Morgunblaðið - 27.08.2004, Page 26
KB-BANKI, Landsbanki og SPRON eru
byrjaðir að afgreiða nýju íbýðalánin. Stutt
er í að Íslandsbanki geti byrjað að afgreiða
lánsumsóknir.
Samkvæmt upplýsingum frá Landsbank-
anum og Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis (SPRON), er mögulegt að afgreiða
strax íbúðalán til viðskiptavina. KB banki
hefur afgreitt mikinn fjölda umsókna.
Helena Jónsdóttir, forstöðumaður sölu-
og þróunardeildar KB banka, segir það
hafa tekið átta vikur og kostað mikinn tíma
að undirbúa þessa þjónustu fyrir við-
skiptavini. Hún fagni samkeppninni en það
hafi komið henni á óvart hve fljótt henni
var svarað. Vinnan bak við lánaskjöl sé
mikil, allar lagalegar hliðar þurfi að vera
ljósar sem og ferli umsókna innan bankans
og úrvinnsla þeirra, svo fátt eitt sé nefnt.
Undirbúningurinn felist því í mörgum
smáum atriðum sem þurfi að vera á hreinu.
Í raun hafi þetta ferli hafist við sameiningu
Kaupþings og Búnaðarbankans eins og
komið hefur fram.
Fólk gefi sér tíma
Heba S. Björnsdóttir, forstöðumaður ein-
staklingsviðskipta Íslandsbanka, segir
mjög stutt í það að bankinn geti afgreitt
lánsumsóknir viðskiptavina á þessum kjör-
um. Hún segir líka rétt fyrir fólk að gefa
sér tíma til að kynna sér þá kosti sem í boði
eru. Finna þurfi réttu leiðina til að fjár-
magna íbúðarkaup og fólki liggi ekkert
óskaplega á. Lánin séu komin til að vera.
Hún segir Íslandsbanka ekki eiga í nein-
um erfiðleikum með að fjármagna þessi lán.
Sérfræðingar bankans verði ekki í vand-
ræðum með þetta frekar en annað.
Ingólfur Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri e
Landsb
greiða
Þessi þ
hvern t
Aðsp
hendi o
þessa þ
líka á a
eignaþj
Eins
það ekk
Guðm
SPRON
íbúðalá
þarf að
fólk til
til að le
Bankar byrjaðir að afg
26 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Hægt er að greiða upp höf-uðstól peningalánaÍbúðalánasjóðs hvenærsem er á lánstímanum,
samkvæmt gildandi reglum, án sér-
staks uppgreiðslukostnaðar. Hins
vegar er heimildarákvæði í lögum
um að félagsmálaráðherra geti sett
uppgreiðslugjald á lánin sé fjárhag
sjóðsins stefnt í hættu. Vaxtakjör
þeirra íbúðalána sem bankar og
sparisjóðir fóru að bjóða upp á ný-
verið eru hins vegar í meginatriðum
bundin til loka umsamins lánstíma,
en almennt er hægt að greiða þau
upp með markaðskröfu viðkomandi
bréfs eins og hún er á hverjum tíma,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins.
Nýtt peningalánakerfi Íbúðalána-
sjóðs leysti húsbréfakerfið af hólmi
um mitt ár. Vextir á lánunum ráðast
af þeim kjörum sem fást í útboðum á
fjármagni fyrir sjóðinn hverju sinni.
Fimm milljarðar króna voru boðnir
út í sumar og var brúttóávöxtunar-
krafa í útboðinu 3,9% sem gerði það
að verkum að vextir á peningalánum
Íbúðalánasjóðs eru nú 4,5% að við-
bættu 0,6% vaxtaálagi sjóðsins.
Bankar og sparisjóðir hafa síð-
ustu daga kynnt íbúðalán sem geta
numið allt að 80% af verðmæti íbúð-
arhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri til 25 og 40 ára gegn
föstum 4,4% vöxtum. KB banki reið
á vaðið en hinir bankarnir og spari-
sjóðir fylgdu í kjölfarið. Vextirnir
eru fastir allan lánstímann og ekki
er hægt að greiða upp lánið á láns-
tímanum nema með uppgreiðslu-
álagi sem nemur muninum á vaxta-
kjörum lánsins og markaðsvöxtum.
Hægt er sem sagt að greiða bréfið
upp á markaðsvöxtum bréfsins á
hverjum tíma.
Tvær útfærslur eru fyrst og
fremst í gangi. Annars vegar eru
lánin bundin allan umsaminn láns-
tíma. Hins vegar er þau bundin í
fimm ár hverju sinni. Lánskjörin
eru þá til endurskoðunar, en jafn-
framt er hægt að greiða lánin upp
án sérstaks uppgreiðslugjalds á
þeim tímapunkti. Íbúðalán bank-
anna eru jafnframt óháð því að fast-
eignakaup fari fram þegar lánin eru
tekin
Kostir og gallar
Segja má að kostir og gallar séu
samfara föstum vöxtum til langs
tíma. Kostirnir eru vitanlega þeir að
vitað er allan lánstímann hverjir
vextirnir verða og tryggt er að þeir
hækka ekki frá því sem um var sam-
ið. Þar sem lánin eru verðtryggð
miðað við vísitölu neysluverðs er
auðvitað þegar ákveðin óvissa fyrir
hendi vegna verðlagsþróunarinnar í
framtíðinni. Gallarnir eru þeir að
ekki er hægt að komast undan
samningnum á lánstímanum með
því til dæmis að endurfjármagna
lánið með láni á lægri vöxtum sé
vaxtaþróunin með þeim hætti að
þeir séu í boði. Til þessa liggja auð-
vitað þau rök að bankarnir þurfa að
fjármagna lánveitingar sínar með
því að afla sér lánsfjár og þurfa því
að tryggja sér að lágmarki þau
vaxtakjör sem þeir bjóða að við-
bættu tilteknu álagi vegna kostnað-
ar af því að veita þjónustuna.
Í raun má segja að vextir þessara
lána bankanna séu ótrúlega lágir
miðað við það sem verið hefur í boði
hér á landi síðustu áratugina. Segja
má að bylting hafi orðið í þessum
efnum á skömmum tíma, og
sambandi benda á að lán
takmarkast ekki af öðru en
þess húsnæðis sem um er
og að vextir þeirra eru nok
en vextir þeirra lána sem h
hafa verið með hagstæðus
þ.e.a.s. lífeyrissjóðslána o
ekki horft til opinbera lána
Raunar má í þessu samban
á að fara þarf næstum tv
aftur í tímann, aftur til h
lánakerfisins sem sett var
irnar árið 1986, til að finna
lægri vexti í þessum efnum
lána í því kerfi, sem var
Bylting á mö
til íbúðalána
Aðstæður á íbúðalánamarkaði haf
ana í kjölfar aukinnar samkeppni á
Hjálmars Jónssonar kemur fram
hafi orðið í þessum efnum
Íbúðarlánamarkaðurinn hér á landi hefur tekið róttækum breyti
GYLFI Þ. GÍSLASON
Gylfi Þ. Gíslason, sem jarðsettur
verður í dag, naut á margan hátt sér-
stöðu í forystusveit jafnaðarmanna á
Íslandi um og upp úr miðri 20. öld-
inni. Hann var fíngerður mennta- og
menningarmaður, sem átti sér ann-
an bakgrunn en flestir þeir, sem hóf-
ust til forystu í Alþýðuflokknum
fram eftir síðustu öld. Hann
blómstraði í háskólasamfélaginu og
var frábær kennari. En hann átti
ekki síður heima í veröld menningar
og lista og gilti þá einu um hvaða
listgrein var að ræða. Hann hafði
augljósa hæfileika til tónsmíða eins
og falleg tónlist, sem hann skilur eft-
ir sig sýnir. Gylfi skaraði fram úr
sem háskólakennari og hann naut
sín jafn vel í hópi skálda og lista-
manna.
En hann varð stjórnmálamaður.
Og á þeim vettvangi skaraði hann
einnig fram úr. Gylfi Þ. Gíslason var
einn af fremstu forystumönnum ís-
lenzkra jafnaðarmanna á 20. öldinni
og einn áhrifamesti stjórnmálamað-
ur Íslendinga á sinni tíð.
Á árunum fyrir heimsstyrjöldina
síðari var Alþýðuflokkurinn flokkur
ríkisafskipta og hafta. Og einnig á
fyrstu árunum eftir stríð.
Það er alltaf hæpið að eigna einum
stjórnmálamanni eitthvað en óhætt
er að fullyrða, að Gylfi átti mikinn
þátt í, ef ekki mestan þátt, að breyta
stefnu Alþýðuflokksins á þessu sviði
á þann veg, að flokkurinn tók upp
stuðning við frelsi í viðskiptum og
athafnalífi gegn höftum og ríkisaf-
skiptum.
Um þessa stefnubreytingu segir
Gylfi sjálfur í bók sinni um Viðreisn-
arárin:
„Ég hafði aldrei verið marxisti.
Þegar á skólaárum mínum hafði ég
tekið að aðhyllast stefnu sósíal-
demókrata, jafnaðarmanna, eins og
hún var þá yfirleitt boðuð. Mikilvæg-
ustu náttúruauðlindir skyldu vera í
eign ríkisins, stórfyrirtæki og þá
einkum einokunarfyrirtæki skyldu
þjóðnýtt og framvindu efnahagslífs-
ins stjórnað með áætlunarbúskap,
jafnframt því, sem lögð væri áherzla
á velferðarsjónarmið með fram-
kvæmd víðtækrar félagsmálastefnu.
Smám saman breyttust skoðanir
mínar með líkum hætti og skoðanir
fjölmargra annarra jafnaðarmanna.
Við gerðum okkur ljóst, að þótt rík-
iseign auðlinda og fyrirtækja, sem
ella hefðu einokunaraðstöðu, geti
verið skynsamleg, sé ríkisvaldið yf-
irleitt ekki ákjósanlegur atvinnurek-
andi og ríkisafskipti af rekstri fyr-
irtækja ekki heppileg nema þar sem
hlutverk þeirra er t.d. það að tryggja
heilbrigða samkeppni og koma í veg
fyrir mengun. Markaðsbúskapur og
frjáls viðskipti eru líklegri til þess að
tryggja hagkvæma framleiðslu og
sem bezt lífskjör en miðstýrður
áætlunarbúskapur. Hins vegar þarf
ríkið að setja atvinnulífi og viðskipt-
um almennar leikreglur einmitt til
þess að tryggja heilbrigðu framtaki
réttlát og hagkvæm starfsskilyrði,
jafnframt því, sem opinberir aðilar
fylgja fram víðtækri félagsmála-
stefnu, sem tryggir ungum mennt-
un, öldruðum öryggi og öllum heilsu-
gæzlu, að ekki sé talað um nauðsyn
andlegs frelsis og lýðræðis í stjórn-
málum.“
Í samræmi við þessa stefnubreyt-
ingu átti Gylfi Þ. Gíslason mikinn
þátt í þeim efnahagsumbótum, sem
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks kom á á árunum 1959-
1971. Hann hafði forystu um að leiða
flokk sinn inn á nýjar brautir.
Tveimur áratugum síðar fylgdu tveir
aðrir forystumenn Alþýðuflokksins í
kjölfar hans, þeir Jón Baldvin
Hannibalsson og Jón Sigurðsson.
Á Viðreisnarárunum átti Gylfi líka
mikinn þátt í aðild Íslands að EFTA,
Fríverzlunarsamtökum Evrópu. Sú
aðild markaði þáttaskil í samstarfi
Íslendinga á alþjóðavettvangi á sviði
viðskipta. Aðildin að EFTA var mik-
ið pólitískt átak enda snerti sú aðild
beina hagsmuni íslenzks atvinnulífs
með mun alvarlegri hætti en EES-
samningurinn aldarfjórðungi
seinna. Þegar Ísland gekk í EFTA
voru enn mörg fyrirtæki starfandi,
sem höfðu byggzt upp í skjóli gamla
haftakerfisins.
Kannski var heimkoma handrit-
anna hápunkturinn á stjórnmálaferli
Gylfa Þ. Gíslasonar. Hann hafði unn-
ið ötullega að því máli, sem mennta-
málaráðherra. Auðvitað komu marg-
ir fleiri við þá sögu en það varð
hlutskipti Gylfa að taka við fyrstu
handritunum.
Í menntamálaráðherratíð Gylfa Þ.
Gíslasonar urðu miklar breytingar á
skólakerfi landsmanna og undir lok
ráðherratíðar hans voru lögð drög
að miklum breytingum, sem snertu
bæði landspróf og þróun framhalds-
skóla. Í þeim umræðum urðu nokkr-
ar sviptingar á milli Morgunblaðsins
og Gylfa Þ. Gíslasonar en frá þeim
skoðanamun gengu menn sáttir.
Gylfi gat sér ekki síður orð sem
menningarmálaráðherra en mennta-
málaráðherra og er óhætt að segja
að mikil reisn hafi einkennt störf
hans á því sviði.
Gylfi kom til virkra starfa í Al-
þýðuflokknum í kjölfar klofnings
flokksins 1938, sem átti eftir að hafa
örlagarík áhrif á íslenzk stjórnmál.
Á meðan hann starfaði í forystusveit
flokksins markaði þessi klofningur
Alþýðuflokkinn og stöðu hans. En
þegar aldurinn færðist yfir lá leið
gamalla samherja inn í Alþýðuflokk-
inn á nýjan leik.
Gylfi Þ. Gíslason hafði mikil áhrif
á unga menn í Alþýðuflokknum eins
og sjá má á minningarblaði, sem
Morgunblaðið gefur út í dag. Sumir
þeirra héldu uppi sambandi við hann
allt til loka.
Á milli Gylfa Þ. Gíslasonar og rit-
stjóra Morgunblaðsins var náið og
uppbyggilegt samband í marga ára-
tugi. Ekki eru margir mánuðir liðnir
frá því að síðasta slíkt samtal fór
fram í síma. Skoðanamunur um ein-
stök málefni lands og þjóðar skipti
þar engu máli. Að leiðarlokum þakk-
ar Morgunblaðið einlæg og gefandi
samskipti um langt árabil og flytur
Guðrúnu Vilmundardóttur og fjöl-
skyldu þeirra allri samúðarkveðjur
við lát þessa merka stjórnmála-
manns.