Morgunblaðið - 27.08.2004, Side 22
Nú býðst kínakál í nýjum pakkn-
ingum í verslunum. Kínakálið er
skorið í tvennt og helmingunum
sérpakkað. Í hverri pakkningu
verða 400 gr. og yfir og þannig
verður kínakálið selt í stykkjatali á
föstu verði, hálfur haus í hverri
pakkningu. Í fréttatilkynningu frá
Sölufélagi garðyrkjumanna kemur
fram að með þessu sé verið að koma
til móts við óskir um nýtt íslenskt
grænmeti í smærri pakkningum.
Kínakál er stökkt og ferskt og hent-
ar því einkar vel í salöt en einnig er
hægt að snöggsteikja það, gufu-
sjóða, baka eða gratínera, sjóða í
súpu, súrsa og margt annað. Til-
valið er að nota neðri hluta blað-
anna í ýmsa steikta rétti (t.d. kín-
verskan mat), pottrétti og fleira en
efri hlutann í hrásalat. Svo má líka
skera blöðin í ræmur og bera þau
fram með ídýfu. Gott er að krydda
kínakál t.d. með engifer, hvítlauk,
vorlauk og ýmsum
kryddjurtum.
Kínakál eins
og annað græn-
meti er nær-
ingar- og trefja-
ríkt þrátt fyrir
að innihalda fá-
ar hitaeiningar
eða aðeins 12 he
í hverjum 100 g.
Það vítamín sem
kínakálið er hvað
ríkast af er fólasín
en það er einmitt af skornum
skammti í fæði margra.
GRÆNMETI
Kínakál í nýjum umbúðum
Unnur Ágústa Sigurjóns-dóttir er hjúkrunarfræð-ingur og matgæðingurmikill. Hún hafði
spænska matargerð í hávegum þeg-
ar hún hélt glæsilegt kvöldverð-
arboð á heimili sínu í Reykholti í
Biskupstungum á björtu sum-
arkvöldi fyrir skemmstu.
Unnur var á fullu í eldhúsinu þeg-
ar gesti bar að garði og fór fimum
höndum um margvíslegt hráefnið.
En hún var ekki alveg tilbúin að
gangast við fullyrðingu eiginmanns
síns, Ragnars Sæs, um að hún væri
einn besti áhugakokkur landsins.
Ragnar gerði lítið úr framlagi sínu í
eldhúsinu en sagðist bestur í að
leggja til hrós og hvetja Unni til
dáða í matargerðinni.
„Ég neita því ekki að mér finnst
mjög gaman að elda og prófa nýja
rétti og þar sem við fjölskyldan er-
um nýkomin frá Mallorca er ég dálít-
ið upptekin af spænskri matargerð
þessa dagana. Ég keypti sérstök pa-
ellu-grjón og pönnu á Mallorca og
tók með mér heim til að geta búið til
paellu sem er einn sá réttur sem
Spánverjar eru hvað frægastir fyrir.
Í paellunni kennir ýmissa grasa og
þó að mikið sé af sjávarfangi í paell-
unni sem ég bjó til í kvöld, þá er þar
líka kjúklingur og beikon og í raun
má nota hvað sem er í þennan rétt
en gulu hrísgrjónin eru uppistaðan
og safranið er nauðsynlegt.“
Líkjör sem eflir hug og dirfsku
Unnur og Ragnar eru í sælkera-
klúbbi ásamt nokkrum vinum og þau
segja mjög gaman að vera í sælkera-
klúbbi. „Við eldum þá fyrir hvert
annað og tökum stundum fyrir ein-
hver ákveðin lönd, þema eða hráefni.
En við klúbbfélagarnir förum líka
stundum saman út að borða og okk-
ur finnst gaman að prófa nýja veit-
ingastaði. Næst á dagskrá hjá okkur
er uppskeruhátíð hjá Sigrúnu og
Ingólfi á Engi og ég efast ekki um að
þar verður margt gómsætt fram
borið.“ Unnur segist hafa gaman af
að kynna sér matargerð annarra
þjóða og lesa sér til um sögu og ann-
að sem liggur að baki réttum eða
vínum. „Til dæmis er spánski líkjör-
inn 43 sem ég nota í kaffið sem ég
ber fram á eftir paellunni, gerður
eftir þúsund ára gamalli uppskrift
og í honum eru 43 „efni“ og af því
dregur hann nafn sitt. Þessi líkjör
var notaður í hernaði og gefinn her-
mönnum áður en þeir héldu til or-
ustu, því drykkurinn átti að örva þá
til dáða á vígvellinum.“
Hér á eftir fylgja uppskriftir að
spænsku veislunni sem hófst með
þremur tapas-réttum.
Rækjukokteill
300 g stórar rækjur
300 ml vatn
safi af 2 lime ávöxtum
½ rauðlaukur smátt saxaður
1 msk. sojasósa
salt og pipar
1 lítil agúrka skræld, skorin langs-
um og kjarni tekinn úr
½ rauð paprika
½ búnt af fersku söxuðu dilli
tabasko-sósa eftir smekk
lime-bátar til skrauts
Blanda saman vatni, lime-safa,
rauðlauk, sojasósu, salti og pipar.
Setja rækjur út í og marinera þær í
ca. 30 mín. Bæta agúrkusneiðum,
paprikusneiðum og dilli út í. Setja í
skál, mala svartan pipar yfir og setja
nokkra dropa af tabasko-sósu yfir og
skreyta með lime-bátum.
Smjörsteiktir
hvítlaukssveppir
50 g smjör
15–20 sveppir
sítrónusafi, salt og pipar
2 hvítlauksrif
2–3 msk. söxuð steinselja.
Steikja sveppi í smjöri undir loki í
um 5 mín. Hræra í af og til. Setja
nokkra dropa af sítrónusafa yfir,
krydda með salti og pipar. Bæta
hvítlauknum út í og láta malla áfram
í um 2 mín. Bæta þá steinseljunni út í
og malla í 1 mín. Setja í skál og bera
réttinn strax fram.
Beikonvafðar döðlur
Vefja ½ lengju af beikoni utan um
döðlu og festa með tannstöngli og
setja í 225–250 °C heitan ofn þar til
beikonið hefur tekið góðan lit.
Aðalréttur
Paella Espanol
fyrir 6 manns:
4 kjúklingabringur
100 g beikon
300 g stórar rækjur
Ca 20 stk. kræklingur (fæst fros-
inn, farið eftir leiðbeiningum á pakka)
1 pk. sjávarréttakokteill (fæst tilbúinn
frosinn)
200 g hörpudiskur
½ lítri kjúklingasoð (2 Knorr teningar)
300 g hrísgrjón
1 stk. laukur
2 stk. tómatar
2 stk. hvítlauksgeirar (fínt saxaðir)
2 stk. paprikur, græn og rauð
1⁄4 tsk. mulið saffran
½ tsk. turmerik
1 búnt steinselja
1 dl grænar baunir, frystar
salt og pipar
olía til steikingar
Skerið kjúklingabringurnar í bita,
steikið og kryddið að smekk. Takið
til hliðar. Saxið lauk og hvítlauk og
steikið glæran. Bætið soðinu og
grjónunum út í og kryddið með safr-
an og turmeric. Sjóðið þar til grjónin
eru tilbúin, hrærið í af og til. Hitið
stóra pönnu og steikið beikonið.
Bætið fiskinum, nema kræklingi út í
ásamt smátt skornum tómötum og
paprikunni. Veltið vel saman. Endið
á að setja baunirnar, steinseljuna,
kjúklinginn og hrísgrjónin saman
við. Blandið vel. Bætið kræklingnum
út í og hitið undir loki eða í ofni í
nokkrar mínútur. Berið fram á pönn-
unni.
Salat
Rúkóla-salat, mízuna-salat og basil-
iku-blöð frá Engi í Biskupstungum.
Sherrytómatar, rauðlaukur og ka-
pers. Öllu blandað í skál, jómfrúar-
ólífuolíu og balsamik-ediki dreypt yf-
ir og skreytt með fagurfjólubláum
blómum blóðbergsjurtarinnar.
Svalandi sumardrykkur
„Létt Sangría“:
½ lítri spánskt rauðvín
½ lítri appelsínusafi úr blóðappels-
ínum
½ stk. appelsína í litlum sneiðum
½ grænt epli í bitum
½ banani í sneiðum
150–200 ml sprite eða fresca
Blandið öllu saman í stóra könnu
og fyllið upp með ísmolum.
Eftirdrykkur
Spánskt kaffi
Spánski líkjörinn
43,
sterkt kaffi,
þeyttur
rjómi og
kanelsyk-
ur.
Setjið
smáveg-
is af líkj-
örnum í
glært
glas eða
bolla, fyllið
upp með
kaffi og setjið
þeyttan rjóma of-
an á. Kanelsykri
stráð yfir í lokin.
MATARKISTAN|Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir býður til kvöldverðar
Spænskir sælkeraréttir
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Spænsk stemning við matarborðið.
Við borðið sitja vinstra megin (talið
innan frá): Gabríel, Katrín, Hólm-
fríður og Unnur, en hægra megin:
Ragnar Sær, Gunnar Freyr, Hilmar
Örn og Sonja Lehman.
Sumar, sveitasæla og
gómsætur matur.
Kristínu Heiðu Krist-
insdóttur var boðið til
kvöldverðar skammt frá
Krummaklettum.
khk@mbl.is
Unnur á fullu við elda-
vélina að matreiða.
Spænska kaffið, nammi og
sögufrægi líkjörinn 43.
DAGLEGT LÍF
22 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í gær fjölluðum við um gúrkukrydd
sem hefur reynst erfitt að henda
reiður á hvað sé. Þá fengum við vís-
bendingu um að líklega væri það
dillfræ sem átt væri við. Coletta
Bürling hafði samband í framhaldi
en hún telur afar ólíklegt að gúr-
kukrydd sé dillfræ. Hún heldur
frekar að átt
sé við plöntu
sem ber lat-
neska heitið
Borago offic-
inalis og er er-
lendis notuð
sem gúrku- og
salatkrydd og
þá bæði blá
blómin á plönt-
unni og blöðin.
Jurtin heitir á
þýsku gurkenkraut. Þetta er einær
planta sem dafnar vel á Íslandi og
m.a. í garðinum hennar.
MATUR
Meira um
gúrkukrydd