdir um að fráveitulagnirnar séu fram-
tíðarlausn á losun úrgangs frá rækjuverk-
smiðjunni.
Tilkynningar um lok-un vegarins umMýrdalssand
vegna sandfoks heyra nú
að mestu sögunni til. Er
það að þakka uppgræðslu
við veginn yfir sandinn, að
því er fram kemur hjá
Reyni Gunnarssyni, verk-
stjóra hjá Vegagerðinni á
Hornafirði, á Sam-
félagsvef Hornafjarðar.
Reynir segir að gætt
hafi foks á Skeiðarársandi
eftir síðasta stórhlaup en
mikið sé farið að draga úr
því. Segir hann helst að
það rjúki úr farvegi Núps-
vatna og Gýgjukvíslar, að
mestu fínt ryk. Sé mjög
hvasst getur komið sand-
fok við Skeiðará en allt er
þetta á styttri köflum en
var á Mýrdalssandi.
Á því svæði sem Reynir
hefur umsjón með eru 33
einbreiðar brýr, fleiri en í
öðrum umdæmum. Þar af
eru 26 á leiðinni milli
Reykjavíkur og Horna-
fjarðar.
Ekki fok
Skorradalur | Úthlutað
hefur verið úr Blikastaða-
sjóði í fjórða sinn. Þórey
Bjarnadóttir hlaut styrk
að fjárhæð kr. 350.000.
Þórey er í meistaranámi í
fóðurfræði við Landbún-
aðarháskólann á Hvann-
eyri og tekur hluta af
námi sínu við University
of Guelph. Það var Sig-
steinn Pálsson, 99 ára
gamall stofnandi sjóðsins,
sem afhenti styrkinn.
Blikastaðasjóðurinn var
stofnaður árið 1999 af
Sigsteini Pálssyni, fyrr-
verandi bónda á Blika-
stöðum, og fjölskyldu
hans, til minningar um
Helgu Jónínu Magn-
úsdóttur, fyrrverandi
húsfrú á Blikastöðum, og
hjónin Þ. Magnús Þor-
láksson og Kristínu Jón-
atansdóttur.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Styrkur úr
Blikastaðastjóði
Rúnar Kristjánssoná Skagaströndfylgdist með
fréttum af fundi fram-
sóknarkvenna í fyrra-
kvöld og orti að bragði:
Framsóknarkonurnar flokkinn sinn
prísa
en fárast þó ögn yfir strákhvolpi
þeim,
sem kaus þeim á flugöldum
ljósvaka að lýsa,
en lýsingin kemur víst saman og
heim!
Því konurnar þaulelta karlana á
röndum
svo kynlega stöðu þar jafnréttið fær.
Þær eru sem leirinn í ljóðkerans
höndum
og létt fara Halldór og Guðni með
þær!
Svo Framsóknarkonurnar blessaðar
búa
við baneitrað karlveldi ennþá í dag.
Og þó að þær aldrei því ætli að trúa
er ekkert sem styður þar
jafnréttishag!
Ef Valgerður talar – hún Halldóri
hælir,
og hinar þær eru ekki burðugri rif.
En hópurinn grenjar og valdalaus
vælir,
og vonbrigðin skína af stóllausri Siv!
Jafnrétti
Framsóknar
pebl@mbl.is
Fagridalur | Stafaganga er sífellt
að ryðja sér meira til rúms hér á
landi, eins og víðar í Evrópu og
Norður-Ameríku. Milljónir
manna stunda nú þessa íþrótt
enda fær fólk viðbótarþjálfun
með því að nota stafina í göngu-
ferðum. Hópur Mýrdælinga fór á
dögunum á stafagöngunámskeið
hjá Halldóri Hreinssyni og eftir
það hafa sumir þátttakendanna
sést á ferð með stafina, jafnvel á
götum Víkurþorps.
Íþróttin er upprunnin í Finn-
landi en þar fóru skíða-
göngumenn að æfa sig með staf-
ina á sumrin. Tilburðirnir hjá
fólkinu á stafagöngunámskeiðinu
minntu líka nokkuð á skíðagöngu
þegar það var við æfingar á tún-
unum fyrir ofan Vík.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Stafaganga nýtur aukinna vinsælda
Námskeið
Eyjafjarðarsveit | Óttar Björnsson á
Garðsá í Eyjafjarðarsveit opnar málverka-
sýningu í Funaborg, félagsheimili hesta-
manna á Melgerðismelum, næstkomandi
laugardag kl. 13.30.
Á sýningunni eru
33 myndir og verð-
ur hún opin þennan
dag.
„Það má segja að
þetta sé úrvalið úr
því sem ég hef verið
að dunda við á und-
anförnum árum,
annars er ég búinn
að gefa mikið í af-
mælis- og brúð-
kaupsgjafir og það gerir yfirleitt mikla
lukku,“ sagði Óttar í samtali við fréttaritara.
Hann sagðist hafa byrjað snemma að teikna
og mála, einnig hafi hann sótt námskeið hjá
Erni Inga fjöllistamanni og fleirum.
„Búskapurinn hefur krafist mikillar
vinnu og þess vegna hef ég ekki haft eins
mikinn tíma og ég vildi til að mála en ég hef
notið hverrar stundar sem hefur gefist í
það.“
Sýnir úrvalið
í Funaborg
ÁKVEÐIÐ hefur verið að byggja nýjan
leikskóla á Laugarvatni. Skólinn verður
byggður við grunnskólann sem er við hús-
næði íþróttaskorar Kennaraháskólans.
Verið er að hanna leikskólann og verður
framkvæmdin boðin út í alútboði, að sögn
Ragnars Sæs Ragnarssonar, sveitarstjóra
Bláskógabyggðar. Reynt verður að nýta þá
þekkingu sem til er á slíkri framkvæmd
með því að fá vana verktaka til að bjóða í
byggingu hússins.
Um tuttugu börn eru í leikskóla á Laug-
arvatni, um helmingur börn nemenda við
Kennaraháskóla Íslands – íþróttaskor.
Bygging skólans er að sögn Ragnars liður í
því að búa sem best að skólanum og nem-
endum hans. Pláss verða fyrir þrjátíu nem-
endur í nýja leikskólanum. Hann verður
tengdur grunnskólanum og millibygging á
að nýtast báðum. Leikskólinn er í húsnæði
gamla Héraðsskólans og hefur Bláskóga-
byggð nú selt það húsnæði. Verður það af-
hent eftir ár enda á nýi skólinn að vera
tilbúinn 1. september 2005 samkvæmt
áætlunum sveitarstjórnar.
Nýr leikskóli
á Laugarvatni
SS sér um máltíðirnar | Ákveðið hefur
verið að SS annist skólamáltíðir í fjórum af
sjö grunnskólum Hafnarfjarðar. Skrifað
verður undir saming þess efnis í dag, að því
er fram kemur á vef vf.is. SS mun sjá um
máltíðirnar í Öldutúnsskóla, Hvaleyr-
arskóla, Setbergsskóla og Víðistaðaskóla.
Skólamáltíðir hafa verið í boði í hinum
þremur skólunum og verða með sama sniði
í vetur og verið hefur. Verða því heitar
skólamáltíðir í boði í hádeginu í öllum
grunnskólum bæjarins.